Morgunblaðið - 01.02.1992, Side 15

Morgunblaðið - 01.02.1992, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992 15 TANNVERND eftir Elínu Guðmannsdóttur Á degi tannverndar, er rétt að íhuga hvað áunnist hefur í barátt- unni við Karíus og Baktus, á undan- förnum árum. Það er viðurkennd staðreynd að grunnurinn að góðri tannheilsu er lagður á barnsaldri. Það er vitað að góðar hreinlætis- og matarvenjur lækka tíðni tann- sjúkdóma. Einnig er vitað að hæfi- legt flúormagn í fæðu einstaklings- ins á fyrstu árum ævinnar, t.d. með skipulagðri flúortöflugjöf, gefur mikla og varanlega vernd gegn tannátu. Æskilegt væri að vanfærar kon- ur og mæður ung- og smá- Fg|J barna féngju fræðslu um tennur og tann- vernd, er þær fara í mæðra- og ungbarna- skoðun. Rétt væri að upplýsa þær um tannmyndun, hvenær kölkun barn- atanna byijar og í framhaldi af því lögð áhersla á steinefni og vítamín (fjörefni) í fæðunni hjá móðurinni. Á fyrsta ári barnsins fara fullorð- instennur að kalka, þá þarf að huga að mataræði barnsins. Ekki venja barnið á sætt. Ekki sykra snuðið. Ekki gefa sætt að drekka að nóttu til. Gefa skal mat á föstum tímum, ekki milli mála. Hvetja þarf til notk- unar flúors. Varnarmáttur fúors er í því fólginn að efnið binst hinum hörðum tannvefjum og gerir þá mótstöðumeiri gegn sýruáhrifum. Þegar flúor er tekið inn eykur það flúorinnihald hörðu vefjanna, svo sem tannvefs, þegar kölkun fer fram. Þetta eru varanleg áhrif og því æskilegt að taka flúor á meðan myndun tannanna fer fram frá 0-12, jafnvel 15 ára aldurs. Við burstum tennur barnsins strax og þær eru komnar upp, en veljum mjúkan bursta. Æskilegt er að börnin séu aðstoðuð við burstun- ina að kvöldi, fram eftir skólaaldri, en þeim lofað að bursta sjálfum að morgni til. Góð tannhirða að kvöldi dags, eftir síðustu máltíð er mjög mikilvæg. Yfir nóttina er munn- vatnsrennslið minnst, þannig að skánin, sem sest á tennurnar, er hættulegust. Þessi skán er bakte- ríuskán, sem breytir sykri í sýru. Góð regla er að láta börn safna saman því sælgæti, sem þeim áskotnast yfir vikurna og láta þau neyta þess í einu, t.d. yfir helgi. Ný liópferðaafgreiðsla NÝLEGA var stofnuð hópferða- afgreiðsla, sem ber heitið Hóp- ferðabílar Reykjavíkur sf. Um er að ræða sameignarfélag ein- staklinga, sem eiga hópverðabíla og hefur það markmið að sinna hvers konar hópferðaþjónustu. í frétt, sem hið nýja félag hefur sent frá sér, segir að boðið sé upp á flestar gerðir og stærðir hóp- ferððabíla, sem henta til innanbæja- raksturs, í langferðir og hálendis- ferðir. Föst verðtilboð eru gerð í lengri eða skemmri ferðir, ef óskað er. I vetur verður sérstakt kynning- arverð á þjónustu fyrirtækisins og gildir það til 1. maí 1992. Fyrirtæk- ið er til húsa í Bíldshöfða 8 í Reykja- vík. Fræðsluerindi í Neskirkju FRÆÐSLUERINDI og umræð- ur um trú og samfélagsefni hafa um árabil verið fastur þáttur í safnaðarstarfi Neskirkju. Á þessum vetri verður tekinn upp þráðurinn að nýju næstkom- andi sunnudag, en þá mun dr. Pétur Pétursson flytja erindi sem hann nefnir Kirkjan og trúarlíf íslendinga. Erindið hefst að lokinni guðs- þjónustu og verður flutt í safnaðar- heimili kirkjunnar kl. 15.30. Að sjálfsögðu er kaffi á boðstólum og allir velkomnir til að hlusta, taka þátt í rökræðum og bera fram fyrirspurnir. Guðmundur Óskar Ólafsson. Sælgæti, sem neytt er á þann hátt, eyðileggur minna en ef þess er neýtt í smáskömmtum. Greinilegur árangur hefur náðst í baráttunni við Karíus og Baktus. Með aukinni tannveimd hefur skemmdum tönnum í börnum fækk- að. Hætt er við að sá árangur, sem náðst hefur á undanförnum árum, tapist á skömmum tíma, ef draga á úr fjárframlögum ríkisins til tann- lækninga barna. Höfundur er tannlæknir. Neskirkja. Verslunarhúsnæði til leigu ca 100 fm á mjög góðum stað. Góðir leiguskil- málar. Verslunarplássið er laust 1. febrúar. Upplýsingar í síma 813517. ■wm—mmbm——-» Elín Guðmannsdóttir Nissan Micra LX árg. 1991,5 dyra, hvitur, ek. 11.000 km. Staðgr. 620.000. Ath. ód. Suzuki Swift GL, árg. 1991, 5 dyra, rauð- ur, ek. 24.000 km. Staðgr. 630.000. Ath. ód. ek. 7.000 km. Sjálfsk. Staðgr. 750.000,- 44.000 km., grár, sóllúga, álfelgur. Staðgc. 810.000. Ath. ód. BMW 325I, árg. 1986, vínrauður, ek. 78.000 km. 1 eigandi, innfl. nýr. Staðgr. 1.150.000. Ath. ód. Ylir 80 bílar seldir í janúar, Vantar nýlega bíla á skrá og á staðinn. Opiö alla daga vikunnar. NYJA BILAHÖLLIN RJNAHÖFÐA 1-112- Rvik,- FAX 673983 BÓKAMARKAÐUR VÖKU-HELGAFELLS Síðumúla 6, sími 688300 Van Gogh og list hans - eftir Hans Bronkhorst Litprentuð glæsibók í stóru broti, gefin út fyrir tveimur árum er hundrað ár voru liðin frá láti. Van Goghs. Hér er farið í fótspor þessa áhrifamikla brautryðjanda í nútíma myndlist. Venjulegt verð: Tilboðsverð: 995,- 3.760, Mörg hundruð bókatitlar á einstöku verði bjóðast nú á bókamarkaði Vöku-Helgafells í forlagsversluninni að Síðumúla 6 í Reykjavík. Hér gefst einstakt tækifæri til þess að bæta eigulegum verkum í bókasafn heimilisins - bókum af öllum tegundum við allra hæfi. Opið alla virka dagafrá kl 9-18, laugardaga frá kl. 10-16, sunnudaga frá kl. 12-16. VAKA-HELGAFELL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.