Morgunblaðið - 11.12.1991, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1991
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1991
33
fltotgisiifyfofrife
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Tilraun sem verður
að takast
Um áramótin 1989/1990 var
verðbólga hér landi rúm-
lega 20% og kaupmáttur
12—15% íægri en verið hafði
um áramótin 1987/1988. Þjóð-
arsáttin í byijun febrúar síðast-
liðið ár tók mið af þessari stöðu
og þeim efnahagsveruleika sem
við blasti almenningi og at-
vinnuvegum. Marmkið hennar
var að stöðva kaupmáttarhrap-
ið, sem verið hafði og fyrirséð
var að öllu óbreyttu, stuðla að
stöðugleika í þjóðarbúskapnum
og fyrirbyggja víðtækt atvinnu-
leysi.
Ásmundur Stefánsson, for-
seti ASÍ, sagði m.a. í áramóta-
hugvekju, „Tilraun sem tókst“,
og birt var hér í blaðinu á gaml-
ársdag fynr tæpu ári:
„Þegar staðan er metin nú,
um það bil ári síðar, má með
réttu segja að tilraunin hafi tek-
izt. Verðbólga er í meginatrið-
um sú sama sem gert var ráð
fyrir.“
Síðar í grein sinni sagði for-
seti ASÍ:
„Þó náðst hafi betri árangur
en flestir bjuggust við er nauð-
synlegt að muna að tilraunin
stendur enn. Hvort árangur
verður varanlegur á eftir að
koma í ljós. Ennþá er nauðsyn-
legt. að fylgja markmiðum
samninganna vel eftir og veita
aðhald...“
Senn er eitt .ár liðið frá því
forseti ASÍ festi framanrituð
orð á blað, ár mikilla efnahags-
þrenginga, sem því miður er
sýnt að vaxi fremur en hjaðni
á komandi ári. Samkvæmt end-
urskoðun Þjóðhagsstofnunar á
helztu þjóðhagsstærðum líðandi
árs, dagsettri 27. nóvember síð-
astliðinn, er talið að landsfram-
leiðsla líðandi árs dragizt saman
um 3,6%, að útflutningur vöru
og þjónustu dragizt saman um
rúm 5% og hallinn á viðskiptum
við önnur lönd verði rúmir 18
milljarðar króna. Ekki bætir
halli ríkissjóðs úr skák en hann
stefnir í 8—10 milljarða króna
á þessu ári.
Ekki horfir heldur björgulega
til komandi árs. í nýútkominni
skýrslu Seðlabanka íslands um
horfur í peningamálum, gjald-
eyrismálum og gengismálum er
ráðgerður aflasamdráttur 1992
og frestun ál- og orkuversfram-
kvæmda metin til 3,5% sam-
dráttar í landsframleiðslu og
með og ásamt rýrnun viðskip-
takjara til 6% lækkunar þjóðar-
tekna.
En það er, þrátt fyrir allt,
viðblasandi ljós í skammdegi
íslenzkra efnahagsmála: þjóðar-
sáttin, sem gerð var í febrúar
1990, það er árangur hennar í
hjöðnun verðbólgunnar. Sam-
kvæmt útreikningum Kauplags-
nefndar er framfærsluvísitalan
í desembermánuði þetta ár 0,1%
lægri en í síðastliðnum mánuði.
Ef tekið er mið af verðlagsþróun
síðustu þriggja mánaða er verð-
bólga, miðað við heilt ár, 4,4%.
Ef miðað er við verðþróun síð-
ustu tólf mánaða er verðbólgan
7,5%. Verðbólga hefur ekki áður
mælst svo lítil hér á landi síðan
á dögum viðreisnarstjórnarinn-
ar 1959-1971.
