Morgunblaðið - 23.04.1992, Síða 4

Morgunblaðið - 23.04.1992, Síða 4
4 • < i • tmA fi§ * i'MWH í;" MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992 Stofnun félags um breytta fiskveiðistjórnun í undirbúningi; Aflamark og frjálst fram- sal kvóta eru óviðunandi - segir Arni Gíslason í undirbúningsstjórn félagsins í undirbúningi er stofnun félags sem hefur það markmið að núver- andi fiskveiðistjórnun verði breytt. Ráðgert er að halda stofnfund félagsins í júníbyrjun og opna skrifstofu. í þriggja manna undirbún- ingsstjórn sitja Hrólfur Gunnarsson skipsíjóri, Oskar Þór Karlsson fiskverkandi og Árni Gíslason skipstjóri. „Við teljum að núverandi kerfi sé komið út í tóma vitleysu og það hefur ekki dregið úr þeirri skoðun okkar eftir mikil og jákvæð við- brögð manna eftir undirbúnings- fundinn. Það hafa hringt í mig menn til að lýsa yfir stuðningi sín- um; það eru trillukarlar og útgerð- armenn, og sumir þeirra hafa verið ómyrkir í máli þegar þeir hafa ver- ið að lýsa skoðunum sínum á kerf- inu,“ sagði Árni Gíslason við Morg- unblaðið. Árni sagði að það væru einkum tvö atriði í núgildandi lögum um fiskveiðistjómun sem ekki væri hægt að sætta sig við lengur. Þetta væru ákvæði um aflamark og fijálst framsal á veiðikvóta. „Með minnkandi kvótum hefur aflamarkið haft það í för með sér að geigvænlegá miklu er hent af fiski. Menn vinsa úr þann afla sem þeir telja verðmætastan og henda hinu og þetta mál er mun alvar- legra en menn gera sér grein fyrir. Ef þessu yrði hætt væri engin kreppa á íslandi. Þá þyrfti að vinna úr þessum físki sem nú morknar á miðunum og hjól atvinnulífsins fæm að snúast aftur. Þá teljum við það engan veginn standast að fámennur hópur hér á landi skuli fá einkaafnot og ráðstöf- unarrétt yfir þessum auðæfum með ftjálsu framsali á kvóta. Því um leið og þeir höndla með kvótann eru þeir að höndla með atvinnuréttindi og þar með mannréttindi fjölda fólks,“ sagði Árni. Hann sagði að ekki lægju enn fyrir fullmótaðar tillögur um hvaða aðferðir félagið vildi' viðhafa við stjórnun veiða þar sem ýmsum spurningum væri ósvarað. „Það telja til dæmis margir að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar sé mjög ábótavant eins og meðal annars sýndi sig á síðustu loðnuvertíð. Þá bendir margt til að forsendur stofn- unarinnar varðandi þorskstofninn séu býsna skrýtnar, því í vetur hef- ur verið mikil fískigengd og mjög góð veiði en það má ekkert físka. Þá viljum við vita hvort halda eigi mismunun opinberrar fyrir- greiðslu í sjóðakerfínu áfram þann- Árni Gíslason ig að stærri fyrirtæki geti notað almannasjóði til að sanka að sér kvóta á hefðbundnum tegundum í stað þess að nota skip sín til að sækja meira í utankvótategundir. Það mætti hugsa sér einhvem auð- lindaskatt innan greinarinnar á hefðbundnar tegundir til að styrkja útgerðir til að veiða vannýttar físki- tegundir," sagði Árni Gíslason. Gjaldþrot Veraldar: Kröfur nema 255 milljón- um króna ALLS nema lýstar kröfur í þrotabú ferðaskrifstofunnar Veraldar um 255 milljónum króna.Þar af eru forgangskröf- ur 15 milljónir en almennar kröfur 240 milljónir. Nær engar eignir eru til fyrir þessum kröf- um. Brynjólfur Kjartansson bústjóri þrotabúsins hefur fengið endur- skoðanda til að yfirfara bókhald Veraldar. Brynjólfur segir að með- an beðið sé niður'stöðu úr þeirri athugun séu mál þrotabúsins í bið- stöðu. „Það getur verið að allt sé í lagi með bókhaldið og það getur verið að um vitleysur sé að ræða. Við viljum fá úr þessu skorið,“ seg- ir Brynjólfur. Veröld var lýst gjaldþrota 15. janúar sl. Stærsti kröfuhafinn í þrotabúið er Búnaðarbankinn en kröfur hans nema samtals 51,5 milljónum króna. VEÐUR IDAGkl. 