Morgunblaðið - 02.04.1992, Page 10

Morgunblaðið - 02.04.1992, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1992 Alexander Solzhenítsyn og Russland: Snýr spámaðurinn heim? Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Bókmenntakennsla nefnist þáttur í Arunum dásamlegu eftir þýska skáldið Reiner Kunze, en bókin kom út 1982 í þýðingu Björns Bjarnasonar. Þátturinn sem talinn er spegla reynslu dótt- ur Kunzes af austur-þýsku skóla- kerfi hefst á þessum orðum: „Hún var miður sín. Kennarinn hafði lýst Pasternak og Solzhen- ítsyn sem úrhrökum. „Geturðu ímyndað þér annað eins?“ sagði hún. Og aftur: „ímyndaðu þér FASTEIGIMASALA Suðurlandsbraut 10 Ábyrgð - Reynsla - Öryggi Hilmar Valdimarsson. SÍMAR: 687828 OG 687808 Vantar eignir á skrá. Skoðum og verðmetum samdægurs. Einbýl ÁLFTANES Vorum að fá í sölu glæsil. einbhús v/Norðurtún. Húsið er 173 fm. Bílsk. 55 fm. 4 góð svefnherb. Vandaðar innr. og gólfefni. Verð 14,3 millj. LINDARBRAUT Mjög gott einbhús á einni hæð. Hús- ið er 145 fm auk 30 fm blómaskála. Bílsk. 35 fm. Arinn í stofu. Parket. Fallegur garður. V. 16 m. Skipti mög- ul. á 3ja-4ra herb. íb. í góðu lyftuhúsi. Raðhús HRAUNBÆR Vorum að fá í sölu mjög gott enda- raðh. á einni hæð. 137 fm. Nýtt parket. Bílskréttur. Skipti á góðri 3ja-4ra herb. íb. koma til greina. BREKKUBYGGÐ V 8,5 M. Vorum að fá í sölu raðhús á tveimur hæðum, samt. 90 fm, auk bílsk. 4ra-6 herb. ENGIHJALLI Til sölu 4ra herb. 107 fm íb. á 5. hæð í lyftuh. Laus nú þegar. SÓLHEIMAR Til sölu glæsil. 4ra herb. 113 fm íb. á 4. hæð í lyftuh. 25 fm bílsk. Hús- vörður. BÓLSTAÐARHLÍÐ Mjög góö 4ra-5 herb. 105 fm íb. á 3. hæð í fjölbhúsi. Bílskréttur. Laus strax. NEÐSTALEITI Til sölu stórglæsil. 4ra-5 herb. íb. 121 fm. Parket á gólfum. Þvottaherb. innaf eldh. Tvennar svalir. Stórkostl. útsýni. Stæði í lokuðu bílahúsi. 3ja herb. KJARRHÓLMI Falleg 3ja herb. íb. Sérþvherb. í íb. Stórar suöursv. Laus nú þegar. V. 6,3 m. VESTURBERG Til sölu góða 3ja herb. 87 fm íb. á 3. hæð. V. 6,4 m. GRETTISGATA Vorum að fá í sölu góða 3ja herb. 73 fm íb. á 2. hæð. Suðursv. 2ja herb. ÁSBRAUT . Vorum að fá í sölu ágæta 2ja herb. 37 fm íb. á 3. hæð í fjölbh. Laus fljótl. V. 3,5 m. LYNGMÓAR GBÆ Til sölu mjög falleg 2ja herb. 60 fm íb. á 3. hæö (efstu) ásamt innb. brtsk. Parket á gólfum. Stórar suðursv. Laus fljótlega. V. 6,3 m. Hilmar Valdimarsson, Sigmundur Böðvarsson hdl., Brynjar Fransson, hs. 39558. VJterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiöill! annaó eins!“ Hve mikils virði Nó- bels-verðlaunin væru gætu nienn dæmt af því að úrhrök eins og Pasternak og Solzhenítsyn hefðu hlotið þau, hafði kennarinn sagt. Hún hafði sagst vera lasin og far- ið úr tímanum. „Maður getur ein- faldlega ekki setið undir öðru eins,“ sagði hún.