Það er öllum gjörhugulum
mönnum ljóst, að þjóðarsáttin
hefur tryggt jafnvægi og stöð-
ugleika í atvinnu- og efnahags-
lífi okkar, að því marki sem
erfiðar ytri aðstæður og svokall-
aður fortíðarvandi hafa frekast
leyft. Þjóðarsáttin hefur í senn
bægt annars viðblasandi at-
vinnuleysi frá þúsundum lands-
manna og komið í veg fyrir
annars fyrirsjáanlegt kaup-
máttarhrap, ef verðbólgan hefði
hlaðizt upp með svipuðum hætti
og þá verst gegndi á áttunda
og níunda áratugnum. Á fimm
ára tímabili, 1977—1982, var
verðbólguhraðinn að meðaltali
yfir 50% á ári, og náði hámarki
milli áranna 1982—1983,
84,3%. Hefði sá verbólguhraði
sett mark sitt á næstliðin erfið-
leikamisseri væri staða mála í
dag trúlega svipuð og á kreppu-
árunum 1930-1940.
Það skiptir meginmáli við
ríkjandi aðstæður að draga
verulega úr ríkissjóðshalla og
opinberri lánsfjáreftirspurn, ef
raunvaxtalækkun, sem aðilar
vinnumarkaðarins gera kröfu
til, á að verða annað og meira
en orðin tóm. Gengisfestan, sem
felst í yfirlýsingum ríkisstjórn-
arinnar, gerir og kröfuna um
aðhald í þróun útgjalda og eftir-
spurnar enn mikilvægari. Þetta
tvennt er eins konar bakland
þjóðarsáttarinnar, sem treysta
verður í sessi, til að unnt verði
að ná þjóðarskútunni upp úr
öldudal þeirra þrenginga í þjóð-
arbúskapnum, sem við verður
að stríða næstu misseri.
Þjóðarsáttin og hjöðnun verð-
bólgunnar eru stefnuvísandi
leiðarljós í skammdegi íslenzkra
efnahagsmála. Það á að vera
forgangsverkefni hjá aðilum
vinnumarkaðarins og ríkisvald-
inu að það ljós megi lifa og visa
veginn í tilraun sem verður að
takast.
EFNAHAGSRAÐSTAFANIR RIKISSTJORNARINNAR
Hugmyndir um skerðingu sjómannaafsláttar:
Fullur sjómamiaafslátt-
ur er 241.000 kr. á ári
SJÓMANNAAFSLÁTTUR er nú 660 krónur á dag, sem dregst frá
tekjuskatti í staðgreiðslu. Fullur sjómannafsláttur getur numið 20.400
krónum á mánuði, eðá 240.900 á ári, hjá sjómanni sem er lögskráður
á skip, því hann nýtur nú afsláttar alla þá daga sem hann þiggur laun
eða aflahlut, þar með talið orlofsdagar. Hjá beitingamönnum er hins
vegar miðað við starfsdaga, og verði sjómannaafsláttur afnuminn hjá
þeim, eins og ríkisstjórnin stefnir að, þyrftu þeir að greiða 16.500
krónum meira í skatt á mánuði ef starfsdagar þeirra eru 25.
Ríkisstjórnin leggur til að reglu-
gerð um sjómannaafslátt verði breytt
þannig, að einungis verði miðað við
starfsdaga á sjó við úthlutun sjó-
ma'nnaafsláttar. Forsvarsmenn sjó-
manna hafa sagt, að þessar tillögur
ríkisstjórnarinnar geti þýtt allt að
þriðjugs skerðingu á sjómannaaf-
slætti, eða um 80 þúsund krónur hjá
sjórnanni.
í núgildandi reglugerð segir, að
hjá sjómanni á fiskiskipi skuli miða
við þá daga sem hann er lögskráður
á skipið, að viðbættum þeim dögum
þegar hann þiggur laun eða aflahlut
sem sjómaður, t.d. þá er skip liggur
í höfn vegna tímabundinni tafa frá
veiðum vegna viðgerða eða þegar
skipt er um veiðarfæri, enda sé hann
háður ráðningarsamningi og á laun-
um sem sjómaður við útgerðina á
því tímabili. Sama eigi við þá daga
sem sjómaður fái greiðslur fyrir hjá
útgerðinni þegar hann sé í orlofi eða
veikur, en frídagar án launa teljast
ekki með.
