Morgunblaðið - 02.04.1992, Page 15

Morgunblaðið - 02.04.1992, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1992 15 IV. Hvað sögðu ráðgjafarnir? Undir eðlilegum kringumstæðum á að ríkja trunaður á milli ríkis- stjómar og ráðgjafa hennar líkt og á milli sjúklings og læknis. Efna- hagsþróun landsins undanfarin ár er hins vegar allt annað en eðlileg: Hún er hneyksli og ber vitni um vítavert ábyrgðarleysi af hálfu stjórnvalda. Sú spurning hlýtur því að vakna við þessar ki'ingumstæður, hvaða ráð helztu efnahagsstofnanir stjórn- valda hafa gefið á liðnum árum. Við lestur opinberra skýrslna Seðla- banka íslands og Þjóðhagsstofnunar virðist mér það koma berlega í ljós, að þessar stofnanir hafa ekki staðið í stykkinu. Þær hafa ekki sagt neitt að ráði umfram það, sem stjórnvöld vildu heyra. • Þær hafa aldrei lagt áherzlu á nauðsyn þess að hverfa frá núver- andi stefnu í landbúnaðarmálum, þótt það sé deginum ljósara, að ný landbúnaðarstefna er nauðsynlegur hlekkur í þeirri hagstjórnarbót, sem þjóðin þarfnast. Um þetta er enginn ágreiningur meðal hagfræðinga inn- an sem utan stjórnkerfisins. • Þær hafa ekki heldur tekið und- ir ítrekaðar tillögur um veiðigjald, þótt veigamikil rök hafi verið færð að því, að veiðigjald í einhverri mynd ásamt gengisbreytingu sé einnig nauðsynlegur hlekkur í nýrri efnahagsstefnu. Þó eru margir helztu talsmenn veiðigjalds einmitt embættismenn í Seðlabankanum og Þjóðhagsstofnun. • Þær hafa ekki heldur gert at- hugasemdir við skaðleg afskipti stjórnmálamanna af bönkum og sjóðum, þótt einstakir starfsmenn þessara stofnana hafi að vísu gert það í eigin nafni, þar á meðal for- maður bankastjórnar Seðlabankans. Mér er það fullljóst, að ráðgjafar- ■stofnunum stjórnvalda er vandi á höndum í þessum efnum. En ég tel samt, að Seðlabankinn og Þjóðhags- stofnun hafi ekki rækt skyldu sína gagnvart almenningi að fullu: Þess- ar stofnanir hefðu að réttu lagi átt að eiga frumkvæði eða að minnsta kosti aðild að heilbrigðri og mál- efnalegri gagnrýni á efnahags- stefnu stjórnvalda í stað þess að þegja þunnu hljóði við gagnrýni og aðvörunum okkar, sem stöndum utan stjórnkerfisins. Það er ekki nóg, að einstakir starfsmenn þess- ara stofnana taki af skarið í einstök- um málúm í eigin nafni, heldur þurfa stofnanirnar sjálfar að gera það. Þessi gagnrýni beinist ekki að þeim einstaklingum, sem stýra þess- um stofnunum, heldur fyrst og fremst að því starfsumhverfi, sem þeim er búið af hálfu stjórnvalda. Seðlabankinn hefur þó staðið sig að því leyti, að hann hefur veitt stjórnvöldum aðhald í gengismálum og vaxtamálum síðustu ár. V. Hlutverk Seðlabankans En verksvið Seðlabankans er víð- ara en svo samkvæmt lögum. Þegar það er orðið dagljóst, eins og það hefur verið nú um iangt skeið, að það er ekki vinnandi vegur að tryggja varanlegan stöðugleika og vöxt í þjóðarbúskapnum án stefnu- breytingar í skipulagsmálum at- vinnuveganna, þá eiga Seðlabank- inn og Þjóðhagsstofnun að láta málið til sín taka, hvort sem ríkis- stjórninni líkar það vel eða illa. Og þegar alvarlegum brestum í hag- stjórnarstefnunni og eiginlegu efna- hagshruni er leynt með gríðarlegum erlendum lántökum árum saman, eiga í'áðgjafar