Morgunblaðið - 03.12.1991, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ ÞRÍÐJUDAGUR 3. DÉSEMBER 1991
fclk í
fréttum
HARD ROCIi CAFE - S. 689888
BY GGÐ AMINJAR
Safnstjóri í
Stykkishólmi
Þóra Magnúsdóttir hefur verið
ráðin safnstjóri Byggða-
safns Snæfellinga sem verið er
að byggja upp í Norska húsinu í
Stykkishólmi. Hún á einnig að
veita ráðgjöf við önnur söfn á
Snæfellsnesi og vinna að skip-
ulagningu þeirra.
Byggðasafnið hefur fengið.
ýmsa góða muni á undanförnum
árum. Söfnun heldur áfram og
sérstaklega væri aðstandendum
þess akkur í því ef brottfluttir
Snæfellingar létu vita af minjum
sem þeir kynnu að eiga í fórum
sínum og ættu heima á slíku safni.
Þóra er að vinna að því að koma
byggðasafninu í sýningarhæft
ástand og miðar ágætlega.
Norska húsið, sem var byggt
árið 1828, hefur verið gert upp í
sinni upprunalegu mynd og er þar
gott húsrými fyrir safnið. Þar
hafa verið haldnar málverkasýn-
ingar bundnar umhverfinu.
Byggðasafnið er starfrækt veg-
um Héraðsnefndar Snæfellsness
og Hnappadalssýslu.
Arni
Allir skammakrókarnir voru uppteknir svo kennarinn sendi
mig bara heim.
Ég hef unriið hjá sama fyrir-
tækinu síðan ég kom hingað, Co-
untry-Wide Bank og starfa sem
aðstoðarskrifstofustjóri í veðdeild-
inni þar. Eftir reynsluna af því,
finnst mér kerfið í íslenskum
bönkum dálítið gamaldags og
þungt í vöfum. Bankar á Islandi
ættu tii dæmis að lána til langs
tíma vegna húsakaupa almenn-
ings, ríkið á ekki að vera lána-
stofnun, það er hlutverk bank-
anna,” segir Sigurður.
Þóra Magnúsdóttir safnvörður.
Morgunblaðið/Árni Helgason
Florída
UTLÖND
Islenskur bankamaður
meðal andfætlinga
Formaður íslendingafélagsins á
Nýja Sjálandi heitir Sigurður
Björnssonm en hann er búsettur
með fjölskyldu sinni í stærstu
borg landsins Auckland. Sigurður
hefur verið búsettur syðra í 7 ár,
en eins og fleiri landa langaði
hann til að reyna eitthvað nýtt
og sló til og flutti til Nýja Sjá-
lands. Áður en leiðin lá þangað,
starfaði Sigurður hjá Sambandinu
og KEA.
Eiginkona Sigurðar er nýsjá-
lenzk og eins og margir fleiri kom
hún til Islands til að vinna í fiski.
Hún var á ferðalagi um Evrópu
og dvaldi um tíma í London. Þar
blossaði ævintýraþráin upp á ný
og hún dreif sig í fiskvinnslu í
Hrísey, en þaðan er Sigurður ætt-
aður og þar lágu leiðir þeirra sam-
an.
En hvernig líkar Sigurði að búa
með andfætlingum og hvernig
hefur honum vegnað? „Ég hef
verið hér í 7 ár og er ekki á heim-
leið, enda nýkominn úr frí á ís-
landi. Mér hefur liðið ágætlega
og líkar vel loftslagið hér. Það á
mjög vel við mig, einkum yfir
sumarið. Þó finnst mér veturinn,
sem reyndar er ekki nema þrir
mánuðir, dálítið kaldur á köflum.
Hitinn getur farið undir frostmark
á köldustu vetrarmorgnunum.
COSPER
skamms tíma var álitin komin
skemmstu leið beint frá guði.
Mako litla tekur nú sitt sæti í
röð krúnuerfingja og hreppir stólinn
vafalaust seint eða aldrei. Kiki lét
þess getið, er þau hjónin sýndu
fréttamönnum Mako, að þau væru
umhverfissinnar og Mako myndi
notast við vistvænar bleyjur!
Morgunblaðið/Björn Jóhannsson
Sigurður Björnsson við KEA
Street í Auckland.