Aðrir sjómenn, t.d. í áhöfn farm-
skipa, farþegaskipa og varðskipa, fá
sjómannaafslátt fyrir þá daga sem
þeir eru lögskráðir að viðbættum
þeim dögum sem þeir halda launum
sem sjómenn.
í reglugerðinni segir, að hluta-
ráðnir landmenn, þ.e. beitingamenn
á línubát, skuli njóta sjómannaaf-
sláttar þótt þeir séu ekki lögskráðir.
Sá afsláttur skuli svara til þeirra
starfsdaga, sem þeir séu í fullu starfi.
í því frumvarpi um tekju og eigna-
skatt, sem ríkisstjórnin lagði fram á
Alþingi í gærkvöldi, er ekki gert ráð
fyrir að frádráttarliðir frá tekju-
skatti hækki um áramótin. Þannig
verði sjómannafsláttur áfram 660
krónur á dag, og persónuafsláttur
áfram 23.922 krónur á mánuði fram
að 1. júlí á næsta ári, eins og hann
er nú. Skattleysismörk almennings
verða því áfram tæplega 59 þúsund
krónur á mánuði, og rúmlega 111
þúsund hjá sjómönnum fái þeir fullan
sjómannaafslátt.
Tillaga ríkisstjórnarinnar um skerðingn sjómannaafsláttar:
3 þingmenn Sjálfstæð-
isflokks verða á móti
Sjómannafélög efna til mótmælafunda
og boða hörð viðbrögð
ÞRÍR þingmenn Sjálfstæðisflokksins lýsa sig algerlega andvíga tillögu
ríkisstjórnarinnar um skerðingu sjómannaafsláttar. Guðmundur Hall-
varðsson, sem er formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, og Matthías
Bjarnason þingmaður á Vestfjörðum, segjast ætla að greiða atkvæði
gegn tillögunni og einnig hefur komið fram að Einar Guðfinsson er
andvígur tillögunni. Fleiri þingmenn munu hafa efasemdir um tillög-
una og er ekki talið víst að meirihluti sé í stjórnarflokkunum til að
tillagan náist í gegn eins og hún hefur verið kynnt. Árni Johnsen
segist hafa barist fyrir því að sjómannaafslátturinn yrði ekki skertur
en ætli að standa með ríkisstjórninni og styðja 180 millj. skerðingu
ef samstaða verði um málið með fyrirvara um úlfærslu á skerðingunni.
Forsætisráðherra og ijármálaráð-
herra hafa lýst yfir að þeir telji að
þingmeirihluti sé fyrir tillögunum.
Alls þurfa fimm þingmenn úr stjórn-
arflokkunum að snúast gegn tillög-
unni til að meirihluti ríkisstjórnarinn-
ar með málinu sé fallinn. Talið ér að
á þetta muni fyrst reyna við þriðju
umræðu um fjárlagafrumvarpið.
Andstaða og efasemdir
Árni Johnsen sagði að í ljós hefðu
komið ákveðnir vankantar á sjó-
mannaafslættinum hefði viðgengist
og mikilvægt væri að skerðingin
kæmi niður þar áður en gengið yrði
að kjörum sjómanna.
„Eg er algjörlega á móti skerðingu
sjómannaafsláttar og mun aldrei
greiða atkvæði með henni. Löggjaf-
inn hefur viðurkennt að sjómanna-
stéttinn eigi að hafa þetta og það
er síst ástæða til að hverfa frá því
á tímum þegar afli er skorinn niður.
