Morgunblaðið - 02.04.1992, Side 20

Morgunblaðið - 02.04.1992, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1992 SIEMENS Sjónvarpstœki Sjónvarps- myndavélar Hljómtœkja- samstœöur Feröaviðtœki • Útvarpsvekjarar Gœðatœki fyrir þig og þína! SMITH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 Þú svalar lestrarþorf dagsins á^ídum Moggansj^ * Lyfsala lækna LYF3AK0STNAÐUR T.R. A MANN M.V. LANDSMEDALTAL 100 A 100 90 • 80 - 70 • LANDIÐ -x SVAÐI I -n SVAÐI II AR 1983 198 A 1985 1986 1987 SVÆÐI I: MÝRA 0G B0RC, SKAGAF3., EY3AF3., ÞINGEY3ARS. , N.-MÚL. SVÆÐI II: DALASÝSLA, A.-BARÐ., V.-HÚN. HEIMILD: FÉLACSTÍÐINDI, RIT TRYGGINGASTOFNUNAR RÍKISINS. 1983 1984 1985 1986 1987 LANDIÐ 100 100 100 100 100 SV. I 82 74 75 74 * 74 SV. II 81 82 84 84 83 eftir Sigurbjörn Sveinsson i. Jafnan, þegar umræður verða uin lyfjadreifínguna og kostnað þjóðar- innar af lyfjanotkun, eru margvís- legar hliðar þessa áhugaverða máls dregnar fram. Lyfsalar taka þátt í þessari umræðu ekki síður en aðrir. Formaður Apótekarafélagsins ritaði nýlega grein í Morgunblaðið og benti m.a. á nauðsynþess að lyfsala lækna yrði iögð af sem skjótast til að auð- velda hagræðingu í lyfjadreifingunni og styrkja hana í dreifbýlinu. Þetta er ekkert nýtt úr þeim herbúðum. Lög um lyijadreifingu, sem sett voru fyrir um áratug, gera ráð fyrir þessu fyrirkomulagi. Talið hefur verið óeðlilegt, að læknar ættu hagn- aðarvon í lyfseðlum, sem þeir gefa út. Eru þá menn bæði að velta fyrir sér heilsufari opinberra sjóða og skjólstæðinga læknanna. Má hugsa sér, að læknir, blindaður af ágirnd, héldi uppi óeðlilegu lyfjaáti skjól- stæðinga sinna, þannig að heilsa þeirra spilltist og ríkissjóður færi þverrandi. Þrátt fyrir þessa stefnumörkun hafa stjórnvöld farið sér hægt við þessar breytingar og tel ég að rekja megi það bæði til stjórnsýslunnar í héraði og ríkisvaldsins. Þessi hæga- gangur hefur farið fyrir brjóstið á lyfsölum og sífra þeir sífellt um, þegar tækifæri gefst, að lyfsalan verði tekin af læknum. En hvað veldur þessum hæga- gangi? II. Lyfsölur lækna eru nú á innan við 10 stöðum á landinu. Víða er um að ræða fámenn héruð og dreifð, þar sém velta lyfsölunnar stendur ekki undir afkomu lyfjafræðings. Þar yrði að koma á fót útibúum frá aðlægum lyfjabúðum, þar sem eftir- lit lyfsala yrði ekki daglegt. Víða, þar sem svo háttar nú, er eftirlit lyfsala stopult og dæmi um, að það sé með mánaða millibili. Lendir þar afgreiðsla lyfja umtalsvert á læknum staðanna m.a. á vöktum, án þess að læknarnir hafi nokkuð með lyfja- búðirnar að gera. í Ijósi þessarar reynslu er eðlilegt, að heimamenn hafi litla trú á bættri þjónustu með þvi að lyfsala læknanna verði af- lögð, þar sem hún er enn. En eru íbúar þessara héraða, þar sem lyfjabúðir lækna eru enn við lýði, að neyta lyfja í óhóflegum mæli? Ef kostnaðaitölur Trygginga- stofnunar ríkisins eru notaðar sem mælikvarði á það, virðist reynslan geta bent til annars. Tvær rótgrónar lyfjabúðir lækna hafa verið í Búðard- al og á Hvaminstanga. Þær þjóna íbúum þriggja sýslna, Dalasýslu, Austur-Barðastrandarsýslu og Vestur-Húnavatnssýslu, en læknis- hjálpin í þessum sýslum er veitt af eigendum lygabúðanna. Á árunum 1983 til 1987 var læknisþjónusta stöðug á þessu svæði og veittu hana að mestu sömu læknarnir. Því er fróðlegt að bera saman kostnað trygginganna af lyfjum fyrir hvern íbúá á þessu svæði við kostnað í nokkrum sýslum öðrum, þar sem aðstæður eru líkar. Þó er sá munur- inn, að í Mýra- og Borgarfjarðarsýsl- um, Skagaíjarðarsýslu, Eyjafjarðar- sýslu, Þingeyjarsýslum og Norður- Múlasýslu, sem teknar eru til viðmið- unar, eru lyfjabúðirnar ekki í eigu lækna. Þessi samanburður leiðir í ljós, að yfirleitt var lyfjareikningurinn lægri á því svæði, þar sem læknarn- ir seldu lyfin sjálfir, en þar sem lyf- salan var í höndum lyfjafræðinga (sjá mynd). Þetta gæti bent tiljjess, að lyfsala í höndum lækna feiddi ekki til þess háska fyrir ríkissjóð og neytendur, sem menn hafa viljað vera láta. III. Tvær eru augljósar afleiðingar þeirrar ráðstöfunar, að leggja af núverandi læknaapótek. Sigurbjörn Sveinsson „Það er ljóst, að af- dráttarlaust afnám læknaapótekanna þjón- ar ekki mestu hags- munum almennings heldur þröngum stétt- arhagsmunum lyfsala.“ ( í fyrsta lagi munu bætast við j lyfjadreifinguna • óhagkvæmar rekstrareiningar, þ.e. ef lyfsalarnir ætla að sinna þeim skv. lögum. Að | öðrum kosti verða þeir að draga úr þjónustunni frá því sem nú er. Þetta mun gefa kröfum um bættan hag lyfsölu í dreifbýli, sem þegar eru uppi, byr undir báða vængi. I annan stað yrði ríkissjóður að mæta umtalsverðu tekjutapi lækn- anna í þessum rýru héruðum með viðbótargreiðslum til að tryggja mönnun. Á þetta hefur þegar reynt í héruðum, þar sem læknar hafa engin afskipti af lyfsölunni. Er því vandséð, hvaða hagsmunir eru í húfí fyrir þjóðfélagið, að geng- ið verði milli bols og höfuðs á lyf- sölu lækna við núverandi aðstæður. Þetta mál endurspeglar auðvitað þann vanda nútíma þjóðfélags, að | margvíslegt óhagræði skapast af ósveigjanlegum réttindum, sem hin- ar ýmsu sérfræðistéttir hafa áunnið | sér í lögum og reglugerðum. Það er ljóst, að afdráttarlaust af- nám læknaapótekanna þjónar ekki mestu hagsmunum almennings held- ur þröngum' stéttarhagsmunum lyf- sala. Höfundur er læknir í Reykja vík. \ atttan sm i^aíía^tti^ U'ifya / SONJA BARNADEILD Laugavegi 81 214 44

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.