Morgunblaðið - 02.04.1992, Qupperneq 31
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1992
Um hlutafélög og
útvarpslýðræði
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggssoh,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Viðskipti við
erlend fiskiskip
Alþingi setti í síðustu viku
lög, sem heimila erlendum
veiðiskipum að landa eigin afla
og selja í íslenzkum höfnum og
sækja þangað alla þá þjónustu
er varðar útgerðina. Undanskil-
inn er afli úr sameiginlegum
fiskistofnum, sem ekki hefur
verið samið um nýtingu á, en
sjávarútvegsráðherra er þó
heimilt að víkja frá þessu
ákvæði. Það var löngu orðið
tímabært að fella úr gildi sjötíu
ára gamalt bann við löndunum
erlendra skipa og þjónustu við
þau og það er fagnaðarefni að
um það tókst víðtæk samstaða
á þingi.
Lögin frá 1922, sem bönnuðu
landanir erlendra skipa og þjón-
ustu við þau, voru fyrst og
fremst sett til að takmarka veið-
ar útlendinga á Islandsmiðum
og samkeppni við íslenzkar sjáv-
arafurðir á erlendum mörkuð-
um. Tilgangurinn með banninu
var að gera erlendum veiðiskip-
um sókn á íslandsmið eins
kostnaðarsama og erfiða og
unnt væri. Landhelgin var að-
eins þijár sjómílur á þeim árum
og landsmönnum þótti blóðugt
að sjá útlendingana að veiðum
uppi í landsteinum. Þá voru íbú-
ar landsins aðeins 96 þúsund
og meirihluti aflans var veiddur
af útlendingum. Það er því skilj-
anlegt, að landsmönnum yxi í
augum sókn erlendra skipa í
auðlindina og vildu draga úr
henni eins og kostur væri. í
þessum tilgangi voru þeir reiðu-
búnir að horfa á bak miklum
viðskiptum við erlend útgerðar-
fyrirtæki.
Stórstígar framfarir í gerð
togara og veiðitækni dró smám
saman úr áhrifum bannsins og
erlendir togarar sóttu fastar á
íslandsmið en nokkru sinni fyrr.
Því varð að grípa til annarra
ráða til að vernda fiskistofnana
og hagsmuni. Stærsta skrefið í
þá átt var setning laganna um
vísindalega verndun land-
grunnsins árið 1948, sem fól í
raun í sér íslenzk yfirráð yfir
hafsvæðinu umhverfis landið og
fiskistofnunum. Á þeim lögum
var útfærsla fiskveiðilögsög-
unnar síðan byggð, fyrst í 4
mílur árið 1952 og loks í 200
mílur árið 1975.
Gífurlegar breytingar hafa
orðið á íslenzku þjóðfélagi frá
setningu laganna um löndunar-
bann árið 1922. Þróunin hefur
gert lögin úrelt, því íslendingar
hafa full yfirráð yfir hafsvæð-
unum umhvörfis landið og auð-
lindinni og þeir keppa ekki leng-
ur við útlendinga um veiðarnar
og sölu afurðanna af íslands-
miðum. Þá hefur sú grundvall-
arbreyting orðið á, að fiskveiðar
við landið eru ekki lengur fijáls-
ar vegna laga um hámarksafla
og kvótakerfi.
Verndunarsjónarmið hafa
leitt tii þess, að fiskifræðingar
hafa gert tillögur um sífellt
minni aflaheimildir og er svo
komið, að fiskvinnsluna skortir
sárlega hráefni og atvinna hefur
farið minnkandi af þeim sökum.
Stofnun fiskmarkaða hefur gef-
ið fiskvinnslunni tækifæri til að
bjóða í fiskinn á móti kaupend-
um erlendis, en það hefur ekki
nægt vinnslustöðvunum og til
að halda uppi fullri atvinnu.
Krafan um heimild fyrir er-
lend fiskiskip til löndunar og
sölu afla hér á landi hefur því
orðið æ háværari, svo og til
þjónustu við þau. í þessum efn-
um hafa gengið á undan sveitar-
félög víðsvegar um land, svo
og félög verzlunar- og iðnaðar-
manna, sem vilja bæta fábrotið
atvinnulíf með viðskiptum og
þjónustu við erlendu skipin.