Þetta er heilagt mál fyrir sjómanna-
stéttinni og ég ber alltof mikla virð-
ingu fyrir henni til að ég ljá atkvæði
mitt til þess að níðast á henni,“ sagði
Matthías Bjarnason.
Ingi Björn Albertsson sagðist vilja
sjá málið í heild sinni áður en hann
gæfi upp afstöðu sína. „Prinsippaf-
staðan er þó sú að skerða ekki áunn-
ar launatekjur manna,“ sagði hann.
Guðjón Guðmundsson alþingis-
maður á Vesturlandi sagði að af-
staða sín kæmi í ljós þegar málið
yrði afgreitt á Alþingi. Sagðist hann
greina frá skoðun sinni í þingflokki
sjálfstæðismanna en vildi ekki greína
frá henni opinberlega nú. Gunnlaug-
ur Stefánsson Alþýðuflokki vildi
heldur ekki ræða afstöðu sína í sam-
tali við Morgunblaðið. „Allar þessar
aðgerðir eru á viðkvæmu stigi á
meðan þær hafa ekki náð fram að
ganga á þinginu,“ sagði hann.
Guðmundur Ilallvarðsson sagðist
ákveðið ætla að greiða atkvæði gegn
skerðingu sjómannaafsláttarins.
Mótmæli sjómanna
Hólmgeir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Sjómannasambands íslands,
segir mikla reiði ríkjandi meðal sjó-
manna vegna ákvörðunar ríkis-
stjórnarinnar að skerða sjómanna-
afsláttinn og segir að vel komi til
greina að sjómenn sigli í land. Segir
hann líklegt að skerðing sjómannaaf-
sláttarins sé nálægt 30% eða um 500
milljónir kr. Afslátturinn nemi að
jafnaði um 15% af launum undir-
manna á flotanum og því geti skerð-
ingin þýtt um 5-6% samdrátt á laun-
um þeirra en það þýðir um 80 þús-
und kr. á hvern sjómann á ári skv.
upplsyingum benedikts valssonar,
framkvæmdastjóra FFSÍ.
Hólmgeir segir að sjómannafélög-
in vítt og breitt um landið séu að
boða til funda vegna málsins og
ætlar hann að kalla framkvæmda-
stjórn Sjómannasamtakanna saman
þegar texti frumvarpsins liggur fyr-
ir.
„Við erum mótfallnir þessu og
finnst þessi aðgerð mjög óréttlát.
Sjómannaafslátturinn er hluti af
kjörum sjómanna og þarna er verið
að ráðast á kjör einnar stéttar. Það
hljóta menn að taka mjög óstinnt
upp,“ sagði Hólmgeir.
Hann sagði að aðrar aðgerðir rík-
isstjórnarinnar eins og tekjutenging
barnabóta snertu sjómenn eins og
aðra en því til viðbótar væri nú geng-
ið sérstaklega á kjör sjómanna. Því
yrði svarað með mjög hörðum við-
brögðum.
Hann var spurður hvort ekki væri
réttlætanlegt að miða afsláttinn ein-
göngu við starfsdaga á sjó. „Nei,
því það er líka skerðing. Samkvæmt
lögunum eiga hlutaráðnir sjómenn
að fá sjómannaafslátt fyrir hvern
dag sem þeir stunda sjómannsstörf.
Þau eru ekki aðeins stunduð út á
sjó heldur þurfa til dæmis sjómenn
á bátaflotanum að útbúa skip í byrj-
un vertíðar og ganga frá þeim í lok
vertíðar. Auk þess eiga þeir rétt á
sjómannaafslætti í veikindafríum og
í orlofi. Þetta er allt klippt út,“ sagði
hann.
Hólmgeir sagði að þar sem kjara-
samningar eru lausir væru sjómenn
að undirbúa sig fyrir samningavið-
ræður en þetta mál hefði hefði óhjá-
kvæmilega áhrif á þær.
