Morgunblaðið - 02.04.1992, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1992
Shirley King- tók lagið á Púlsinum í gær.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Shirley King í Púlsinum
BANDARÍSKA blússöngkonan Shirley King syngur á tón-
leikum með blússveitinni Vinir Dóra á þrennum tónleikum
í Púlsinum í kvöld, föstudags- og laugardagskvöld. Hún
er dóttir eins frægasta blústónlistarmanns heims, gítarleik-
arans B.B. King.
Shirley King starfar með eig-
in hljómsveit í Bandaríkjunum,
Shirley King Blues Band, og er
væntanlegur hljómdiskur með
sveitinni en gestir á henni eru
Pinetop Perkins og Jimmy
Dawkins, sem léku á íslandi á
síðasta ári.
Shirley King sagði á blaða-
mannafundi í gær að hún henni
litist vel á að syngja blús fyrir
íslendinga. Ferill hennar sem
blússöngkonu væri í raun að
hefjast með útkomu hennar
fyrstu plötu og væri ánægjulegt
og vel við hæfi að fá tækifæri
að syngja blústónlist í landi jarð-
skjálfta og óblíðs veðurfars.
Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn hf.:
Hugmyndir uppi um út
víkkun á starfseminni
HUGMYNDIR eru nú uppi í
stjórn Eignarhaldsfélagsins Al-
þýðubankans hf. um að útvíkka
starfsemi félagsins með hluta-
fjárkaupum í öðrum hlutafélög-
um en Islandsbanka. Þetta kom
fram í máli Asmundar Stefáns-
sonar, stjórnarformanns, á aðal-
fundi eignarhaldsfélagsins í
gær. Engin tillaga var hins veg-
Aðalfundur eignarhaldsfélags Verslunarbankans:
Haguaður af starfsemi
ársins 181 milljón króna
HAGNAÐUR varð af starfsemi eignarhaldsfélags Ver'slunarbankns
á síðasta ári sem nemur rúmum 181 milijón króna. Þar af var hagn-
aður af sölu Verslunarlánasjóðs 104 milljónir, hagnaður Verslunarl-
ánasjóðs rúmar 56 milljónir og hlutdeild í hagnaði Islandsbanka
tæpar 20 milljónir. Aðalfundurinn samþykkti að greiða 10% arð og
6,9% aukningu hlutafjár með útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Þá var sam-
þykkt tillaga stjórnar um heimild til hennar að undirbúa samruna
eignarhaldsfélagsins við Islandsbanka. Stjórn félagsins var endur-
kjörin.
Eigið fé Eignarhaldsfélagsins
jókst um 190 milljónir króna á ár-
inu 1991 og nam í árslok 1.451,5
milljónum króna. Eignir samtals
voru 1.655 milljónir króna, þar af
nam 29,69% eignarhlutur í íslands-
banka 1.468 milljónum og 18,2%
eignarhlutur í islenska útvarpsfé-
laginu 100 milljónum króna.
Einar Sveinsson, stjórnarformað-
ur Eignarhaldsfélagsins, fór yfir
rekstur þeirra fyrirtækja sem félag-
ið á hlut í. Sagði hann að kostir
af sameiningu bankanna hefði farið
að gæta á öðru starfsári íslands-
banka með ýmis konar hagræðingu.
Starfsemin hefði einkennst af vax-
andi styrk hans við erfiðar ytri að-
stæður í þjóðfélaginu.
Einar mælti fyrir tillögpi stjórnar-
innar um heimild tíl hennar að und-
irbúa samruna Eignarhaldsfélags-
ins og íslandsbanka hf. og þegar
drög að samningi milli félaganna
liggi fyrir skuli þau ásamt öðrum
gögnum er varða samrunann lögð
fyrir hluthafafund til ákvörðunar.
Einar sagði að það væri skoðun
stjórnarinnar að nú væri komið að
því _að sameina Eignarhaldsfélagið
og íslandsbanka. Það væru hags-
munir bankans að ná sem fyrst
beinum tengslum við þann breiða
hóp hluthafa sem væru í Eignar-
haldsfélaginu. Við það myndi sú
hólfun sem starfsemi eignarhalds-
félaganna veldur falla brott og
áherslur í starfsemi þankans sem
alhliða viðskiptabanka sem þjónaði
öllum atvinnugreinum koma fram
með skýrari hætti.
ar flutt um þetta efni og sagðist
Ásmundur einungis varpa hug-
myndinni fram til umhugsunar
fyrir hluthafa. Lagði hann
áherslu á að stjórn félagsins
væri alfarið andsnúin því sjónar-
miði að leysa ætti félagið upp
og sameina Islandsbanka.
