Morgunblaðið - 02.04.1992, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1992
Ábyrgðarleysi
eftir Þorvald
Gylfason
I. Tvöföldun erlendra skulda
á 11 árum
Það er að sönnu ærin ástæða til
þess nú að vara við of mikilli svart-
sýni um afkomuhorfur þjóðarinnar
á næstu árum. Vissulega eru mörg
mikilvæg vandamál óleyst, einkum
í efnahagsmálum og stjórnmálum,
en við höfum alla burði til að leysa
þau farsællega á næstu árum. En
til þess að það sé hægt, verða al-
menningur og stjórnvöld að hafa
skynsamlegan skilning á undirrót,
eðli_ og umfangi vandans.
Ég verð þess var víða, að fólkið
í landinu áttar sig margt mætavel
á því ófremdarástandi, sem við höf-
um komið okkur í. Það er á hinn
bóginn tilfinnanlegt, hversu mikið
virðist vanta á slíkan skilning meðal
stjórnmálamanna enn sem fyrr, en
það er að vísu skiljanlegt, því að
þeir bera höfuðábyrgð á vandanum,
sem við er að glíma. Þeir hafa þe'ss
vegna augljósan hag af því að kann-
ast ekki við vandamálin, reyna að
breiða yfir þau eða kenna öðrum
um. Stjórnmálamennirnir geta hiris
vegar ekki skýlt sér á bak við skort
á upplýsingum. Fáfræði er engin
afsökun í upplýstu samfélagi.
Það kann reyndar hafa villt sumu
fólki sýn á iiðnum árum, að efna-
hagsvandanum hefur verið leynt á
bak við gegndarlausar lántökur í
útlöndum Iangt aftur í tímann. Það
er bezt að skýra þetta með dæmi.
Þjóðartekjur á mann voru tæpiega
1,3 milljónir króna 1980 á núver-
andi verðlagi. Erlendar skuldir þjóð-
arinnar voru þá tæplega 400.000
krónur á niann eða 30% af þjóðar-
tekjum. í fyrra voru þjóðartekjur
tæplega 1,4 milljónir á mann. Þær
höfðu því aukizt um 8% á 11 árum
eða 0,7% á ári að jafnaði þennan
tíma. Þetta er að sönnu sáraiítill
hagvöxtur borið saman við nálæg
lönd á sama tíma, en stjórnvöid virt-
ust samt ekki hafa þungar áhyggjur
af því. Þau létu að minnsta kosti
reka á reiðanum ár fram af ári, eins
og ekkert væri að.
En þetta er ekki allt. Hitt verður
að fylgja með, að erlendar skuldir
þjóðarinnar voru komnar yfir
800.000 krónur á hvert mannsbarn
í landinu í lok síðasta árs eða næst-
um 60% af þjóðartekjum. Skuldirnar
hafa tvöfaldazt miðað við þjóðar-
tekjur á aðeins 11 árum:
II. Batnandi lífskjör að láni
Mig langar að biðja lesandann
að veita þessu fyrir sér í stutta
stund: Þessi ellefu ár, 1980-91, tók-
um við yfir 400.000 krónur að láni
á hvert mannsbarn í landinu, en
tekjur okkar jukust samt aðeins um
rösklega 100.000 krónur á mann
allan þennan tíma. Þessar tölur fela
það í sér, að án þessarar ofboðslegu
skuldasöfnunar í útlöndum þennan
tíma og án róttækrar stefnubreyt-
ingar í efnahagsmálum hefðu ráð-
stöfunartekjur þjóðarinnar minnkað
um náiægt 20% að öðru jöfnu síð-
ast Iiðin ellefu ár þrátt fyrir hagstæð
ytri skilyrði yfirleitt. Lífskjör al-
mennings hefðu hríðversnað.
Hvað þýðir þetta? Við höfum tek-
ið batnandi lífskjör að láni í útlönd-
um öil þessi ár. Hagvöxturinn hefur
verið minni en enginn í raun og
veru. Stjórnvöld hafa slegið nauð-
synlegum umbótum á frest von úr
viti í skjóli skuldasöfnunar. Börnin
okkar eiga eftir að borga reikning-
inn - verði þau ekki farin úr landi,
þegar þar að kemur.
