Morgunblaðið - 22.03.1992, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MANIULIFSSTRAUIVfAR 22..MARZ 1992
,yC ,7
SIDFRÆÐl/Er rangt að hatapersónur?
HATUR
HATIJR er frumtilfinning. Það sprettur úr vitund-
arlífinu, og dafnar í viðhorfi eins manns til ann-
ars. Það er afstaða til einhvers sem við þekkjum
eða höfum kynnst. Það á sér stað á milli persóna,
en það er líka hægt að hata sjálfan sig eins og
það er hægt að vera sjálfum sér reiður.
Hatursmaður getur viðurkennt
eiginleika og hæfileika þess
sem hann hatar, og jafnvel borið
virðingu fyrir stöðu hans og
menntun. Hann getur nefnilega
'mp),.... im látið hatrið bein-
ast einvörðungu
að persónunni
sjálfri.. Hinn hat-
aði stendur oft í
vegi fyrir haturs-
manni sínum,
hvort sem það er
viljandi eða óviij-
andi verk. Og
hatursmaðurinn hefur löngun til
að verða vaidameiri. Hatursmaður
telur að aðstæður sínar batni, sé
andstæðingi hans rutt úr veginum.
Hatur er sterk tilfinning, og hættu-
leg. Hún getur gefið mátt til að
framkvæma. Sá sem hatar sér
hlutina oft í svarthvítu ljósi. Hann
eftir Gunnar
Hersvein
Það hefur verið skrifað um þessa mynd, að Goya
hafi með meistaralegri notkun lita getað túlkað
hatrið og hryllinginn.
varpar dimmu á andstæðing sinn,
hversu líkur sem hann er honum
sjálfum, og baðar sjálfan sig í Ijós-
inu. Þannig réttlætir hann hatrið
fyrir sjálfum sér.
Náin tengsl við hinn hataða, eru
algeng. Sagan sýnir að hatur og
svik eiga sér oft stað milli sam-
starfsmanna og „vina“. Hatur hef-
ur tilfinningalega séð líkt eðli og
ást. Það er heitt eins og ástin og
tekur stundum sæti hennar í
hjartanu. „Þar sem ástin bjó, gist-
ir hatrið nú,“ er stöku sinnum
hægt að segja. Hatur er frumtil-
finning sem við getum ekki afneit-
að. Hatur er möguleiki sem getur
blossað upp, og ef til vill myndi
fólk ekki þekkja mátt ástarinnar,
ef andstæða hennar gæti ekki orð-
ið að veruleika.
Hatur er oftlega skiljarilegt, til
dæmis sem gremjublandin van-
þóknun. Við getum haft andstyggð
á mönnum sem hafa gert okkur
eitthvað viðurstyggilegt. Eða
ímugust á þeim sem sífellt reita
okkur til reiði, eða vilja vinna
mein. En þegar hatrið verður
grimmt fjandsamlegt hugarfar í
garð einhvers fer það að eitra
persónuleikann. Það verður óseðj-
andi ástríða, sem gerir viðkomandi
smátt og smátt ófæran til að elska.
Hatrið breiðist út um sál hans og
huga, og heltekur hjartað. Hatrið
verður sjúkt og hatursmaðurinn
hættir að geta ráðið við það, alveg
eins og ást getur orðið sjúk.