Þorsteinn Pálsson, sjávarút-
vegsráðherra, lagði fram frum-
varp sl. haust sem heimilaði
þessar landanir. Sú undantekn-
ing var þó í frumvarpi hans, að
heimilt væri að banna löndun
afla veiddum úr sameiginlegum
stofnum, sem ekki hefði verið
samið við íslendinga um nýt-
Ingu á.
Alþingi breytti þessu undan-
tekningarákvæði þannig, að
löndun er óheimil á afla veiddum
úr sameiginlegum stofnum en
sjávarútvegsráðherra getur
veitt heimild til undanþágu. Um
þessa breytingu varð víðtæk
samstaða á þingi og trýggði það
samþykkt frumvarpsins með
yfirgnæfandi meirihluta. Þess-
ari þrengingu laganna. hefur
verið mótmælt af samtökum
iðnaðarins. Sjávarútvegsráð-
herra hefur af þessu tilefni ít-
rekað, að sú grundvallarbreyt-
ing felist í nýju lögunum að
landanir erlendra skipa sé nú
heimil, svo og þjónusta við þau.
Óljóst er, að hve miklu leyti
erlend skip muni óska eftir lönd-
unum og þjónustu hér, en bæði
fiskvinnslufyrirtæki og sveitar-
félög hafa þegar gert ráðstafan-
ir til að laða þau til viðskipta.
Til að þau geti orðið sem mest
og skili þjóðarbúinu sem mest-
um tekjum er nauðsynlegt að
ríkisstjórnin beiti sér sem fyrst
fyrir samningum við nágranna-
þjóðirnar um nýtingu á sameig-
inlegum fiskistofnum.
eftir Benedikt
Gröndal
Einkavæðing er eitt af lausnar-
orðum landsmálanna um þessar
mundir og virðast því engin tak-
mörk sett, hvað fríhyggjusinnum
dettur í hug að gera að hlutafélög-
um. Sannarlega sakar ekki að
hreinsa til í öllu því, sem Vilmundur
Jónsson landlæknir einu sinni kall-
aði „sósíalisma andskotans", það
er óhóflegri ríkiseign, ríkisafskipt-
um og ríkisábyrgð. Þrátt fyrir slíkar
umbætur verður hagkerfi næstu
kynslóða enn blandað af einkaeign
og þjóðareign og nauðsyn að velja
af óhlutdrægni, livort formið er
notað hveiju sinni.
Ríkisútvarpið hefur í rösklega sex
áratugi verið ein áhrifamesta stofn-
un þjóðiífsins og fer enn vaxandi.
Það er öryggisþjónusta, sem heldur
sambandi milli einstaklinga á sjó
og landi og samfélagsins, flytur
fréttir og tilkynningar, fræðslu og
skemmtun. Það er menningarstofn-
un, sem varðveitir íslenskt þjóðerni,
mál, sögu og hefðir í tónum og tali.
Nú er lagt til í fullri alvöru að
þessa stofnun skuli þjóðin láta frá
sér, gera að hlutafélagi og fá í hend-
ur hveijum þeim, sem hefur yfirráð
peninga og löngum til að kaupa sér
völd og hlutverk á leiksviði fjölmiðl-
anna.
Það er kenning kapítalismans,
að öll starfsemi verði rekin á hag-
kvæmastan hátt ef henni ber að
skila sem mestum arði af fjár-
magni. Heilvita menn leggja ekki
fram hlutafé nema það ávaxtist —
eða veiti ráðamönnum ijárins vald
yfir tiltekinni starfsemi.
Það liggur í eðli útvarps, sérstak-
lega sjónvarps, áð gera verður dag-
skrár á íslensku máli eins og fram-
ast er unnt. Vantar enn mikið á,
að framleitt sé nóg af íslensku efni
— (eða íslensku tali við erlent efni).
Verður óhugsandi um langa fram-
tíð, að stofnun með skyldur og
stefnu Ríkisútvarpsins skuli teljandi
arði af hlutafé. Áf þessari ástæðu
einni er fráleitt að það geti verið
hlutafélag.
Þjóðnýttar stofnanir eru undir
yfirráðum ríkisvaldsins og þar með
stjórnmálaflokka og manna, sem
mest hafa fylgi á Alþingi og taka
þátt í stjórn landsins hveiju sinni.