Nú getur skuldasöfnun innan
hóflegra marka átt fullan rétt á
sér, ef lánsfénu er varið til arðbærr-
ar fjárfestingar. Því er ekki að heilsa
hér. Mestum hluta íjárins, sem við
höfum fengið að láni, hefur ýmist
verið eytt eða þá varið í óarðbæra
íjárfestingu, ekki sízt í sjávarútvegi
og landbúnaði. Við höfum haldið
áfram að kaupa skip, þótt fiskiskip-
aflotinn sé löngu orðinn alltof stór.
Og við höfum haldið áfram að reisa
mannvirki undir óhagkvæma mat-
vælaframleiðslu, sem við höfum síð-
an greitt niður til útflutnings af
almannafé. Við höfum verið að fjár-
festa í fortíðinni. Þetta hefur við-
gengizt með vitund og vilja stjórn-
valda og stundum beinlínis að frum-
kvæði þeirra.
Skoðum þetta betur. Hvernig má
það vera, að enginn raunverulegur
hagvöxtur hafi átt sér stað í landinu
síðast liðin ellefu ár, heldur þvert á
móti veruleg hnignun?
• Færðum við ekki landhelgina
út á áttunda áratugnum til að búa
í haginn fyrir framtíðina? Jú, víst
gerðum við það, en við sóuðum
dijúgum hluta ávinningsins í glóru-
lausa íjölgun fiskiskipa og fisk-
vinnslustöðva, sem engin þörf var
fyrir.
• Gengum við ekki í EFTA 1970
til að styrkja stöðu okkar langt fram
í tímann? Jú, en við sólunduðum
hluta hagræðisins fyrir íslenzkan
iðnað og fyrir almenning með því
að halda dauðahaldi í ranga gengis-
stefnu, sem hefur dregið þrótt úr
iðnaði, verzlun og þjónustu af illa
grundaðri umhyggju fyrir sjávarút-
vegsfyrirtækjum.
• Réðumst við ekki í umfangs-
miklar virkjunarframkvæmdir til að
skjóta fleiri og styrkari stoðum und-
ir þjóðarbúskapinn? Jú, 'en við sóuð-
um líka miklu fé í óarðbær verkefni
á þeim vettvangi (hver man ekki
eftir Kröfluvirkjun?) og kyntum
undir verðbólgunni um leið.
III. Sömu sjúkdómseinkenni og
austan tjalds
Brestirnir í innviðum atvinnulífs-
ins hér heima eiga sumt sammerkt
með sjúkdómseinkennum efnahags-
lífsins í kommúnistaríkjunum fyrr-
verandi í Austur-Evrópu.
Það er mikilvægt, að menn horf-
ist í augu við þessa óþægilegu stað-
reynd og láti það ekki villa sér sýn,
að við búum í lýðræðis- og réttar-
ríki, meðan Austur-Evrópuþjóðirnar
bjuggu við einræðis- og lögreglu-
vald. Það má ekki heldur byt'gja
mönnum sýn, að hér hefur aldrei
ríkt vöruskortur né almenn fátækt
eins og þar. Og það má alls ekki
rugla menn í ríminu, að tveir
stærstu stjórnmálaflokkarnir, sem
hafa ráðið lögum og lofum hér
heima frá stofnun lýðveldisins og
stjórna'ð landinu ýmist á víxl með
aðstoð smærri flokka eða í samein-
ingu, kenna sig sjálfir við einka-
framtak, ftjálslyndi og framfarir í
austur-evrópskum öfugmælastíl.
