Morgunblaðið - 11.12.1991, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 11.12.1991, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1991 KNATTSPYRNA Hlynur æfir með Brann HLYNUR Stefánsson, lands- liðsmaður í knattspyrnu frá Vestmannaeyjum, fertii norska liðsins Brann í vikutíma eftir áramótin til æfinga og gerist hugsanlega leikmaður með lið- inu í f ramhaldi af þvi. Forráðamenn norska liðsins höfðu samband við Hlyn í vik- unni og buðu honum að koma. „Ég fer strax eftir áramótin, æfi í viku og sé svo til. Ef þeir bjóða mér eitt- hvað gott iæt ég kannski slag brim FOLK ■ MICHAEL Thomas hjá Arse- nal, sagði; Nei, takk - við að fara til Liverpool í gær. Félögin voru búin að koma sér saman um sölu- FráBob hennessy í Englandi verð á honum - 1,5 millj. pund. Saming- ur Thomas við Arsenal rennur út í vor og hefur hann hug á að fara til Italíu. Samp- doría hefur sýnt honum áhuga. Arsenal mun aðeins fá 500 þús. pund fyrir hann, þegar samningur hans rennur út. Reiknað er með að Graeme Souness geri aðra tilraun til að fá Thomas. ■ STEVE McMahon er á förum frá Liverpool. Allt bendir til að hann fari til Man. City á 700 þús. pund. McMahon er óánægður hjá. Liverpool. ■ PAUL McStay hjá Celtic vill fara frá félaginu. Everton og Liverpool hafa áhuga á að kaupa hann á 2,3 millj. pund. Everton er tilbúið að láta Pat Nevin til Celtic í skiptum. McStay neitaði í gær að skrifa undir samning upp á fjög- ur ár við Celtic, sem hefði gefið honum 1,2 millj. pund í vasann. ■ ALLIR 28 leikmenn Oxford „eru komnir á sölulist. Maxwell-fjöl- skyldan á félagið, sem tapar nú 50 þús. pundum á viku. Menn sem hafa lagt peninga í félagið vilja fá þá til baka. Einn þeirra er maður sem lánaði tvær millj. pund. Fyrsti leikmaðurinn var seldur í gær — Lee Nogan fór til Watford á 275 þús. pund. Aðrir eiga eftir að fara frá Oxford næstu daga. Félagið er í neðsta sæti í 2. deild. ■ ÞÝSK knattspyrna varð fyrir enn einu áfallinu í UEFA-keppninni í gær. Hamburger tapaði þá, 1:4, fyrir Sigma Olomouc í Tékkósló- vakíu og er úr leik. standa. En tilboð þeirra verður að vera gott til að ég fari að rífa mig upp með fjölskylduna,“ sagði Hlyn- ur við Morgunblaðið í gær. Þess má geta að Hlynur lék sumarið 1986 í Noregi, með 3. deildarliðinu Nydelfalken frá Þrándheimi. Hann á að baki sjö A-landsleiki og 88 leiki í 1. deild með ÍBV og Víkingi, en með Reykjavíkurliðinu lék hann eitt sumar. Hlynur hefur gert 19 mörk í 1. deild. Hlynur Stefánsson Skotar koma ekki Skoska landsliðið í knattspyrnu leikur ekki vináttulandsleik við ísland á Laugardalsvelli í byrj- un júní á næsta ári eins og talað hafði verið um. Að sögn tals- manns skoska knattspymusam- bandsins fellur æfingaleikur á þessum tíma ekki inní æfmgaá- ætlun landsliðsins fyrir úrslita- keppni Evrópumótsins, sem verð- uríSvíþjóð oghefst lO.júnín.k. Skotar sögðust vera reiðubúnir til að leika á íslandi kæmust þeir í úrslitakeppni EM, en nú eru þeir á öðru máli. Þeir fara til Bandaríkjanna um miðjan maí og leika þar tvo leiki á tveimur vik- um, en lokaundirbúningurinn verður síðan í Skotlandi. David Morris, sem sér um erlend sam- skipti hjá skoska sambandinu, sagði við Morgunblaðið að Banda- ríkjaferðin hefði ekki sett strik í reikninginn heldur væri talið að ekki væri rétt að leika leik svo skömmu fyrir EM. „Því miður verður þessi leikur því ekki í júní, en reynt verður að koma honum á síðar,“ sagði Morris. Snorri Finnlaugsson, fram- kvæmdastjóri KSÍ, sagði í gær að verið væri að reyna að fá ann- að lið til að koma til landsins í sumarbyrjun — sterkt Iið, og helst eitthvert þeirra sem yrði í úrslita- keppni Evrópumótsins í Svíþjóð í júní. Islendingar gegn Rússum eða Úkraínumönnum? Júgóslavneska landsliðið á eftir að riðlast mikið fyrir keppnina í HM Úkraínumaðurinn Mikhailichenko. Hvað fagnar hann lengi í leik með Sovétríkjunum? „VIÐ getum engin svör gefið. Það er mikil óvissa hér og við vitum ekkert meira en þú,“ sagði talsmaður hjá sovéska knattspyrnusambandinu, þeg- ar Morgunblaðið sló á þráðinn til sambandsins ígær, og spurst var fyrir um hvaða ríki kæmi til með að leika fyrir hönd Sovétríkjanna í HM-keppninni fknattspyrnu, ef Sovétríkin liðu undir lok sem ríkissamband, eins og