Morgunblaðið - 02.04.1992, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 02.04.1992, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1992 45 Hákon Benedikts- son - Minning Fæddur 16. ágúst 1914 Dáinn 24. mars 1992 Þó að dimmi og blómin blíð bráðum finnist kalin. Getur minning geislafrið glitrað innifalin. Hann Hákon frændi er dáinn. Maðurinn með ljáinn hafði betur. Það eru erfiðir tímar er sorgin ber að dyrum. Það er einmitt þá sem maður hugsar um allar þær góðu minningar og stundir sem maður átti með Hákoni. Það eru stundir bernskuáranna sem ber hæst þegar við hugsum um Hákon frænda eins og við kölluðum hann alltaf. Stundirnar þegar hann sat og las fyrir okkur á kvöldin, spilaði við ókkur tímum saman og hitaði kakó á köldum vetrarkvöldum þegar foreldrar okkar voru að vinna. Hákon var alveg einstaklega hrifinn af börnum. Öll börn virtust hænast að honum og þegar lítil börn bar að garði þá ljómaði Há- kon allur og lék á als oddi. Árið 1988 fæddist svo sólar- geislinn sem átti hug hans allan, það var Ella Karen. Sennilega hefur Hákoni sjaldan eða aldrei liðið eins vel og þegar Kristbjörg flutti með Ellu Karen heim til for- eldra okkar, en þá gat hann dund- að með Ellu Karen tímunum sam- an, leikið við hana, farið með hana í göngutúra og allt það sem hann hafði áður gert með okkur systkin- unum þegar við vorum lítil. Við vonum að Hákoni frænda liði vel þar sem hann er nú kom- inn. Góðri sál er ekki hægt að gleyma og Hákon frændi mun allt- af eiga vissan stað í hjarta okkar. Margs er að minnast margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. ■ Margs er að minnast, margs er að sakna, Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem:) Kristbjörg, Ella og Hörður. Jónn H. Stefáns- dóttir - Minning Fædd 6. janúar 1945 Dáin 9. mars 1992 Systir mín og mágkona, Jóna, lést á Borgarspítalanum 9. mars síðast- liðinn. Lauk þá hennar erfiðu göngu hér á jörð. Hjödda, eins og hún var kölluð af sínum nánustu,'var fædd í Bolungarvík, dóttir hjónanna Stef- áns Vilhjálmssonar og Sigrúnar Sig- urðardóttur. Olst hún þar upp að fermingu en þá fluttust foreldrar hennar tii Reykjavíkur. Var það erf- itt fyrir óharðnaðan ungling að koma úr vernduðu umhverfi sveitarinnar í ys og þys stórborgarinnar. 17 ára kynnist Iljödda fyrri manni sínum og flyst með honum til Texas. hefja þau búskap þar og eignast einn dreng saman, en ekki fann Hjödda hamingjuna þar. Slíta þau samvistir 1964 og flytur Hjödda heim með drenginn og þar kynnist hún seinni manni sínum og setjast þau að í Borgarnesi. Átti Hjödda sín bestu ár þar með börnum sínum og fjöl- skyldu, enda oft glatt á hjalla er þegar fjölskyldan kom saman. Hjödda átti gott með að kynnast fólki enda hrókur alls fagnaðar er fólk kom saman. Enda sóttu systkina börnin til hennar hvenær sem færi gafst. Ekki mátti hún neitt aumt sjá að hún væri ekki boðin og búin að hjálpa, enda gjafmildi hennar og hjálpsemi engum takmörkúm háð. Þijú börn eignaðist Hjödda: John Ontiveros, kvæntur Elsu, eiga saman tvö börn, Sigurð Salomon, ókvæntur, og Eydísi., lofuð Erni. Er þetta hörkuduglegt fólk eins og foreldrar þess. En hamingjan er torsótt og sleit Hjödda samvistir við eiginmann sinn 1984, og má segja að þá hafi byrjað erfiðasti kafli lífs hennar. Tók þá við harður heimur Bakkus- ar, varð hún viljalaust verkfæri und- ir stjórn hans, enda gefur sá konung- ur enga miskunn. Við hjónin eigum margar góðar minningar með Hjöddu sem seint gleymast. Megi góður Guð geyma hana, vonum við að sá heimur sem hún er í nú, sé ljósum lýstur, þar finni hún friðinn. „Hafðu þökk fyrir allt og allt.“ T , i-, ... & Loa og Egill. suuatchn OÐ TILVALIN FERMINGARGJOF Nú er vorverð á hinum vinsælu SWATCH símum SWATCH símarnir eru til í 10 mismunandi litum Verð frá kr. 3.742 HEKLA LAUGAVEGI 174 S 695500/695550 DAIHATSU RDCKY NÍÐSTERKUR JEPPi DAIHATSU ROCKY hefur sýnt og sannað að hann er alvöru jeppi - hörkutól. Þetta er bíll sem þolir mikið álag hálendisferða og að vera í hlutverki þarfasta þjónsins til sveita. Hann er því kjörinn fyrir utivistarfólk, bændur eða stórar fjölskyldur. ROCKY er dugmikill, fullbúinn jeppi á einstaklega góðu verði. DAIHATSU ROCKY fæst undanþeginn virðisaukaskatti. ROCKY KOSTAR FRÁ KR. 1.698.000 stgr. á götuna. kAÐ 100.000 KM. FAXAFENI 8 • SIMI 91 - 68 58 70

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.