Morgunblaðið - 11.12.1991, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIBVIKUDAGUR 11. ÐESEMBER 1991
ATVINNUAUGÍ YSINGAR
Kennari óskast
Vegna forfalla vantar almennan bekkjarkenn-
ara og handmenntakennara (smíðar) að
Grunnskólanum í Grindavík frá næstu ára-
mótum.
Upplýsingar gefa skólastjóri eða aðstoðar-
skólastjóri í síma 92-68555 eða 92-68504.
Verslunarstjóri
Verslunarstjóri óskast.
Þarf að hafa reynslu í verslunarrekstri og
starfsmannahaldi. Einnig víðtæka þekkingu
á tónlist og myndböndum.
Þarf að geta hafið störf strax.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
15. desember merktar: „V - 12920“.
Steinar,
músík og myndir.
Blaðamenn
Vegna stækkunar og eflingar á útgáfunni
leitum við að vönum blaðamönnum.
Umsóknum ber að skila til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir 15. desember merktum: „Pressan“.
PRESSAN
Blaðberar óskast
Vesturbær
Morgunblaðið óskar eftir blaðbera í Aragötu.
ftforgissiMiftifr
Starfsmaður á
byggingakrana
Óskum eftir að ráða reglusaman, harðdug-
legan kranamann.
Langtímavinna.
Upplýsingar í síma 620665 alla virka daga
frá kl. 8-18.
Framkvæmdastjóri
Við auglýsum eftir framkvæmdastjóra fyrir Fisk-
iðju Raufarhafnar hf. og Jökul hf., Raufarhöfn.
Jökull hf. er 90% í eigu Raufarhafnarhrepps
og gerir m.a. út einn togara og bát. Fiskiðja
Raufarhafnar hf. er 63% í eigu Jökuls hf. og
32% í eigu Raufarhafnarhrepps og er fisk-
vinnslufyrirtæki í nýlegu húsnæði. Félögin
hafa sameiginlegt skrifstofuhald.
Leitað er að manni með þekkingu á sjávarút-
vegi og fiskvinnslu og menntun á sviði stjórn-
unar og fjármála. Húsnæði er til staðar.
Umsóknarfrestur er til 31. desember 1991
og skal senda umsóknir til undirritaðs sem
einnig veitir frekari upplýsingar um starfið.
■
Endurskoóunar-
mióstöóin hf.
N.Manscher
Björn St. Haraldsson,
löggiltur endurskoðandi,
Garðarsbraut 15, 640 Húsavík,
sími 96-41865.
Starfsfólk óskast
Hjúkrunarfræðingar óskast í hlutastörf frá
áramótum. Morgun- og kvöldvaktir.
Sjúkraliðar eða starfsfólk við umönnun ósk-
ast frá byrjun janúar ’92. Hlutastörf, unnnið
aðra hvora helgi.
Upplýsingar í síma 688500 hjá
hjúkrunarforstjóra.
ST. JÓSEFSSPÍTALI
LANDAKOTI
Ársstaða
aðstoðarlæknis
á handlækningadeild Landakotsspítala er laus
til umsóknar. Staðan veitist frá 1. febrúar 1992.
Umsóknir, með upplýsingum um námsferil
og fyrri störf, sendist til yfirlæknis handlækn-
ingadeildar, sem veitir nánari upplýsingar.
Reykjavík, 9. desember 1991.
St. Jósefsspítali,
Landakoti.
AUGL YSIN
Reyðarfjarðarhreppur
Auglýsing um eftirfarandi
deiliskipulög
1. Hafnarsvæði vöruflutningahafnar.
2. Iðnaðarsvæði á Kollaleiru.
3. íbúðasvæði í Oddnýjarhæð.
4. Miðbæjarsvæði.
Samkvæmt 17. gr. skipulagslaga nr. 19/1964
er hér með auglýst eftir athugasemdum við
ofangreindar tillögur að deiliskipulögum á
Reyðarfirði.
Tillögurnar ásamt greinargerðum verða til
sýnis á skrifstofu Reyðarfjarðarhrepps á
Heiðarvegi 5 á Reyðarfirði frá 11. desember
1991 til 22. janúar 1992 á venjulegum skrif-
stofutíma alla virka daga.