stjórnvalda, sem hafa fingurna á slagæðum efnahagslífs- ins að atvinnu frá degi til dags, að rísa upp og aðvara almenning. Þannig er góðri efnahagsráðgjöf háttað í öðrum löndum, þegar mikið liggur við. Þar reyna ráðgjafar stjórnvalda fyrst til þrautar að koma vitinu fyrir stjórnmálamennina í kyrrþey eða þá fyrir opnum tjöldum, ef annað dugir ekki, og segja svo af sér með sóma, ef allt annað bregzt. Reynslan að utan sýnir það, að stjórnmálamenn láta sér iðulega segjast undir slíkum kringumstæð- urn. Lög um Seðlabanka íslands gera raunar ráð fyrir því, að stjórn bank- ans geti opinberað ágreining við stjórnvöld um efnahagsstefnuna. A þetta hefur þó aldrei reynt í rösk- lega 30 ára sögu bankans, þótt efna- hagsstefna stjórnvalda hafi augljós- lega verið röng í veigamiklum atrið- um, sem varða verksvið bankans. Seðlabankar í útlöndum kunngera iðulega ágreining við stjórnvöld, þegar þeim tekst ekki að ná sam- komulagi fyrir luktum dyrum. Stundum hafa bankarnir betur, stundum ekki. Ágreiningurinn snýst oftast um það, að stjórnmálamennirnir reyna að fá seðlabankann til að prenta meiri periinga en bankinn telur ráð- legt. Seðlabankinn styrkir stöðu sína með því að gera slíkan ágrein- ing opinberan, ef í harðbakka slær, því að stjórnmálamenn treysta sér oft ekki til að beijast fyrir aukinni peningaprentun og verðbólgu í aug- sýn almennings. Einmitt þess vegna er það talið nauðsynlegt, að seðla- bönkum sé stjórnað af kunnáttu- mönnum, sem njóta trausts og virð- ingar meðal almennings, eru óháðir stjórnmálaflokkum og hafa þrek til þess að bjóða stjórnvöldum byrginn, þegar nauðsyn krefur. Marknfiðið er að gera seðlabönkunum kleift að tryggja hagsmuni almennings gagnvart stjórnvöldum. Reynsla iið- inna ára sýnir það líka ótvírætt, að verðbólga er yfirleitt minni í þeim löndum, þar sem seðlabankar eru tiltölulega sjálfstæðir gagnvart stjórnvöldum, að öðru jöfnu. Rök og reynsla hníga í sömu átt hér heima: Seðlabanki íslands getur ekki gegnt lögboðnu hlútverki sínu með góðu móti í samræmi við kall og kröfur tímans, nema hann sé leystur undan áhrifum stjórnmála- manna til samræmis við skipan seðlabankamála I öðrum löndum. Höfundur cr prófessor við Háskóla íslands. SIEMENS Kæli - og frvstitœki í miklu úrvali! Lítiö inn til okkar og skoöiö vönduð vestur-þýsk heimilistœki! Hjá SIEMENS eru gœöi, ending og fallegt útlit ávallt sett á oddinn! SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300 Uppáhald sælkerans 8 stykki á aðeins kr. 9.250 D ir\ Hosl frél Nu getur þú látið Ijós þitt skína í eldhúsinu með eldhúsáhöldum frá Practika úr háglansandi, ryðfríu gæðastáli. Svört handföng úr hitaein- angrandi gerviefni og með gyllingu. Öll áhöldin má þvo í uppþvottavél og þau passa fyrir allar gerðir eldavéla. Tvöfaldur botn, sem tryggir hagkvæma orkunotkun og bestu mögulega eld- unareiginleika. Þetta eru 8 hlutir; 2 lágir pottar með loki, 016 og 20 cm; 2 háir pottar með loki, 016 og 20 cm; 1 skaftpottur, 016 cm; 3 skálar, 018,20 og 22 cm. Pöntunarnr. 066.185. 8 stykki á 149,- DM. le STÆRSTA PÓSTVERSLUN EVRÓPU VERSLUN OG AFGREIÐSLA í HJALLAHRAUNI 8, HAFNARFIRÐI, SÍMI 91-50200.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.