Morgunblaðið - 11.12.1991, Side 28

Morgunblaðið - 11.12.1991, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1991 KVOTASALAN FRA VESTMANNAEYJUM Gífurlegt áfall fyrir bæjarfélag*- ið að missa 1.600 tonna kvóta -segir fólk í Vestmannaeyjum SALA útgerðarfélagsins Bergur- Huginn hf. í Vestmannaeyjum á 1.600 tonna kvó’ta togarans Berg- eyjar til Utgerðarfélags Akur- eyringa er í brennidepli í Vest- mannaeyjum og blaðamður Morgunblaðsins ræddi • við nokkra vegfarendur af því til- efni. „ÞESSI sala á Natsek er reiðar- slag fyrir okkur. Við áttum von á að fá breytingar á skipinu, sem var verk upp á 20 milljónir, og vorum farnir að undirbúa okkur fyrir það en nú pr það farið og lítið framund- an hjá okkur,“ sögðu Ólafur Frið- riksson og Gunnlaugur Axelsson, framkvæmdastjórar Skipalyftunnar í Eyjum, vegna sölu Bergs-Hugins á Natsek og kvóta Bergeyjar. „Það var ekki búið að ganga frá endanlegum samningum um verkið en það var svona handfast og við vorum farnir að búa okkur undir það og miðuðum okkur við að fá þetta verk. Við höfum því ekki reynt að fá önnur verk og sjáum nú fram á verkefnaleysi hjá okkur á næst- Ólafur Friðriks- Gunnlaugur Ax- son elsson unni vegna þessa. Við erum búnir að hafa tvo góð verk í hendi í haust en bankinn hefur ekki hleypt þeim í gegn. Auðvitað hefur hann sínar ástæður fyrir því og líklega er aðal vandinn fólginn í mikilli skuldsetn- ingu fyrirtækjanna. Við getum því lítið annað gert en grátið eftir að þessi niðurstaða liggur fyrir með Bergey,“ sögðu þeir. „Ef þessi kvótasala er til að leysa fjárhagsvanda þeirra er selja hann getum við ósköp lítið sagt en það er ljóst að eftir því sem kvóti minnk- ar, minnka umsvif útgerðar og þá bitnar það á okkar fyrirtæki. Það er mjög alvarlegt þegar menn eru að selja frá sér fjöreggið eins og gerist með kvótasölunni. Þegar svona kemur upp þá leiðir maður auðvitað hugann að því hvað gerð- ist ef einhver af þessum stóru kvótaeigendum hér hætti að gera út. Segði bara ég er hættur og seldi kvótann," sögðu Ólafur og Gunn- laugur. Ákaflega neikvætt „Þetta er ákaflega neikvætt og svipað því þegar Austfirðingarnir fóru að éta útsæðið. Ég veit ekki hvernig á að bjarga fyrirtækj- unum ef þau hafa ekki hráefni til að vinna þannig að þétta er bara al- veg afleitt," sagði Magnús Sveins- son, kaupmaður og umboðsmaður Olís í Eyjum, „Ég hef heyrt að nokkrir af smærri útgerðar- mönnum hér hefðu verið tilbúnir að kaupa þennan kvóta Bergeyjar saman og skipta honum milli ’sín, í stað þess að láta kvótann fara úr bænum. Þetta þurfti ekki að vera bundið við það að einn aðili keypti ailt saman. Mér er spurn hvort þess- ar leiðir voru kannaðar," sagði Magnús. „Ég held að aðgerðir bankans undanfarið hafi verið svona hefð- bundnar haustaðgerðir, þó reyndar með fastara móti. Bankinn er nú einkabanki og er rekinn af gallhörð- um bisnessmönnum en ég er ekki viss um að þessir hlutir hafí þurft að fara eins og raunin varð. Það er ömurlegt hljóð í fólki hér yfir þessu. Dauft var hljóðið fyrir en ekki lagaðist það við þetta,“ sagði Magnús. Hrikalegt áfall „Það er hrikalegt áfall fyrir bæj- arfélagið í heild að missa þennan kvóta