Morgunblaðið - 03.12.1991, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991
Fyrirlestur
um kenning-
ar Webers
í KVÖLD, þriðjudagskvöldið 3.
desember, heldur Ágúst Hjörtur
Ingþórsson heimspekingur, fyr-
irlestur á vegum félagsins í Lög-
bergi, Háskóla íslands, stofu 101.
Fyrirlesturinn nefnist „Járnbrúr
skrifræðis og skynsemi” og fjall-
ar um kenningar þýska heim-
spekingsins og félagsfræðingsins
Max Webers.
í fyrirlestrinum mun Ágúst
_ gagnrýna kenningar Webers, sér-
staklega hugmyndir hans um hlut-
verk náðarleiðtoga í lýðræðisríkj-
um. Að fyrirlestrinum loknum gefst
áheyrendum tækifæri til að koma
með fyrirspurnir.
Ágúst Hjörtur Ingþórsson lauk
BA-prófi í heimspeki frá Háskóla
íslands árið 1986 og MA-prófi frá
Ottawa-háskóla í Kanada árið
1988. Hann vinnur nú að doktors-
ritgerð um stjórnmálaheimspeki við
sama háskóla.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20.00 og
er aðgangur ókeypis og öilum op-
inn.
(Fréttatilkynning)
Á ---------------
Bókmennta-
vaka Hring-
skugga
I kvöld þriðjudaginn 3. des-
ember efnir Bókmenntafélagið
Hringskuggar til bókmennta-
vöku þar sem aðallega verða
kynntar nýjar bækur.
Vakan fer fram í samkomusai á
jarðhæð Alþýðuhússins, Hverfis-
götu 8-10, og er gengið inn frá
Ingólfsstræti. Eftirtalin skáld munu
lesa úr verkum sínum: Elísabet Jök-
ulsdóttir, Margrét Lóa Jónsdóttir,
Baldur Oskarsson, Jón Oskar og
Pjetur Hafstein Lárusson. Jafnt
félagsmenn sem aðrir eru velkomn-
ir. Aðgangseyrir er 300 kr.
Morgunblaðið/Frímann Ölafsson
Fundarmenn í húsi björgunarsveitarinnar í Grindavík. Talið fv. Sigurður M. Ágústsson, Gunnar
Jóhannesson, Gunnlaugur Dan Ólafsson, Eðvarð Júlíusson, Gunnar Tómasson, Sigmar Eðvarðsson,
Óskar Sævarsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Kristmundur Ásmundsson, Jón Sigurðsson, Bjarni Andr-
ésson og Ólafur Arnberg Þórðarson.
Fundur um öryggismál 1 Grindavík:
Aðgerðir samræmdar
BJÖRGUNAR- og slysavarnadeildin Þorbjörn hafði nýverið for-
göngu um að halda fund með lögreglunni í Grindavík, formanni
Rauða kross deildarinnar í Grindavík, lækni og bæjarfulltrúum um
samræmdar aðgerðir þessara aðila í öryggismálum.
E’yrsta málið sem komst á dag-
skrá var um nauðsyn þess að leggia
veg um Hópsnes sem væri fær
sjúkraflutningabifreið en núver-
andi vegur er því sem næst ófær
henni. Bæjarfulltrúar tóku mjög
vel í að leggja veg um nesið og var
ákveðið að fela byggingarfulltrúa
að gera könnun á því hvernig væri
hagkvæmast að vinna það verkefni.
Þá var rætt um boðskiptaleiðir
björgunarsveitar og iögreglu og
kom þar fram að lögreglan fékk
ekki að vita um strandið við Hóps-
nes fyrr en 20 mínútum eftir að
björgunarsveitin var kölluð út og
sagði Sigurður M. Ágústsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn að það
væri mjög slæmt. Eftir að ný sigl-
ingarlög tóku gildi fyrir nokkrum
árum er krafa um iögreglurann-
sókn í öllum sjóslysum og því væri
það slæmt fyrir lögreglu að komast
ekki með fyrstu mönnum á vett-
vang til að vinna að rannsókn.