Allajafna værum við betur sett
án hatursins, því ástin er vænlégri
til vinnings. Hatrið er þó staðreynd,
og menn geta haft óbeit á ýmsu,
til að mynda á hinu illa, og nú er
komð að kjamanum í þessum pistli:
Það er rétt og gott að hata eða
leggja fæð á allt sem leiðir til ills;
saurlífi, ofbeldi, ijandskap, deilur,
eigingirni, flokkadrætti, öfund, of-
drykkju, leti, fégirni, ofmetnað,
lygi, illvilja, og annað þvíumlíkt,
en rangt að hata mennina sjálfa
sem ástunda slíkt. Kærleiki, gleði,
friður, langlyndi, gæska, góðvild,
trúmennska, hógværð og annað
sem tilheyrir þessum flokki duga
miklu betur til að bæta mennina,
heldur en haturshugur. Jesús
sagði: „Þér hafið heyrt, að sagt
var: „Þú skalt elska náunga þinn
og hata óvin þinn,“ en ég segi
yður: Elskið óvini yðar, og biðjið
fyrir þeim, sem ofsækja yður.“
(Matt. 5,43-45). Við eigum ekki
hrós skiiið fyrir að elska þá sem
okkur elska, það er sjálfsagt mál,
en við eigum hrós skilið ef við
getum elskað þá sem elska okkur
ekki. Það er höfuðnauðsyn að gera
greinarmun á persónunni annars
vegar og verkum hennar hins veg-
ar. Hatursmenn rugla iðulega
þessu tvennu saman, og beina
hatri sínu gegn persónunni. Það
eykur hatrið í heiminum.
Hvers vegna er rangt að hata
persónu? 1. Ástæðan getur legið í
öfund, hroka, vanmáttarkennd eða
öðrum löstum þess sem hatar. 2.
Það er engin ástæða að hata mann-
eskju sem er aðeins leiðinleg, ef
hún vinnur verk sín vel. 3. Þegar
grannt er skoðað finnst ástæðan
í afleiðingum þess sem manneskj-
an gerir. Það er rangt að hata
persónu, því manneskja getur
batnað, og hún getur hætt að gera
það sem hún gerir. Rétt viðbrögð
eru fólgin í því að vinna gegn Ijótu
athæfi, en bera umhyggju fyrir
persónunum sjálfum. Reyna með
öllum tiltækum ráðum að sporna
gegn illri breytni, með þá von í
bijósti að manneskjan sjálf muni
batna. Hún verði be' ri maður, því
batnandi manni er best að lifa.
Og það er mikilvægt að gera eitt-
hvað, því aðgerðaleysið gefur hatr-
inu í heiminum svigrúm til að láta
illt af sér leiða.
Hatur er í raun ákvörðun eða
skoðun, það lifir og hrærist í við-
horfi manneskjunnar. Hatur verð-
ur hættuiegt þegar hatursmaður
fer að vinna andstæðingi sínum
mein, ofsækja hann eða troða ills-
akir við. Haturstilfmningin verður
alltaf til, og það er ekki svo slæmt
í sjálfu sér. Listin felst aftur á
móti í því að beina hatrinu gegn
hinu illa, hvort sem það birtist hjá
okkur sjálfum eða öðrum, og elska
síðan manneskjurnar. Elskið lífið,
og hatið allt sem vinnur gegn því!
Speki: Ást er sól, hatur er úlfur
sem eltir hana á röndum.
hXKNISFRIEÐl/Stöndum við
á tímamótum?
Gölluðgen
Á OKKAR öld og síðari hluta þeirrar nítjándu hefur hver sjúkdóms-
valdurinn á fætur öðrum verið afhjúpaður, hver fylkingin af ann-
arri dregin fram í dagsljósið: Bakteríur, sníklar, veirur, efnaskipta-
rask, vaneldi, eitranir, mengun og nú síðast gallar í genum, en þau
eru stundum nefnd a íslensku erfðavísar eða arfberar. Samt er enn
margt á huldu.
Astma er einn þessara dularfullu
sjúkdóma en nú hafa tveir
breskir vísindamenn, Julian Hopkin
og William Cookson, leitað uppi
gengalla sem veldur astma og
væntanlega fleiri
ofnæmissjúkdóm-
um. Þrautreyndir
erfðafræðingar
hafa fylgst með
rannsóknum
þeirra félaga og
samstarfsmanna
þeirra í Oxford og
spá vel fyrir ár-
angri þessarar iðju.
„Þegar okkur hefur tekist að fá
nákvæma vitneskju um galla gens-
ins og um prótín þess eru líkur til
að varnir aukist gegn þrálátum
sjúkdómi og einnig batahorf-
ur þeirra sem þegar þjást af
honum,“ segir Hopkin.
