Morgunblaðið - 02.02.1992, Qupperneq 14
14
MÖRGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 'Í^ðá
55 ARA SÖGU ÞJOÐVILJANS - „MALGAGNS SOSIALISMA, ÞJÓÐFRELSIS OG VERKALYÐSHREYf
DAUÐI
DAGBLAÐS
Eftir Ómar Friðriksson.
„ÞJÓÐVILJINN var alla tíð rek-
inn með halla.“ Þetta segja að-
standendur dagblaðsins sem lagði
upp laupana sl. föstudag, 31. jan-
úar, eftir rúmlega 55 ára útgáfu-
sögu. Þjóðviljinn var aldrei mark-
aðsmiðill né óháð fréttablað held-
ur rekinn af pólitískri hugsjón og
fyrir stuðning fylgismanna Al-
þýðubandalagsins og forvera þess
Kommúnistaflokksins og Sósíali-
staflokksins, sem gaf blaðið út í
30 ár. Upphafleg vígorð blaðsins
voru: „Vinnandi stéttir Islands!
Sameinizt gegn íhaldi og fas-
isma!“ Frá 1969 hafa sérstök út-
gáfufélög gefið Þjóðviljann út i
nánum tengslum við flokksmask-
ínu Alþýðubandalagsins undir ein-
kunnarorðunum: „Málgagn sósíal-
isma, þjóðfrelsis og verkalýðs-
hreyfingar." Þrátt fyrir tilburði á
síðustu árum til að auka sjálfstæði
blaðsins dugði það ckki til. Minnk-
andi auglýsingatekjur og lang-
tímaskuldir juku sífellt á fjárhags-
vandræði Þjóðviljans líkt og ann-
arra flokksblaða sem berjast nú
fyrir lífi sínu. Ekki varð vikist
undan að viðurkenna óhjákvæmi-
lega staðreynd: Tími flokksblað-
anna er liðinn, ekki verður lengur
ausið fé í tapútgáfu Þjóðviljans.
Síðasta forsíða
Þjóðviljans.
Morgunblaðið/Sverrir
Starfsmenn
Þjóðviljans komu
saman í gær að
lokinni útgáfu
síðasta tölu-
blaðsins.
okkrir af um 40
starfsmönnum
blaðsins munu
fá starf við fyr-
irhugað helgar-
blað sem fjórir
starfsmenn
blaðsins und-
irbúa að komi út 7. febrúar. Veru-
legt atvinnuleysi blasir við í stétt
blaðamanna þegar blaðadauði heldur
nú innreið sína á dagblaðamarkað-
inn.
„Tekjur útgáfunnar hafa dregist
saman jafnt og þétt og Þjóðviljinn
hefur alla tíð verið rekinn með halla
en á síðustu tíu árum hefur hefur
keyrt um þverbak. Vaxtakostnaður
rokið upp úr öllu valdi og farið upp
í 17-20% af tekjum,“ segir Helgi
Guðmundsson ritstjóri. „Samdráttur
í auglýsingatekjum skiptir tugum
miiljóna en sala blaðsins að undan-
fömu verið á svipuðu róli og meðal-
sala blaðsins á undanförnum 30
árum, að sögn Helga — það er innan
við tíu þúsund eintök á dag, upplýsir
hann.
Átök sköðuðu blaðið
Deilurnar um Þjóðviljann og átök
innan Alþýðubandalagsins á undan-
förnum árum hafa skaðað Þjóðvilj-
ann að mati flestra viðmælenda
blaðsins. Minna hafí verið hirt um
rekstrarlega þætti vegna deilna á
milli flokksmanna. Tíð ritstjóraskipti
á síðasta áratug vegna átaka á milli
fylkinga flokksins blönduðust til-
raunum til að endurskipuleggja út-
gáfuna sem endurspegluðust í átök-
um innan útgáfustjórnarinnar á milli
hins svokallaða „flokkseigendafé-
lags“ og „lýðræðishreyfingarinnar."