Það er engu að síður staðreynd,
að ein höfuðmeinsemdin í efnahags-
lífi okkar er sama eðlis og í Austur-
Evrópu fyrir byltinguna 1989. Mein-
semdin er sú, að stjórnvöid hafa
komið í veg fyrir eðlilega endurnýj-
un og umsköpun í atvinnulífinu með
því að hlaða undit' hefðbundna at-
vinnuvegi og halda öðrum atvinnu-
vegum niðri með því móti. Stjórn-
völd hafa notað banka- og sjóða-
kerfið til að halda óhagkvæmum
atvinnurekstri gangandi von úr viti
Þorvaldur Gylfason
„Seðlabanki íslands
getur ekki gegnt lög-
boðnu hlutverki sínu
með góðu móti í sam-
ræmi við kall og kröfur
tímans, nema hann sé
leystur undan áhrifum
stjórnmálamanna til
samræmis við skipan
seðlabankamála í öðr-
um löndum.“
á kostnað .almennings. Peningum
hefur verið ausið í illa rekin fyrir-
tæki, jafnvel þótt ljóst væri, að
lánsféð fengist aldrei endurgreitt.
Þannig hafa stjórnvöld komið í veg
fyrir það, að nýir og hæfari eigend-
ut' og stjórnendur tækju við þeim
fyrirtækjum,, sem standast ekki
kröfur tímans. Innviðir margra
þessara fyrirtækja hafa haldið
áfram að fúna undit' verndarvæng
vinveittra stjórnmálamanna.
Með því að tjúfa markaðsöflin
úr sambandi til að hlífa eigendum
og stjórnendum illa rekinna fyrir-
tækja við afleiðin'gum gerða sinna,
hafa stjórnvöld skekkt og veikt inn-
viði atvinnulífsins hér heinta svo
mjög, að fyrirtækin geta nú engan
veginn staðið undir þeim launa-
greiðslum og iífskjörum, sem vinn-
andi fólk á að venjast og telur sig
eiga rétt á. Ég tel litlar líkut' til
þess, að launþegat' sætti sig við
þetta til lengdar. Fúnir innviðir
margra þessara fyrirtækja geta
brostið þá og þegar. Sams konar fúi
í miklu stærri stíl vat'ð kommúnista-
ríkjunum fyrrverandi að falli, þótt
fleira legðist að vísu á sömu sveif
þar eystra.
Svo er annað. Stjórnvöld hafa líka
tafið fyrir nauðsynlegri endurskip-
ulagningu banka-, og sjóðakerfisins.
Þetta hafa þau gert meðal annars
með því að gefa völdum útvegs-
mönnum aflakvóta, sem þeir hafa
síðan selt fyrir svimandi fúlgut' og
notað féð að verulegu leyti til að
greiða niðut' skuldir við banka og
sjóði, sem hefðu komizt í þrot að
öðrum kosti vegna ábyrgðarlausrat'
útlánastefnu. Nú þegar hafa bankat'
og sjóðir engu að síður þurft að
afskrifa miklar fját'hæðir vegna tap-
aðra útlána. Þetta á einkum við um
Landsbanka íslands og nokkra fjár-
festingarlánasjóði. Mun þyngri áföll
eru óumflýjanleg á næstu misserum.
Fólkinu í landinu vet'ður gert að
borga brúsann.
Stjórnmálamennirnir láta þó eins
og þeir lifi í öðrum heimi. Þeir halda
áfram að troða sjálfum sér og hver
öðrum í bankastjórnir og bankat'áð,
eins og ekkert hafi í skorizt. Nú
fyrir sköntmu tóku formaður og
framkvæmdastjóri tveggja stærstu'
stjórnmálaflokkanna til dæmis sæti
í bankaráði Landsbankans, þótt
hvorugur þessara manna sé þekktur
að því að bera glöggt skynbragð á
bankamál, öðru næt'. Þetta er reynd-
ar annað austantjaldseinkenni:
Stjórnmálamenn trana sjálfum sér
í stjórnir ríkisfyrirtækja, sem þeir
þekkja hvorki haus né sporð á, og
leggja lamandi hönd á nauðsynlegar
umbætur í rekstri og skipulagi fyrir-
tækjanna.
Mikill samdráttur þjóðarfram-
leiðslunnar á þessu ári og meðfylgj-
andi aukning atvinnuleysis eru angi
á þessum meiði. Vandinn er ekki
tímabundinn. Hann stafar ekki af
utanaðkomandi áföllum. Það er til
einskis fyrir stjórnmálamenn að
þykjast í sífellu vera að moka flór-
inn eftir fyrrverandi ríkisstjórn.