Ríkisstjórnin hefur lagt til að sjómannaafslátturinn verði bund-
inn við starfsdaga á sjó en ekki lögskráningardaga eins og
núverandi reglugerð kveður á um.
Oljóst um aðflutn-
ingsgjöld bifreiða
í NÝJUM fjárlagatillögum ríkisstjórnarinnar er m.a. gert ráð fyrir að
hækka aðflutningsgjöld á stærri bilum og er talið að þetta geti skilað
ríkissjóði 100 milljóna króna hærri tekjum á næsta ári. Ekki hefur þó
enn verið ákveðið hversu mikil hækkunin eigi að vera. Að sögn Indriða
Þorlákssonar lyá fjármálaráðuneytinu eru aðflutningsgjöldin nú á bilinu
16% til 66% af innflutningsverði og fer það eftir stærð bifreiðanna.
Indriði sagði í samtali við Morgun-
blaðið að nú væri aðflutningsgjald á
stærri bifreiðum allt upp í 66%, og í
tillögunum væri gert ráð fyrir að auka
það enn frekar. Hvorki hefur verið
ákveðið hver hækkunin eigi að verða
né hversu þungar bifreiðarnar verði
að vera og segir Indriði að verið sé
að undirbúa reglugerðarbreytingu
þess efnis.
Sigfús Sigfússon, framkvæmda-
stjóri Heklu hf., segist ekki vera
ánægður með þessar tillögur. „Bílasal-
an í ár hefur verið góð, eða eins og
í meðal ári, en nú síðustu þijá mánuði
hefur sala verið mjög léleg og ef
hækka á aðflutningsgjöld þá minnkar
salan bara enn meira, þannig að þeir
fá ennþá minna inn í kassann," segir
Sigfús.
Guðmundur Ágúst Ingvarsson
framkvæmdastjóri Ingvars Helgason-
ar hf., segist ekkfert geta tjáð sig um
málið vegna þess hversu óljósar þess-
ar tillögur séu.
Aform um skerðingu niðurgreiðslna á mjólkurdufti:
Leiðir til tugprósenta
hækkunar á sælgæti
- segir framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda
„ÞARNA er verið að fjalla um sparnaðarráðstafanir undir því yfirskyni
að draga úr útgjöld'um til landbúnaðar, en allar afleiðingarnar bitna á
þriðja aðila sem er sælgætisgerðin. Þetta mun leiða til hækkunar a inn-
lendri sælgætisframleiðslu svo nemur tugum prósenta," sagir Ólafur
Davíðsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda um þau áform
ríkisstjórnarinnar að skerða niðurgreiðslur á mjólkurdufti. Hann segir
að þetta muni hafa í för með sér verulegan samdrátt í umsvifum og
framleiðslu íslenski-a sælgætisframleiðenda.
Að sögn Magnúsar Péturssonar,
ráðuneytisstjóra íjármálaráðuneytis-
ins, er í áformum ríkisstjórnarinnar
gert ráð fyrir að niðurgreiðslur á
mjólkurdufti verði skertar um 100
milljónir, en á móti því sem þetta
mundi rýra samkeppnisstöðu inn-
lendrar framleiðslu- yrði lagður jöfn-
unartollur á innflutt sælgæti, sem
gæti numið 30 milljónum króna á
næsta ári.
Ólafur Davíðsson sagði í samtali
við Morgunblaðið að ekki væri hægt
að láta sælgætisframleiðsluna líða
fyrir þá landbúnaðarstefnu að leyfa
ekki innflutning á mjólkurdufti á
heimsmarkaðsverði, sem væri tífalt
lægra en verð innlendu framleiðslunn-
ar, og umræddar niðurgreiðslur væru
því iðnaðinum óviðkoamandi.