Þetta er höfuðgallinn á núverandi
skipan og meginröksemd fyrir
einkavæðingu Ríkisútvarpsins. Er
teflt um yfirráð í þessari valdamiklu
stofnun, hvort hún eigi að vera í
höndum stjórnmálamanna og flokka
eða peningamanna og fyrirtækja.
Báðir þessir kostir eru slæmir.
Pólitíkin hefur á liðnum árum oft
misnotað ráð sín yfir Ríkisútvarp-
ínu, og togstreita peningamanna
um völd yfit' sjónvarpi og hljóðvarpi
einkafyrirtækja er skelfileg. Það
„frelsi" getur því aðeins gengið, að
alvöru sjónvarp og hljóðvarp sé
þjóðareign og hafið yfir slíkt dæg-
urþras.
Vandinn verður ekki leystur með
því að gera Ríkisútvarpið að einka-
fyrirtæki eða hlutafélagi, ekki einu
sinni almenningshlutafélagi. Hins
vegar þyrfti að breyta því þannig,
að það verði áfram þjóðareign en
ekki undir beinni yfirstjórn Alþingis
eða ríkisstjórnar.
Ríkisútvar])ið hefði ekki vaxið í
núverandi stærð eða orðið svo vand-
aður fjölmiðill ef það hefði ekki
verið opinbert fyrirtæki og notið
ábyrgðar og umhyggju ríkisins.
Ilins vegar hafa pólitísk áhrif á
dagskrá og stjórn farið minnkandi
og óhlutdrægnin er ekki lengur sá
fjötur á fréttum, umræðu og um-
fjöllun um þjóðmál, sem áður var.
Sú þróun þarf að halda áfram, og
kann brátt að verða tímabært að
stíga þar veigamikil skref.
Útvarpið byrjaði sem hlutafélag
Alþingi fjallaði 1924 í fyrsta sinn
um útvarp, sem þá breiddist óðfluga
um önnur lönd. Jakob Möller flutti
frumvarp til laga um sérleyfi handa
Ottó B. Arnar til þes_s að reka út-
varp (broadcasting) á íslandi. Frum-
varpið varð ekki útrætt, en var flutt
aftur og afgreitt sem lög í maí 1925.
Samkvæmt þeim var Útvarp hf.
stofnað og hóf útsendingar í Reykja-
vík. Lenti félagið fljótlega í fjárhags-
vandræðum og átti við mikla erfið-
leika að stríða. í maí 1927 sam-
þykkti Alþingi tillögu J akobs Möllers
um að skipa nefnd til að semja frum:
varp um ríkisrekstur útvarps. í
nefndina voru skipaðir Gísli J. Olafs-
son, landsímastjóri, Páll Eggert Ól-
afsson fyrir Háskóla íslands og Lúð-
víg Guðmundsson skólastjóri fyrir
Félag víðvarpsnotenda, en í fjai-veru
hans starfaði Jón Eyþórsson. Um
þetta leyti voru um 500 útvarpsnot-
endur í landinu.
Alþingi afgreiddi árið 1928 lög
um heimild handa ríkisstjórninni til
rekstrar á útvarpi. Fjárhagsleg og
tæknileg stjórn Ríkisútvarpsins var
í fyrstu hjá landsímastjóra, en at-
vinnumálaráðherra skyldi skipa
þriggja manna útvarpsráð. Átti rík-
isstjórn að velja forseta ráðsins,
háskólinn annan mann, en félag víð-
varpsnotenda hinn þriðja ef
fjórðungur notenda væri í félaginu.
Hafin var bygging útvarpsstöðvar
og skipaður fyrsti útvarpsstjórinn,
Jónas Þorbergsson. Var Jónas þing-
maður fyrir BYamsóknarflokkinn, en
einnig virtur menningarfrömuður
eins og fyrstu útvarpsráðsmennirnir:
Helgi Hjöi-var, Páll ísólfsson og
Alexander Jöhannesson. Áður en
útvarp hófst 1930 var iögunum
breytt og bætt við ráðið fulitrúum
presta og kennara.
Árið 1934 var gerð stórbreyting
á skipan útvarpsmála. Heitið Ríkis-
útvarp var lögfest og stofnunin sett
undir kennslumálaráðherra. Út-
varpsráð var skipað sjö mönnum,
þrem kosnum hlutfallskosningu á
Alþingi, þrem kosnum hlutfallskosn-
ingu af öllum útvarpsnotendum í
landinu, en hinn sjöunda skyldi
kennslumálaráðherra skipa. Ríkis-
útvarpið annaðist kosningu milli
framboðslista með sex mönnum
hver, er skyldu hafa meðmæli 200
notenda minnst.