“ Nú eru aðrir tímar. „Úrhrökin" Borís Pastefnak og Alexander Solzhenítsyn hafa fengið uppreisn æru og eru dáð í heimalandi sínu, Rússlandi. Samt virðist hinn síðar- nefndi enn vera umdeildur og jafn- vel gagnrýndur. Þetta má ráða af nýlegri grein í sænska tímaritinu BLM (6/91) eftir skáldkonuna og bókmenntafræðinginn Júlíu Nem- írovskaju. Eftir greininni að dæma hefur verið litið á Solzhenítsyn sem spá- mann, samvisku þjóðarinnar. Gam- aldags viðhorf rómantískunnar að rithöfundar séu útvaldir af Guði hefur sannast á honum. Hann stóðst og lifði af ótal þolraunir: stríð, fang- elsi, þrælabúðir, krabbamein, of- sóknir og útlegð. Þær raddir heyrðust að Solzhen- ítsyn væri í rauninni nítjándu aldar höfundur og það væri sögulegt slys að hann skyldi fæðast á tuttugustu öld. Solzhenítsyn tók að sér að skera úr um hvað væri gott og hvað vont og hann byggði á trú. Á Vesturlönd- um var hann jafnvel kallaður „rússn- eskur Khomeini" vegna þess hve einstrengingslegur liann þótti í skoð- unum. Spámaðurinn gnæfði upp úr, en varð of upphafinn, hatrið varð of beiskt til þess að það bæri tilætlaðan árangur. Smám saman urðu áhrif hans minni heima fyrir, en um mikil- leika helstu skáldsagnanna efuðust fáir. Solzhenítsyn varð þó fyrst og fremst tákn. Þeir sem helst áttu þess kost að lesa Verk hans voru útlagar og menntamenn. Frá því í iok sjöunda áratugar voru bækur Solzhenítsyns bannaðar í Sovétríkj- unum og gilti það einnig um áður útkomin verk. Neðanjarðarútgáfur hlutu að ná til takmarkaðs hóps. Júlía Nemírovskaja telur að Solzh- enítsyn eigi eftir að verða mikið les- inn í Rússlandi. En hún dregur í efa að boðskapur hans nái til margra. Hún tekur undir með þeim sem lýsa þeirri skoðun að með ftjálsu mark- aðshagkerfi minnki áhrif rithöfund- arins, en endurvakið alræði efli hann, geri hann að talsmanni þjóðar- innar því að þá verði bókmenntirnar eini vettvangur óháðrar félagslegr- ar, trúarlegrar og heimspekilegrar umræðu. Solzhenítsyn yrði þá enn á ný helsti rithöfundur og spámaður Rússlands. Er það þá æskilegt að mati Nem- írovskaju að Solzhenítsyn snúi heim? Svarið er nei. Hún minnir á misjafn- ar viðtökur nýlegs rits eftir hann sem fiallar um hvaða stefnu Rússar eigi að taka í uppbyggingarátt. Mörgum þótti víst „risinn frá Vermont" setja sig á háan hest þegar hann var að leiðbeina löndum sínum frá iandar- eign sinni hinum megin á hnettinum. Þrátt fyrir hófsemi ritsins hleypti það illu blóði í marga. Nemírovskaja skifar: „Það skelfilegasta er að einhvern daginn kemur hann aftur. í fyrstu yrði honum fagnað sem hetju. Blóm- 678221 Blönduhlíð - efri hæð Suðurlandsbraut 14, S 67 82 21 Nýkomin í einkasölu mjög falleg og björt ca 114 fm efri hæð. Bjartar stofur með arni, 3 góð svefnherb. Parket á allri íbúðinni. Bílskúrsréttur. Ákv. sala. FLÓRÍDA LAUFAS \STEIGNASAL/ SfOUMÚLA 17 812744 ' Fax: 81*419 Sigríður Guðmundsdóttir, sérfræðingur í fasteignum