„Þegar eitt mikilvægasta hráefnið
tífaldast í verði þá hlýtur það að kalla
á mjög mikla röskun á framleiðsl-
unni. Þetta gjörbreytir öllum skilyrð-
um greinarinnar, og er miklu meiri
breyting en nokkur sanngirni er að
leggja á eina grein. Sérstaklega af
því að þetta er afleiðing og áhrif af
allt annari aðgerð. Við höfum ekki
fengið nákvæmar fregnir af því hvern-
ig þetta á að gerast, en ef jafnframt
verður leyfður innflutningur á mjólk-
urdufti þá er það það sem við höfum
alltaf lagt til. Framleiðendur eru af-
skaplega uggandi út af þessu, en við
höfðum alltaf treyst því að þær breyt-
ingar sem kynnu að verða gerðar yrðu
með þeim hætti að við fengjum að
fylgjast með og bregðast við þeim,
en þarna virðist þetta gert í skynd-
ingu. Við viljum því sjá nákvæmlega
hvað þarna er um að ræða, áður en
við segjum álit okkar endanlega um
það,“ sagði Ólafur.
Stéttarsamband bænda:
Seinkun greiðslna mótmælt
STETTARSAMBAND bænda hefur
sent frá sér mótmæli vegna áforma
ríkisstjórnarinnar um að lengja
svonefndar beinar greiðslur til
sauðfjárbænda, þannig að þær
standi yfir í tólf mánuði í stað tíu,
en samkvæmt þessu flyst sjötti hluti
greiðslna ársins 1992 yfir á árið
1993, eða 295 millj. kr. Stéttarsam-
bandið segir þessi áform ekki vera
í samræmi við búvörusamninginn,
sem gerður var síðastlðið vor, og
tryggja átti sauðfjárbændum
greiðslur fyrir framleiðslu sína á
sjálfu framleiðsluárinu.
Haukur Halldórsson, formaður
Stéttarsambands bænda, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að stjórn Stétt-
arsambandsins ætti eftir að ræða
þessi áform ríkisstjórnarinnar sér-
staklega, en almennt séð væri þeim
að sjálfsögðu mótmælt.
„Þetta er ekki í samræmi við þann
búvörusamning sem gerður var, og
við hörmum að ríkisstjórnin skuli
grípa til þessa. Það verður hins vegar
að segjast eins og er að það eru ekki
komin nein búvöruleg sem kveða á
um þessar greiðslur, og því vitnum
við til þess að þetta sé ekki í sam-
ræmi við þann búvörusamning sem
gerður var. Þetta er sjötti hluti af
beinum greiðslum til sauðfjárbænda
og því samsvarandi seinkun á launa-
greiðslum til þeirra," sagði hann.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga:
Sættum okkur ekki við að ráðskast
sé með tekjustofna sveitarfélaga
„VIÐ getum alls ekki sætt okkur við það að verið sé að ráðskast með
tekjustofna sveitarfélaga og verkaskiptingu, eins og framkomnar hug-
myndir ríkisstjórnarinnar gera ráð fyrir, og við hljótum að mótmæla
því harðlega að það sé gert,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formað-
ur Sambands íslenskra sveitarfélaga, um þær tillögur ríkissljórnarinnar
í efnahagsmálum, sem hafa munu í för með sér verulegan útgjaldauka
fyrir sveitarfélögin í landinu á næsta ári. Þá mótmælti borgarráð Reykja-
víkur á fundi sínum í gær harðlega framkomnum hugmyndum rikisstjórn-
arinnar um efnahagsráðstafanir. Borgarráð telur þær hafa í för með sér
um eins milljarðs króna útgjaldaauka fyrir sveitarfélögin, og þar af
megi gera ráð fyrir að Reykjavíkurborg beri að minnsta kosti um 400
milljónir króna.