12.00 f / Helmild: Veöurstofa íslands (Byggt á veðurspá ki. 16.15 í gær) VEÐURHORFUR I DAGf 23. APRIL YRRLIT: Um 300 km suðaustur af Hvarfi er 980 mb lægð sem þokast suðaustur en 980 mb lægð um 600 km suður af Vestmannaeyjum þok- ast norður. SPÁ: Austanátt, stormur eða rok við suðurströndina en víða allhvasst eða hvasst í öðrum landshlutum. Rigning um sunnanvert landið og sums staðar austanlands en þurrt norðvestantil. Hiti 4-9 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR A FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Auetanátt, víða nokkuð hvöss. Rigning víða um land, síst í innsveitum norðanlands. Hlti á þilinu 3-8 stig. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað / / / * / * / / * / / / / / * / Rigning Slydda Skyjað Alskýjað * * * * * * * * Snjókoma Skúrír Slydduél Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindsfyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig V Súld = Þoka stig.. í? FÆRÐA VEGUM: <k.. i7.30ígær) Góð færð á vegum í nágrenni Reykjavíkur og um Suðurnes. Þá er greið- fært um Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiöi. Vegir á Suðurlandi eru yfirleitt þokkalega færir og fært er með suðurströndinni austur á Aust- firði. Á Austfjörðum er víðast greiðfært. Greiðfært er fyrir Hvalfjörð um vegi í Borgarfirði, á Snæfellsnesi, um Dalasýslu og vestur í Reykhóla- sveit og Brattabrekka er fær. Fært er á milli Brjánslækjar, Patreksfjarð- ar og Bíldudals. Fært er um vegi á milli Þingeyrar og ísafjaröar og það- an um isafjarðardjúp. Skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði, en er þó taiin fær. Taiin er hætta á að heiöin lokist með kvöldinu. Greiðfært er um Holtavörðuhelði til Hólmavíkur og Drangsness. Greiðfært er um atla aðalvegi á Norðurlandi, og þá er Lágheiðí fær. Frá Akureyri er fært um Þingeyjarsýslur, í Mývatnssveit og með ströndinni til Vopnafjarðar. Fært er um Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði. Aurbleyta er á Norð- austurvegi á milii Húsavíkur með strondinni til Vopnafjarðar og miðast öxulþungi þar við 7 tonn, einnig er 7 tonna öxulþungi á þjóðvegi 1 í Breiðdal. VegagerSin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akúreyri 8 alskýjað Reykjavik 7 alskýjað Bergen 6 skýjaö Helsinki 2 skýjað Kaupmannahöín 6 skýjað Narssarssuaq 0 skýjaö Nuuk +7 snjókoma Ósló 8 skýjað Stokkhólmur 0 léttskýjað Þórshöfn 7 alskýjað Algarve 22 heiðskírt Amsterdam 10 skýjað Barcelona 14 léttskýjað Berlfn 13 skýjað Chicago 7 skýjað Feneyjar 14 þokumóða Frankfurt 15 alskýjað Glasgow 11 alskýjað Hamborg 12 skýjað London 13 skýjað LosAngeles vantar Lóxemborg 13 skýjað Madrfd vantar Malaga 18 heiðskírt Mallorca 17 heiðskfrt Montreal 11 sktirir New York 17 rigning Orlando 29 skýjað Paris 15 skýjað Madeira 18 skýjað Róm 15 léttakýjað Vfn 14 alskýjað Washington 22 skýjað Wlnnipeg +Z alskýjað Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli: Mögulegt að ísland sé viðkomustaður vegna flutninga á eiturlyfjum ÞORGEIR Þorsteinsson, lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli, segir að samvinna sé höfð á milli Islendinga og bandarískra stjórnvahla um gagnkvæma aðstoð við eftirlit með grunsamlegri flugumferð yfir Atl- antshafið vegna