Morgunblaðið - 11.12.1991, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1991
59
BÍÓHÖLLIN - BÍÓBORGIN - SAGA-BÍÓ
Sjá auglýsingar frá
Sambíóunum á næstu
opnu fyrir framan
Sigurbjörn Jónsson við tvö verka sinna.
Sýnir í Gallerí 15
Nú STENDUR yfir í Gallerí G 15 á Skólavörðustíg 15
sýning á smámyndum eftir Sigurbjörn Jónsson.
Sigurbjörn Jónsson fædd-
ist á Akureyri 1958. Hann
stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands
1978-1982 og framhalds-
nám við Parsons School of
Design og New York Studio
School of Painting á árunum
1984-1987.
Þetta er önnur einkasýn-
ing Sigurbjörns hérlendis,
en sýning hans í Nýhöfn í
nóvember 1990 vakti mikla
athygli.
Allar myndirnar á sýn-
ingunni eru unnar með olíu
á striga á þessu ári.
Sýningunni lýkur 4. jan-
úar nk.
Gallerí G 15 er opið alla
virka daga frá kl. 10-18.30
og á laugardögum frá kl.
10-16i
■ FIMMTUDAGINN 12.
desember mun Elsa E. Guð-
jónsson, deildarstjóri Textíl-
og búningadeildar Þjóð-
minjasafns Islands, endur-
flytja fyrirlestur sinn um forn-
leifar í þágu textílrannsókna,
Fágæti úr fylgsnum jarðar.
Sagt er frá nokkrum merkum
fundum sem gerðir voru í
Stóruborg og jafnframt rætt
um fáeina fornleifafundi ann-
ars staðar á landinu sem allir
eiga það sammerkt að tengj-
ast með einhvetjum hætti tó-
skap, pijónj, vefnaði og
klæðaburði, auk þes sem
flestir eru einstakir í sinni röð
meðal fornleifafunda á ís-
landi. Fyrirlesturinn verður
haldinn í Þjóðminjasafninu
við Suðurgötu og hefst hann
klukkan 15.00.
■ ÚT ER komin bók um
Fuglastríðið í Lumbru-
skógi, en samnefnd kvikmynd
er nú sýnd í Regnboganum.
Bókin er myndskreytt og er
í íslenskri þýðingu Ólafs
Hauks Símonarsonar. í
kynningu útgefanda segir:
„Bókin er byggð á sam-
nefndri teiknimynd og fjallar
um tvo munaðarlausa fugls-
unga sem teknir eru í fóstur
af vingjarnlegum þresti og
kolruglaðri uglu. Allt virðist
slétt og fellt, grænar grundir
með blómum í haga, en þegar
fuglsungarnir, Ólíver og 01-
afía komast að því að þeir
eru munaðarlausir vegna þess
að skelfir skógarins, Hroði,
át foreldra þeirra í morgun-
mat, ákveða þeir að gera
uppreisn gegn harðstjóran-
um. Fuglastríðið í Lumbru-
skógi er saga um hvernig
tveir litlir spörfuglar, með
miklum látum og fjöri, ná
að vinna á stórum rán-
fugli.“
Frá sýningu Guðinundar
Einarssonar á leirmunum.
■ LISTVINAHÚSIÐ,
Skólavörðustíg 43, opnar
sölusýningu á handunnum
leirmunum eftir Guðmund
Einarsson, sonarson Guð-
mundar Einarssonar frá
Miðdal, þann 12. desember.
Auk þess verða sýndir eldri
munir frá 64 ára ferli fyrir-
tækisins. Sýningin verður
opin alla daga til jóla.
■ ÞRJÚ dansverk verða
sýnd fimmtudaginn 12. des-
ember í Gerðubergi kl. 20.30
og mánudaginn 16. desember
í Kramhúsinu á sama tíma.
Verkin eru Tóm eftir Guð-
björgu Auðunsdóttur, turn
on, turn off eftir Sharmila
Mukeiji og Nóvember eftir
Lilju Ivarsdóttur. Dansarar
í sýningunni eru Marta Rún-
arsdóttir, Guðbjörg Arnar-
dóttir, Sharmila Mukerji og
Lilja ívarsdóttir.
■ í ANDDYRI Norræna
hússins hefur verið sett
upp sýning á teikningum
eftir Brian Pilkington sem
hann hefur gert við söguna
um Bakkabræður. Einnig
eru nokkrar myndir af
þekktum persónunT úr vin-
sælum barnasögum og æv-
intýrum, m.a. Gilitrutt,
Hans klaufa og Örkinni
hans Nóa. Brian Pilkington
er fæddur á Englandi en
hefur verið búsettur á ís-
landi í fimmtán ár. Hann
lauk BA-prófi í teikningu
og myndskreytingum (ill-
ustration) frá Leicester
Art College. Brian hefur
myndskreytt fjölda bóka
eftir íslenska höfunda, og
hefur einkum fengist við að
teikna í barna- og
unglingabækur. Sýningin í
Norræna húsinu stendur til
desemberloka.