héðan. Maður hreinlega skilur ekki hvað er að gerast í þessu og ályktar auðvitað að það sé bara krafa frá bankan- um að fara út í þessar aðgerðir," sagði Bergvin Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum: Hlýtur að kalla á breytingu á reglugerð um kvótasölu Sjávarútvegsráðuneytið hyggst svara bæjarstjórninni i vikunni GUÐJÓN Hjörleifsson, bæjarsljóri í Vestmannaeyjum, segir að ekki hafi verið kannað hvað sala á 1600 tonna aflaheimildum frá Vest- mannaeyjum þýði mikið tekjutap fyrir bæinn. Um er að ræða 5% allra aflaheimilda í Vestmannaeyjum og fjórðung aflaheimilda ís- félagsins hf. Bæjarstjórnin sé nú fyrst og fremst að kanna sinn rétt hjá sjávarútvegsráðuneytinu. Það hafi aldrei reynt á slíkt áður og ríkisstjórnin hljóti að beita sér fyrir breytingum á reglugerð um sölu kvóta. Bæjarstjórnin sendi ráðuneytinu bréf í gær þar sem ósk- að er eftir því að það skeri úr um hver réttur Vestmannaeyjabæjar sé í þessu máli hvað varðar kvótasölu og forkaupsrétt á skipum. Árni Kolbeinsson ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu staðfesti að borist hefði erindi frá Vest- mannaeyjabæ. „Ég reikna með að við reynum að svara þessu eins fljótt og unnt er. Ég held að lögin séu nú nokkuð skýr en ætli það sé ekki réttast að við beinum svarinu til þeirra fyrst,“ sagði Árni. Bæjar- stjórnin hefur óskað eftir svari ráðuneytisins fyrir. næsta bæjar- stjórnarfund sem verður á fimmtu- daginn. „Það sem er alvarlegast í þessu máli eru kvótalögin. Við sölu á eins árs kvóta erum við að samþykkja það í bæjarráði og bæjarstjórn með tilheyrandi umræðu. Þegar hins vegar er verið að selja varanlegan kvóta sem kemur aldrei aftur í bæinn þá fáum við ekki að fjalla um það. Þarna er brotalömin sem er langalvarlegust. Við viljum fá alveg á hreint hver réttur okkar er. Ég trúi ekki öðru en að ef hann er enginn að hann verði þá gerður einhver - þetta verði tekið upp á þingi og reglugerðinni breytt. Það er langtum nær að við fjölluðum um varanlega kvótasölu en ein- hvetja titti til eða frá,“ sagði Guð- jón. Hann sagði að tekjutap bæjar- ins af missi kvótans hefði ekki ver- ið reiknað út. Það þyrfti að meta marga hluti inn í það, eins og t.d. hvort Bergur-Huginn legði einu eða tveimur skipum. Færi svo væri um 10-20 stöðugildi að ræða og þá væri eftir að meta hve mörg stöðu- gildi sigldu í kjöifarið hjá bænum og hvert tekjutap yrði af lægri hafn- argjöldum og aflagjöldum. Guðjón kvaðst hafa heyrt af því að Vinnslustöðin væri að athuga sölu á kvóta. Það yrði skoðað hvort bærinn myndi nýta forkaupsrétt sinn ef um sölu á skipi eða eins árs kvóta yrði að ræða. „Menn eru allt- tæki í Vestmannaeyjum eru nú „Það er alltaf mikið áfall þegar kvóti flyst frá byggðarlagi, af hvaða ástæðu sem það er. Það hefur alltaf áhrif á viðkomandi byggð. Að hinu leytinu er fyrirtæk- ið (Isfélag Vestmanneyja) að gera þetta í þeim tilgangi að styrkja stöðu sína og ég vona að fjárhags- leg endurskipulagning þess leiði til þess að það verði sterkari fjárhags- legar stoðir undir fyrirtækinu og þegar fram í sækir geti það náð sínum hlut á nýjan leik,“ sagði Þorsteinn. - Nú eru önnur fyrirtæki í