Morgunblaðið - 02.02.1992, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1992
35
Falur Harðarson stendur sig vel í háskólakeppninni í Bandaríkjunum.
fUt»ar«pwi
$»!$»$»$$>
ÚTSALA Á
DESCAMPS
handklæðum og sloppum á alla fjölskylduna.
40-50% afsláttur
Miímm
CLUCCn TJÖLD
Síðumúla 35 og Kringlunrii, sími 680333.
íltsala
Velúrsloppar
Bómullarsloppar
Silkináttkjólar
Silkináttföt
l'ympai
Bómullarnáttkjólar
Bómullarnáttföt
Brjóstahöld
Nærfatnaður
Laugavegi 26, Glæsibæ, Kringlunni.
Háskólakeppnin í Bandaríkjunum:
Falur er í lykil-
hlutverki ytra
RIÐALKEPPNIN í bandarísku háskólakeppninni í körfuknattleik
er um það bil hálfnuð. Liði Charleston Southern háskóla var
spáð neðsta sæti í sínum riðli fyrir tímabilið, en hefur komið á
óvart og er í öðru sæti. Keflvíkingurinn Falur Harðarson leikur
stórt hlutverk íliðinu og er þriðji stigahæsti leikmaðurinn, hefur
skorað yfir 170 stig í 16 ieikjum eða um 11 stig að meðaltali í
leik. „Þetta hefur gengið vonum framar," sagði Falur við Morgun
blaðið. „Það eru milli 300 og 400 háskólar í 1. deild og í byrjun
tímabilsins vorum við í kringum 250. sætið, en erum nú komnir
niður í tveggja stafa tölu. Takmarkið er að leika til úrslita í riðlin-
um og möguleikarnir á því eru mjög miklir, en úrslitaleikurinn
verður sýndur beint í sjónvarpi um öll Bandaríkin.11
Falur stundar nám í tölvunar-
fræði og er einn 14 nýliða í
15 mánna liðshópi, en 25 voru vald-
ir til æfinga s.l.
Eftir haust. Hann sagði
Steinþór að baráttan um að
Gúðbjartsson leika væri mikil og
menn væru um-
svifalaust teknir úr liðinu, ef þeir
sýndu einhver véikleikamerki. „Það
á enginn vísa stöðu, en mér hefur
gengið vel, hef alltaf verið f liðinu
og nánast ekkert hvílt. Hér skiptir
vörnin öllu og er allt kapp lagt á
hana. Ef menn spila ekki góða vörn
eru þeir ekki með.“ Liðið er í átta
liða riðli og hefur leikið sex leiki,
sigrað í fjórum en tapað tveimur.
Þá hefur liðið leikið 10 aðra opin-
bera leiki, sigrað í sex þeirra en
tapað fjórum.
íslenski bakvörðurinn, sem er
langminnsti maður liðsins, 1.84 m
á hæð, en hinir eru allir um tveir
metrar, sagðist aldrei hafa æft eins
mikið. Yfirleitt væru tvær æfingar
daglega nema þegar væri leikið, en
riðlakeppnin byrjaði eftir áramótin
og verða 14 leikir í febrúar.
Álagið hefur verið mikið en hefur
hann tekið framförum? „Ég hef
ekkert breyst sem leikmaður og er
kannski_ ekki betri en reynslunni
ríkari. Ég hef lært mjög mikið, en
skipulagið er allt öðruvísi en heima.
Hérna fylgjast aðstoðarþjálfararnir
með hverri hreyfingu mótheijanna
og fyrir hvern leik er tíundað hvað
hver og einn gerir. Ekkert á að
koma okkur á óvart og áhersla er
lögð á að einbeita sér að því að_
stöðva viðkomandi mótheija.“
Falur, sem er 23 ára, á 27 lands-
leiki að baki. Hann lék í tvö tíma-
þil með Keflvíkingum áður en hann
hélt til Bandaríkjanna og vakti
strax mikla athygli. Á síðasta
keppnistímabili var Falur með
þriðju bestu vítahittnina í deildinni
(79,55%) og var jafnframt efstur
Islendinga og þriðji í röðinni hvað
þriggja stiga körfur varðar. Hann
skoraði 222 stig úr slíkum, en alls
556 stig eða 21 að meðaltali í leik.
Hann hefur haldið uppteknum
hætti með háskólaliði sínu og aðfar-
arnótt föstudags að íslenskum tíma
var hann stigahæstur í leik gegn
Allen háskólanum, sem Charleston
Southern vann 120:44. Falur, sem
hefur mest skorað 22 stig í leik,
var með 21 stig að þessu sinni og
þar af voru fimm þriggja stiga körf-
ur. „Við fengum nánast enga mót-
stöðu, en nær allt gekk upp hjá
okkur,“ sagði Falur, sem hefur
skorað úr þremur þriggja stiga
körfum að meðaltali í leik og verið
með 80% nýtingu í vítaköstum.
S FISHER
STÓRLÆKKAÐ VERÐ
ALLT AÐ 30% AFSLÁTTUR
21 “, 25“ og 28“ FISHER litasjónvörp
NICAM STEREO, S-VHS litasjónvarp, textavarp með 90 bls. minni. Sjón-
varpsfjarstýringin gildir einnig fyrir Fisher og Sanyo myndbandstæki. Skip-
anir birtast á skjá, úttak fyrir auka hátalara, 2x16 W, 2xScart og S-VHS
tengi, Pal/Secam/Ntsc kerfi.
21“ FISHER
Verð var...kr. 99.920,-.
Verðnú.....kr. 76.866,-.
Staðgreitt..kr. 69.179,-.
25“ FISHER
Verð var kr. 99.950,-.
Verð nú....kr. 89.955,-.
Staðgreitt..kr. 80.959,-.
28“ FISHER
Verð var...kr. 108.778,-.
Verð nú....kr. 97.901,-.
Staðgreitt..kr. 88.110,-.
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN HF
Siðumúla 2 - simi 68-90-90