Morgunblaðið - 11.12.1991, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1991
55
fclk f
fréttum
Morgunblaðið/KGA
SKÓLAKÓR
Jólalög í Listasafninu
Þau unnu hug og hjörtu áheyrenda þessi börn úr Skólakór Kársness sem sungu jólalög fyrir gesti sem voru
viðstaddir útnefningu bóka til íslensku bókmenntaverðlaunanna 1991 í Listasafni íslands s.l. mánudag.
HOLLYWOOD
I fótspor
foreldra
sinna
Kornung söng- og leikkona hefur
rutt sér til rúms í Hollywood
síðustu misseri. Gagnrýnendur telja
hana mjög athyglisverða og hún eigi
frama vísan hvort heldur að hún kjósi
poppbrautina eða kvikmyndabraut-
ina. Stúlkan heitir Tricia Leight Fis-
her og á ekki langt að sækja það,
því foreldrar hennar eru Connir Ste-
vens og Eddie Fisher, sem bæði eru
þekktir skemmtikraftar í Bandaríkj-
unum. Tricia Leigh er 21 árs gömul.
Stúlkan lék sem táningur í nokkr-
um dæmigerðum unglingahrollvekj-
um sem hún vill helst gleyma, enda
snérist þar allt um „að sýna bijóstin
og vera skorin á háls“, eins og stúlk-
an orðar það. Nú hefur það hins
vegar gerst, að eftir henni er tekið
bæði í kvikmynd og í poppheiminum.
Hún sendi frá sér brejðskífu, sína
fyrstu, og lagið„Empty Beach“ náði
miklum vinsældum í Bandaríkjunum.
í kvikmyndinni „Book of Love“ nældi
hún sér í stórt hlutverk og gagnrýn-
endur hafa lofað hana í hástert.
Segja hana upprennandi stórstjömu,
mmMmh
Skeifan 3h-Sími 812670
5% stabgreibsluafsláttur
mm J°^TiLBob
VIÐ HJÁLPUM
- HJALPAÐU OKKUR!
Munið heimsendan gírðseðil.
HJÁLPARSTOFNUN KIRKJUNNAR
V.