Morgunblaðið - 02.04.1992, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1992
„LEIÐARLJÓS“
eftir Árna
Gíslason
Síðastliðinn sunnudag biftist í
Morgunblaðinu viðtal við núverandi
sjávarútvegsráðherra, Þorstein
Pálsson, þar sem á nokkrum síðum
var teygður lopinn og miklum papp-
ír og mikilli prentsvertu eytt í að
útskýra stefnu ráðherra í sjávarút-
vegsmálum. Innihaldi viðtalsins
hefði þó verið hægt að koma fyrir
í þremur setningum:
1. Núverandi kvótalögum og leik-
reglum þeirra verður ekki breytt.
2. Vísindin (Hafró) efla alla dáð.
3. Andstæðingarnir koma ekki
með neinar tillögur að breytingum.
Áður en lengra er haldið er rétt
að gæta fyllstu sanngirni og segja
að Þorsteinn er ekki upphafsmaður
að óskapnaðinum, en hefur haldið
svo vel ti! streitu stefnu fyrirrenn-
ara síns að ég hef heyrt hann kall-
aðan Hallór II.
Við skulum nú líta á ofannefnd
þrjú atriði og blanda bæði stað-
reyndum og atriðum úr fréttum
undanfarið saman við skoðanir Þor-
steins.
Kvótalögin og leikreglurnar
Fyrst er þar til að taka að ráð-
herra verður mjög tíðrætt um hag.
Hann byijar í fyrirsögninni: Með
hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi.
Sé lesið áfram kemur: Hagsmuna-
gæsla fyrir sjávarútveginn (sam-
tryggingarvaldið?) er hagsmuna-
gæsla fyrir þjóðina! Það var og!
Ráðherra verður síðan tíðrætt um
hagkvæmni og hagræðingu. Þessi
orð hljóma vel og ættu að vera
aðalsmerki hverrar ríkisstjórnar og
ráðherra. Lítum hins vegar á hvað
liggur á bak við þau í þessu til-
felli. Byrjum á að taka út þau tvö
atriði í núverandi kvótaiögum sem
öllu máli skipta, þ.e.a.s. fijálsa
framsalið (einkaréttur sægreifa) og
aflamark skipa. Bæði þessi atriði
telur ráðherra „höfuðforsendur"
núverandi laga til þess að menn
geti hagrætt hjá sér og náð fram
hagkvæmum rekstri. Áður en
lengra er haldið vil ég vísa á frétt,
sem kom í fréttaþættinum Auðlind-
inni í útvarpinu nýlega, um skulda-
stöðu nokkurra útgerðarfyrirtækja
umreiknaða í þorskígildistonna-
eign sömu fyrirtækja. Fram kom
að mörg skulduðu þau á bilinu 130
til 160 þúsund kr. á hvert tonn.
Þetta er í sjálfu sér ágætis formúla
og hvað segja þessar tölur? Þær
segja að fyrirtækin eru í raun gjald-
þrota. Á sama tíma eru þessi fyrir-
tæki með stærstu kvótana og verða
að byija að hagræða segir ráð-
herra, engin lausn að þau fari á
hausinn af því að þau séu svo stór!
(og margir af eigendum kjósa rétt?).
Svo byija menn að hagræða. Sumir
áelja kvóta og losa sig úr skuldum
(ráðherra er ánægður). Kvótinn er
verðlagður á margföldu rekstrar-
hæfu verði. Minna máli skiptir fyrir
ráðherra hvort sala geri aðra á
staðnum atvinnulausa og eigna-
lausa. Hagkvæmnin er í fyrirrúmi
þó svo að þeir einu sem geta keypt
séu þeir sem geta „hagrætt" í fram-
talinu hjá sér og látið almenning
borga í gegnum skattakerfið eða
(sama hvað hver segiij notað sjóða-
sukksaura (sem þeir geta ekki og
ætla sér ekki að endurgreiða) til
að fjármagna kvótakaupin. Hag-
ræðing fellst einnig í að fyrirtæki
með vonlausa skuldastöðu kaupi
með góðu eða illu frystitogara og
sendi atvinnu fjölda manna út á sjó
þó svo að sömu fýrirtæki eigi í landi
fullkomnar vinnslustöðvar. Eða
segja menn ekki að vinnslustöðvar
séu of margar!
Hluti af hagræðingunni fellst líka
í því að þvinga menn til að láta af
hendi fisk á hálfvirði (tonn á móti
tonni) af því að þeir „eiga“ fiskinn
og slá tvær flugur í einu höggi:
Rýra hlut sjómanna og fá betri út-
. komu úr vinnslunni. Aðrir komast
ekki að. Við hvað eru þessir menn
hræddir? Jú, þeir hræðast eðlilegt
viðskiptasiðferði á jafnréttisgrund-
velli, þeir þora ekki að horfast í
augu við heilbrigða samkeppni.