Kosið var samkvæmt þessu kerfi
1935. Áður en aftur skyldi kjósa
1939 kom fram frumvarp um að
ráðið skyldi skipað 5 mönnum og
allt kosið af Alþingi. Tvær ástæður
voru fyrir þessari breytingu, hin
fyrri að almenn kosning væri kostn-
aðarsöm en hin síðari að kosning
meðal útvarpsnotenða hefði verið
skipuiögð af stjórnmálaflokkunum
og myndi því leiða til sömu niður-
stöðu og kosning á Alþingi. Síðar
var bætt við þeirri breytingu, að
útvarpsráð skyldi ekki kosið til
þriggja ára, heldur af hverju ný-
kjörnu Alþingi. Þar með var enn
betur tryggt að ráðið yrði ávallt
skipað eftir flokkaskiptingu á Al-
þingi og því vera spegilmynd af
stjórnmálunum.
55 ár eru liðin frá þessari tilraun
til að leyfa útvarpsnotendum að
kjósa útvarpsráð. Pólitísk áhrif á
Ríkisútvarpið voru mest árin
1940-60, en hafa minnkað síðan.
Þó er málið enn óleyst. Þeir sem
greiða afnotagjöld gætu kosið ráðið
sem dagskrárstjórn eða yfirstjórn
með póslatkvæðagrciðslu. En
hvernig mætti haga framboðum?
Mundu stjórnmálaflokkarnir skipu-
leggja kosninguna eins og 1935?
Er rétt að reyna þetta útvarpslýð-
ræði á nýjan lcik?
Benedikt Gröndal
„ Af þessari viðburða-
ríku sþgu verður að
draga þá ályktun, að
hugmyndin um að gera
Ríkisútvarpið að hluta-
félagi sé hrein bábilja.
Rétt stefna er tvímæla-
laust að halda áfram að
auka sjálfstæði þess í
þjóðareign, en leyfa
frjálsu framtaki að þró-
ast við hlið þess og veita
því samkeppni.“
Áhrif ríkisins takmörkuð
Ríkisútvarpið hefur tekið miklum
breytingum í áttina til fijálsræðis
og umburðariyndis. Áður fyrr sam-
þykkti útvarpsráð dagskrá hverrar
viku í smáatriðum, en hefur síðari
ár látið nægja að móta heildar-
stefnu. Fréttaflutningur hefur verið
leystur úr viðjum bókstaflegrar
óhlutdrægni, sérstaklega eftir til-
komu sjónvarpsins, og margt fleira
mætti nefna.
Útvarpslögin voru endurskoðuð
1969-71. Var þrem mönnum falið
að undirbúa það verk, þeim Þórði
Eyjólfssyni, fyri'verandi hæstarétt-
ardómara, Andrési Björnssyni, þá-
verandi útvarpsstjóra og Benedikt
Gröndal, formanni útvarpsráðs. Var
hinn síðastnefndi formaður.
Veigamesta tillaga þremenning-
anna var, að Ríkisútvarpið skyldi
vera „sjálfstæð stofnun í eign ís-
lenska ríkisins". Reyndu þeir að
finna þá skipan sem gerði útvarpið
sjálfstæðast og skilja það frá venju-
legum ríkisfyrirtækjum. Mun þessi
skilgreining hafa verið notuð um
Háskóla Islands og svipuð hugsun
ríkir um útvarpsstofnanir á hinum
Norðurlöndunum. í skýrslu nefnd-
arinnar segir: „Sú skoðun er út-
breidd . .. að áhrifamikil menning-
arstofnun eins og ríkisútvarp eigi
að vera sem sjálfstæðust, en megi
ekki mótast af dægurbaráttu um
stjórn landsins.“
Af þessu verður ljóst, að alls
ekki má telja Ríkisútvarpið til venju-
legra ríkisfyrirtækja, því sjálfstæði
þess er mikið. Það gerist nú á dög-
um að forsætis- og utanríkisráð-
herrar kvarta um að útvarpið sé
hlutdrægt gegn ríkisstjórninni.