Þegar baráttan stóð sem hæst komu
glöggt fram gjörólíkar kröfur flokks-
manna til blaðsins. Því var í senn
ætlað að byggja á nútímalegri blaða-
mennsku, vera pólitískt málgagn
vinstrimanna og hreintrúað málgagn
flokksmanna sem gæfi flokkslínuna
frá degi til dags.
Gengi blaðs og flokks
Gengi Þjóðviljans og gengi vinstri
hreyfingarinnar hefur oft farið sam-
an. Helgi hafnar hins vegar þeirri
skoðun að blaðið hafi farið að ganga
betur þegar reka átti sjálfstæðari
ritstjómarstefnu gegn boðskap
flokksforystunnar, á því tímabili þeg-
ar Ólafur Ragnar og Össur Skarp-
héðisnsson stjórnuðu blaðinu um
miðjan síðasta áratug. Segir Helgi
að Þjóðviljinn hafi aldrei risið hærra
en á árunum 1978-1980 þegar hann
fylgdi flokksforystunni eindregið að
málum. Össur og félagar hans af
Þjóðviljanum hafa aftur á móti hald-
ið því fram að velgengni blaðsins
hafí aukist í réttu hlutfaili við aukna
fjarlægð þess frá flokkslínunni.
Flokksfélög og sjóðir
Hin ýmsu félög hafa löngum verið
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON:
Héldum að fulltrúar Isl. útvarps-
félagsins væru traustsins verðir
ÓVÍST HVAÐA SKULDIR ÞJÓÐVILJANS FALLA Á FLOKKINN
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ gekkst í ábyrgð fyrir ákveðnum skuldum Þjóð-
viljans fyrir nokkrum árum,“ segir Ólafur Ragnar Grímssonar, formað-
ur flokksins. „Það eru greiðslur sem við höfum staðið við og munum
ljúka að greiða. Fyrir rúmu ári var svo rætt um að flokkurinn tæki á
sig ábyrgð fyrir meiri skuldum, byggt á þeirri forsendu að Þjóðviijinn
kæmi áfram út. Það var háð því skilyrði. Við munum greiða upp skuld-
irnar frá fyrri tíma,“ segir Ólafur.
Hann fullyrðir að nýtt dagblað
muni líta dagsins ljós á árinu
og gagnrýnir fulltúa stjóm-
ar íslenska útvarpsfélagsins í undir-
búningsfélaginu Nýmæli fyrir að
hafa talið öðrum aðstándendum fé-
lagsins trú um að þeir hefðu umboð
stjómar til að taka þátt í stofnun
nýs blaðs. í ljós hafí komið að þeir
reyndust ekki trapstsins verðir
„Þær skuldbindingar sem flokkur-
inn tók á sig án allra skilyrða mun
hann standa við og það mun taka
okkur tvö ár að ljúka þeim greiðsl-
um,“ segir hann um skuldir Þjóðvilj-
ans. Ólafur segir að flokkurinn hafí
einnig tekið að sér þær skuldbinding-
ar sem voru tapaðar fyrir bankana
á sínum tíma en þær hafí verið tengd-
ar áframhaldandi útkomu Þjóðvilj-
ans. „Ég skal ekkert segja á þessu
stigi hvað verður um það en það
átti ekki að koma til greiðslna á
þeim fyrr en eftir tvö ár,“ sagði Ólaf-
ur.
„Fyrir nokkrum árum var tekin
starfandi í kringum útgáfu blaðsins.
Hið síðasta er Fjörðurinn sf. sem
stendur að fyrirhugaðri útgáfu Helg-
arblaðsins og leigir aðstöðuna af út-
gáfufélaginu Bjarka hf., sem var
stofnað í desember 1990. Bjarki hf.
leigði reksturinn af Útgáfufélagi
Þjóðviljans í síðustu tilrauninni sem
gerð var til að endurreisa útgáfuna
vegna skilyrða Landsbankans og for-
ystu Alþýðubandalagsins, sem hafði
gengist í miklar ábyrgðir fyrir lang-
tímaskuldum blaðsins.
