Morgunblaðið - 11.12.1991, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 11.12.1991, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1991 51 Guðmundur Torfa- son - Minning Fæddur 5. febrúar 1901 Dáinn 3. desember 1991 Hinn 3. desember sl. lést í Land- akotsspítala frændi minn Guðmundur Torfason á nítugasta og fyrsta aldursári, og kveður þar síðasta barn móðurafa míns og ömmu Torfa Jónssonar og Guð- bjargar Guðbjartsdóttur í Kollsvík í Rauðasandshreppi sem eignuðust 13 börn á árunum 1883 til 1904. Líkur þar starfsamri ævi elju- manns sem áratugum saman helg- aði starfi sínu efnisvörður Stál- smiðjunar hf allan starfsdag sinn. I heimsókn að sjúkrabeði hans fyr- ir stuttu sagði hann við mig: „Svona er nú lífið” og mátti greina skilning hans á eðlilegri þróun lífs og dauða sem ekki verður umflúin. Fyrir fáum árum voru ennþá á lífi 5 af þessum myndarlega syst- kinahóp, öll á níræðisaldri. Heimil- Aldarminning: Jón Loftsson var fæddur að Miðhóli í Sléttuhlíð í Skagafirði 11. desember 1891 og í dag eru því 100 ár frá fæðingu hans. Foreldrar hans voru Loftur Jónsson trésmið- ur og Ingibjörg Kristín Þórodds- dóttir. Jón var þjóðkunnur atorkumað- ur og brautryðjandi á sviði bygg- ingariðnaðar. Hann hafði brenn- andi áhuga á<að efla íslenskan iðn- að og nýta auðlindir landsins til að renna stoðum undir efnahags- lega afkomu þjóðarinnar. Jón var því einn af ármönnum í íslenskum iðnaði. Jón ólst upp á heimili foreldra sinna og kynntist þá bæði almenn- um sveitastörfum og sjósókn eins og algengt var á þeim tíma. Hann var um tvítugt er hann gekk í Bændaskólann á Hólum sem bend- ir til þess að búskapur hafi verið það lífsstarf sem hann stefndi að, en hafa ber í huga að á þeim tíma var ekki margra kosta völ um skólagöngu. Um nokkurt árabil stundaði Jón síldarútveg á Siglu- firði en fluttist svo til Reykjavíkur. Hann stefndi greinilega að ákveðnu marki, dvaldist erlendis á árunum 1925 og 1926 til að kynna sér verslunarrekstur og strax árið 1927 stofnaði hann hið lands- þekkta fyrirtæki sitt Jón Loftsson hf. er hann rak til dauðadags. Með stofnun Vikurfélagsins hf. 1937 má segja að hann hafi brotið blað í iðnsögu þjóðarinnar er hann hóf vikurnám undir Snæfellsjökli. Þar byggði hann útskipunaraðstöðu og setti jafnframt upp verksmiðju í Reykjavík til framleiðslu á vikur- plötum til einangrunar og holstein- um til húsagerðar. Allt þetta var unnið af þvílíkum áhuga, ósérhlífni og dugnaði að aðdáun vakti. Án efa minnast margir bændur og aðrir íbúar á Snæfellsnesi vordag- anna er unnið var hörðum höndum við að fleyta og mala vikurinn til útstypunar og eins þeir er tóku á móti skipsförmunum í höfninni í Reykjavík. Mikið lá við að allt gengi eins og smurð vél enda vakti Jón yfir hveiju skrefi. Saga þessa merka fyrirtækis verður ekki rakin hér en uppbygg- ing þess og rekstur var enginn dans á rósum og ekki heiglum t hent að efna til slíks atvinnurekstr- ar á þeim árum. Vert væri að halda á lofti þessum merka þætti í ís- lenskri iðnsögu. En Jón kom víðar við í verslun- arrekstri. Um langt skeið rak hann jafnframt verslun með almennar isfaðirinn Torfi Jónsson fórst í sjó- slysi í Kollsvík frá sínum stóra barnahóp árið 1904, en samheldni og dugnaður fjölskyldunnar gerði ekkjunni kleift að halda áfram búskap og komust 11 börn til full- orðins ára. Við þessar aðstæður þurfti heimilið á öllum starfskröft- um að halda, jafnt barna sem full- orðinna, og sagt var að stúlkurnar sem elstar voru, Halldóra, Guðrún og Lovísa, hafi gengið af miklum dugnaði að því sem þá voru talin karlmannsverk við búskapinn, en elsti sonurinn Jón hóf róðra á barnsaldri með frændum sínum. Eigin dugnaður og samhjálp vina og venslafólks gerði afkomuna mögulega í upphafi þessarar aldar, félli fyrirvinna heimilisins frá