Þeim kemur ekki til hugar að beita
valdi stjórnarinnar til að tukta þessa
ríkisstofnun í svo mikilvægu máli.
Til þess er útvarpið of sjálfstætt og
það mundi þjóðin ekki þola.
Onnur breyting 1971 var sú, að
Ríkisútvarpið fékk einkaréttinn á
útvarpi sem áður var í höndum rík-
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1992
31
Bjartsýnn á að áliðn-
aðurinn sé á uppleið
- segir Bond Evans, aðalforstjóri Alu-
max, eins Atlantsálsfyrirtækjanna
BOND Evans, aðalforstjóri bandaríska álfyrirtækisins Alumax, sem
ásamt Hoggovens og Granges, myndar Atlantsálhópinn, segist í
meginatriðum vera sammála sérfræðingum Financial Times sem
í síðustu viku spáðu því að áliðnaðurinn í heiminum væri á upp-
leið, eftirspurn færi vaxandi og þar af leiðandi hækkaði álverð.
Evans er varkár í spám sínum og segir varasamt að fara með
ákveðnar tölur í þessu sambandi. „Segja má að spárnar séu jafn-
margar og spámennirnir, og því ætla ég ekki að nefna neinar tölur
í þessu sambandi. Eg er þó bjartsýnn á að áliðnaðurinn sé á leið
upp úr þeim öldudal sem liann hefur verið í og vissulega mun sú
þróun ef af verður hafa jákvæð áhrif á Atlantsálverkefni okkar
á íslandi," sagði Evans í samtali við Morgunblaðið í gær.
Bond Evans segir að vestræn
ríki eigi enn við efnahagslega örð-
ugleika að stríða, en hann kveðst
þó telja að ákveðinn efnahagslegur
bati sé framundan, að minnsta
kosti í Bandaríkjunum. „Ég tel
efnahagsástandið vera betra en
síðastliðið haust, þótt hins bætta
ástands hafi enn ekki gætt í áliðn-
aðinum,“ sagði Evans.
- Evans var spurður álits á spá
sem birtist í Financial Times þann
26. mars sl. þar sem því er spáð
að verð fyrir pundið af áli verði
65 sent á þessu ári, en álverð í
fyrra var 59,1 sent fyrir pundið,
jafnframt sem því er spáð að ái-
verð verði komið í 78 sent fyrin.
pundið á næsta ári: „Ég vil helst
ekki nefna neinar tölur í sambandi
við markaðsverð á áli og spár um
það. Það má segja að hægt sé að
finna jafnmargar verðspár og
verðspámenn. Að vísu kann svo
að fara hér í Bandaríkjunum, að
staða áliðnaðarins veikist enn um
sinn, áður en hún fer að styrkj-
ast. Þetta segi ég vegna þess að
tveir meiriháttar álframleiðendur
hér í Bandaríkjunum, Alcoa og
Reynolds eru með kjarasamninga
við starfsfólk sitt, sem renna út í
maimánuði. Vegna þeirrar óvissu
sem skapast á markaðnum þegar
svo stórir framleiðendur eru með
lausa kjarasamninga, þá hygg ég
að kaupendur kaupi meira ál, til
þess að eiga birgðir, þegar þannig
stendur á. Að þessu sögðu, ætla
ég jafnframt að taka undir þá spá
Financial Times að áliðnaðurinn
sé á uppleið og verði á síðari helm-
ingi þessa árs betur staddur, en
hann hefur verið um hríft“
Financial Times segir í annarri
grein, þann 27. mars sl. að því sé
spáð að bílaframleiðendur muni
auka álnotkun sína í bílaiðnaði,
bæði vélum og vögnum um 40%
á næsta áratug. Um þetta segir
Evans: „Ég tel að það sé einmitt
bílaiðnaðurinn sem muni auka ál-
notkun sína hlutfallsiega mest á
næstu árum, þannig að ég ætla
ekki að véfengja þessa spá. Á
næsta áratug mun álnotkun bíla-
iðnaðarins aukast til muna, að
mínu mati, einkum vegna þess að
ál er endurvinnanlegur málmur,
og vegna þess hve léttur hann er.
