Morgunblaðið - 03.12.1991, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991
37
Mennmgar- og list-
viðburðir á Norð-
urlandi í desember
Menningarsaintök Norðlendinga, taka saman upplýsingar um
menningar- og listviðburði á Norðurlandi. Morgunblaðið mun
birta mánaðarlega yfirlit samtakanna um fyrirhugaða tónleika,
leiksýningar, myndlistarsýningar og aðra menningar- og listvið-
burði í fjórðungnum. Fyrsta menningardagskráin fer hér á eftir:
Tónleikar
Föstudagur 6. desember:
Tónlistarskóli Sauðárkróks kl.
20.00. Jólatónleikar nemenda.
Sunnudagur 8. desember:
Tónlistarskóli Sauðárkróks kl.
14.00. Jólatónleikar nemenda.
Miðvikudagur 11. desember:
Gamla skólahúsið Grenivík kl.
20.30. Jólatónleikar Tónlistarskóla
Eyjafjarðar.
Föstudagur 13. desember:
Akureyrarkirkja kl. 20.30. Lús-
íuhátíð Karlakórs Akureyrar-Geys-
is, stjórnandi Roar Kvam.
Tónlistarskóli Siglufjarðar kl.
20.30. Jólatónleikar nemenda.
Laugardagur 14. desember:
Félagsheimilið Melar í Hörgárdal
kl. 15.00. Jólatónleikar Tónlistar-
skóla Eyjafjarðar.
Miðgarður Skagafirði kl. 20.00.
Jólatónleikar Tónlistarskóla Skaga-
fjarðarsýslu.
Akureyrarkirkja kl. 20.30. Lús-
íuhátíð Karlakórs Akureyrar-Geys-
is. Stjórnandi Roar Kvam.
Sunnudagur 15. desember:
Reykjahlíðarkirkja kl. 14.00. Jól-
atónleikar Tónlistarskóla Mývatns-
sveitar.
Grundarkirkja kl. 14.00. Jólatón-
leikar Tónlistarskóla Eyjafjarðar.
1929, Akureyri kl. 17.00. Styrktar-
tónleikar Hljómskólans. Nemendur
og kennarar skólans. Skemmti-
kraftar, veitingar.
Þriðjudagur 17. desember:
Akureyrarkirkja kl. 18.00. A, B,
C, D-blásarasveitir Tónlistarskól-
ans á Akureyri. Stjórnendur Jacq-
ueline Simm, Gordon Jack og
Christopher Thornton.
Miðvikudagur 18. desember:
Félagsheimilið Hvammstanga kl.
21.00. Tónleikar Tónlistarfélags
V-Húnvetninga. Theodóra Þor-
steinsdóttir, sópran, Ingibjörg Þor-
steinsdóttir, píanó.
Fimmtudagur 19. desember:
Akureyrarkirkja kl. 20.00. Jóla-
tónleikar strengjadeildar Tónlistar-
skólans á Akureyri.
Sunnudagur 29. desember:
Akureyrarkirkja kl. 17.00. Pass-
íukórinn, stjórnandi Roar Kvam.
Aðventukvöld
Fimmtudagur 5. desember:
Breiðabólstaðarkirkja kl. 21.00.
Aðventukvöld Vesturhóps- og
Vatnsnessókna.
Sunnudagur 8. desember:
Sauðaneskirkja kl. 15.00.
Akureyrarkirkja kl. 20.30. Kór
Akureyrarkirkju, Óskar Pétursson,
tenór, Gordon Jack, trompet, stjórn-
andi Björn Steinar Sólbergsson.
Glerárkirkja kl. 20.30. Kór Gler-
árkirkju, Hólmfríður Benedikts-
dóttir, sópran. Strerigjasveit.
Stjórnandi Jóhann Baldvinsson. .
Grundarkirkja kl. 20.30. Kór
Grundarsóknar, nemendur úr Tón-
listarskóla Eyjafjarðar, stjórnandi
Sigríður Schiöth.
Siglufjarðarkirkja kl. 20.30.
Kirkjukór Siglufjarðar, barnakór og
kvennakór Siglufjarðar. Stjórnend-
ur Antony Raley og Elías Þorvalds-
son.
Þriðjudagur 10. desember:
Hóladómkirkja kl. 21.00. Ræðu-
maður Sveinbjöm Eyjólfsson, skól-
astjóri. Kór Hóladómkirkju, Pétur
og Sigfús Péturssynir. Stjórnandi
Rögnvaldur Valbergsson.
Miðvikudagur 11. desember:
Hvammstangakirkja kl. 20.30.
Ræðumaður Jónas Þórisson,
framkv.stj. Hjálparstofnunar kirkj-
unnar. Kór Hvammstangakirkju,
stjórnandi Helgi Olafsson.