„Við erum nýlega búnir að ganga
í gegnum mikla umræðu og umfjöllun
um tekjustofna og verkaskiptingu rík-
is og sveitarfélaga, en lög þar að lút-
andi tóku gildi 1. janúar 1990, og við
getum hreinlega ekki sætt okkur við
það að það sé verið að btjóta það
samkomulag þessara aðila sem lá að
baki þessum lögum með nánast ein-
hliða ákvörðunum ríkisvaldsins,“
sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson í
samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði áform ríkisstjórnarinn-
ar koma sveitarstjórnarmönnum alveg
í opna skjöldu, og ef það væri mat
ríkisvaldsins að sú siðferðisskylda
hvíli á sveitarfélögum að útvega tæp-
lega einn milljarð sem lið í lausn efna-
hagsvandans, þá væri það algjört
frumatriði að ríkisstjórnin gerði betur
grein fyrir afstöðu sinni og ætti við-
ræður við forsvarmenn sveitarfélaga
um þessi mál eins og samstarfssamn-
ingur ríkis og sveitarfélaga og sveitar-
stjórnarlög gerðu ráð fyrir. Ljóst væri
að sveitarfélögin ættu við vanda að
stríða eins og ríkisvaldið, og mörg
þeirra stæðu frammi fyrir verulegum
fjárhagslegum örðugleikum. í því
sambandi mætti nefna þá fjárhags-
legu ábyrgð og þátttöku, sem mörg
sveitarfélög væru knúin til vegna at-
vinnuástandsins, en opinberir sjóðir,
lánastofnanir og atvinnulífið sjálft
gerði kröfur til þess að sveitarstjórnir
kæmu til aðstoðar hvað varðar upp-
byggingu atvinnulífsins.
„Þá hefur ríkisvaldið á undanförn-
um tveimur árum verið að setja aukn-
ar fjárhagslegfar kvaðir á sveitarfé-
lögin með tilkomu nýrra laga eins og
laga urn grunnskóla og leikskóla, og
reglugerða um umhverfiverndarmál
og á öðrum sviðum. Þar fyrir utan
verða svo sveitarfélögin að sinna þeim
lögbundnu verkefnum sem þeim er
ætlað að sinna. Svigrúm sveitarfélag-
anna er því ákaflega lítið, og það
verður ekki séð hvernig þau geta
mætt þessum óskum eða fyrirskipun-
um ríkisins nema með verulegum
niðurskurði. Það væri mjög slæmt
varðandi öll framtíðarsamkipti ríkis
og sveitarfélaga ef skilið yrði við þetta
mál með þeim hætti að því yrði bara
ýtt í gegn. Þess vegna tel ég mjög
mikilvægt að fulltrúar ríkisins og
sveitarfélaganna ræði þessi mál með
formlegum og skipulegum hætti, og
kanni það hvort og þá hvernig sveitar-
félögin komi inn í þessa mynd,“ sagði
Vilhjálmur.
I fréttatilkynningu frá Upplýsinga-
þjónustu landbúnaðarins kemur fram
að síðastliðið sumar hafi orðið 12%
samdráttur í sauðfjárræktinni, sem
jafngildi 12% tekjurýmun innan grein-
arinnar. Um 17% tilfærsla á tekjum
sauðfjárbænda gæti komið niður á
síðari hgluta fyrirhugaðra uppkaupa
ríkisins á fullvirðisrétti úi sauðfjár-
rækt næsta sumar, og þar með spillt
þeim lokaáfanga í aðlögun greinarinn-
ar að hagkvæmara rekstrarumhverfi.
Hjón
Einstæðir foreldrar
Barnafjöldi og aldur Fyrir Eftir Barnafjöldi og aldur Fyrir Eftir
1 barn 8 ára 28.917 8.886 1 barn 8 ára 86.755 66.725
1 barn 5 ára 57.834 37.803 1 barn 5 ára 86.755 66.725
2 börn, 8 og 10 ára 72.295 36.477 2 börn, 8 og 10 ára 173.510 137.684
2 börn, 3 og 5 ára 130.129 94.311 2 börn, 3 og 5 ára 202.427 166.601
2 börn, 5 og 8 ára 101.212 65.386 2, börn 5 og 8 ára 202.427 166.601
3 börn, 5, 8 og 10 ára 144.590 92.969 3 börn, 5, 8 og 10 ára 289.182 237.561
Ofangreind tafla sýnir nokkur dæmi um barnabætur eftir fjölskylduað-
stæðum og stærð, fyrir og eftir þá breytingu sem frumvarp rikisstjórn-
arinnar gerir ráð fyrir. Barnabótaauki er ekki meðtalinn í upphæðun-
um. Tekið skal fram að útreikningarnir eru Morgunblaðsins.
