Morgunblaðið - 03.12.1991, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991
43
Albína Thordarson
ala við björgunarstörf. Ekki eru 12
farþegasæti í Dauphin-þyrlu Land-
helgisgæslunnar þó að þau komist
í hana. Bandarískur þyrluflugmað-
ur, sem lengi flaug björgunarþyrl-
um fyrir flotann, sagði eitt sinn við
mig: „Það hefur aldrei komið fyrir
að skipbrotsmaður hafi afþakkað
björgun vegna þess að hann hafi
þurft að sitja á gólfinu á leiðinni
heim.” Það sem björgunarþyrla þarf
fyrst og fremst að hafa er afl, burð-
argeta og stöðugleiki í vondum
veðrum.
Enginn hefur séð ástæðu til að
geta þess að Sikorsky Jayhawk og
Black Hawk geta athafnað sig við
björgunarstörf í 11 vindstigum. Það
var krafa bandarísku strandgæsl-
unnar við hönnun vélanna. í hvaða
vindhæð getur Super Puma athafn-
að sig? Það hefur hvergi komið
fram. Fátt skiptir meira máli við
björgunarstörf á íslandi og íslands-
miðum.
Ef við tökum fullt mark á yfirlýs-
ingum íslenskra sérfræðinga í
fjölmiðlum undanfama daga hljót-
um við að kenna í bijósti um banda-
rísk stjómvöld. Þau gera út þyrlur
í þúsundatali, fleiri en nokkur ann-
ar aðili á Vesturlöndum. Bandarísk
stjómvöld frétta nú frá íslenskum
sérfræðingum að Sikorsky-björgun-
arþyrlur, sem þau töldu þær öflug-
ustu í heimi, séu óbrúklegar til
björgunarstarfa á sjó. Það hlýtur
að vera þeim mikið áhyggjuefni að
vita af tugum eða hundruðum af
þessum þyrlum á flugi yfir sjó á
jafn ólíkum stöðum og Ástralíu,
Spáni og Alaska. Útlendingum lær-
ist vonandi loksins að spyija ís-
lenska sérfræðinga ráða áður en
þeir festa kaup á hátæknibúnaði
eins og þyrlum.
í vor skiluðu sérfræðingar skýrsl-
ur eftir kynnisferð til þriggja landa
á vegum fjármálaráðuneytisins. í
henni kom fram ýmsar staðhæfing-
ar um eiginleika og getu þeirra
þyrlutegunda sem þeir kynntu sér
í ferðinni. Það er umhugsunarvert
að 10. febrúar 1984 sendu sömu
sérfræðingar frá sér skýrslu um
þyrlukaup sem lögð var til grund-
vallar við kaupin á Dauphin-þyrlu
Landhelgisgæslunnar. Sem dæmi
um vinnubrögðin á þeirri skýrslu
má nefna, að þar segir að Dauphin
þyrlan geti sótt 7 skipbrotsmenn
160 mílur á haf út og flutt þá til
lands. Höfundum skýrslunnar var
þá þegar bent á að þessi staðhæfing
væri fjarri lagi, en þær ábendingar
voru hafðar að engu. Ekki er ýkja
langt síðan að fréttir bárust um það
frá Landhelgisgæslunni að þessi
sama þyrla hefði sótt einn mann
rúmlega 150 mílur á haf út og hefðu
rnennirnir ekki mátt vera fleiri til
þess að hún næði til baka. Það
væri lærdómsríkt fyrir þá, sem
þurfa að treysta nýju skýrslunni,
að lesa skýrsluna frá 1984.
Eftir þessar athugasemdir er
kominn tími til að benda á nýjar
og betri leiðir. Hvernig væri að sér-
fræðingar, sem dæma nýju þyrlur
varnarliðsins óhæfar til björgunar-
starfa við íslandsstrendur, fengju
að prófa þær hér við land? Væri
ekki rétt að leita eftir því að allir
flugmenn Landhelgisgæslunnar
fengju að prófa að fljúga þeim við
okkar aðstæður? Hvernig væri að
finna ísingu á íslandi og sannreyna
hvort þyrlan hefur góðan afísingar-
búnað eða ekki. Það skilar meiru
en að velta því fyrir sér hvað
„known moderate icing” eða „for-
cast moderate icing” þýðir á ís-
lensku. Ég þykist vita að sérfræð-
ingum okkar standi öll þessi tæki-
færi til boða, ef um er beðið.
- Þetta er leið aukinnar þekkingar
og leið til að eignast hlutdeild í
reynslu annarra þjóða. Ekkert nema
ný þekking skilar okkur fram á
veginn. Ef við höfum lag á að sam-
eina þekkingu annarra þeirri
reynslu, sem til er í landinu, getur
okkur gengið vel.
Eftir tíu ára reynslu í þyrlu-
rekstri, hef ég mikla trú á þyrlum
til björgunarstarfa. Ég hef líka
mikla trú á björgunarsveitum lands-
ins. Það er aðeins þegar allir vinna
saman, sem besti árangur næst.
Enginn getur sagt fyrirfram eða
eftir á hvað hefði gefist best. Þegar
hætta skapast, á að tjalda öllu, sem
til er.
Vonandi tekst að finna þessum
háværu þyrlumálum farsælan far-
veg án þess að menn láti tilfinning-
ar bera skynsemina ofurliði.
Höfundur hefur stundað
þyrlurekstur 110 ár og er
umboðsmaður Sikorsky hér á
landi.
-----------------------1 |
TOSHIBA ORBYLGJUOFNAR I
FYRIR VEITINGASTAÐI I |
OG MÖTUNEYTI j |
I
Einar Farestveit&Co.hff.
BORGABTUNI28, SÍMI622901.
LdA 4 stoppar vM dyroar
ER1500ET
sterkir og kraftmiklir ofnar
TOSHIBA
KAFFI MARINQ góöa kaffið
í rauðu dósunum frá MEXÍKÓ
Skútuvogi 10a -104 Reykjavík - Pósthólf 4340 - Sími 686700 - Telefax 680465
OBKIN/SlA