hugsanlegrar fíniefnadreifingar til Evrópu. Ekki sé langt um liðið síðan ákveðið verklag vegna þessa samstarfs hafi verið mótað. Aðspurður segir Þorgeir fræðilega mögulegt að litlar einkaflug- vélar sem notaðar séu við fíkniefnadreifingu til Evrópu millilendi á íslandi. Björn Halldórsson, yfirmaður fíkniefnalögreglunnar í Reykja- vík, staðfesti að þessi samvinna hefði átt sér stað undanfarin þrjú ár og að með þeirri vinnu sem lögð væri í þetta hefði styrkst grunur lögreglu um að ekki væri allt með felldu í þessu máli. Sigmund A. Rogich, sem tilnefnd- ur hefur verið sendiherra Bandaríkj- anna á Islandi, sagði við yfirheyrslur utanríkismálanefndar öldungadeild- ar Bandaríkjaþings 8. apríl sl., að nýlega hefði slíkri samvinnu verið komið á milli landanna vegna rann- sóknar á dreifingu eiturlyfja til Evr- ópu og á hvern hátt Island væri áfangastaður við þá flutninga. Sagði harín að embættismenn landanna störfuðu saman að þessu •verkefni. Þorgeir sagði rétt að haft væri samband við bandarísk stjórnvöid um gagnkvæma aðstoð við eftirlit með grunsamlegri flugumferð yfir Atl- antshafið. „Við höfum samvinnu um að reyna að hindra slíka umferð yfír Atlantshaf," sagði hann. „Við fylgj- umst náttúrlega með vélum sem fara um Keflavíkurflugvöll og höfum fullt samstarf við bandarísk stjórnvöld á þessu sviði. Það er ekki mjög langt síðan ákveðið verklag vegna þessa samstarfs var mótað,“ sagði hann. 0 Aætlunarflug til Norðfjárðar: * Islandsflug dregur umsókn sína til baka ÍSLANDSFLUG hefur dregið til baka umsókn sína um leyfi til áætlunar- flugs til Neskaupstaðar. Að sögn Gunnars Þorvaldssonar framkvæmda- stjóra er það gert í mótmælaskyni við umsögn Flugráðs sem mælir með því að Flugfélagið Óðinn hf. fái leyfið og vegna fregna um að ekki sé lengur full samstaða eystra um stuðning við umsókn íslands- flugs. Flugleiðir hafa ákveðið að hætta áætlunarflugi til Norðfjarðar um miðjan næsta mánuð og var flugleyf- ið nýlega auglýst iaust til umsóknar. Tvö félög sóttu um, íslandsflug hf. og Flugfélagið Óðinn hf. (Odin air) sem rekið er í tengslum við Flug- skóla Helga Jónssonar. Samgöngu- ráðuneytið sendi umsóknimar til umsagnar Flugráðs og bæjarstjórnar Neskaupstaðar. Meirihluti Flugráðs, 3 fulltrúar, mælti með Óðni, einn vildi mæla með íslandsflugi og einn sat hjá. Rök meirihlutans fyrir um- sögninni var sú að Óðinn myndi nota flugvél búna jafnþrýstibúnaði. Bæj- arráð Neskaupstaðar frestaði því á fundi sínum í síðustu viku að veita umsögn og var málið tekið fyrir að nýju á bæjarráðsfundi í gær og enn frestað. Nú hefur íslandsflug sent sam- gönguráðuneytinu og bæjarráði Nes- kaupstaðar bréf þar sem umsögn félagsins er dregin til baka. Gunnar Þorvaldsson gagnrýnir að Flugráð skuli leyfa sér að veita faglegt álit á hlutum sem það hefði ekki kynnt sér, það hefði að minnsta kosti ekki kynnt sér rekstur íslandsflugs. Hann bætti því við að það væri gagnrýnis- vert að framkvæmdastjóri hjá Flug- leiðum væri formaður Flugráðs. Hann hefði verið í meirihlutanum sem ekki vildi veita íslandsflugi flug- leyfið, en það væri öllum ljóst að það kæmi Flugleiðum betur að keppa við marga smáa aðila en einn stóran. Þessi staða formanns Flugráðs væri óheppileg og stæði fluginu í iandinu fyrir þrifum. Gunnar sagði að ís- landsflug vildi mótmæla ófaglegum vinnubrögðum Flugráðs og hefði því dregið umsókn sína um áætlunarflug til Norðíjarðar tii baka.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.