Ásmundur benti á í ræðu sinni
að eignarhaldsfélög Iðnaðar- og
Verslunarbanka vildu mjög gjarn-
an að að eignarhaldsfélögin yrðu
leyst upp og hefðu stjórnir þeirra
þrýst mjög á um það..„Það hafa
frá upphafi margir í okkar hópi
verið þeirrar skoðunar að eignar-
haldsfélagið eigi að vera varan-
legt,“ sagði hann. „Við eigum í
gegnum þetta fyrirtæki að halda
hópinn og koma fram sem ein heild
gagnvart okkar samstarfsaðilum.
Eg hef sagt það hér áður að af
minni hálfu hef ég talið að okkar
hópur væri það samstæður að við
ættum í rauninni ekki að hafa
miklar áhyggjur af þeirri hlið máls-
ins. Ég hef líka sagt það hér áður,
gerði það á síðasta aðalfundi, að
það er alveg ljóst að stjórn Eign-
arhaldsfélags Alþýðubankans er
alfarið andsnúin því sjónarmiði.
Hún er þeirrar skoðunar að það
sé rétt að við höidum hópinn með
þeim hætti sem nú er.
Það hafa raunar líka innan
Eignarhaldsfélagsins verið uppi
þær raddir að það væri eðlilegt að
eignarhaldsfélagið útvíkkaði sitt
starf og gengi til hlutafjárkaupa í
öðrum félögum þannig að eignin í
íslandsbanka væri stofn í stærra
eignarhaldsfélagi sem ætlaði sér
stærri hlut á hlutabréfamarkaði.
Ég ætla ekki að leggja mat á þær
hugmyndir en tel mér skylt að
gera grein fyrir þeirri umræðu sem
orðið hefur í þessu efni. Ég held
að við hljótum á hveijum tíma að
hafa stöðu eignarhaldsfélagsins til
umræðu og til ákvörðunar þannig
að við getum á hveijum tíma skipt
um farveg í takt við það sem við
teljum rétt.“
Hagnaður eignarhaldsfélagsins
var alls tæpar 65 milljónir á sl.
ári og eigið fé 1.841 milljón í árs-
lok. Stjórn félagsins var endurkjör-
in á fundinum og samþykkt var
að greiða hluthöfum 10% arð.
----- ♦ ♦ ♦---------
20 sinubrunar á
2 sólarhringum
SLÖKKVILIÐ og lögregla í
Reykjavík hafa undanfarna tvo
sólarhringa verið kvödd út um
það bil 20 sinnum vegna sinuelda
innan borgarmarkanna.
Að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar hefur hingað tii verið um
minniháttar elda sem vandræðalítið
hefur gengið að slökkva án þess
að tjón á verðmætum hafi hlotist
af. Hins vegar er því eindregið beint
til foreldra og uppalenda barna að
þeir geri sitt besta til að koma í
veg fyrir að börn þeirra kveiki sinu-
elda. Slíkt sé bannað með lögum
og hafi í för með sér hættu á tjóni.
I frétfatilkynningu sem garð-
yrkjustjóri Reykjavíkur sendi frá
sér í gær vegna tíðra sinubruna
segir einnig að það sé gamall mis-
skilningur að sinubrennur séu til
bóta fyrir gróður.
Morgunblaðið/Emilía
Egill Ólafsson á Hnjóti og Halldór Blöndal samgönguráðherra
takast í hendur að lokinni undirritun gjafabréfs fyrir flugminja-
safninu. Með þeim á myndinni er Ragnheiður Magnúsdóttir kona
Egils.
Einstaklingnr gef-
ur flugminjasafn
EGILL Ólafsson bóndi og safnvörður á Hnjóti í Örlygshöfn við
Patreksfjörð og Ragnheiður Magnúsdóttir kona hans hafa afhent
Halldóri Blöndal samgönguráðherra bréf til staðfestingar á þau
hafa gefið Flugmálastjórn flugminjasafn sem Egill hefur komið
upp á Hnjóti. Safnið er í nábýli við byggðasafn sem Egill gaf
Vestur-Barðastrandarsýslu fyrir nokkrum árum.
