Morgunblaðið - 02.04.1992, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 02.04.1992, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1992 + Elskulegur bróðir okkar, INGVAR ELLERT ÓSKARSSON, verður jarðsungirtn frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. apríl kl. 10.30. Finnlaug Guðbjörg Óskarsdóttir, Ingibjörg Auður Óskarsdóttir, Halldóra Björk Óskarsdóttir, Einar Gunnar Óskarsson, Svavar Tryggvi Óskarsson, Guðmundur Vignir Óskarsson. Faðir okkar, RAGNAR JAKOBSSON fv. útgerðarmaður frá Flateyri, andaðist í St. Jósefsspítala þann 1. apríl. Árni Ragnarsson, Kristján Ragnarsson, Kristinn Ragnarsson. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN SIGURBORG VILBERGSDÓTTIR frá Fáskrúðsfirði, Skólabraut 1, Mosfellsbæ, lést á Hrafnistu, Reykjavík, 1. apríl. Þorvaldur Sveinsson, börn, tengdabörn og barnabörn. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGE-LISS JACOBSEN, Sóleyjargötu 13, Reykjavík, andaðist í Landspítalanum 21. mars. HaukurJacobsen, Örn H. Jacobsen, Guðrún E. Jacobsen, Björgvin Ólafsson, Egill L. Jacobsen, Haukur J. Jacobsen, Helgi Ö. Jacobsen, Björgvin G. Björgvinsson. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA EIRÍKSDÓTTIR, Kötlufelli 5, er lést 27. mars sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudag- inn 3. apríl kl. 15.00. Margrét Þóroddsdóttir, Sverrir Einarsson, Eiríkur Þóroddsson, Guðbjörg Friðriksdóttir, Guðmundur Þóroddssson, Gróa Þórarinsdóttir, Steinþór Þóroddsson, Sveinbjörg Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ODDGEIR BÁRÐARSON fyrrverandi sölustjóri, Hvassaleiti 56, Reykjavík, J. verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykajvík föstudaginn 3. apríl kl. 13.30. Sesselja Kristín Kristjónsdóttir, Jón Rúnar Oddgeirsson, Ásta Karlsdóttir, Bára Björg Oddgeirsdóttir, Gunnar G. Þorsteinsson, barnabörn og barnabarnabarn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför móður okk- ar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SESSELÍU GUNNLAUGSDÓTTUR frá Gnýstöðum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkra- húss Hvammstanga. Sólveig Árnadóttir, Jón Auðunsson, Gunnlaugur Árnason, Helga Berndsen, Guðmundur Árnason, Hildigunnur Jóhannsdóttir, Skúli Árnason, Ragnheiður Eyjólfsdóttír, barnabörn og barnabarnabörn. Minning: Sigmjón Guðmundsson bóndi, Stóra-Saurbæ Fæddur 29. október 1918 Dáinn 25. mars 1992 Siguijón í Saut'bæ lést í Sjúkra- húsi Suðurlands 25. mars sl. Þessar’ línur eru fátækleg kveðjuorð frá félögum hans í Kirkjukór Hvera- gerðis og Kotstrandarsókn. Með Siguijóni er genginn einn okkar traustasti félagj. Þeir Saurbæjarbræður voru góðir söngmenn og byijuðu ungir að syngja við kirkjulegar athafnir og önnur_ tækifæri undir handleiðslu séra Ólafs Magnússoanr í Arnar- bæli. Þegar núverandi kór var stofnað- ur árið 1947 lögðu þeir bræður því starfi lið eins og vænta mátti. Sigur- jón var kjörinn fyrsti gjaldkeri kórs- ins og gegndi því starfi óslitið um 40 ára skeið. Hann söng með kórn- um allt til hins síðasta og átti þá hátt í 60 ára söngferil að baki. Þrátt fyrir aldurinn hélt hann rödd- inni ótrúlega vel. Og það var ekki bara kórinn okkar sem naut krafta hans. Það kom fyrir að Söngfélag Þorlákshafnar vantaði bassa og þá var leitað til Sigurjóns. Siguijón var ljúfmenni, hógvær og hjálpsamur. Hann var gaman- samur og hrókur alls fagnaðar á gleðistundum. Við kórfélagar sökn- um nú góðs söngmanns og góðs félaga. Við sendum aðstandendum Sig- uijóns innilegar samúðarkveðjur. F.h. Kirkjukórsins, Anna Jórunn. í dag er borinn til grafar vinur okkar og langtíma söngfélagi Sig- uijón Guðmundsson frá Stóra- Saurbæ, Ölfusi, Árnessýslu. Fundum okkar bar saman með þeim hætti, að til mín var hringt að Hlíðardalsskóla og ég beðinn að koma og aðstoða við húskveðjusöng að Stóra-Saurbæ. Auðvitað brá ég við strax, og þar var mér fengin