Ráðherra 'nefur og lýst því yfir að
hann sé ekki hlynntur því að allut'
fiskur fari á markað. Það eru
kannski of miklir hagsmunir í húfi,
svona á miðju hagræðingartímabili.
Allt það mismununarofbeldi sem
ráðherra blessar og telur af því
góða mun leiða til gjaldþrota og
uppgjafa fjölda manna, byggðar-
laga og fyrirtækja og ekki skal
gleymt að oft leiðir ofbeldi af sér
meira ofbeldi. Davíð Oddsson talaði
um það fyrir áramót að leiðrétta
skyldi þá mismunun sem sjóðasukk-
og fyrirgreiðslupólitík undanfar-
Árni Gíslason
„Lítið gerist þó, menn
virðast beygja sig undir
„leiðarljós“ sjávarút-
vegsráðherra, sem mér
og fjölda annarra sýnist
frekar líkjast grútar-
týru hagsmunagæslu
og mismununar, en ein-
hverju ljósi.“
inna ára hefði valdið. jafna aðstöðu.
Minna hefur farið fyrir.þeirri um-
ræðu undanfarið. Allt sjóðasukkið
í skuldbreytingarprósess eins og er!
Jón Baldvin og kratarnir hafa skrif-
að greinar og gefið yfirlýsingar um
að nú verði að taka til. Lítið gerist
þó, menn virðast beygja sig undir
„leiðarljós" sjávarútvegsráðherra,
sem mér og fjölda annarra sýnist
frekar líkjast grútartýru hagsmu-
nagæslu og mismununar, en ein-
hveiju ljósi.
Nýlega kom í sjónvarpinu viðtal
við togbátsskipstjóra í Eyjum ásamt
myndum af „feng“ bátsins í síðasta
róðri. Fengur sá var slatti af fisk-
hræjum í kari og mátti sjá netaför
á heillegustu hræjunum, sem sagt
dauður fiskur sem hafði verið hent.
Fram kom að báturinn hefði fengið
upp í 250 kg í togi af hræjum.
Skipstjórinn hafði aldrei séð annað
eins. Hvað er hér að gerast. Ein
sönnunin enn um umgengnina á
miðunum í aflamarkskerfi núver-
andi laga, og það á hrygningarslóð-
um (fæðingardeildinni!). Einungis
sá afli sem menn koma með að landi
telur í kvóta, og til hagræðingar
hirða menn aðeins það sem besta
verð gefur í landi, hinu er hent.
Að það komi 250 kg í togi af hræj-
um segir aðeins það að það hlýtur
að vera lag af dauðum fiski á botn-
inum. Ekki ætla ég að fjölyrða
meir um þetta atriði, aðeins að
segja: Fleiri og fleiri eru að koma
út úr ^kelinni og segja sannieikann
um þá gegndarlausu verðmætasóun
sem viðgéngst á miðunum í kring-
um landið vegna aflamarkskerfis-
ins. . ,
Efla vísindin alla dáð?
Einn af hornsteinum núverandi
kerfis telur ráðherra (ásamt fyrir-
rennara) vera ráðgjöf Hafró. Ráð-
herra mætir gjarnan á fundi með
fulltrúa þaðan, og gjarnan vopnað-
an glærum, til útskýringar fyrir
fundarmenn. Ekki ætlar undirritað-
ur að leggja dóm á ágæti ráðgjafar
þessarar en eitthvað virðast þó hlut-
irnir málum blandnir hjá þeirri
ágætu stofnun.
Fyrst er þar til að taka að loðnu-
vertíð er lokið og eins og ég gat um
í síðustu grein minni hefur Hafró
(með hjálp ráðherra) tekist að eyði-
leggja hana eina ferðina enn.
Nú hefur hins vegar það merki-
lega gerst að Hjálmar hefur lagt
af fyrrum véfréttarstíl og viður-
kennt í fjölmiðlum að „eitthvað"
hafi farið úrskeiðis, segist vera á
kafi í að leita skýringa á skýrslum,
jafnvel áratugi aftur í tímann og
er helst á því að í leitarrallinu (þeir
eru mikið fyrir röllin hjá Hafró!) á
nýliðuninni, sem gefa átti veiðina í
ár hafi menn „sennilega" bara farið
fram hjá nýliðuninni og þess vegna
hafi þeir ekki fundið neina nýliða
r
2835 PLL
100 WATTA HLJÓMTÆKJASTÆÐA
STAFRÆNT ÚTVARP - 6 BANDA TÓNJAFNARI - TVÖFALT
KASSETTUTÆKI - PLÖTUSPILARI - 2x60 WATTA HÁTALARAR -
FJARSTÝRING - FULLKOMINN GEISLASPILARI 1BIT/3JA GEISLA
SERTILBOÐ KR.