Nei, efnahagsvandinn er fyrst og
fremst óhjákvæmileg afleiðing
þeirrar efnahagsstefnu, sem stjórn-
völd landsins hafa fylgt unt langt
árabil.
Stjórnmálaflokkarnir bera allit'
ábyrgð á þessari efnahagsstefnu að
meira eða minna leyti. Þetta vet'ða
stjórnmálamennirnir að horfast í
augu við og viðurkenna, því að ann-
ars er engin von til þess, að þeir
geti leitt þjóðina út úr núverandi
ógöngum. Ég verð þó að játa það,
að ég er ekki mjög vongóður um,
að stjórnmálamenn okkat' eigi eftir
að biðjast afsökunar í bt'áð, eins og
kommúnistar í Austur-Evrópu
höfðu þó manndóm til að gera, þeg-
ar efnahagsstefna þeirra hafði beðið
skipbrot.
MEÐ
HYBREX
FÆRÐU GOTT SÍMKERFI
OG ÞJÓNUSTU
SEM HÆGT ER
AÐ TREYSTA.
HYBREX AX er eitt fullkomnasta tölvustýrða sím-
kerfið á markaðnum i dag. Auðvelt er að koma
því fyrir og það er einfalt í notkun. HYBREX er
mjög sveigjanlegt í stærðuni.
DÆMI: (AX 8)1- 4bæjarlínur-Alltað8símtæki
(AX32) 1-32bæjariínur-Alltað 192símtæki
Möguleikarnir eru ótæmandi.
HELSTU KOSTIR HYBREX
•Islenskur texti á skjám tækjanna.
•Beint innval.
•Hægt er aö fá útprentaða mjög nákvæma sundurliðun
þ.e. tfmi, lengd, hver og hvert var hringt osfr.
•Sjálfvirk símsvörun.
•Hægt er að láta kerfíð eða tæki hringja á fyrirfram-
ákveðnum tíma.
•Hjálparsími ef skiptiborðið annar ekki álagstímum.
•Sjálfvirk endurhringing innanhúss sem bíður þar til númer
losnar.
•Mjög auðvelt er að nota Hybrex fyrir slmafundi.
•Hægt er að tengja Telefaxtæki við Hybrex án þess að það
skerði kerfið.
•Hægt er að loka fyrir hringingar í tæki ef menn vilja frið.
•Innbyggt kallkerfi er f Hybrex.
•Langlinulæsing á hverjum og einum slma.
OKKAR STOLT ERU ÁNÆGÐIR VIÐSKIPTAVINIR ;§
Borgarieikhúslð Morgunblaðið, augl.
Gatnamálasfjóri Samband Islenskra
Reykjavíkur sveitarfélaga
Gúmmlvínnustofan Securitas
islenska óperan Sjóvá-Almennar
Landsbrélhf. 0(1. ofl. o(l.
Heimilistæki hf
Tæknideild, Sætúni 8 SÍMI6915 00
í SOHatÚtífJbUK,
V%/
Eigenda-
skipti að
Dansbarnum
NÚ NÝLEGA hafa nýir rekstr-
araðilar tekið við rekstri Dans-
barsins á Grensásveginum. Þeir
eru Dagbjört Ilanna Sigurdórs-
dóttir og Jónas Jóhannesson og
hyggja þau á ýmsar breytingar
á Dansbarnum, t.d. verður nú
opið á fimmtudags- og sunnu-
dagskvöldum með lifandi tónlist
og ýmsum uppákomum og
kynningum.
Á fimmtudags- og sunnudags-
kvöldum verður opið báða dagana
frá kl. 20.00-1.00 en á föstudags-
og laugardagskvöldum verður opið
frá kl. 19.00-03.00 og verður
boðið upp á lifandi tónlist bæði
kvöldin.
Föstudagskvöldið 3. apríl mun
hljómsveitin 7und leika fyrir dansi
og á laugardagskvöldið verður það
hljómsveitin Gömlu brýnin.
Sunnudagskvöldið verður Hilmar
Sverrisson dansstjóri til kl. 1.00.