Morgunblaðið - 01.02.1992, Qupperneq 37
37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRUAR 1992
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
B91282KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS , „
UMÉiaditd
Holl íþrótt
Mig langar að vekja athygli á
hollri og heilsusamlegri íþrótt sem
íbúum Reykjavíkur gefst kostur á
að stunda innan borgarmarkanna.
Hér á ég við almenningsíþróttina
sund. í sundi fá menn holla hreyf-
ingu í heilbrigðum félagsskap og
svo þurfa þeir er stunda íþróttina
svo lítið að greiða fyrir. Ég vil hvetja
alla til að hefja sundiðkun eftir því
sem tími leyfir, árangurinn segir
til sín fyrr en varir.
Helgi
♦ ♦ ♦---
Uggvænleg
tíðindi
Um daginn var tilkynnt í
Rússlandi að kjarnaflaugum skuli
ekki beint að Bandaríkjunum fram-
ar. Ber að fagna þessari frétt. En
svo var tekið skýrt fram í tilkynn-
ingunni að þeim verði beint að öðr-
um. Og ég spyr: Hveijum? Þessar
fréttir eru uggvænleg tíðindi. Hugs-
anleg átök milli sjálfstæðra ríkja
innan nýstofnaðs samveldis gæti
leitt til heljarátaka víðsvegar um
heiminn. Guð hjálpi oss þá.
Vilhjálmur Alfreðsson
Husljyggjendur - arkitektar
Opió um helgina
eidhús — baö — fataskápar
Ertu að byggja eða ætlarðu
að endurnýja innréttingarnar?
Við kynnum á sýningu okkar um helgina 16 nýjar
hurðagerðir á innréttingar okkar. í fulningahurðum
kynnum við 5 nýjar gerðir. í plastlögðum hurðum
með viðarkanti 7 nýjar gerðir. í viðarhurðum 4
nýjar gerðir. Á öllum þessum gerðum er hægt að
fá allt tréverkið í stíl.
H.K. tréverk hækkar fasteignaverð.
Við hönnum meó þér
Innanhúsarkitekt til aóstoöar
Sýning um helgina. Opið í dag frá kl. 10-18.
Sunnudag frá kl. 13-18.
H.K. INNRÉTTINGAR,
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík.
Sími 35609, myndsendir 679909.
- Geymið auglýsinguna -
Til sjómanna
Sjómenn: Meðferð gúmbjörgunarbáta er einföld og fljótlærð. Þó geta
mistök og vanþekking á meðferð þéirra valdið fjörtjóni allra á skipinu
á neyðarstundu. Lærið því meðferð þessara þýðingarmiklu björgunar-
tækja. Hjálpist að því að hafa björgunartækin í góðu ástandi og ávallt
tiltæk.
— EIMSKBP —
AÐALFUNDUR
HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS
veröur haldinn í Súlnasal Hótels Sögu
fimmtudaginn 5. mars 1992,
og hefst kl. 14.00.
--------- DAGSKRÁ ---------
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 14.
grein samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram
á aðalfundi, skulu vera komnar skriflega
í hendur stjórnarinnar eigi síðar
en sjö dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á
skrifstofu félagsins í Reykjavík frá
28. febrúar til hádegis 5. mars.
Reykjavík, 1. febrúar 1992
STJÖRN HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS
HVÍLDMDAGM
Þú þarft ekki að sigla til sólarlanda til þess að eiga
hvíldardaga einn eða fleirí.
Gistihúsið við Bláa lónið býður þérfyrsta flokks hvúdar-
og afslöppunaraðstöðu írólegu umhverfi.
Öll gistiherbergi eru útbúin með baði, sjónvarpi og ísskáp.
ígistihúsinu er gufubað oghitapottur með vatnsnuddi
og loftnuddi og einnig ljósabaðstofa.
Á staðnum ernuddari, sem býður sérstaklega
slökunarnudd fyrir þá sem þess óska.
Við hliðina á gistihúsinu er veitingahús og er
morgunverður innifalinn íokkar væga verði.