Morgunblaðið - 02.04.1992, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1992
HANDKNATTLEIKUR
Sóknarleikurínn brást
ÓHEPPNI og heppni var með
i'slenska landsliðinu í B-keppn-
inni í Austurríki, en sem betur
fer var heppnin yfirsterkari. ís-
lenska landsliðið var óheppið
að tapa fyrir Noregi og að Dan-
mörk náði að jaf na á sfðustu
sek. Fyrir B-keppnina var Ijóst
að Norðmenn og Danir yrðu
aðalkeppinautar okkar í keppn-
inni um rétt til að leika íHMí
Svíþjóð. íslenska liðið fékk að-
eins eitt stig gegn þessum
frændþjóðum, en vitað var fyr-
irfram að ef allt væri eðlilegt
yrði ísland að fá tvö eða þrjú
stig gegn þjóðunum.
Opið hús verður í Félagsheimili SVFR
AF
INNLENDUM
VETTVANGI
, eftir
Sigmund Ó.
Steinarsson
Heppni íslands var svo að ísrael
komst í milliriðilinn, en ekki
Egyptaland. Danir fóru því í
milliriðilinn með að-
eins tvö stig, en ekki
fjögur eins og þeir
A hefðu gert, ef Egypt-
ar, sem voru óheppn-
ir gegn ísrael, hefðu
komist í milliriðilinn.
Það var einnig
heppni að ísraels-
menn lögðu Dani og
Danir voru óheppnir
að vinna Norðmenn ekki með nema
einu marki.
Þegar að er gáð var B-keppnin í
Austurríki ekki sterk. Það voru ekki
mörg góð landslið á ferðinni þar.
íslenska landsliðið náði sér aldrei
verulega á strik fyrr en á lokakaflan-
um í síðasta leiknum - gegn Sviss-
lendingum. Það voru allir sammála,
þar á meðal Þorbergur Aðalsteins-
•son, landsliðsþjálfari, að sóknarleik-
urinn hefði brugðist í Austurríki.
Hann var fálmkenndur og tilviljun-
arkenndur. Það var aðeins á smá-
kafla í leik gegn Israelsmönnum að
skemmtilegar leikfléttur sáust hvað
eftir annað, en annars réði ein-
staklingsframtakið ferðinni í sókn
og var Sigurður Sveinsson óborgan-
legur. Varnarleikur íslenska liðsins
var viðunandi og stundum öflugur.
Markverðir íslenska liðsins brugðust
ekki þegar á hólminn var komið, en
þeir voru jafnbestu leikmenn ís-
lenska liðsins.
Sagan endurtók sig
Sagan frá Ólympíuleikunum í
. Seoul endurtók sig - þegar illa gekk
var reynt var að finna sökudólginn
íslensku landsliðsmennirnir horfa á Norðmenn taka á móti gullverðlaununum í Vín.
Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson
heima á íslandi, þar sem menn veltu
gangi mála að sjálfsögðu fyrir sér
og höfðu álit á málunum, eins og
eðlilegt er þegar handknattleiksunn-
endur sjá leiki íslenska landsliðsins
beint. í byrjun keppninnar í Austur-
ríki voru menn þar að reyna að finna
ástæðu fyrir því hvers vegna sóknar-
leikur íslenska landsliðsins var mátt-
laus. Fyrst var sagt að það væri
verið að spara leikkerfi liðsins fyrir
leikinn gegn Norðmönnum, en síðan
var sagt að sumir leikmenn væru
ekki í nægilega góðri æfingu og
voru menn óhressir. Þegar brúnin
lyftist á mönnum á ný og farseðillinn
til Svíþjóðar var í höfn, fóru menn
að hafa efni á því að senda hinum
og þessum kaldar kveðjur og spjót-
unum var beint til íslands og látið
í ljós að menn mættú ekki hafa
SVFR
skoðanir á málunum og landsliðs-
þjálfarinn gat leyft sér að segja:
„Vísa órökstuddri gagnrýni heim til
föðurhúsanna."
Þetta sagði þjálfarinn, sem gagn-
rýndi sjálfur margt - leikmenn,
undirbúning, þjálfara leikmanna og
forráðamenn félaga. Það er eðlilegt
að láta sína skoðun í ljós og mönnum
er fijálst að hafa skoðanir á málun-
um. Landsliðið er ekki í einkaeign -
það skiptir alla handknattleiksunn-
endur máli og það á að veitá þjálf-
ara, landsliðsmönnum og forráða-
mönnum HSI aðhald, til að gera
allt til að andinn í landsliðinu sé
góður og það haldi áfram á réttri
braut. Að reyna að slá sjálfan sig
til riddara og gera lítið úr öðrum
mönnum sem gjörþekkja handknatt-
leikinn á íslandi, er óþolandi.
Lélegur sóknarleikur
Eitt er víst - allir þeir sem þekkja
handknattleik vita að íslenska
landsliðið lék lélegan sóknarleik í
Austurríki, en á góðum sóknarleik
vinnast fræknir sigrar. Til að vinna
leiki þarf að skora fleiri mörk en
andstæðingurinn. Sóknarleik ís-
lenska landsliðsins þarf að stórbæta
frá keppninni í Austurríki. íslending-
ar hafa verið þekktir fyrir öflugan
sóknarleik og handknattleiksunn-
endur krefjast þess að svo verði
áfram.