Útgáfufélag Þjóðviljans hf. er
sjálfseignarfélag. Miðgarður hf. sérs-
takt eignarhaldsfélag sem átti hús-
næði blaðsins í Síðumúla 6 sem tek-
ið var í notkun 1976 og Miðgarður
stóð á bak við hlut Þjóðviljans í
Blaðaprenti og nýbyggingu Blaða-
prentsblaðanna á Krókhálsi. Stærsta
áfallið varð þegar Miðgarður neydd-
ist til að selja hús Þjóðviljans til
Ólafur Ragnar Grímsson
ákvörðun um að skilja þarna alger-
lega á milli og flokkurinn hefur ekki
tilnefnt menn til að vera í fjármálum
blaðsins. Á síðastliðnum sex til sjö
árum hefur tvívegis verið komið til
flokksins og beðið um ákveðna styrki
en flokkurinn hefur ekki stýrt fjár-
málum Þjóðviljans og því er ég ekki
rétti maðurinn til að tjá mig um
hvort þetta fer í gjaldþrot. Þetta eru
sjálfstæð fyrirtæki," sagði Ólafur.
Vöku/ Helgafells fyrir fáum árum
og andvirðið gekk allt upp í skuldir,
skv. upplýsingum Ólafs Ragnars
Grímssonar, formanns flokksins.
Blaðið flutti þá í húsnæði í Síðumúla
37 sem tekið var á leigu af Sigfúsar-
sjóðnum, sem hefur lengi verið sterk-
asta eignarhaldsfélag Alþýðubanda-
lagsins og á flokksskrifstofurnar á
Laugavegi. Loks má nefna Prent-
smiðju Þjóðviljans hf. sem var stofn-
uð 1944 og hefur verið eigandi um-
brots- og setningarbúnaðar blaðsins.
„Þetta er allt einn og sami pakkinn
í dag,“ segir einn viðmælenda blaðs-
ins.
Hallarekstur át upp
eignirnar
Hallareksturinn hefur étið upp eig-
ur blaðsins, að sögn Helga. Verktak-
afyrirtækið Persía hf. sem byggði
fyrirhugað framtíðarhúsnæði Blaða-
prentsblaðanna á Krókhálsi 10, varð
gjaldþrota í ágúst 1988. Miðgarður
„Ég get sagt að sem formaður
flokksins hef ég haft afar lítil af-
skipti af skrifum blaðsins og oft ekki
talað við ritstjóra um efni blaðsins
mánuðum saman. Að þessu leyti
hafa vinnubrögðin breyst. Þjóðviljinn
hefur aftur á móti verið fulltrúi fyrir
ákveðin viðhorf og málflutning og
nú upp á síðkastið fyrir stjórnarand-
stöðuna. Auðvitað fækkar nú hljóð-
færunum í hljómsveit stjórnarand-
stöðunnar," segir hann.
Ólafur segir að hlutverk dagblaða
hafi gjörbreyst á síðustu tímum.
„Til útskýringar á hvernig stjórnmál-
amaður á íslandi starfar á okkar tím-
um get ég nefnt að ég taldi mig
koma áliti mínu á fjárlagafrumvarpi
núverandi ríkisstjómar til skila en
Þjóðviljinn hafði aldrei við mig viðtal
um það mál. Ekki einu sinni í stuttri
frétt. Ég held líka að efni landsfund-
ar Alþýðubandalagsins hafi komist
vel til skila en Þjóðviljinn hefur enn
ekki birt eina einustu ályktun frá
síðasta landsfundi Alþýðubandalags-
ins. Þetta segi ég ekki blaðinu til