Athugasemdum skal skila skriflega til skrif-
stofu Reyðarfjarðarhrepps fyrir 2. febrúar
1992.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir við tillög-
una fyrir ofangreindan tíma, teljast samþykk-
ir skipulagstillögunni.
Skipulagsstofa Austurlands.
Sveitarstjóri Reyðarfjarðarhrepps.
Tapóskast
Traustur aðili óskar eftir að kaupa fyrirtæki,
sem á uppsafnað tap.
Tilboð óskast sent auglýsingadeild Mbl.
merkt: „Traustur - 7430“.
Metsölublað á hveijum degi!
FÉLAGSLÍF
□ GLITNIR 599112117 = 1
I.O.O.F. 9 = 17312118'/2 = 9.0.
HELGAFELL 599112117IV/V 2
I.O.O.F. 7 = 17312118V2 =
Jólavaka
Sálarrannsóknafélagsins í Hafn-
arfirði er á morgun, fimmtudag-
inn 12. desember, i Góðtempl-
arahúsinu og hefst kl. 20.30.
Á fjölbreyttri dagskrá m.a. þetta:
Eiríkur Pálsson útnefndur heið-
ursfélagi. Tónlist: Rúnar Óskars-
son og Kári Þormar. Upplestrar.
Miðill kemur í heimsókn. Hug-
leiðing: Séra Sigurður Haukur
Guðjónsson. Kaffi í fundarlok.
Allir velkomnir - aðgangur
ókeypis. Stjórnin.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30.
Ræðumaður: Hafliði Kristins-
son. Allir hjartanlega velkomnir.
ifFh SAMBAND ISLENZKRA
yáP/ KRISTMIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssamkoma
á Háaleitisbraut 58 í kvöld
kl. 20.30.
Ræðumenn Skúli Svavarsson og
Helgi Hróbjartsson.
Helgi Hróbjartsson syngur.
Samstöðuhátíðin „Kveikj-
um ljós“ haldin á föstudag
FÖSTUDAGINN 13. desember stendur Öryrkjabandalag íslands
fyrir samstöðuhátíð allra þeirra sem vilja tryggja fólki sem er
fatlað jafnan rétt á við aðra þjóðfélagsþegna. Hátíðin verður við
Langholtskirkju og hefst kl. 17.30. Kveikt verða m.a. ljós á jóla-
tré sem Öryrkjabandalag Islands færir nágrönnum Langholts-
kirkju að gjöf.
Undanfarin misseri hafa ýmsir
dregið í efa rétt ákveðinna hópa
fatlaðra til að eiga sér heimili í
íbúðahverfum. Þetta gerist á með-
an réttindamál fatlaðra hafa á
margan hátt færst til betri vegar
m.a. með stórbættri þjónustu
stjórnvalda.
Til að efla samhug þeirra sem
vilja standa vörð um rétt fólks sem
er fatlað, stendur Öryrkjabanda-
lag íslands fyrir samstöðuhátíð,
Kveikjum Ijós, við Langholtskirkju
föstudaginn 13. desember kl.
17.30. Lúðrasveit verkalýðsins
leikur jólalög frá kl. 17.15. Hátíð-
ardagskráin hefst á því að séra
Flóki Kristinsson flytur stutta
hugvekju. Síðan kveikir Páll Helgi
Arnarson, Sæbraut 2, Seltjarnar-
nesi, á ljósum jólatrés sem er gjöf
Öryrkjabandalags íslands til ná-
grennis Langholtskirkju. Þá flytur
Arnþór Helgason formaður Ör-
yrkjabandalagsins ávarp. Bjartm-
ar Guðlaugsson tekur lagið og
sungin verða jólalög. Dagskránni
strýrir Helgi Seljan. Jólatréð mun
síðan skarta ljósum sínum íbúum
nágrennisins til ánægju um jólin,
en stjórn Öryrkjabandalags ís-
lands telur þá góða fulltrúa þeirra
fjölmörgu Islendinga sem hafa í
verki stutt fólk sem er fatlað, í
því að taka þátt í lífinu á sem
eðlilegastan hátt. Þess má t.a.m.
geta að á þessum slóðum var
stofnað til fyrsta sambýlis fatl-
aðra. í grennd við Langholtskirkju
búa nú margir fatlaðir einstakling-
ar á sambýlum og hafa þeir alla
tíð notið eðlilegrar virðingar og
vináttu nágranna sinna.
(Fréttatilkynning)