Vest- mannaeyjum, Vinnslustöðin og hugsanlega fleiri stór sjávarút- af að reyna að halda þessu í bænum en auðvitað verður maður líka að reyna að passa ábyrgðir bæjar- sjóðs. Við munum bara meta kaup- samninga þegar að því kemur,“ sagði Guðjón. Hann kvaðst ekki átta sig á því hvort forsvarsmenn Bergs-Hugins hefðu vitað að bæjarstjórnin hefði ekki umsagnar- eða forkaupsrétt á þessum kvóta. Hann sagði að ákvörðunina hefði borið skyndilega að og bæjarstjórnin ekki verið látin vita af þessu með fyrirvara. vegsfyrirtæki. með svipaðar björg- unaraðgerðir í skoðun hjá sér - það er að selja kvóta. Hvað segir fyrsti þingmaður Sunnlendinga um slíka þróun? „Vitaskuld er sama svar við þeirri spurningu. Svarið er ekkert á annan veg, eftir því hvaða fyrir- tæki eiga í hlut. Því miður er það svo að þessi vandi er ekki bara bundinn við Vestmannaeyjar. Það er allur sjávarútvegur á íslandi sem á í þessum vanda. Þess vegna beinir þetta enn sjónum manna að því hversu brýnt það er að tryggja rekstrarlegar forsendur fyrir sjáv- arútvegsfyrirtækin í landinu. Ég Oddsson, skip- stjóri og út- „ _____ gerðarmaður á Bergvm 0ddsson Glófaxa. „Þetta er líklega bara _ein afleið- ingin af kvótakerfinu. ÚA er vel stætt fyrirtæki í dag þar sem það kaupir allan fisk til vinnslu á lág- marksverði. Það situr því ekki við sama borð og aðrir í þessum bransa og getur notað hagnaðinn af vinnsl- unni til að sanka.að sér kvóta frá þeim sem eiga í erfiðleikum annars staðar. Mér finnst þessi sala á kvótum vera alveg rosaleg og það ætti að vera búið að afnema hana fyrir löngu,“ sagði Bergvin. Hljóta að vita hvað þeir eru að gera „Það er auðvitað mjög slæmt að missa 1.600 tonna þorskígildi úr bænum. Það er ekki spurning og þetta er mjög alvarlegt mál en ég held að Magnús og félagar hans hjá Berg-Huginn hljóti að vita hvað hef verið að beijast í því að fá nauðsynlegar aðgerðir samþykktar til þess að treysta þessa undir- stöðu. Ríkisstjómin hefur nú þegar tekið þrár mikilvægar ákvarðanir í því-sambandi. Bæði að því er varðar stöðvun inngreiðslna í verð- jöfnunarsjóð, ríkisfjármálaaðgerðir sem skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta og skuldbreytingu í Atvinnu- tryggingasjóð. allt á þetta að stuðla að því að reksturinn verði í betra horfi.“ - Það sem nú er byijað að ge- rast í Vestmannaeyjum - hefur það ekkert veikt sannfæringu sjávarút- vegsráðherra þess efnis að kvótar eigi að vera framseljanlegir og því hægt að selja þá burt úr viðkom- andi byggðarlögum? „Ég vil nú minna á það að fram- sal á kvóta gefur byggðarlögum líka kost á að styrkja stöðu sína. Fram til þessa hafa Vestmannaey- ingar verið í þeirri stöðu sem öflug- asta og þróttmesta verstöð lands- Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra: Alltaf mikið áfall þegar kvóti fiyst frá byg,g*ðarlagi ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra og fyrsti þingmaður Sunnlendinga segir það alltaf vera mikið áfall þegar kvóti flytjist frá byggðarlagi. Hann kveðst vonast til þess að fjárhagsleg endur- skijiulagning Isfélags Vestmanneyja, með sölu á 1600 þorskígildum til Útgerðarfélags Akureyringa leiði til þess að sterkari fjárhags- legar stoðir verði undir fyrirtækinu. Morgunblaðið ræddi við sjáv- arútvegsráðherra í gær um þá erfiðu stöðu sem sjávarútvegsfyrir- þeir eru að gera,“ sagði Sigurður Ingi Ingólfsson, útgejðarmaður. „Ég held að bankinn sé ekki að bregðast fyrir- tækjunum hér en það er spurning hvort hinir al- mennu fyrir- greiðslusjóðir séu eitthvað að bregðast. Mér sýnist að sum fyrirtæki úti um land fái ár eftir ár fyrirgreiðslu úr þessum sjóðum og.