36 þúsund króna
lækkun bóta með
tveimur börnum
SAMKVÆMT frumvarpi um breytingar á lögum um tekju- og eigna-
skatt, sem lagt var fram á Alþingi í gærkvöldi, lækka barnabætur hjóna
með einu barni úr 28.917 á ári, eins og þær eru nú, í 8.886 kr., eða um
20.031 kr. Bætur með börnum hjóna umfram eitt lækka úr 43.378 kr. í
27.591 eða um 15.795 kr.. Hins vegar verður óbreytt upphæð bóta, sem
leggst á þessar upphæðir ef börnin eru yngri en 7 ára, og verður áfram
28.917 krónur. Upphæð barnabótaauka hækkar úr 68.680 í 89.284 eða
uni 20.604 krónur.
Barnabætur einstæðra foreldra
skerðast um sömu krónutölu og bætur
hjóna. Einstæðir foreldrar fá nú
86.755 kr. með fyrsta barni hvort sem
það er yngra en sjö ára eða ekki, og
sú upphæð lækkar um 20.031 kr. í
66.725 kr.. Með hveiju barni umfram
eitt eru nú greiddar 86.755 kr. en sú
upphæð lækkar um 15.795 í 70.960
og ef það barn er undir 7 ára aldri
bætast 28.917 við, eða 99.855 alls.
Barnabótaauki hækkar eins og áður
sagði um 30% í 89.284 kr.. Barnabóta-
aukinn er tekjutengdur og skerðist í
hlutfalli við tekjur og barnafjölda.
Samkvæmt upplýsingum frá fjármála-
ráðuneytinu byijar barnabótaaukinn
að skerðast við 1.098.000 kr. árstekj-
ur hjóna á þessu ári og 732.000 kr.
árstekjur einstæðra foreldra.
Skerðingarhlutfall barnabótaauk-
ans er 7% fyrir fyrsta barn, 6% fyrir
annað barn, 5% fyrir þriðja bam og
4% fyrir fjórða barn og fleiri. Sam-
kværnt því missa hjón með eitt barn
barnabótaaukann á næsta ári við um
2,3 miilj. kr. árstekjur á þessu ári,
hjón með tvö börn missa barnabóta-
aukann alveg við um 2,5 millj. kr.
tekjur á þessu ári, og hjón með 3
böm missa barnabótaaukann við um
2,8 millj. kr. tekjur á þessu ári.
Á sama hátt missa einstæðir for-
eldrar með eitt barn barnabótaaukann
við 1,95 millj. kr. tekjur á þessu ári,
foreldrar með 2 böm missa aukann
við 2,15 millj. kr. tekjur, og með 3
börn við 2,45 millj. kr. tekjur.
Barnabótaaukinn byijar einnig að
skerðast ef eignarskattstofn hjóna
nemur tæpum 8 millj. kr., og ein-
stæðra foreldra tæpar 6 millj.kr..
Að sögn Indriða H. Þorlákssonar
skrifstofustjóra fj ármálaráðuneyisins,
var ákveðið að hafa ofangreinda að-
ferð við skerðingu barnabótanna til
að jafna áhrifin rnilli fjölskyldna með
fá börn og fjölskyldna með mörg börn.
Með þesu móti áætlar fjármálaráðu-
neytið að greiða út 518 millj. kr.
minna í barnabætur á næsta ári en
þessu.