barnahóp í ómegð. Þetta dugmikla fólk vann hörðum höndum við sveitabúskap, við útróðra á smá- bátum frá verstöðvum útvíkanna byggingavörur svo sem timbur, járn og sement en einnig hóf hann innflutning bifreiða árið 1946 og byggði upp í tengslum við það al- hliða þjónustu. Öll þessi starfsemi var rekin á Hringbraut 121 þar sem Jón byggði hið glæsilega verslunar- og iðnaðarhús sem enn er við hann kennt. Á löngum tíma urðu þeir margir er störfuðu hjá Jóni Loftssyni og margir þeirra til fjölda ára. Er ég sannfærður um að þeir minnast hans með mikilli virðingu sem góðs vinnuveitanda enda gerði hann sér far um að fylgjast með störfum þeirra og framgangi. En Jón Loftsson hafði einnig áhuga fyrir öðrum málum sem hann taldi að til heilla horfðu fyrir land og lýð svo sem slysavarnamál- um og skógrækt. Þegar Skógrækt- arfélag Reykjavíkur var stofnað var hann kosinn í stjórn þess og sinnti störfum gjaldkera til dauða- dags. Hann sá glöggt hve mikils virði skógræktin gæti orðið þessu landi og hann lét ekki sitt eftir liggja að veita því máli lið er hann mátti. Jón var einnig mjög áhugasam- ur um allt er snerti öryggismál bæði á sjó og landi. Hann var á stofnfundi Slysavarnadeildarinnar Ingólfs og kjörinn í stjórn hennar og síðar í varastjóm Slysavarnafé- lags íslands. Lagði hann málefnum þessara samtaka lið svo um mun- aði. Hér hefur aðeins verið stiklað á örfáum meginþáttum í athafnalífi merks manns sem ritað hefur með framsýni sinni og dugnaði nafn sitt á spjöld sögunnar og lagði jafn- framt lið merkum félagslegum verkefnum. Ég sem þessar línur rita hugsa með þakklæti og virðingu til tengd- aföður míns. Hann var einstakur maður, sívinnandi, hjálpfús og greiðvikinn. Sérstaklega minnist ég myndarheimilisins á Hávalla- götu 13 sem þau hjónin Brynhildur Þórarinsdóttir og Jón byggðu íjöl- skyldunni en þar varð og sama- staður margra ættmenna um lengri eða skemmri tíma. Þar var gott að koma og vel tekið á móti tengdasonum og tengdadætrum er bættust í íjölskylduna en þeir fyrstu börðu að dyrum upp úr 1950. Brynhildur er einstök hús- móðir og allt var gert til að börnum og gestum liði sem best. Það var vakað yfir velferð bamanna sex og Iögð áhersla á heilbrigt líf, vinnusemi og trúmennsku og séð og einnig við veiðiskap allan, þar með í fuglabjörgunum. Sem ungl- ingur kynntist ég frábærum hæfi- leikum Jóns í bjargferðum til að klífa það sem ófært virtist, og mun hann hafa erft það frá föður sínum að vera „fær” í bjargi enda næg tækifæri til að þjálfast í því á unga aldri og nauðsyn bar til að slíkum hættustörfum væri sinnt, þarna lögðu allir hönd á plóginn jafnt ungir sem gamlir, yngri bræðurnir strax og þeir höfðu aldur til urðu slyngir veiðimenn. Við þessar að- stæður ólust börnin í Kollsvík upp, líkt og tíðkaðist víða á barnmörg- um bæjum, við mikla vinnu algjör- lega fyrir heimilið til þess að fjöl- skyldan gæti haldið saman og sundraðist ekki. Húsmóðirin þekkti stórijölskyldulíf sjálf því hún var ein af 19 börnum foreldra sinna. Af börnum Guðbjargar og Torfa voru yngstir bræðurnir Guðmund- ur, f. 1901, og Samúel, f. 1902. Eftir tvítugt hleyptu þeir heim- draganum og héldu suður til að afla sér verkmenntunar, lögðu fyr- ir sig járnsmíðar og vélstjóranám í Reykjavík og Hafnarfirði. Svo náin var samfylgd þeirra bræðra í vitund okkar fyrir vestan, að til þess að koma börnum til mennta. Á milli Jóns og systkina hans fimm var náið samband en tvær systur eru enn á lífi, þær Anna og Jórunn. Jón Loftsson andaðist 27. nóv- ember 1958, en Brynhildur býr nú á heimili sínu Miðleiti 5 hér í borg. Börn þeirra eru: Ingibjörg (látin), eiginmaður Árni Björnsson (lát- inn), Sigríður, eiginmaður Ásgeir Guðmundsson, Loftur, eiginkona Ásta Hávarðardóttir, Katrín, Gunnhildur, eiginmaður Gunnar M. Hansson, og