nótnabók í aðra hönd og sálmabók í hina. Þar sá ég hann og söng með honum fyrsta sinn. Um nokkurra ára bil aðstoðuðum við hjónin kórinn hans - kórinn okkar allra - Kirkjukór Hveragerð- is- og Kotstrandarsókna við söng- starfið, þó á hlaupum frá aðlstörf- um okkar við Hlíðardalsskóla ... Það var á því sviði, sem ég kynnt- ist Siguijóni - á söngæfingunum og söngpallinum. Þar stóð hann og sá mig tvennum sjónum: Þessi > augu, ofurlítið saman dregin, sem gneistuðu gáska, hótfyndni og prúðum prakkaraskap í flutningi léttari laganna, þar sem fjörið ólg- aði undir öguðu brosi með smákipr- um til munnvikanna . .. Svo hin augun alopin í mildum alvöru- dökkva undir flutningi djúpra, and- legra 'dðfangsefna - allt svo sem við átti... Já, þar stóð hann og söng, þessi bassaklettur, sem aldrei skeikaði. Dagfarslega var hann hæglátur, hógvær ogtraustur, stöð- ugt glaður og að verðleikum virtur vel. Við hjónin teljum til forréttinda að hafa fengið að syngja með hon- um og kórnum hans. Þar ríkti fölskvalaus söngáhugi, gleði og samstilling. Öll árin heyrði ég aldr- ei nokkurt möglunarorð, aldrei kvartað um að yiðfangsefnin væru of þung eða æfingar of langar. Þætti eitthvað ekki nógu fínfágað í fíngerðum blæbrigðum - þessum hárfína, tæra, viðkvæma söng, sem heyrist alltof sjaldan, eða þætti vanta meiri hljómþunga annars staðar, var unnið, unz árangur náð- ist. Ásamt öllum hinum var Sigur- jón fast fylgjandi, því hann bjó yfir miklu tónnæmi, innlifun og túlkun- arkostum. Síðast þegar ég sá hann og kvaddi, hallaðist hann á öxl mér hlýr og klökkur. Þar fann ég bær- ast þetta söngríka, viðkvæma hjarta, sem sló á bak við sönginn hans og samsönginn okkar allra ... Það hafði djúp áhrif á mig, og ekki gekk ég heldur ósnortinn af þeim kveðjufundi. Kæru ástvinir og söngfélagar, sem saknið og syrgið..Látum sam- hljóminn hans og okkar allra óma langt út yfir gröf og dauða. . . Söngurinn er líf. Blessuð veri minning hans. Sólveig og Jón Hjörleifur Jónsson. r ^ ^ Minningarkort Bandalags íslenskra skáta Sími: 91-23190 L-i. (*M3 rJl BLOM SEGJA ALLT Mikið úrval blómaskreytinga fyrir öll tækifæri. Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 68907Q. + Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför RAFNKELS ÞORLEIFSSONAR, Hafnarbraut 14, Höfn. Fjóla Rafnkelsdóttir, Ólafur Rafnkelsson og fjölskyldur. + Systir okkar og mágkona, GUÐRÚN HALLDÓRSDÓTTIR, lést 29. mars. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 6. apríl kl. 13.30. Ingibjörg Halldórsdóttir, Magnús Bjarnason, Lára Halldórsdóttir, Kristín Eggertsdóttir. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir og amma, HANNA G. HALLDÓRSDÓTTIR, Kumbaravogi, Stokkseyri, verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju á morgun, föstudaginn 3. apríl, kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, „ . ... ... y . Kristjan Friðbergsson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og jarðar- för föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐLAUGSJÓNSSONAR vélstjóra, Nönnustfg 14, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks lungna- deildar Vífilsstaðaspítala og heimahjúk- runar í Hafnarfirði. Sverrir Guðlaugsson, Eystein Sigrún Ásta Guðlaugsdóttir, Margré tengdabörn, barnabörr og barnabarnabörn. n Guðlaugsson, Guðlaugsdóttir, :-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------i Erfidrykkjur í hlýlegu og notalegu umhverfi Við höfum um árabil tekið að okkur að sjá um erfídrykkjur fyrir allt að 300 manns. í boði eru snittur með margvíslegu áleggi, brauðtertur, flatbrauð með hangikjöti, heitur eplaréttur með rjóma, rjómapönnukökur, sykurpönnukökur, marsfpantertur, rjómatertur, formkökur, 2 tegundir o.fl. Með virðingu, FLUGLEIDIR HÖTEL LOFTLEIDIR H £ Y K J A VlKURFLUGVELLI. 101 REYKJAVlK SIMI : 9 1-22322
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.