Morgunblaðið - 03.12.1991, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1991
45
Bernódus Örn Finn-
bogason — Minning
2. nóvember síðastliðinn vaknaði
ég við að bankað var á herbergis-
hurðina hjá mér.
Ég vissi það þá að eitthvað hafði
gerst sem ég kæmist engan veginn
hjá að heyra. Það reyndist vera til-
kynning um andlát bróður míns
Bernódusar Arnar Finnbogasonar
og skólabróður míns' Ágústar Helga
Markússonar. Það fá engin orð lýst
þeirri tilfinningu sem um mig fór.
Minn eini og besti besti bróðir sem
var okkur öllum svo kær kemur
aldrei aftur heim til okkar. Nei, það
gat bara ekki verið satt. Mér varð
hugsað til kvöldsins áður, Berni var
svo ljóslifandi fyrir mér að þetta
gat bara ekki verið raunveruleikinn.
Og Ágúst hann var bara að koma
heim í frí frá Reykjavík og við höfð-
um öll verið saman kvöldið áður svo
ung og lífsglöð og uppfull af fram-
tíðardraumum og nú nokkrum
klukkustundum síðar eru þeir farn-
ir á vit feðranna, farnir að þjóna
öðru hlutverki í þessari veröld, að
hugsa sér hvað maður er lítil í þessu
lífi og viðkvæmur.
Ágúst var skólabróðir minn frá
því við vorum 6 ára og leikfélagi
er við vorum börn. Hans sakna ég
sárt og bið góðan Guð að blessa
minnningu hans.
Það ætti ekki að vera erfitt að
skrifa minningargrein um bróður
sinn sem jafnframt var minn besti
vinur og óskabróðir, en ég á bara
mjög erfitt með að velja úr því sem
ég hef að segja, ég gæti skrifað
heila bók'. Við erum 5 systkinin
Guðrún Benný, ég Elísabet Anna,
Ingibjörg, þar á eftir kom Bernódus
Örn og yngst er Arndís Aðalbjörg.
Þessi stóri hópur liefur alla tíð ver-
ið mjög samheldin og traustur, því
er það geysileg sorg að missa einn
svo skyndilega úr hópnum, eftir er
skarð sem er svo stórt, svo stórt
og djúpt og breitt, sem enginn get-
ur fyllt upp í.
Við áttum yndisleg 16 ár saman
og þakka ég Guði fyrir það að hafa
átt yndislegan heilbrigðan bróðir
sem var lifsglaður og kátur og sá
björtu hliðarnar á öllum málum.
Hann var duglegur og vinnuglaður
og þau verkefni sem hann tók sér
fyrir hendur kláraði hann með sóma
og var strax farinn að huga að því
næsta.
Sennilega er margt verra en
dauðinn. Eg hefði ekki getað hugs-
að mér að horfa upp á drenginn
minn meðvitundarlausan og lamað-
an eftir svona slvs, þá er nú piinn-
ingin um hann hressan og kátan,
ljúfari og meðvitundin um það að
honum líði nú vel róar mig.
Berni var vinamargur og komu
krakkarnir mikið heim til okkar, ég
veit að það eru margir sem sakna
hans sárt, og bara vona að þau
hætti ekki að koma til okkar því
það er ennþá sárara að missa þá
líka.
Ekki leið á löngu þar til okkur
barst önnur sorgarfrétt, Magnús
Ingi Iialldórsson eiginmaður Guð-
bjargar Hjartardóttur, móðursystur
minnar lést af slysförum á Breiða-
dalsheiði 14. nóvember sl. Það voru
okkur þungbær tíðindi, annar góður
drengur fallinn frá. Það kom upp í
huga mér var hve frekur og grimm-
ur þessi heimur er, það er svo
merkilegt hvað almættið er eigin-
gjarnt að hrifsa alla þessa góðu
menn svona frá okkur, og í svona
litlu samfélagi, eins og Bolungai’vík
er þetta ansi stór skammtur sem
við höfum þurft að þola undanfarið,
5 menn á 10 mánuðum, það er svo
sannarlega stór skammtur.
Ég vil biðja góðan Guð að blessa
minningu Magnúsar heitins og
styrkja Guggu frænku, litlu frænd-
ur mína og frænku, í sorg þeirra.
Það er sárt að sakna, það er
gjaldið sem við greiðum fyrir sáran
missi. Ég vil þakka öllum þeim sem
hafa stutt okkur fjölskylduna í sorg
okkar. Góður Guð blessi Bernódus
bróður minn sem við syrgjum öll
svo_ sárt.