alit stefnir í. Ef svo yrði myndi eitt nýju lýð- veldanna leika í staðinn fyrir Sovétríkin og koma Úkraína og Rússland þá helst til greina, en landslið Sovétríkjanna hefur verið byggt upp á leikmönnum frá þess- um ríkjum. Þeir fjórtán leikmenn sem hafa leikið síðustu tvo lands- leiki Sovétríkjanna koma frá Rússl- andi (sjö), Úkraínu (fimm), Hvíta- Rússlandi (einn) ogGeorgíu (einn). Undanfarin ár hefur hefur verið miklar hræringar í sovéskri knatt- spyrnu. Fyrir tveimur árum drógu lið frá Georgíu, eins og Dinamo Tbilisi, Lanchkhuti og Erevan, sig út úr sovésku deildarkeppninni. í Júgóslavíu Ameðan óbreytt ástand varir í Júgósiavíu verða engir landsleikir í knattspyrnu í landinu. FIFA staðfesti þetta um helgina og fylgdi þar með fordæmi UEFA, sem hefur bannað Evrópuleiki landsliða og fé- lagsliða í Júgóslavíu. Evrópuleikir Júgóslavíu hafa að undanförnu farið fram í Austurríki. „Sé ekki annað en við þurf- um að ganga á varasjóðinn“ - segir Elías Hergeirsson, gjaldkeri KSÍ. Litlirtekjumöguleikar í sambandi við HM Þetta var alis ekki drauma- dráttur gjaldkerans. Ég sé ekki fram á annað en við þurfum að ganga á varasjóð okkar,“ sagði Elías Hergeirsson, gjaldkeri Knattspymusambands Islands, um dráttinn í heimsmeistara- keppninni. „Það er ekki hægt að reikna með sjónvarps- eða auglýs- ingatekjum í sambandi við leikina. Það er einna helst leikurinn gegn Grikkjum sem kemur til með að gefa okkur einhveijar tekjur.“ „Nú hefur það komið fram sem við óttuðumst og bentum á - á ársþingi KSÍ; að ekki væri tíma- bært að skerða fasta tekjustofna sambandsins." Á ársþinginu var samþykkt að fella niður 5% miða: gjald af leikjum í 1. deild til KSÍ og breytingar voru gerðar á skráningagjöldum. Þetta skerðir tekjur KSI um 3,3 milljónir á næsta ári. „Menn voru of bráðlátir. íslend- ingar eru eitt sinn þannig. Það þarf að eiða öllu, sem búið pr að afla - og það sem fyrst. Nú þurf- um við að sitjast niður og endur- skoða fjárhagsáætlun sambands- ins. Við sjáum fram á mikil út- gjöld í sambandi við ferðakostnað og annað, en litla innkomu. Við verðum að vona að strákarnir okkar standi sig vel, þannig að áhorfendur fjölmenni á völlinn til að sjá þá leika í keppninni. Góður árangur hefur mikið að segja. Aðsókn á heimaleiki eru mestu tekjumöguleikar okkar,“ sagði Elías. Elías sagði að ef vel myndi ganga í HM, væri gott að eiga góðan varasjóð - t.d. til að senda landsliðið í æfingabúðir. Georgía er með eigin deildar- keppni, landslið og Georgíumenn óskuðu eftir því við FIFA að þeir fengu að taka þátt í HM með sitt landslið, eins og Eystrasaltsríkin Eistland, Lettland og Litháen, en ósk þeirra var hafnað. Úkraína hefur nú dregið sig úr sovésku deildarkeppninni og stofn- að eigin deild með 12 félagsliðum, eins og Dynamo Kiev og Dneprop- etrovsk Dnepr, tvö of sterkustu lið- um Sovétríkjanna undanfarin ár. Úkraínumenn ætla að tefla fram eigin landsliði, en þess má geta að ellefu leikmenn frá Úkraínu léku í „Spútnikliði“ Sovétmanna í HM í Mexikó 1986. Tímamót einnig hjá Júgóslövum Ástandi í Júgóslavíu er lítið betra en í Sovétríkjunum. Landslið Júgó- slava á eftir að riðlast. Flestir leik- menn liðsins eru Serbar, en einn er Slóvani, Srecko Katanec hjá Sampdoría og fjórir eru Króatar - Robert Prosinecki hjá Real Madrid og Boban, Jarni og Suker, en allir þessir fjórir leikmenn voru lykil- menn í unglingaliði Júgóslavíu, sem varð heimsmeistari 1987. Aðeins selt í sæti: „Vonumst eftir und- anþágu ií Við höfum átt fund með mönnum frá FIFA og UEFA vegna ákvörðunar um að aðeins yrði leyfi- legt að selja miða í sæti í heims- meistarakeppninni. Þeir skildu sjónarmið okkar og sögðu að við gætum átt von á að fá undanþágu, þannig að við gætum einnig selt miða í stæði,“ sagði Elías Hergeirs- son, gjaldkeri KSÍ. „En til þess að fá undanþágu verðum við að sýna fram á að það séu fyrirhugaðar framkvæmdir til úrbóta á Laugardalsvellinum. En ef þeir hjá FIFA eru harðir á að aðeins sé leyfilegt að selja eingöngu miða í sæti, stöndum við ráðþrota. Við gætum þá aðeins selt tæplega 3.500 miða á heimaleiki okkar. Við höfum rætt við borgar- stjórann um þessi mál og fengið góðar móttökur," sagði Elías.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.