Egill og Ragnheiður fóru á fund ur hefur mikið farið forgörðum á
Halldórs Blöndals samgönguráð-
herra og Péturs Eínarssonar flug-
málastjóra á dögunum og afhentu
gjafabréf sitt. Fyrirhugað er að
opna safnið 16. maí næstkom-
andi. Safnið verður tengt nafni
Egils. Með honum í safnstjóm
verður maður skipaður af iíug-
málastjóra og annar af Félagi ís-
lenskra atvinnuflugmanna.
„Höfðingsgjöf þessi er móttekin
með þakklæti 31. mars 1992,“
skrifaði samgönguráðherra í
gjafabréfið þegar það var undir-
ritað.
„Þetta er mjög höfðinglegt hjá
Agli, hann hefur sýnt frábært
framtak,“ sagði Pétur Einarsson
flugmálastjóri í samtali við Morg-
unblaðið. „Þetta safn er það eina
á landinu og þar eru varðveittir
órúlega margir hlutir. En því mið-
þessu sviði á undanfömum árum.
Við uppbyggingu safnsins leggur
Egill áherslu á að sýna hvað flug-
ið hefur verið og er enn mikil-
vægt fyrir landsbyggðina,“ sagði
Pétur. Hann sagði að vonandi
yrði hægt að halda áfram með
uppbyggingu safnsins. Að sögn
Péturs hafa verið uppi hugmyndir
um uppbyggingu á stóru flug-
minjasafni í Reykjavík en óvíst
er hvenær af því getur orðið.
Flugminjasafninu á Hnjóti hef-
ur verið komið fyrir í þremur litl-
um húsum sem tengjast sögu
flugsins, m.a. tveimur gömlum
flugstöðvum. Þá stendur til að
endurbyggja gamla Vatnagarða-
flugskýlið á Hnjóti og koma þar
fyrir endurbyggðri flugvél og
fleiru.
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra:
Ríkið taki að sér rekstur
heimilis fyrir vegalaus böm
sveitarfélaga um að ríkið taki
alfarið að sér rekstur Unglinga-
heimilis ríkisins, sem er fyrir
unglinga 12 ára og eldri, en nú
rekur ríkið heimilið en sveitar-
félögin greiða fyrir þá unglinga
sem þar dvelja.
Jóhanna segir að ríkisstjórnin
vilji endurskoða rekstur Unglinga-
heimilis ríkisins. „Við teljum
rekstrarform Unglingaheimilisins
mjög óheppilegt vegna þess að
hvert sveitarfélag greiðir með
hveijum einstaklingi sem þar kem-
ur inn. Þetta hefur valdið því að
sumir unglingar hafa ekki fengið
þá þjónustu sem þeir þurfa á að
halda þar sem sum sveitrafélögin
hafa ekki getað staðið undir kostn-
aðinum,“ segir Jóhanna.
Hún segir að viðræður hafi átt
sér stað milli ríkisins og sveitarfé-
laga um að ríkið taki að sér rekst-
ur Unglingaheimilis ríkisins og að
sveitarfélögin taki að sér önnur
verkefni sem ríkið sé með svo sem
akstur fatlaðra. „Mér sýnist stefna
í að við getum fengið niðurstöðu
í þessi mál mjög fljótlega. Ég vil
einnig ræða við forsvarsmenn
Barnaheilla og heyra hvaða hug-
myndir þeir hafi um rekstur heimil-
is fyrir vegalaus börn og við erum
opin fyrir því að skoða þær hug-
myndir áður en endanlega verður
gengið frá þessum málum ,“ segir
hún.
Jóhanna segir að þegar niður-
staða hafi fengist í þesum málum
muni hún leggja þau fyrir ríkis-
stjórnina og að henni sýnist stefna
í farsæla lausn á þessum málum.
JÓHANNA Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra telur það
nauðsynlegt að stjórnvöld reki
cndahnútinn á söfnun Barna-
heilla fyrir heimili fyrir vega-
laus börn á íslandi, þ.e. 7-12 ára
börn, þannig að hægt sé að koma
heimilinu í notkun sem fyrst og
að áhugi sé á því að ríkið taki
að sér rekstur heimilisins. Auk
þess segir hún að viðræður hafi
átt sér stað milli ríkisins og