Sennilegt er að innan
fárra ára komi til sögunnar
eitt eða fleiri lyf sem reynist
hemill á ofnæmisvaldandi
prótín þessara gölluðu gena.
Til undirbúnings þeirri lyija-
gerð má búast við að taka
þurfi blóðdropa með Smá-
nálarstungu úr hæl allra ný-
fæddra barna og leita að
gengallanum. Þau þeirra
sem hann fyndist í þyrfti að
kosta kapps um að veija
fyrstu mánuði ævinnar fyrir ryki
utan húss og innan, fijódufti
plantna, hári hunda og katta og
öðru því sem líklegast er til að setja
ofnæmiskerfið í gang.
Aldrei fyrr hefur fundist gen sem
á sök á erfiðum sjúkdómi og jafnal-
gengum, því að milljónir manna um
allan heim eru astmaveikar. Og ef
takast mætti að finna gen sem
tengjast öðrum algengum sjúkdóm-
um svo sem krabbameini og truflun-
um í hjarta og æðakerfi gætum við
hagað lífsferli okkar í samræmi við
þá spá sem veðurstofa genanna
úthlutaði hveijum og einum.
Oxford-starfshópurinn vann með
blóðsýni eitt þúsund manna úr
hundrað astmafjölskyldum og varð
þess vís að sjúkdómurinn getur
gengið í erfðir frá hvoru foreldr-
anna sem er, en þó eru meiri líkur
á þeim arfi frá móður en föður.
Annað hvert afkvæmi hinna astma-
veiku mæðra er líklegur arftaki.
Þeir sem fást við þessar vanda-'
sömu rannsóknir líkja þeim við
teskeiðagröft fornleifafræðinga. Er
það raunar trúleg saga þegar þess
er gætt að á hveijum hinna 46 litn-
inga í frumum mannslíkamans eru
mörg þúsund gen. Álit vísinda-
manna er að þriðja hver manneskja
sé með „ofnæmisgen“ og að 85 af
hundraði þeirra sem búa við slíkt
séu líklegir til að fá einhver ein-
kenni sem rekja megi til ofnæmis;
smávægilega viðkvæmni í húð, eks-
em, plöntuofnæmi eða astma. Um
það bil þriðjungi þeirra sem eru
með ofnæmisgen hættir til að fá
svæsin astmaköst.
Á síðari áium hefur sjúkdómurinn
víða orðið útbreiddari en áður og á
margvísleg mengun vafalítið sinn
þátt í því. Á hinn bóginn njóta æ
fleiri astmasjúklingar góðs af töflum
og innöndunaiiyfjum, sem draga úr
einkennum og jafnvel halda sjúk-
dómnum að mestu í skefjum.
Vaxandi áhugi lækna og erfða-
fræðinga á tengslum gena við sjúk-
dóma lofar góðu og kynni að fá
miklu áorkað í, framtíðinni. Geðsjúk-
dómar? Æxlisvöxtur? Hver veit?
Stöndum við ef til vill á tímamótum?
STÚDÍÓ JÓNÍNU OG ÁGÚSTU
KYNNift
Léttara líf er þriggja mánaða skóli ætiaður konum sem eru
meira en 40 kíló yfir kjörþyngd.
Markmið námsins er að breyta um lífsstíl sem stuðlar að
léttara lífi jafnt andlega sem líkamlega um ókomna framtíð.
Kennslan byggist á fundum
og gönguferðum um falleg
svæði innan borgarmarkanna.
- Gönguferðir.
- Fitumælingar og viktun.
- Vikulegir fundir, hópaðhald,
stuðningur og fræðsla.
- Uppskriftir að léttu
mataræði.
- Heimaverkefni.
Allar nánari upplýsingar í
síma
STUDÍÓ JÓNINU & ÁGÚSTU
Sketfan 7. 108 Reykjavik. S 689868