KR. 21.450.-
ÁN GEISLASPILARA
36.950.
STGR.
M
NIUNALÁN AFBORGUNARSKILMÁLAR
VÖNDUÐ VERSLUN
HUðMCO
FÁKAFENI 11 - SÍMI 688005
og þess vegna haldið að stofninn
væri hruninn. Ég er ansi hræddur
um að þeir verði að taka fram hjá
sér loðnuglærurnar og bæt.a við
nýliðunarlitinn.
Mennirnir verða að hafa réttan
lit á réttum stað á fundunum hjá
ráðherra! Lítum aðeins á síldar-
stofninn. Þeir segja hjá Hafró að
hann sé 500-700 þúsund tonn þar
af 300-400 þúsund hrygningar-
stofn. Veidd voru á síðustu vertíð
um 100 þúsund. tonn. Gallinn er
nefnilega sá að það má ekki veiða
síldina. Hann Jakob bannar það!
Það verður að safna í sarpinn og
geyma til beti'i tíma. Það væri svo
sem gott og blessað ef kvikindin
þyrftu ekki að éta. Sennilega eru
þau núna í veislu í loðnuhrognunum
og.kannski hrognum annarra fiska,
til að stofninn verði ennþá stærri á
næsta ári (og hinir stofnarnir þá
minni). Það skyldi þó ekki vera að
fiskistofnarnir væru aðallega í því
að éta hver annan og samtímis Is-
lendinga út á gaddinn.
Aftur til nýliðunnar. Hjálmar tel-
ur „sennilegt“ að þeir hafi ekki hitt
á nýliðun loðnunnar hérna um árið.
Gæti það verið að þeir hefðu ein-
hvern tímann ekki hitt á nýliðunina
í þorskinum? Og þar sé komin skýr-
ingin á því að undanfarið hefur
verið mokveiði á þorski allt frá
Hornafirði vestur á firði svo menn
þurfa að fara jafnvel áratugi aftur
í tímann til að finna samjöfnuð?
Allit' að verða kvótalausir og
„neyðast" til að hámarka hjá sér
afkomuna með því að henda fiski
fyrir milljarða, á meðan fjöldi fisk-
vinnslufólks er atvinnulaus og allt
er að fara á hausinn. Spyr sá sem
ekki veit. Spyijið Þorstein!
Skoirtur á tillögum til
breytinga
Eitt af því sem ráðherra tiltekur
í greininni er að engar tillögur hafi
komið frá andstæðingum núverandi
kvótakerfis. Þessu vill undirritaður
vísa aftur til föðurhúsanna. Sann-
leikurinn er sá að ráðherra er eins
og fyrirrennari hans svo gjörsam-
lega fastur í núverandi kerfi að
hann ljær ekki máls á neinum breyt-
ingum. Til þess eru allt of miklir
hagsmunir í húfi, finnst honum, og
til þess eru fjarstýritaumarnir neð-
an úr LÍÚ allt of sterkir.
Á meðan svo er, er lítil von um
annað en „hagræna" umfjöllun um
þessi mál, og hið gegndarlausa rugl
mismununarofbeldis, hagsmuna-
gæslu og verðmætasóunnar rnun
halda áfram og afleiðingarnar
munu verða skelfilegar. Við skulum
vona að vitræn uinfjöllun leysi brátt
hina hagrænu af hólmi.
Höfundur er fiskverkandi og
fyrrverandi skipsljóri.
Listahátíð
ungs fólks
lýkur á
laugardag
Nú stendur yfir í Hinu liúsinu
í Brautarholti 20 Listahátíð
ungs fólks, „Unglist 92“ og eru
samstarfsaðilar að hátiðinni
Félag framhaldsskóla í
Reykjavík, AFS skiptinema-
samtökin, Útideild unginga
FR og allar félagsmiðstöðvar
í Reykjavík.
Markmið liátíðarinnar er að
veita ungu listfengnu fólki á
aldrinum 16 til 20 ára og þar
um bil tækifæri til að koma list
sinni á framfæri til jafnaldra og
aimennings.
Listahátíðin hófst í gær og
verður síðan fram haldið í dag,
fimmtudag. Hátíðinni lýkur svo
á laugardag með málþingi um
menningu, listir og hagsmuna-
mál ungs fólks og stendur dag-
skráin frá klukkan 10 til 15.
Klukkan 15,30 verður síðan fata-
og hárgreiðslusýning og sýning
á föðrunartækni og annast iðn-
skólanemar þá sýningu. Um
kvöldið verður síðan karnivalball
og er( aldurstakmark fyrir ung-
inga fædda 1975 eða fyrr.
ú
€
t
«
I
I
f
I
i
I
I
>
I
I
6
I