Þannig er hægt að draga úr vélar-
stærð, með því að gera bílinn létt-
Morgunblaðið/IJorkell
Bond Evans, adalforstjóri Alu-
max
ari, en ná samt sem áður sama
krafti. Við finnum fyrir miklum
áhuga bifreiðahönnuða að auka
notkun áls og upp úr miðjum þess-
um áratug mun sú aukning orðin
að veruleika - það er ég viss um.“
- Reynist bjartsýnisspárnar um
batnandi hag áliðnaðarins á seinni
hluta þessa árs í samræmi við
raunveruleikann, hvaða áhrif kem-
ur það tii með að hafa á áform
ykkar í Atiantsál um að reisa nýja
álbræðslu hér á íslandi?
„Það mun hafa jákvæð áhrif á
þau áform okkar og vonandi einn-
ig á fjármagnsmarkaðinn og þá
sem stýra honum. Þannig ættu
lánastofnanir að verða áfjáðari í
að fjármagna byggingu nýs álvers
á íslandi, en þær eru í dag. En í
því sambandi vil ég þó geta þess
að fjármögnunarvandamál banka
og lánastofnana í heiminum í dag
eru vissulega enn fyrir hendi,“
segir Evans.
- Þið forsvarsmenn Atlantsál
sögðuð í októbermánuði sl. að þið
ættuð von á því að endurskoða
afstöðu ykkar til tímasetningar
framkvæmda vegna nýs álvers á
Keilisnesi eigi síðar en að ári.
Ertu þeirra skoðunar, að þær já-
kvæðu vísbendingar sem nú eru á
lofti hvað varðar þróun áliðnaðar-
ins á þessu ári , að þið getið tekið
ákvörðun um tímasetningar með
haustinu?
„Það er ekki tímabært að vera
með slíkar vangaveltur, enn sem
komið er. En við fylgjumst auðvit-
að grannt með þróun mála og
íhugum Atlantsálverkefnið af
fullri alvöru. Hvort ástandið batn-
ar til mikilla muna, þegar líða tek-
ur á árið, get ég ekki sagt til um
nú. En vissulega virðist margt
benda til þess að ástandið muni
fara batnandi. Við höldum að eftir-
spurn muni fara vaxandi og álverð
hækkandi og í okkar röðum gætir
því ákveðinnar bjartsýni,“ sagði
Evans.
Bond Evans sagði að enn gætti
óvissu livað varðar álmagn það
sem Rússar dæla inn á heims-
markaðinn. í fyrra hefðu þeir
dælt einni milljón tonna á markað-
inn, sem hefði haft skelfilegar af-
leiðingar í för með sér, hvað varð-
ar álverð og í ár væri því spáð að
þeir myndu setja á milli 600 og
800 þúsund tonn á markaðinn.
„Þegar þú horfir til þeirrar stað-
reyndar að við erum að tala um
200 þúsund tonna álbræðslu á
Keilisnesi og að Rússar dældu
einni milljón tonna á markaðinn í
fyrra, þá sérðu að þar er fimmföld
ársframleiðsla verksmiðjunnar
sem við erum með áform um að
reisa á íslandi. Slíkt hefur að sjálf-
sögðu gríðarleg áhrif á heims-
markaðinn sem notar alls um 14
milljónir tonna af áli á ári. Ég tel
að Rússar muni ekki dæla jafn-
miklu inn á markaðinn í ár, þann-
ig að markaðurinn gæti farið að
komast í jafnvægi,“ sagði Bond
Evans aðalforstjóri Alumax.
Fyrirætlanir í frumvarpi um LÍN um að greiða einungis
úr sjóðnum í lok hverrar námsannar:
Brella til að flytja halla
þessa árs yfir á hið næsta
- segir fulltrúi stúdenta í stjórn LIN, sem telur þetta
þýða a.m.k. 3-4% skerðingu lána
isstjórnarinnar. Þá var hlutverk út-
varpsins skilgreint í lögunum svo
að ríkisstjórn gat ekki lengur sagt
fyrir um það.
Enn ein breyting var sú, að sett
var framkvæmdastjórn innan stofn-
unarinnar. Alltaf var hugsanlegt,
að Alþingi ákvæði að kjósa nefnd
yfir fjármál og stjórnun útvarpsins
eftir norrænum fordæmum. Var
þetta fyrírbyggt með því að skipa
þessa stjórn innanhúss þeim út-
varpsstjóra, formanni útvarpsráðs
og þrem framkvæmdastjórum. Enn
voru sett ákvæði um ábyrgð á út-
varpsefni og sá baggi lagalega fjar-
lægður frá ríkisstjórn.
