Morgunblaðið - 02.04.1992, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1992
43
Kveðjuorð:
Sigurður
Bergsson
Fæddur 16. nóvember 1943
Dáinn 12. mars 1992
Kynni mín af honum Sigurði
hófust fyrir rúmum tveim árum
er ég kynntist Bergdísi elstu dóttur
hans. Ég sá strax að þarna fór
góður maður ófeiminn og blátt
áfram. Siggi var hraustur maður
og hugsaði v^l um heilsuna. Hann
var fullur af lífsorku og tók manni
ávallt vel, með brosi á vör. Já, það
var ætíð stutt í hláturinn þegar
maður var með honum Sigga því
hann var mikill húmoristi og þótti
gaman að gantast, þó svo að alvar-
an í honum væri aldrei langt und-
an. Sigga þótti gaman að hjálpa
fólki og gefa því góð ráð og ekki
var laust við að stundum þætti
manni vera komið of mikið af því
góða þegar hann var leggja manni
lífsreglurnar. En honum gekk gott
eitt til. Það má því segja að það
hafi komið eins og þruma úr heið-
skíru lofti þegar Gréta hringdi í
mig og bað mig að koma og vera
hjá Brynju og Drífu því Siggi hafi
veikst skyndilega og þurft að fara
á spítala. Einhvern veginn var það
svo að erfitt var að ímynda sér að
eitthvað alvarlegt væri að honum
Sigga því hann var hreystin upp-
máluð, svo innilega ekki tilbúinn
til að kveðja þetta líf. Það vakna
því ýmsar spurningar um tilgang
lífsins þegar maður eins og Siggi
er numinn brott svo skjótt og fyrir-
varalaust. En Guð hefur bæði lífið
og dauðann á valdi sínu og enginn
fær við neitt ráðið þegar hans vilji
er annars vegar.
Ég kunni strax mjög vel við
Sigga og fjölskyldu hans og fann
ég fljótlega að þarna var mjög
samhent fjölskylda. Siggi var mjög
heimakær maður og ekki mikið
fyrir samkundur allskonar. Fjöl-
skyldan var ávallt efst í huga hans
og í faðmi hennar kunni hann best
við sig. Siggi átti þó mörg áhuga-
mál. Hann var mikið fyrir íþróttir
og stundaði þær reglulega. Hann
var einnig mikill bílaáhugamaður,
lærði m.a. mótorfræði og tók
meiraprófið. Það var því ekki svo
sjaldan að maður kom með bílinn
sinn í viðgerð til Sigga enda lá
hann ekki á liði sínu þegar einhver
þurfti á aðstoð hans að halda. Siggi
var mikill Ijóða- og tónlistarunn-
andi og orti mikið af ljóðum, bæði
mjög dramatískum og gamanvís-
um.
Siggi tók mig mjög fljótlega inn
í fjölskylduna og urðum við hinir
mestu mátar. En nú er hann ekki
lengur á meðal okkar og það er
erfitt að sæta sig við það. Én lífið
heldur áfram og kveð ég hér með
vin minn Sigurð Bergsson og bið
Guð að styrkja okkur öli í þessari
miklu sorg.
Arnar Jóhannsson.
XAUTGRJPABÆNDUR
í byrjun mars lækkuðu bændur verð á nautakjöti um 10%.* Júlíus og Jón hjá Félagi matvörukaup-
manna fagna þessu frumkvæði bænda. Þeir eru sannfærðir um að þessi verðlækkun örvi
sölu á nautakjöti og benda á að beinlaust nautakjöt getur verið ódýrasti
kosturinn þegar velja skal gott kjöt í matinn.
•Lækkunin tekur til framleiðsluverðs ijögurra hæstu
verðflokkanna - besta kjötið lækkar í verði.
Snitzel
T-bein steik
Föt fyrir alla
SISLEY
Föt fyrir alla
SEi
kr
Barnafatnaður
Ungbarnafatnaður
Unglingafatnaður
OPNUM BENETTON MARKAÐ
Q bencllon
markaðurinn, Skipholti 50c
í SKIPHOLTI 50C í DAG, 2. APRÍL
OPIÐ MÁNUDAGA-FÖSTUDAGA
FRÁ KL. 13-18
£k beneíton
Kringlunni.