Þórarinn, eigin- kona Anna Þórðardóttir. Afkom- endur þeirra Jóns og Brynhildar eru_ nú 31 talsins. Á þessum degi minnast eigin- kona, afkomendur, tengdafólk og ættmenni elskulegs eiginmanns, föður, afa og velgjörðarmanns og samstarfsmenn, vinir og viðskipta- menn minnast merks athafna- manns með þakklæti og virðingu. Blessuð sé minning þessa mæta manns. Ásgeir Guðmundsson væri annars getið, var nafn hins venjulega nefnt í sömu andrá. Áhugamál þeirra voru svipuð, oft tengd veiðiskap, sem upphaf mátti rekja til unglingsáranna í Kollsvík, en þróaðist síðar til laxveiða, sem varð þeirra mesta unun. Meðan heilsa leyfði voru frístundir Guð- mundar aðallega bundnar trillu- bátnum hans og ferðum út á Faxa- flóa með byssu, net eða færi, en sumarleyfa notið að Árbakka, æskuheimili Þórhildar konu hans. Þeir bræður festu ráð sitt og kvon- guðust árið 1938. Þeir keyptu sam- an tveggja hæða íbúðarhús á Njálsgötu 36 í Reykjavík. Þar leit- aði ég ungur þeirra ráða er ég hugðist fara í þeirra slóð og stefna að vélstjóranámi, og báðum á ég þeim þakkarskuld að gjalda frá þeim árum. Guðmundur var stakur reglu- maður, ekki af mætti samtaka, heldur af eigin ákvörðun, og í því sem öðru miðaði að því að gera það sem góð og heilbrigð skynsemi teldi rétt og eðlilegt. Það sem ein- kenndi hann öðru fremur var ein- stök reglusemi, jafnt í starfi sem í frístundum við spil eða í veiði- stöð. Hann þekkti af eigin raun nauðsyn þess að vinna til þess að öðlast viðunandi afkomu og var einlægur stuðningsmaður róttækr- ar verkalýðsbaráttu á fyrrihluta þessarar aldar. Hann fylgdist af áhuga með högum okkar systkina- barna sinna, og spurði mig meðal annars í áðurnefndu samtali um daginn hvort ekki værí nú tími til kominn fyrir okkur að fara að flytja heim aftur. Á Njálsgötu 36 hafa þau Guð- mundur og kona hans Þórhildur Jakobsdóttir búið allan sinn bú- skap, yfir 50 ár, alið þar upp sín ágætu börn, Sigurlaugu, Torfa og Jakob, og nú er upp kominn hópur myndarlegra barnabarna. Þangað hefur verið gott og gagnlegt fyrir okkur að koma, og fyrir stundirnar þar þökkum við bæði, ég og Guð- finna kona mín. Við biðjum Guðmundi blessunar við heimkomu hans til sinnar stóru foreldrafjölskyldu, sem á undan er gengin, og sendum Þórhildi, börn- unum og öllum vandamönnum ein- lægar samúðarkveðjur. Grimsby, 6. desember 1991 Ólafur Guðmundsson SAGA SELFOSS - Frá landnámi til 1930 eftir Gudmund Kristinsson. Saga Selfoss segir jarðsögu byggðarinnar þar sem höfuð- skepnurnar mótuðu landið meira en í nokkrum öðrum kaupstað, með jarðeldum, ísaldarjökli og árflóðum. Bókin skiptist í 27 meginkafla. Þar segir frá örn- efnum og aldarfari, bændum í 300 ór, Laugardælakirkju og prestum i 400 ár, Laugardæla- ferju, póstferðum og órflóðum 1888 og 1889. Sagt er frá aðdraganda og smíði Ölfusár- brúar, Suðurlandsskjálftum, Þjóðtrú og búskap á Selfossbæjum, Laxveiði og farandmönnum. Þá er sagt fró upphafi nútíma byggðar, gestgjöfum í Tryggvaskála, konungskom- um 1907 og 1921, fyrstu iðnaðarmönnum, upphafi verslunar, veitinga- tjaldi Daníels, Verslun í Sigtúnum og Höfn, og lýkur þessu bindi með lýsingu á árflóðinu 1930. Þetta er stórstórfróðleg saga af innreið nútímans í líf Sunnlendinga og hvernig byggðin við Ölvusárbrú tók smám saman við hlutverki Eyrarbakka sem höfuðstaður Suðurlands. Bókin er prýdd 184 Ijósmyndum sem margar hafa aldrei áður birts og nafnaskrá 1261 manns sem við sögu koma. FftST HIÁ BÓKSÖLUM UM LAND ALLT. Selfosskaupstaður áipill ■éi w'ÆM > . . : " '■ Níðsterkt og þvottekta úrþykku plastefni rneð upphengi. Jólatitboðsverð kr 700.- Fœst einungis í Kortaverslun Landnuetínga íslatuls, Laugavegi 178. Stærð: 60x50 cm. VDMÆUl ÍSLAAID. 'DS SÍMI: 680 999 Jón Loftsson stórkaupmaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.