Loks var ákveðið að kjósa út-
varpsráð á fjögurra ára fresti, en
því var aftur breytt svo að það skyldi
gert á hveiju nýkjörnu Álþingi til
samræmis við flokksskipan á þingi
og nýmyndaðar ríkisstjórnir.
Einkaréttur afnuminn
Aðeins áratug síðar, 1982, höfðu
aðstæður breyst svo mjög að efnt
var til nýrrar endurskoðunar út-
varpslaganna til að afnema einka-
rétt Ríkisútvarpsins og opna leið
fyrir nýja útvarpsaðila, sem gætu
hagnýtt einkarekstur eða hlutafé-
lög.
Formaður nefndarinnar var
Markús Á. Einarsson veðurfræðing-
ur, en meðal annarra áttu þar sæti
með honunv útvarpsstjóri, formaður
útvarpsráðs, Vilhjálmur Hjálmars-
son, og fyrrum formaður ráðsins.
Þetta var veigamesta breyting
sem gerð hefur verið á skipulags-
málum útvarps, bæði hvað snertir
sjónvarp og hljóðvarp. Fjölbreytni
dagskrár hefur margfaldast og not-
endur geta valið um margs konar
efni.
Þar sem nothæfar bylgjulengdir
eru takmarkaðar og lúta alþjóðleg-
um reglum, var sett upp 7 manna
útvarpsréttarnefnd, sem Alþingi
kýs, svo og umdeildur menningar-
sjóður.
Af þessari viðburðaríku sögu
verður að draga þá ályktun, að
hugmyndin um að gera Ríkisútvarp-
ið að hlutafélagi sé hrein bábilja.
Rétt stefna er tvímælalaust að halda
áfram að auk sjáifstæðlþess í þjóð-
areign, en leyfa frjálsu framtaki að
þróast við hlið þess og veita því
samkeppni. Næsta skrefið ætti að
vera að minnka verulega eða af-
nema áhrif Alþingis og mennta-
málaráðherra á dagskrá með kosn-
ingu útvarpsráðs. Einhvei' ijárhags-
eða stjórnunartegsl við ráðuneyti
geta komið til greina um sinn, en
spurning er um skipun útvarps-
stjóra og ráðningu annarra yfír-
manna.
Hvernig ætti þá að velja útvarps-
ráð?
Til greina koma þrír aðilar: greið-
endur afnotagjaida, starfsfólk Rík-
isútvarpsins og Alþirtgi eða ráð-
herra. Hugsanlegt er að notendur
kjósi þijá útvarpsráðsmenn í póstat-
kvæðagreiðslu, starfslið kjósi þijá
og menntamálaráðherra skipi hinn
sjöunda. Til greina kæmi einnig, að
notendur kjósi þrjá, Alþingi þijá og
starfslið einn. Éða hreinlega að
notendur kjósi allt ráðið, enda eru
alþingismenn og starfsmenn Ríkis-
útvarps einnig notendur.
Með slíku kerfi yrði komið á út-
varpslýðræði, sem gæti gengið bet-
ur nú en 1935. Það mundi tengja
fólkið í landinu við Ríkisútvarpið
og gera það að virkum eigendum
þess.
Virtar þjóðir eins og Bretar og
Japanir hafa haldið öflugu þjóðarút-
varpi, en heimilað ftjálst framtak í
hlutafélagaformi við hlið þess.
Bandaríkin byggðu mesta og fjöl-
breyttasta útvarpskerfi heims á
hlutafélögum. Þjóðin taldi það ekki
fullnægjandi og kom upp voldugu,
auglýsingalausu menningarútvarpi
og sjónvarpi sem lifir á söfnun
styrktarfjár hjá notendum eða fyrir-
tækjum og opinberum styrkjum (án
frekari afskipta). Reynsla þessara
og margra fleiri þjóða er lærdóms-
rík.
Ilöfundur varm.n. formaður
útvarpsriðs 1957-70 ogformaður
undirbúningsnefndar sjónvarps.