Ástar- og saknaðarkveðjur frá
„stóru systur”.
Elísabet Anna Finnbogadóttir
Jóhann Björnsson,
myndskeri — Minning
Mig langar með fáeinum orðum
að minnast Jóhannesar Björnsson-
ar, föðurafa dóttur minnar, Guð-
bjargar Ásu. Hún dvaldist mörg
sumur hjá Magneu og Jóhanni á
Húsavík og var vafin ást og um-
hyggju.
Ékki má gleyma Guðnýju, móður
Jóhanns. Hún var sérstaklega hlý
og elskuleg kona og höfðu þau þrjú
mikil áhrif á litla barnssál, sem hún
býr að alla ævi. Betri ömmu, afa
og langömmu hefði hún vart getað
eignast, svo kærleiksrík voru þau
öll.
Alla tíð hefur verið mjög náið
samband á milli þeirra og heim-
sóknir tíðar, eftir að Magnea og
Jóhann fluttu til Reykjavíkur. Það
var dóttur minni ávallt ánægjuefni,
er hún gat rétt þeim hjálparhönd,
eins var rneð ömmu hennar og afa,
þau voru ávallt tilbúin að gefa af
sér þegar á þurfti að halda, traust
og sterk.
Það var unun að sjá hve þau hjón
voru samhent í einu og öllu. Þau
báru virðingu hvort fyrir öðru og
gætu margir lært af þeirra ástríka
hjónabandi. Þau gáfu öllum svo
mikið af sjálfum sér. Manni leið svo
yndislega vel í návist þeirra.
Guð styrki ástvini Jóhanns sem
sakna hans mjög sárt. Ég vil þakka
honum fyrir þá vináttu og um-
hyggju sem hann sýndi okkur alla
tíð. Sofi hann rótt í faðmi guðs.
Ása Andersen
★ Samstarf fyrirtækja ★
Námskeið um fyrirtækjanet,
fyrirtækjaform framtíðarinnar,
9. desember 1991, frá kl. 8.45 til 16.45
Efni:
íslensk áætlun um fyrirtækjanet.
Kristján Jóhannsson, rekstrarhagfræðingur.
Erlend reynsla og hagnýtar leiðbeiningar
um samstart Ivrtrtmkja \íynrtækjaaa\um.
Klaus Möller Hansen, ráðgjafi hjá Price
Waterhouse í Danmörku.
Lagaleg atriði við samstarf fyrirtækja,
félagaréttur og samstarfssamningar.
Jóhannes Sigurðsson, hdl.
Samstarfssálfræði og trúnaðartraust við
samstarf fyrirtækja.
Jón S. Karlsson, viðskipta- og sálfræðingur.
Verkefnisstjórnun við samstarf fyrirtækja.
Tryggvi Sigurbjarnarson, ráðgjafa-
verkfræðingur.
Dæmi um islenskt fyritækjanet.
Þátttakendur:
Námskeiðið er einkum ætlað starfsmönnum
fyrirtækja, sem hyggja á eða eru þátttakend-
ur í samstarfi fyrirtækja, einnig þeim, sem
Siarfa \ ufx'muM uu, hto ,
með einum eða öðrum hætti að aukinni
samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja og
loks er námskeiðið ætlað ráðgjöfum í fyrir-
tækjarekstri.
Námskeiðið er haidið á vegum Vinnuveiten-
dasambands íslands, Samstarfsnefndar at-
vinnurekenda í sjávarútvegi, Landssam-
bands iðnaðarmanna, Útflutningsráðs ís-
lands, Félags íslenskra iðnrekenda, Alþýðu-
sambands íslands og SAMMENNTAR
(samstarfsnefnd-
ar atvinnulífsins og skóla um framkvæmd
COMETT áætlunarinnar á islandi).
Námskeiðsgjald er kr. 3.500,-. Þátttaka til-
kynnist til Endurmenntunarnefndar Háskól-
ans í síma 91-694940 eða 91-694923.
20%
VE RDLÆKKU N
VEGNA HAGSTÆÐRA MAGNINNKAUPA
Skerar, tennur og undirvagnshlutir í CATERPILLAR,
einnig í flestar aðrar gerðir og tegundir vinnuvéla.
T.D.: JCB <• KOMATSU JOHN DEERE * INTERNATIONAL HARVESTER
FIATALLIS « BANTAM « CASE « O&K « LIEBHERR « HITACHI « POCLAIN
HEKLA HF
Laugavegi 170-174,
105 Reykjavik,
Simi 695500
HEKLA