Fimmtudagur 12. desember:
Grenjaðarstaðarkirkja kl. 21.
Ræðumaður sr. Jónas Gíslason,
vígslubiskup. Kór Grenjaðarstaðar-
kirkju, nemendur tónlistardeildar
Hafralækjarskóla. Stjórnandi
Dagný Pétursdóttir.
Munkaþverárkirkja kl. 20.30.
Kór Munkaþverár- og Kaupangs-
kirkju, nemendur úr Tónlistarskóla
Eyjaíjarðar. Stjórnandi Þórdís
Karlsdóttir.
Föstudagur 14. desember:
Kaupangskirkja kl. 20.30. Kór
Munkaþverár- og Kaupangskirkju,
nemendur úr Tónlistarskóla Eyja-
fjarðar. Stjórnandi Þórdís Karls-
dóttir.
Grenivíkurkirkja kl. 20.30. Kór
Grenivíkurkirkju, nemendur úr
Tónlistarskóla Eyjafjarðar, stjórn-
andi Björg Sigurbjörnsdóttir.
Sunnudagur 15. desember:
Húsavíkurkirkja kl. 15.00.
Ræðumaður Halldór Blöndal, ráð-
herra. Kór Húsavíkurkirkju, barna-
kór, hljóðfæraleikur, orgel og píanó.
Juliet Faulkner. Stjórnandi Robert
Faulkner og Line Werner.
Reykjahlíðarkirkja kl. 21.00. Kór
Reykjahlíðarkirkju. Ólöf Kolbrún
Harðardóttir, sópran. Ásmundur
Kristjánsson, tenór. Stjórnandi Jón
Árni Sigfússon.
Svalbarðsstrandarkirkja kl.
20.30. Kór Svalbarðsstrandar-
kirkju, nemendur úr Tónlistarskóla
Eyjafjarðar. Stjórnandi Gunnar
Gunnarsson.
Akureyrarkirkja kl. 20.30. Jóla-
söngvar fjölskyldunnar. Kór Mennt-
askólans á Akureyri og hljóðfæra-
leikarar. Stjónandi Hólmfríður
Benediktsdóttir.
Þriðjudagur 17. desember:
Stórutjarnarskóli kl. 21. Að-
ventukvöld Ljósavatnsprestakalls.
Ræðumaður sr. Pétur Þórarinsson,
einsöngur og kórsöngur.
Fimmtudagur 19. desember:
Laufáskirkja kl. 21.00. Kórsöng-
ur og nemendur tónlistarskóla Eyj-
afjarðar.
Leiksýningar
Bifröst, Sauðárkróki, 3. og 4.
desember kl. 20.30. 6. des. kl.
21.00. 8. des. kl. 15.00:
Leikfélag Sauðárkróks sýnir
„Köttur á heitu blikkþaki” eftir
Tenesse Williams. Leikstjórn Andr-
és Sigurvinsson.
Nýja Bíó, Siglufirði, miðvikudag-
ur 4. desember kl. 20.30:
Frumsýning „Margt býr í þok-
unni” eftir W. Diner og W. Morem.
Leikstjóri Ásgeir Sigvaldason. Sýn-
ingar 6. des. og 7. des. kl. 20.30.
Skúlagarður, laugardaginn 7.
desember kl. 21.00. Félagsheim-
ilið Raufarhöfn, sunnudaginn 8.
deseinber kl. 21.00.
Leikklúbburinn á Kópaskeri sýnir
„Aldrei er friður” eftir Andrés Ind-
riðason. Leikstjóri Sigurður Hall-
marsson.
Gagnfræðaskólinn á Akureyri,
sunnudaginn 8. desember kl.
14.00 og 17.00.
Barnaleikhópurinn „Norðurljós”,
stjórnandi Örn Ingi.
Listsýningar
Safnaðarheimilið Akureyri, 3.
og 4. des. kl. 14.00-19.00. 5.-8.
des. kl. 14.00-21.30.
Kristjana F. Arndal, myndlist.
Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju, frá 10. desember.
„Daglegt líf í Kangaamiút”. Sýn-
ing á lit-ljósmyndum eftir Jytte og
Preben Harkamp.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
18 milljónir fyrir þurrkaða hausa
Fiskvinnslustöð KEA í Hrísey hefur gert sér um 18 milljóna króna verðmæti úr þurrkuðum hausum á
þessu ári, en gert er ráð fyrir að framleiðslan í ár verði um 180 tonn. Á myndinni má sjá þá Kjartan og
Sigurð sem vinna við þurrkun hausanna hjá Fiskvinnslustöðinni.