PÉTUR Óskarsson, formaður
stúdentaráðs Iláskóla Islands og
fulltrúi stúdenta í stjórn Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna segir
að sú ráðagerð í frumvarpi til
laga um LIN að láta alla náms-
menn hafa þá stöðu sem fyrsta
árs nemar einir hafa nú, þ.e. að
aðeins verði greitt úr sjóðnum í
janúar og júlí á hverju ári, sé
bókhaldsbrella sem hafi þann til-
gang einan að leysa bókhaldsleg-
an vanda lánasjóðsins fyrir þetta
ár og færa halla þessa árs yfir á
hið næsta. Pétur segir að þetta
leiði til þess að námsmenn þurfi
að taka bankalán fyrir fram-
færslu sinni á hverri námsönn
sem síðan verði greidd upp þegar
greiðslur frá LIN berist tvisvar
á ári. Að óbreyttum úthlutunar-
reglum verði um að ræða 3-4%
skerðingu lána.
Pétur sagði að samkvæmt út-
reikningum, sem miðuðust við vexti
á framfærslulánum frá Búnaðar-
banka íslands í gær og óbreyttar
útlánareglur LIN, virtist sér við
fyrstu sýn sem þessi breyting hafi
í för með sér að ekki minna en 3-4%
af útgreiddum námslánum renni í
formi fjármagnskostnaðar og lán-
tökugjaida til banka. Hins vegar
nemi skerðing á mánaðargreiðslum
til námsmanna 9% þar sem bankar
láni aðeins til framfærslu sem sam-
svari 90% af lánsloforði frá LÍN til
viðkomandi námsmanns.
Pétur Óskarsson sagði að við
barnlausum námsmanni í leiguliús-
næði og með um 150 þúsund króna
Friðrik Ólafsson skrifstofustjóri
Alþingis sagði við Morgunblaðið að
ekki væri búið að ganga frá þessum
samningum og málið væri enn í
árstekjur horfði þessi breyting
þannig að í stað þess að fá mánaðar-
lega greiddar tæpar 47 þúsund
krónur úr LÍN fái hann nú um 42
þúsund krónur úr banka en hluta
skerðingarinnar síðan til baka í lok
námsannar enda standist hann þá
prófkröfui'.
Meiri verði skerðing gagnvart
þeim sem einungis taki próf einu
sinni á ári, til dæmis laganemum,
athugun. Beðið væri eftir drögum
að samkomulagi frá Islenska sjón-
varpsfélaginu um þessar útsending-
ar. Hann sagði að þingflokkarnir
og mastersnemum í Englandi, sem
að auki þurfi að bera aukinn vaxta-
kostnað vegna hárra skólagjalda.
Pétur Óskarsson sagði hins vegar
ljóst að þessi breyting bætti ekkert
í reynd stöðu LIN heldur væri ein-
göngu verið að færa fjárlagahalla
þessa árs yfír á næsta ár. „Það eina
sem þetta hefur í för með sér er
að gera námsmönnum erfitt fyrir,"
sagði Pétur.
Hann sagði að forystumenn stúd-
enta myndu hitta menntamálanefnd
Alþingis á morgun, föstudag, og
gera þá athugasemdir við þá þætti
sem ekki þættu viðunandi frá
sjónarhóli námsmanna en þar væri
fyrrnefnd breyting eitt af stóru
málunum, ásamt vöxtum og stór-
hertum endurgreiðslum.
Hann sagði að áskorun flokks-
stjórnar Alþýðuflokksins til þing-
flokksins um að stuðla að því að
þessi tillaga verði dregin til baka
vekti ákveðnar vonir hjá námsmönn-
um um að þessar hugmyndir næðu
ekki fram að ganga á Álþingi.
hefðu látið sitt álit í ljós með þeim
fyrirvörum sem þeir vilja hafa á
útsendingunum. Það væri komið til
Páls Magnússonar og hann hefði
talið að þeir fyrirvarar þyrftu ekki
að standa í vegi fyrir samningum.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins beinast fyrirvarar þing-
flokkanna einkum að því að útsend-
ingarnar nái til landsins alls með
tíð og tíma og verði ekki í læstri
útsendingu.
Sýn:
Utsendingar frá Alþingi að hefjast
— segir Páll Magnússon útvarpsstjóri
BEINAR sjónvai'psútsendingar eru að hefjast frá Alþingi á sjónvarps-
stöðinni Sýn. Páll Magnússon útvarpsstjóri sagði á aðalfundi íslenska
útvarpsfélagsins hf. í gær að samningar við Alþingi um beinar útsend-
ingar Sýnar væru frágengnir.