Sigmar Eðvarðsson formaður
björgunarsveitarinnar sagði þá að
úr því þyrfti að bæta og koma
þyrfti á öruggum boðskiptum milli
þessara aðila. Gunnlaugur Dan
Olafsson formaður Rauða kross
deildar Grindavíkur kom með þá
tillögu að gert yrði skipurit sem
unnið yrði eftir við sjóslys og með
því tryggt að allir aðilar sem hlut
eiga að máli vissu um atburðinn
því sem næst á sama tíma. Þá lýsti
Sigmar því yfir að nauðsynlegt
væri að hafa aðgang að lækni og
helst þannig að hann væri í för
með björgunarsveitarmönnum á
vettvang. Menn voru sammála að
samræma þyrfti aðgerðir ailra að-
ila og var ákveðið að fulltrúar þess-
ara aðila mundu ræða um það
hvernig því væri best fyrir komið.
Ólafur Arnberg Þórðarson út-
gerðarmaður sagði að huga þyrfti
vel að siglingarljósum í og við
Grindavíkurhöfn því margt hefur
breyst í bænum á undanförnum
árum og nú væri svo komið að sum
innsiglingarljós falla inn í ljósadýrð
bæjarins og valda skipstjórnar-
mönnum vandræðum og undir-
strikaði mikilvægi þess að þessi
mál væru í góðu lagi. Fundarmenn
tóku undir þessa skoðun og hug-
mynd kom fram að leita til Vita-
og hafnamálastjórnar til að gera
úttekt á þessum málum og koma
með tillögur um úrbætur.
Fram kom að björgunarsveitar-
menn vinna undir miklu álagi og
vilja oft gleymast í umræðunni eft-
ir á. Gunnar Tómasson formaður
slysavarnadeild Þorbjarnar sagði
að á vegum Slysavarnaféiags Is-
lands starfaði sálfræðingur sem
veitir björgunarsveitum stuðning
eftir slík slys og mundi væntanlega
hitta sveitarmenn í Grindavík.
FÓ
Egill með út-
gáfutónleika
1 KVÖLD, þriðju-
daginn 3. des-
ember, klukkan
21, verða útgáfu-
tónleikar Egils
Ólafssonar. í
byrjun október
sendi hann frá
sér fyrstu sóló-
plötuna sína,
Tifa, Tifa.
Á tónleikunum
mun Egill flytja efni af nýútkom-
inni plötu auk þess sem þekkt og
áður óútgefin lög fljóta með.
Urval þekktra hljóðfæraleikara
sjá um flutninginn með Agli, þ. á m.
Björgvin Gíslason, Haraldur Þor-
steinsson, Ásgeir Óskarsson, Szym-
on Kuran, Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Berglind Björk og Þorsteinn Magn-
ússon.
Forsaia aðgöngumiða verður í
Borgarleikhúsinu og verslunum
Skífunnar.
Sjöttu háskóla-
tónleikarnir
SJÖTTU háskólatónleikar vetr-
arins verða í Norræna húsinu,
miðvikudaginn 4. desember
klukkan 12.30.
Þá verður flutt Háskólasvíta eftir
Gunnar Reyni Sveinsson. Flytjend-
ur eru Björn Thoroddsen, gítar,
Reynir Sigursson, víbrafónn, Þórð-
ur Högnason, bassi, Pétur Grétars-
son, trommur og stjðrnandi er
Gunnar Reynir Sveinsson.
Aðgangur er 300 krónur en 250
krónur fyrir handhafa stúdentaskír-
teinis.
----' » ♦ ♦----
Síðasta sj/n-
ingavika Astu
Síðasta sýnir.garvika er hafin á
verkum Ástu Eyvindardóttur í Kaffi
17 í verzluninni 17 við Laugaveg.
Þá hefur Ásta hengt upp nokkrar
myndir í galleríi á Baldursgötu 11
í tengslum við veitingastaðinn Þrír
frakkar hjá Úlfari.
HER KOMA GOÐAR FRETTIR
1.-4.
desember
Jarlinn
*■ 1/ F I T I N a A T n F A ■
Jarlínn
*■ v f i t i n a a <: r n f a ■
SPRENGISANDI VIÐ BUSTAÐAVEG
KRINGLUNNI