Nefnd um framtíð Kristnesspítala:
Kristnesspítali verði
að sjálfstæðri stofn-
un um næstu áramót
NEFND sem heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst síðastliðnum til að
gera tillögur um tilfærslu Kristnesspítala frá Ríkisspítölunum og
að koma á starfstengslum við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri hef-
ur skilað tillögum, en í þeiin er gert ráð fyrir að Kristnesspítali
verði gerður að sjálfstæðum spítala með sérstaka stjórn og fjárveit-
ingu. I nefndinni voru Ingimar Sigurðsson, skrifstofustjóri heilbrigð-
isráðuneytis, Bjarni Arthúrsson framkvæmdastjóri Kristnesspítala,
og Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri FSA.
Auk þess sem gert er ráð fyrir eiga að gæta um framkvæmd heil-
að spítalinn verði að sjálfstæðri
stofnun, segir í tillögu nefndarinnar
að leita verði samkomulags við hlut-
aðeigandi sveitarfélög, hugsanlega
héraðsnefnd Eyjafjarðar, um starf-
semi sjálfstæðs spítala og þátttöku
í fjárfestingarkostnaði. Þá kemur
fram í tillögunni að ný stjórn taki
til starfa um næstu áramót og að
efnt verði til formlegs samstarfs
milli Kristnesspítala, FSA, heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri, öldr-
unarþjónustu Akureyrar og annarra
sem hlut eiga að máli og hagsmuna
Yélsleða- og
útilífskynning
VÉLSLEÐA- og útilífskynning
verður haldin í íþróttaskemm-
unni á Oddeyri dagana 7. og 8.
desember næstkomandi.
Sýning verður á vélsleðum, út-
búnaði og útilífsvörum, björgunar-
sveitir munu kynna útbúnað sinn
og kynning og þjálfun verður á
nýj u G .P. S.-staðsetningartækj un-
um. Nýjar árgerðir vélsleða verða
sýndar auk jeppa og 4x4 jeppa og
þá geta sýningargestir litið á sleða-
kerru og tjaldvagna á skíðum.
Tröll og jólasveinar verða á vappi
um sýningarsalinn og börnum verð-
ur boðið upp á ferðir í aftanísleða.
Árshátíð Landssambands
íslenskra vélsleðamanna verður
haldin í Sjallanum laugardags-
kvöldið 7. desember í tengslum við
þessa sýningu.
(FréttatilkynniiiK)
brigðisþjónustu á svæðinu.
Kristnesspítali hefur heyrt undir
stjórn Ríkisspítala sem situr í
Reykjavík og þótti nefndarmönnum
rétt að stjórn spítalans færðist heim
í hérað. Mikil uppbygging hefur
orðið í starfsemi spítalans og breyt-
ing á starfsemi, en mikil áhersla
er nú lögð á endurhæfingu þar.
Nauðsynlegt þótti því að heima-
menn stýrðu þessum málum og
hefðu þau til umfjöllunar, en ekki
aðilar sem lítið koma nærri.
Varðandi tillögugerðina stóð
nefndin frammi fyrir þremur kost-
um, í fyrsta. lagi óbreytt ástand,
þ.e. að spítalinn yrði áfram undir
stjórn Ríkisspítala, í öðru lagi til-
færsla þaðan og að komið yrði á
starfstengslum við FSA og í þriðja
lagi að spítalinn yrði gerður að sjálf-
stæðri stofnun sem starfaði í sam-
vinnu við ýmsa aðila á svæðinu á
svipuðu sviði.
Valdi nefndin síðasta kostinn,
enda þótti rekstri spítalans betur
borgið í höndum þeirra sem hafa
með höndum stjórn heilbrigðismála
á svæðinu. Þá þykir einnig kostúr,
að ekki þarf að hrófla við starfs-
fólki vegna breytinganna, en það
yrði áfram ríkisstarfsmenn í sam-
ræmi við breytta verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga.
Ef tillagan verður samþykkt
munu sveitarfélögin í Eyjafirði
verða eigendur 15% fasteigna spít-
alans og 15% búnaðar, en lagt er
til að ekki komi til sérstakt end-
urgjald fyrir það sem þegar er kom-
ið upp, enda hafi ríkið aðeins lagt
fram fé fyrir um helmingi kostnað-
ar við uppbyggingu upphaflegra
fasteigna spítalans, en hitt kom sem
framlög heimamanna. Eðlilegt sé
hins vegar að sveitarfélögin greiði
15% þess fjárfestingarkostnaðar
sem til fellur í framtíðinni verði
spítalinn sjálfstæð stofnun.
BATUR TIL SOLU
Til sölu er Bjargey II, EA-87, mjög vel búin tækjum en
kvótalaus. Upplýsingar í síma 96-73132.