Morgunblaðið - 22.03.1992, Síða 24
24 C
MORGUNBLAÐIÐ MYIMDASÖGUR SUNNUDAGUR 22. MARZ 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Dreifðu kröftunum ekki um
of í dag. Þú ert ef til vill með
of mörg járn í eldinum núna.
í kvöld blandar þú saman leik
og starfi og þér ferst það vel.
Naut
(20. apríl - 20. mai)
Þér kann að bjóðast freistandi
atvinnutækifæri núna, en þú
ættir að bíða með að leita þér
fjármálaráðgjafar. Sinntu
menningarmálum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þetta er heppilegur dagur til
að ræða mál sem snerta við-
skipti og fjármál. Leggðu
þunga áherslu á gætni og
hófsemd.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HS^
Stundum hleypur ímyndunar-
aflið með þig í gönur. Láttu
smávegis afturkipp ekki hafa
of sterk áhrif á þig eða fylla
þig sjálfsefa. Talaðu hrein-
skilnislega við ástvini þína.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Verkefni sem þú hefur með
höndum tekur meiri tíma en
þú gerðir ráð fyrir, svo að þú
verður ef til vill að fresta þátt-
töku I félagsstarfi.
Meyja
(23. ágúst - 22. septemberl <9$
Það gæti orðið mikil tímasóun
hjá þér að blánda saman leik
og starfi núna. Þið hjónin haf-
ið margt að segja hvort öðru
um þessar mundir.
(23. sept. - 22. október)
Þú verður að byija á því að
leysa einhver vandamál heima
fyrir áður en þú getur farið
að njóta dagsins með góðri
samvisku. í kvöld sinnir þú
áhugamálum þínum.
Sporödreki
(23. okt. -21. nóvember) HHS
Þú þarft að viðhafa ítrustu
gætni ef þú skrifar upp á ein-
hveija pappíra núna. Haltu þig
heima I kvöld og sinntu smá-
verkefnum sem beðið hafa
úrlausnar.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þið hjónin eruð ekki sammála
um skipan fjármála ykkar
núna. Kvöldið skaltu helga
ástvinum þínum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það gengur á ýmsu hjá þér
ef þú ákveðiir að vinna í dag.
Þó fer allt vel á endanum. Þú
hefur sterk áhrif á annað fólk
núna.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) tðk
Þér hættir til að taka skakkan
pól í hæðina núna varðandi
ákveðið mál. Reyndu að létta
á hjarta þínu með því að tala
út um hlutina við ástvini þína.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) -iax
Þú ættir fremur að heimsækja
aðra núna en bjóða til þín
gestum. Taktu þér tíma til að
vera út af fyrir þig með hugs-
unum þínum. Leggðu drög að
því að smala saman vinum
þínum.
Stjórnusþána á að lesa sem
dægradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vtsindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
SMÁFÓLK
Svo ég býst við því að þú verðir að spyrja sjálfan þig
„Hvort vildirðu heldur að gerðist, að flugdrekinn minn
festist í tré eða yrði undir trukk?“
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þegar hægri handar andstæð-
ingur meldar lit þar sem þú átt
Kxx, borgar sig sjaldnast að
yfirtaka grandið. Mjög oft spil-
ast spilið betur í hendi makkers.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ D104
♦ ÁKG9
♦ D64
*D52
Suður
♦ K52
y D62
♦ KG10
+ ÁG109
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 lauf
Pass 1 hjarta 1 spaði 1 grand
Pass 3 grönd Allir pass
Utspil: spaðasjö.
Geimið er einfalt í norður, en
suður var af þeim gamla skóla
að öll spil spilist best í eigin
hendi og var fljótur að tryggja
sér grandið. Hvernig getur hann
réttlætt frekjuna í sögnum?
í fyrsta lagi með því að stinga
upp spaðadrottningu. Þannig
stöðvar hann spaðasóknina í bili.
í annað stað má hann ekki ana
beint í laufsvíninguna, því ef hún
misheppnast brýtur vörnin spað-
ann og austur á væntanlega inn-
komu á tígulás. Suður verður
fyrst að tryggja sér slag á tígul:
Vestur Norður ♦ D104 ♦ ÁKG9 ♦ D64 ♦ D52 Austur
♦ 73 ♦ ÁG986
♦ 7543 II ♦ 108
♦ 987 ♦ Á532
♦ K643 ♦ 87
Suður ♦ K52 ♦ D62 ♦ KG10 ♦ ÁG109
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á stórmótinu í Linares um dag-
inn kom þessi staða upp í viður-
eign tveggja af kunnustu vest-
rænu stórmeisturunum. Nigel
Short (2.685), England og Jan
Timinan (2.620), Hollandi, sem
hafði svart og átti leik. Short lék
síðast 17. c2 — c3.
17. - Hxa4!!, 18. Dxa4 -
Rh4, 19. g3 - Rf3+, 20. Kg2 -
Be6!, 21. Rhl (ömurlegur leikur,
en Short fann ekki önnur ráð til
að útbúa flóttaleið fyrir kónginn.
21. Kxf3? gengur ekki vegna 21.
- Bd5+, 22. Ke2 - He8+, 23.
Kdl - Bf3 mát) 21. - Bd5!, 22.
Hxf3 — Rf5 (Með hrók er hvítur
ótrúlega varnarlaus í þessari
stöðu) 23. Rf2 - Rh4+, 24. Kfl
- Rxf3, 25. d3 - Rxh2+, 26.
Ke2 — Bc6 og Short gafst upp.
Mót fyrir 40 ára og eldri:
Næstkomandi miðvikudags-
kvöld, 25. marz kl. 19.30, hefst I
félagsheimili Taflfélags Reykja-
víkur, Faxafeni 12, skákmót fyrir
40 ára og eldri. Teflt verður einu
sinni í viku, á miðvikudögum, sjö
umferðir eftir Monrad-kerfi. Þátt-
töku má tilkynna I síma TR eða
á staðnum. Tímatakmörk verða
væntanlega lVi klst. fyrir 36 leiki
og sfðan hálftími til að ljúka skák-
inni.