Sóknamýtingin
Sóknarnýting íslenska landsliðsins í B-keppninni í Austurríki var
49.6%. Það er frekar léleg nýting. Alls skoraði landsliðið 156 mörk í
314 sóknarlotum í leikjunum sjö. íslensku leikmennirnir skutu 242
sinnum að marki og fór knötturinn 156 sinnum í netið, sem er 64.4%
skotnýting. Markverðir vörðu 65 skot, en 21 skot fór framhjá, í stöng
eða voru varin af vörn. Sóknarfeilar voru 72 í leikjunum, eða að
meðaltali 10,2 í leik, sem er mikið.
Árangur einstakra leikmanna var þessi - fyrst mörk/vítaköst, síðan
í hvað mörgum skotum, varin skot, knettinum tapað og þá ing leikmanna: Sigurður Sveinsson 25/ 5 45 13 Valdimar Grímssnn 21/10 29 5 sóknarnýt- 10 46.8% 6 60 0%
Geir Sveinsson 19 24 4 4 67.8%
Konráð Ólafsson 15/ '4 24 7 8 46.8%
Héðinn Gilsson 13 26 9 9 37.1%
Bjarki Sigurðsson 13 16 3 7 56.6%
Gunnar Gunnarsson 12 16 1 11 44.4%
Júlíus Jónasson 12 19 4 6 48.0%
Sigurður Bjarnason 10 17 6 1 55.5%
Kristján Arason 6 8 0 2 60.0%
Gunnar Andrésson 5 8 2 1 55.5%
Birgir Sigurðsson 4 7 2 2 44.4%
Einar G. Sigurðsson 1 3 1 1 25.0%
Bergsveinn Bergsveinsson 2
Guðmundur Hrafnkelsson 1
Tafir................................... 1
■ 156 mörkin skiptust þannig: 22 eftir hraðaupphlaup, 53 með lang-
skotum, 27 af línu, 23 með gegnumbrotum, 19 úr vítaköstum og 12
úr hornum.
■ Sigurður Sveinsson var í 24. sæti yfir markahæstu menn, en
Austurríkismaðurinn Andreas Dittert skoraði mest - 56/35 mörk.
Valdimar Grímsson. var í 36. sæti yfir markahæstu leikmenn.
GOLF
föstudaginn 3: apríl. Húsið opnað kl. 20.30.
Dagskrá: Norðurá
♦ Rannsóknir og veiðihorfur í Norðurá: Sigurður Már
Einarsson, fiskifræðingur Veiðimálastofnunar
Fjórði sigur Davis Love
í bandarísku mótaröðinni
í Borgarfirði flytur.
♦ Norðurá fegurst áa. Fallgar litskyggnur af helstu
veiðistöðum eftir Rafn Hafnfjörð. Leiðsögumenn:
Jón G. Baldvinsson og Guðlaugur Bergmann.
♦ Glæsilegt happdrætti.
Fræðslu- og skemmtinefnd SVFR.
DAVIS Love sigraði á sterku
móti i' Flórída um síðustu helgi.
Hann lék síðustu níu holurnar
frábærlega, kom inn á 67 högg-
um og var á 15 höggum undir
pari vallarins og jafnaði þar með
vallarmetið sem Marc McCum-
ber setti 1988. Þetta varfjórði
sigur Love á bandarísku móta-
röðinni.
Love hefur oft lent í því að slá út
í vatn þegar mikið liggur við,
en þrátt fyrir að margar tjarnir
væru við síðari níu holur vallarins
slapp hann við allt slíkt að þessu
sinni. „Konan mín segir að ef það
sé vatn á leiðinni þá slái ég í það.
Sem betur fer hafði hún ekki á réttu
að standa,“ sagði Love.
Nick Faldo varð í öðru sæti ásamt
Tom Watson og var ánægður með
það. „Ég taldi mig eiga möguleika,
miðað við að ég lék ágætlega, en
svo brást allt á síðustu tveimur hol-
unum. Miðað við hvernig ég hef leik-
ið á þessum velli þá er gott að ná
öðru sæti,“ sagði Faldo, en hann sló
í vatn á 17. brautinni.
Love var spurður hvoit hann ætti
einhveija möguleika á sigri í meist-
arakeppninni (US Masters) sem
hefst um aðra helgi. „Ég held ég
geti unnið þar. Ég náði 19 fuglum
þar í fyrra, og það ætti að duga til
sigurs. Það eina sem ég þarf að
hugsa um er að fá ekki eins marga
skolla og í fyrra,“ var svarið.
Efstu menn um helgina urðu:
273 Davis Love
277 Tom Watson, Nick Faldo, Ian Baker-
Finch, Phil Blackmar
278 Craig Parry, Tom Seickmann
279 Nick Price
280 Jose Maria Olazabal, Mark O’Meara, John
Mahaffey, Mark Brooks
281 Mark McNulty, Payne Stewart, Tom Le-
hman, Fred Couples
283 Wayne Levi, Scott Simpson, Andrew
Magee, Mike Smith