Morgunblaðið - 02.04.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.04.1992, Blaðsíða 1
78. tbl. 80. árg. FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Arababandalagið: Varað við alvar- legum afleiðingoim refsiaðgerðanna Kaíró, Nikosíu, London, Túnisborg. Keuter. ARABABANDALAGIÐ kvaðst í gær harma þá ákvörðun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna að grípa til refsiaðgerða gegn Líbýu og varaði við því að hún gæti haft „alvarlegar afleiðingar". Líbýustjórn sakaði ráðið um að hafa samþykkt „óréttlátar bandarískar" ályktanir og sagði að þær mörkuðu upphafið að endalokum Sameinuðu þjóðanna. í yfirlýsingu frá Arababandalag- inu eru ríki, sem lögðust gegn refsi- aðgerðunum, hvött til að nota tím- ann til 15. apríl, er þær taka gildi, til að finna lausn á deilu Líbýu- manna og Vesturlanda. Líbýustjórn NATO: Varnarsam- starf fyrrum óvinaríkja Brussel. Reuter. AÐILDARRÍKI Atlantshafsbanda- lagsins og fyrrum óvinariki þess í Austur-Evrópu samþykktu í gær að vinna saman á ýmsum sviðum varnarmála og Bandaríkjamenn lögðu til, að herir ríkjanna tækju höndum saman um friðargæslu. Var þetta niðurstaðan af fyrsta fundi varnarmálaráðherra og ann- arra fulltrúa rúmlega 30 ríkja, aðild- arríkja Atlantshafsbandalagsins, NATO, og Varsjárbandalagsins fyrr- verandi í Brussel í gær. Samþykkt var áætlun um aðstoð vestrænna ríkja við endurskipulagningu herafl- ans og hergagnaiðnaðarins í Austur- Evrópu og sovétlýðveldunum fyrr- verandi og einnig var kveðið á um samráð um hernaðar- og varnaráætl- anir, heræfingar og þjálfun. Yfir þessum sviðum hefur lengi hvílt mik- il leynd. Fundinn í Brussel í gær sátu fyrir hönd íslenskra stjórnvalda þeir Sverrir H. Gunnlaugsson, fastafull- trúi hjá Atlantshafsbandalaginu og Róbert T. Árnason, skrifstofustjóri vamarmálaskrifstofu utanríkisráðu- neytisins. birti einnig yfirlýsingu þar sem Bandaríkjamenn, Bretar og Frakk- ar, sem beittu sér fyrir refsiaðgerð- unum, eru sakaðir um að „heyja krossför gegn aröbum og múslim- um“ til að aðstoða ísraela við að koma í veg fyrir vopnakaup araba. Þá hafi Rússland, sem greiddi at- kvæði með refsiaðgerðunum, ékki enn fengið aðild að öryggisráðinu því ráðið hafi ekki samþykkt álykt- un þess efnis. Atkvæðagreiðslan hafi því verið ólögleg. I refsiaðgerðunum felst að öllum ríkjum heims er gert að íjúfa flug- samgöngur við Líbýu, hætta vopna- sölu þangað og sjá til að Líbýu- stjórn fækki verulega í starfsliði sendiráða og ræðismannaskrifstofa sinna erlendis. Frelsinu fegin Reuter. Lögreglan í Bombay á Indlandi frelsaði á dögunum tuttugu og fimm börn sem rænt hafði verið í Bangla- desh. Að sögn lögreglunnar ætluðu mannræn- ingjarnir að selja börnin, sem öll voru yngri en fimm ára, aröbum sem hugðust nota þau við keppni í úlf- aldareiðum í Persaflóaríkjunum. Á myndinni má sjá glaðlyndan lögregluþjón ræða við hluta barnanna í gær. Víðtæk alþjóðleg efnahagsaðstoð við fyrrum Sovétríkin kynnt: Aðstoð við Rússland nauðsyn- leg til að tryggja heimsfriðinn segir George Bush Bandaríkjaforseti Washington, Moskvu. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti sagði Bandaríkjastjórn í gær styðja áform um 24 milljarða doll- ara alþjóðlega aðstoð til að treysta efnahag og lýðræði í Rússlandi. Væri þetta nauðsynlegt til að tryggja frið í heiminum. Hann sagði aðstoð við Úkraínu og önnur fyrrum lýðveldi Sovétríkjanna einnig vera fyrirhugaða en nefndi engar tölur í því sambandi. „Þakka ykkur kærlega fyrir,“ sagði Sergeíj Ignatíev, aðstoðar- fjármálaráðherra Rússlands, uin tillögur Bandaríkjaforseta. „Vest- rænn stuðningur er injög mikil- vægur en úrslitum ræður eftir sem áður það sem okkur tekst sjálfum að