Morgunblaðið/Sverrir
Sophia Hansen afhendir Salome Þorkelsdóttir undirskriftalistana. Fulltrúar úr stuðn-
ingshópi um málið fylgjast með.
Tyrkneska forræðismálið:
35.166 undirskriftir
SOPHIA Hansen, móðir tveggja telpna er haldið er af
föður sínum í Tyrklandi, afhenti í gær í Alþingishúsinu,
Salome Þorkelsdóttur forseta sameinaðs Alþingis, undir-
skriftir 35.166 íslendinga víðsvegar af landinu, er krefj-
ast þess að stjórnvöld vinni hratt og vel að því að fá telp-
urnar heim. Fjórir lögfræðingar undirbúa að réttað verði
í forræðismálinu í Tyrklandi snemma á næsta ári.
Móðir telpnanna sagðist í
samtali við Morgunblaðið vera
mjög ánægð með þann stuðn-
ing sem hún hefði fengið.
„Undirskriftirnar eru orðnar
gífurlega margar og yfirleitt
hefur fólk verið mjög já-
kvætt,“ sagði hún, en bætti
við að nokkrir hefðu ekki sýnt
málinu skilning. „En ég vona
„Prakkarinn 2“
1 Laugarásbíói
LAUGARÁSBÍÓ frumsýnir „Prakkarann 2“, fyrstu jóla-
mynd ársins 1992, fimmtudaginn 12. desember. Aðalleik-
arar eru John Ritter og Michael Oliver.' Leikstjóri er Brian
Levant.
í kynningu frá kvikmynda-
húsinu segir að.^myndin sé
beint framhald af jólamynd
Laugarásbíós frá í fyrra.
Söguþráðurinn er á þá leið
að prakkarinn og fósturfaðir
hans, Ben, eru að flytja í nýtt
hús. Allar ógiftu konurnar í
hverfinu líta Ben hýru auga
og þar á meðal er Lawanda
sem vill fá Ben fyrir 7. eigin-
mann sinn. Prakkarinn þarf
að byrja í nýjum skóla og þar
kynnist hann Trixie, en hún
er jafnoki hans í prakkara-
strikum.
Ur nýjustu mynd Lauga-
rásbíós, „Prakkarinn 2“.
að þessi hópur öðlist skilning
á því hvað um er að ræða
með því að kynna sér málið
í fjölmiðlum."
Aðspurð um stöðuna í for-
ræðismálinu nú sagði Sophia
að 4 lögfræðingar hefðu verið
ráðnir til þess að vinna að
málinu í Tyrklandi. Þar af
væri 1 ráðinn af utanríksráðu-
neytinu. „Þeir undirbúa nú að
ég fái umgengnisrétt við
börnin og geti hitt þau án
þess að sæta ofsóknum á
meðan á heimsókninni stend-
ur. Ég er sannfærð um að
þetta tekst. Kveðinn verður
upp úrskurður á næstum dög-
um og hann birtur," sagði
Sophia. „Svo stefni ég að því
að fá lögskilnað við manninn
og forræði yfir börnunum.
Unnið er að því að réttað verði
í málinu strax eftir áramót í
Tyrklandi."
Sophia var spurð hvenær
hún héldi að telpurnar myndu
koma til landsins. „Ég plata
svolítið sjálfa mig með því að
vona að þær komi heim fyrir
jól en ég held að það sé ekki
raunhæft, frekar einhvern
tíma strax eftir áramót,"
sagði hún.
KRAFTAVERK ÓSKAST sýnd u. b, 7,9 11.
VEGURVONAR
Sýnd kl. 9 og 11. Bönnuð börnum innan 12 ára.
HOMOFABER “ Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
NBO
FRUMSÝNIR VERBLAUNAMYNDINA:
Ó, CARMELA
19000
Borgarastyrjöldin á Spáni geysar árið 1938 þegar Car-
mela og Paolino ásamt heyrnarlausum aðstoðar-
manni skemmta stríðshrjáðu fólkinu. Pau eru hand-
tekin af ítölum og umsvifalaust skellt í fangelsi fyr-
ir pólitískar skoðanir sínar.
Hrífandi mynd byggð á samnefndum söngleik í leik-
stjórn hins eina sanna Carlos Saura.
Aðalleikkonan, Carmen Maura fékk Felix-verðlaun-
in árið 1990 fyrir túlkun sína á Carmelu.
Leikst)óri: Carlos Saura.
Aðalhlutverk: Carmen Maura, Andres Pajeres
og Cabino Diego.
Sýnd kl. 5,7,9
ÍU^íWjí
Sýnd kl. 5 og 7.
Miðaverð kr. 500.
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
Myndir sem birtast í Morgunblaðinu,
teknar af Ijósmyndurum blaösins
fást keyptar, hvort sem er
til einkanota eöa birtingar.
UÓSMYNDADEILD
„SALA MYNDA"
Aöalstrœti 6. sími 691150
101 Reykjavík