ég er ekki viss um fyrir- tæki hér sitji við sama borð og leiði hugann að hvort það er ekki ástæð- an fyrir þessum vanda hér. Svo er það líka spurning hvort skilyrðin sem fyrirtækjum í landinu eru almennt búin séu bara ekki svona slæm. Sjáið til dæmis þetta háa vaxtastig og annað. Ég hugsa að forráðamenn Bergs- Hugins hafi ekki farið fram á að fá eftirgjöf af skattpeningi sem þeir tóku af starfsfólki sínu eins og sum fyrirtæki. Hér hafa menn alltaf þurft að beijast fyrir sínu og staðið sig en nú voru þau skilyrði að þeir hrein- lega gátu ekki staðið sig og þá eru þeir bara höggnir,“ sagði Sigurður Ingi. Útgerðin á kvótann og fer með hann ein§ og henni sýnist Sigríður arinsdóttir Þór- „Mér finnst þessi kvótasala út í hött. Mér finnst það furðulegt þeg- ar útgerðir geta verið að senda sjó- mönnum kröfu um að þeir taki þátt í kvótakaup- um og geti síðan selt kvótann án þess að tala við kóng eða prest,“ sagði Sigríður Þórarinsdóttir, fiskverkakona. „Maður er far- inn að óttast verulega um sinn hag. Aflinn hér minnkar, togaramir eru sendir í siglingu, meira að segja fá karlarn- ir ekki að vera heima yfir jólin þrátt fyrir allt kvótaleysið, og maður bíð- ur bara eftir að fastráðningu okkar í stöðvunum verði sagt upp. Sjó- mennirnir og landverkafólkið skipt- ir engu máli, því útgerðin á kvótann og getur farið með hann eins og henni sýnist. Mér finnst útlitið mjög svart hérna eins og er og sé ekki að það sé einhver birta í nánd,“ sagði Sig- ríður. ins að þeir hafa frá því að kvóta- kerfið var sett á aukið hlut sinn mjög umtalsvert. Það hefur þeim tekist einungis vegna þess að kvót- inn var framseljanlegur. Það er líka alveg ljóst að ef fjárhagsleg endur- skipulagning fyrirtækjanna í Vest- mannaeyjum mun leiða til þess að þeir geti náð aftur þeim kvóta sem þeir hafa selt, þá gerist það ekki nema þeir hafi fijálsar hendur til þess.“ - Hvort eru þessi orð þín byggð á óskhyggju eða raunsæju mati, að fyrirtækin geti keypt kvótann aftur eftir björgunaraðgerðir af þessu tagi? „Það er kannski hvorttveggja, byggfc á raunsæi og von um að endurskipulagning beri tilætlaðan árangur. En vandinn í þessu er fyrst og fremst sá að heildaraflinn er takmarkaður, en ekki leikregl- urnar sem við notum til þess að stjórna og stýra veiðinni skynsam- lega.“ - Ef sala ísfél^gins á 1600 þorskígildum til ÚA, sem jafngildir 5% af bolfiskkvóta Vestmanney- inga er aðeins upphafið að því sem koma skal og önnur fyrirtæki, eins og Vinnslustöðin, Fiskiðjan og Hraðfrystistöð Vestmannaeyja fara að dæmi ísfélagsins, þá er viðbúið að á.m.k. 20% bolfiskveiði- heimilda Vestmanneyinga hverfi frá Vestmannaeyjum. Hver verður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.