gera. Það er hætta á að við verðum of háð vestrænni aðstoð og leggjum okkur ekki eins mikið fram og við gætum gert,“ bætti hann við. Bush sagði á blaðamannafundi í gær að það myndi hafa mjög alvar- legar afleiðingar ef efnahagur og lýðræði í fyrrum Sovétríkjunum myndi hrynja. „Ástandið gæti orðið ískyggilegra en það var nokkurn tím- ann á tímum kalda stríðsins . . . Við verðum að grípa til aðgerða núna,“ sagði forsetinn. Hann sagði aðstoð Bandaríkjastjórnar verða Reuter. John Major forsætisráðherra Bretlands sést hér gantast við ljós- myndara í tilefni 1. apríl á kosningafundi í gær. Á öðrum kosninga- fundi í bænum Bath, síðar um daginn, var ekki eins létt yfir Maj- or, enda köstuðu nokkrir úr hópi áhorfenda eggjum að forsætisráð- herranum. Kinnock með forystu samkvæmt könnunum London. Reuter, Daily Telegraph. BRESKI íhaldsflokkurinn á nú í vök að verjast en samkvæmt niðurstöð- um þriggja skoðaiiakaiinana hefur Verkamannaflokkurinn nokkuð ör- ugga forystu. Leiðtogar íhaldsflokksins reyna að bera sig vel en frammámenn í fjármálalífinu, sem yfirleitt styðja flokkinn, eru ekki bjartsýnir. Sýndi það sig í því, að hlutabréf lækkuðu í verði og einnig gengi pundsins. í könnununum hafði Verkamanna- flokkurinn 4-7% umfram Ihalds- flokkinn og vildi John Major forsætis- ráðherra kenna Fijálslynda demó- krataflokknum um. Sagði Major aug- Ijóst, að einhvetjir kjósendur íhalds- flokksins vildu mótmæla efnahags- ástandinu með því að kjósa frjáls- lynda en hann varaði þá við og sagði, að með því væru þeir að færa Verka- mannaflokknum völdin. Kosninga- barátta íhaldsmanna hefur gengið mikið út á að sverta Verkamanna- flokkinn og telja margir að það hafi snúist gegn þeim sjálfum. Margaret Thatcher, fyrrum forsætisráðherra, hefur hvatt flokkssystkini sín til að leggja áherslu á það, sem áunnist hefur. Eins og við er að búast beina íhaldsmenn spjótum sínum að Kinnock umfram aðra. David Mellor fjármálaráðherra líkti honum til dæmis við Hannibal Lechter, mann- ætuna í Oskarsverðlaunamyndinni „Lömbin þagna“, og sagði: „Hanni- bal Kinnock, mesta eyðslukíó allra tíma, hefur það á stefnuskránni að éta ykkur lifandi.“ hluta af alþjóðlegri hjálparáætlun sem nú væri verið að leggja drög að og stefnt væri að lægi fyrir í lok apríl. Meðal helstu atriða í tillögum Bush má nefna 12 milljarða dollara aukin framlög Bandaríkjastjórnar til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins til að auka möguleika sjóðsins á að lána fyrrum Sovétlýðveldum fé. Þá fá lýðveldin lánatryggingar upp á 1,1 milljarð dollara til kaupa á bandarískum land- búnaðarafurðum. Einnig taka Bandaríkjamenn ásamt öðrum þjóð- um þátt í að setja á laggirnar 6 milljarða dollara sjóð til að treysta stöðugleika rúblunnar. Þýskir emb- ættismenn skýrðu frá því fyrr um daginn að sjö helstu iðnríki heims myndu standa á bak við sjóðinn. Loks má nefna að Bandaríkjamenn munu veita fé til 18 milljarða dollara alþjóðlegs sjóðs sem á að „endur- skipuleggja og koma á stöðugleika" í rússneska hagkerfinu. Yfírlýsingu Bandaríkjaforseta var fagnað víða á alþjóðvettvangi og sagði Helmut Kohl, kanslari Þýska- lands, að Vesturlönd yrðu að gera það sem í þeirra valdi stæði til að tryggja lýðræði í Samveidi sjálf- stæðra ríkja. „Við höfum ákveðið að senda skýr skilaboð um pólitískan og efnahagslegan stuðning við Jelts- ín forseta og umbótaöfl í Rússlandi og við önnur lýðveldi í Samveldi sjálf- stæðra ríkja," sagði kanslarinn. Fyrstu viðbrögð Bandaríkjaþings við tillögum forsetans voru jákvæð en leiðtogar Demókrataflokksins í þinginu lögðu samt áherslu á að þeir ættu enn eftir að sjá þær full- inótaðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.