á Flórída, fer utan nk. mánudag. Notiðtækifærið og fáið upplýsingar um kaup og sölu fasteigna hjá Sigríði. Upplýsingar í síma 812744 eða 620358. Hl söln í Skipholti 50: Verslunarhúsnæ5i 139 ím. Skrifstofuhússnæði 53 fm. Skrifstofuhúsnæði 138 fm. Upplýsingar í síma 81 23 OO Frjálstframtak Ármúla 18, 108 Reykjavík Sími 812300 - Telefax 812946 FASTEIGNASTARFSEMI - LANDVINNSLA Alexander Solzhenítsyn um myndi rigna yfir hann á flugvell- inum. Og hvað tæki síðan við? Solzh- enítsyn sætti sig varla til lengdar við afskiptaleysi gagnvart rússnesk- um stjórnmálum og bókmenntalífi. Það er auðvelt að endurskipuleggja Rússland þegar maður er sjálfur í útlegð. Þar er í senn auðvelt að tala og þegja. En spámaðurinn endur- heimti verður að láta að sér kveða! Hann verður að beina landi sínu inn á braut réttlætisins." Það eru fremur kaldar kveðjur sem Alexander Solzhenítsyn fær frá Júlíu Nemírovskaju. Hún kveðst ekki vilja að rithöfundurinn snúi heim. Hiá henni er hann tákn liðins tíma, bjarg sem á var byggt, en á það nú á hættu að verða fórnarlamb inni- haldslausra viðtala og opinberra hyllinga. Slíkt segist Nemírovskaja óttast. Henni er að eigin sögn annt um Solzhenítsyn og vill forða honum frá mistökum sem tuttugu ára útlegð hljóti að liafa í för með sér. Virða ber hreinskilnina. Vissulega er það „réttlæti" og sú „lygi“ sem Solzhenítsyn fjallaði um í bókum sínum og greinum með öðru svip- móti nú. En eftir lestur greinarinnar hvarflar það að manni að þessa mikla rithöfundar og sannleiksleit- anda bíði ekkert annað en áfram- haldandi útlegð. Að því leyti verður hann áfram úrhrak, en virðingarvert sem slíkt. Gettu betur: MAogVMA í úrslitavið- ureigninni SPURNINGAKEPPNI fram- haldsskólanna, Gettu betur, hefur staðið yfír frá áramót- um, fyrst á Rás 2 og síðan í Sjónvarpinu. Lið frá 26 fram- haldsskólum um allt land hófu leik í kcppninni og nú er kom- ið að úrslitaviðureigninni sem verður milli tveggja skóla á Akureyri, Menntaskólans og V erkmenntaskólans. í liði MA eru Finnur Friðriks- son, Jón Pálmi Óskarsson og Magnús Teitsson en lið VMA skipa Pétur Maack Þorsteinsson, Rúnar Sigurpálsson og Skafti Ingimundarson. Keppt er um hljóðnemann, farandgrip sem Ríkisútvarpið veitir en það voru einmitt liðs- menn MA sem hrepptu hann í fyrra. Að auki fá sigurvegararn- ir veglegar gjafir. Flugleiðir gefa þeim ferð til Lúxemborgar, Ferð- askrifstofa stúdenta gefur in- terrail-lestarkort um Evrópu, Texco hf. hefur tölvuvasabók og Bókaútgáfan Iðunn gefur Sögu Reykjavíkur eftir Guðjón Frið- riksson. Úrslitaþátturinn verður í beinni útsendingu frá íþrótta- höllinni á Akureyri á föstudags- kvöld kl. 21.10. Spyijandi er Stefán Jón Hafstein, dómari Ragnheiður Erla Bjarnadóttir en Andrés' Indriðason annast um- sjón og dagskrárgerð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.