Morgunblaðið - 11.12.1991, Side 39

Morgunblaðið - 11.12.1991, Side 39
39 MORGUNÉLAÓIÐ MlÐVÍfCÚDÁÚlÍR 11. ÚÉÖEMÖÉÍá Í9Ó1 Æsingar leysa engin mál eftir Þórð E. Halldórsson Það er ekki hægt að segja annað en hið hörmulega slys við Grindavík, þar sem fimm ungir og hraustir sjó- menn fórust, hafi dregið dilk á eftir sér í þjóðmálaumræðunni upp á síðk- astið. Upphlaup á lágu plani hafa átt sér stað á Alþingi, með ófyrirsjá- anlegum afleiðingum. Þar bar hæst umræðan um hugsanleg þyrlukaup. Öllum er orðið ljóst, að þau mistök sem áttu sér stað í beiðni um aðstoð frá varnarliðinu, við umrætt slys, voru vegna skipulagsleysis þeirra aðila sem þau mál áttu að annast. Það er eins og veifað sé rauðri tusku framan í ótt naut hjá sumum aðilum þegar talað er um að nýta aðstoð varnariiðsins til björgunar- mála. Þeir hafa yfir stórum og öflug- um björgunarþyrlum að ráða og jafnan brugðið skjótt við þegar þeir hafa verið beðnir um aðstoð, og þá eru ekki fá mannslífin sem þeir hafa bjargað gegnum árin, bæði á sjó og landi, oft við verstu aðstæður. Þess vegna er fáránlegt að heyra vissa menn draga í efa að þyrlur varn- arliðsins henti fullkomlega við björgunarstörf. Því hefur jafnvel verið lætt inn í umræðuna að áhafn- ir þyrlanna skorti þjálfun. Það er sorgleg staðreynd að þeir sem staðið hafa að upphlaupinu á Alþingi síð- ustu daga, vegna kröfu um tafarlaus þyrlukaup, virðast ekki gera sér grein fyrir umfangi þess máls í öllum atriðum. Stór þyrla sem ke'mur að Þórður E. Halldórsson „Með sýndarmennsku upphlaupi og hávaða verður engum málum bjargað, heldur þarf að yfirvega á raunhæfan og skynsaman hátt hvernig bregðast skuli við til farsællar lausn- ar.“ fullum notum við björgunarstörf, ein og sér, er ekki hin eina og full- komna lausn málsins. Öllum er ljóst að þyrlur varnarliðs- ins hafa á mörgum undanförnum Akraneskaupstaður: Vegleg hátíðarhöld vegna 50 ára afmælis Akranesi. AKURNESINGAR halda hátíðlegt á næsta ári að 50 ár verða þá lið- in frá því bæjaifélagið fékk kaup- staðarréttindi. í undirbúningi eru vegleg hátlðarhöld sem spanna nær allt afmælisárið og ná þau hámarki í júnímánuði þegar for- seti íslands mun heiðra bæjarbúa með nærveru sinni. Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akra- nesi sagði í samtali við Morgunblað- ið að undirbúningur hátíðahaldanna væri nú að komast á lokastig. „Dag- skráin er að taka á sig endanlega mynd og verður mjög fjölbreytt. Við munum reyna að minnast þessara tímamóta á fjölbreyttan hátt og reyna að láta sem flesta bæjarbúa tengjast þeim á einn eða annan hátt.“ Dagskráin hefst með hátíðafundi bæjarstjórnar Ákraness 26. janúar og að honum loknum verður fjöl- breytt hátíðadagskrá. Síðan rekur hver atburðurinn annan í umsjón félagasamtaka skólanna í bænum. Má þar nefna ýmis íþróttamót, skóg- ræktarátak, vígslu nýs tónlistar- skóla, sönglagakeppni, tónlistarfesti- val og ljósmyndasýningu svo og hreinsunar- og fegrunarátak í bæn- um svo nokkuð sé nefnt. Ýmsar ráð- stefnur fagfélaga á Akranesi eru ráðgerðar. Ársþing Skógræktarfé- lags íslands verður haldið á Akra- nesi í ágúst. Þá kemur út fyrsti hluti Sögu Akraness, líklega í mars, en höfundur hennar er Jón Böðvarsson. Aðalhátíðahöldin verða 12.