Kennedy-fjölskyldan gegn
„konunni frá Júpíter”
Florída. Frá ívari Guðmundssyni, frétta
Það þóttu vafalaust sem. vatn
væri borið í bakkafullan læk-
inn er fréttaritari Morgunblaðsins
(sem staddur er hér í einkaerindum)
bættist í hóp þeirra 488 blaðamanna
sem til þessa hafa verið skráðir til
fréttaflutnings af réttarhöldum í
„nauðgunarmáli aldarinnar” eins og
það hefur verið kallað vegna þeirrar
gífurlegu athygli sem það hefur vak-
ið í Bandaríkjunum og raunar víðar.
Réttarhöldin hófust á mánudag.
Málið hófst með því að stúlka, sem
er ógift móðir, kærði þrítugan lækn-
isfræðinema, William Kennedy
Smith að nafni, fyrir nauðgun.
Ákærði er systursonur John F.
Kennedy, fyrrum Bandaríkjaforseta.
Að sögn ákærandans gerðist þetta
um fjögurleytið aðfaranótt 30. mars
sl. á ströndinni fyrir framan ættaróð-
al Kennedy-fjölskyldunnar hér á
West Palm Beach þar sem margir
. milljónamæringar hafa reist sér bú-
staði til vetrardvalar á sólríkri
Florídaströnd.
Forsaga málsins er sú að William
Kennedy Smith hafði setið síðla
ritara Morgunblaðsins.
kvölds að drykkju á krá með móður-
bróður'sínum, Edward Kennedy öld-
ungadeildarþingmanni og öðrum
frænda þeirra. Á kránni hittu þeir
konuna sem kærði nauðgunina. Hún
þáði heimboð „Wils” eins og lög-
fræðingar hans hafa nefnt hann upp
á síðkastið en talið er að sú nafnbót
sé af ásettu ráði til að hafa jákvæð
áhrif á væntanlega kviðdómendur
málsins.
Nafn stúlkunnar sem kærir
nauðgunina hefur ekki verið birt en
blöð og fréttastofur nefna hana
„konuna frá Júpíter” en það er bær
hér á Ströndinni sem gefur til kynna
að hún sé frá því byggðarlagi. Willi-
am Kennedy Smith neitar ekki að
hann hafi haft kynmök við konuna
en segir að það hafi verið af fijálsum
vilja beggja. Hins vegar hefði hún
reiðst er honum varð á „í ógáti og
af klaufaskap” segir Smith að nefna
hana nafni annarrar stúlku „Mic-
helle” sem hann sagðist eiga stefnu-
mót við. Er „konan frá Júpíter” sem
hafðí ekið Will Smith til Kennedy-
bústaðarins fyrr um kvöldið fór það-
William Kennedy Smith.
an tók hún með sér blómavasa, ljós-
mynd í ramma og bréfsefni með
nafni Kennedy-fjölskyldunnar. Kon-
an heldur því fram að hún hafi tek-
ið með sér þessa gripi til að sanna
að hún hefði verið í Kennedy-
bústaðnum því William Kennedy
Smith hefði sagt að enginn myndi
trúa henni segði hún frá nauðgun-
inni. Hún hefði engin jarðteikn því
til sönnunar að hún hefði verið þar.
Kennedy-fjölskyldan hefir ekkert
til sparað til varnar Wills. Fjöldi
sérfræðinga, sem taka allt _að 2.000
dollara á tímann (120.000 ÍSK) fyr-
ir rannsóknir sínar og ráðleggingar
hefur verið ráðinn. Það hefur verið
reiknað út að til þessa hafi Kennedy-
fjölskyldan greitt sérfræðingum
þessum sem svarar hálfri milljón
dollurum (60 milljónum ÍSK).
M ANNFJ OLGUN
Prinsessa er
fædd í Japan
Akishino prins, næst elsti sonur
Akihito Japanskeisara, eign-
aðist fyrir skömmu dóttur með eig-
inkonu sinni, Kiki. Barnið hefur
verið skýrt Mako og því heilsast
vel og allir eru sælir og ánægðir,
prúðbúnir og í hátíðarskapi. Kiki
prinsessa er einungis önnur konan
af „almúgaættum” sem kvænist inn
í keisarafjölskylduna sem til