-19. júní og væntanlega mun forseti ís- lands, frú Vigdís Finnbogadóttir, verða viðstödd þau fyrsta daginn. Gísli bæjarstjóri segir að dagskráin þessa viku sé ekki að fullu ákveðin en reynt verði að gera öllum til hæf- is og vonandi verða fjölmargir brott- fluttir Skagamenn sem og aðrir gest- ir hjá okkur í heimsókn þessa daga til að riíja upp gamla tíma jafnframt því að njóta þess sem boðið er uppá. í október verður síðan dagskrá á vegum bæjaryfirvalda og með því lýkur formlegum hátíðarhöldum þess afmælisárs. Gísli segir að mikil vinna hafí nú þegar verið lögð í undir- búningsstarf, en sérstök afmælis- nefnd hefur unnið að dagskrárgerð. Fleiri aðilar munu síðan bætast við þegar nær líður m.a. ýmis félagasam- tök eins og áður kemur fram. - J.G. árum sótt veika og eða slasaða menn í skip langt á haf út í kringum land- ið. Með þyrlu hefur það aðeins verið framkvæmanlegt að henni fylgdi eldsneytis-áfyllingarvél. Þetta atriði hefur aldrei komið fram í hita um- ræðunnar að undanförnu, og allra síst frá þeim sem telja sig baráttu- menn fyrir þyrlukaupum. Ég vil fá svör við því, án felu- leiks, hvort þessir „hugsjónamenn" um þyrlukaup hafi hugsað sér að sleppa framangreindum lið í björg- unarstörfum, eða hvort þeir hafi hugsað sér að kaupa áfyllingarvél með stóru þyrlunni. Þeir virðast ætla sér að koma í veg fyrir nokkra umræðu um samstarf við varnarliðið í björgunarmálum, en verða jafnfra- mat að sýna fram á hvaða þáttum í björgunarstörfum þeir hugsa sér að sleppa. Það kom fram í umræðunni um mistök þau, sem gerð voru í því að óska ekki í tíma eftir aðstoð vam- arliðsins vegna slyssins við Grinda- vík, að ekki bæri að leita að einhveij- um blóraböggli til að kenna um þau mistök. Með öðrum orðum, ekki að láta þann aðila axla ábyrgð. Þann aðila átti auðvitað að reka úr starfí á stundinni. Það eitt hefði komið í veg fyrir að slíkt endurtæki sig. Með sýndarmennsku upphlaupi og hávaða verður engum málum bjarg- að, heldur þarf að yfírvega á raun- hæfan og skynsaman hátt hvernig bregðast skuli við til farsællar lausn- ar. Höfundur er ellilífeyrisþegi, fyrrv. lögregluþjónn og starfsmaður Cargolux. :■ ÚÍÍÍ,.. i —1 Jólatilboðið okkar gildir til 20. des. Allt þetta er innifalið í minnstu myndatökunni hjá okkur Á aðeins kr. 10.500,00 Ljósmyndastofan Mynd sími 65-42-07 Ljósmyndstofan Barna og fjölskylduljósmyndir sími 677-644 Ljósmyndastofa Kópavogs sími 4-30-20 % 'O gardeur - dömufatnaður til jólagjafa Síðbuxur Pils, bein og felld Stakirjakkar Hnébuxur Peysur Odutitv. verslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi. Opið daglega frá kl. 9-18, laugardag 14. des. frá kl. 10-18, sunnudag 15. des. frá kl. 14-17. TH4500 Helluborð „Moon“ keramik yfirborð, snertirofar, svartur rammi eða stálrammi, fjórar hellur, þar af tvær halógen og ein stækkanleg, hitaljós, tímastilling á hellum. TH 2010 Helluborð Keramik yfirborð, svartur eða hvítur rammi, fjórar hellur, þar af tvær halógen og ein stækkanleg, sjálfvirkur hitastillir og hitaljós. TH490 Helluborð „Moon“ kermik yfirborð, stálrammi, fjórar hellur, þar af tvær halógen, sjálfvirkur hitastillir og hitaljós. O cn ffl TH 483 B Helluborð Keramik yfirborð, svartur eða hvítur rammi, fjórar hellur, þar af tvær halógen, sjálfvirkur hitastillir og hitaljós. Funahöfða 19 sími 685680

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.