Morgunblaðið - 23.04.1992, Síða 7
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992
-----------------:----------------i--í_
7
Jón í Brauðhúsum:
MARGRÆÐ OG HRÍFANDISAGA
Ritsafn Halldórs Laxness:
HELSTU VERKIN ÍNÝJUM ÚTGÁFUM
Kvœðakver:
LJÓÐAVAL
, FRÁ LÖNGUM FERLI
í Kvæðakveri Halldórs Laxness er að finna mörg
ástsælustu ljóð þjóðarinnar - skáldskap sem nánast
hefur ort sig inn í þjóðarvitundina, oft fyrir tilstilli
fremstu tónskálda okkar. í þessari nýju útgáfu
bókarinnar hefur verið aukið við safnið fjölda ljóða
sem ekki voru í fyrri útgáfum Kvæðakvers, þar á
meðal kvæðum úr skáldsögum og leikritum Halldórs.
Einstök bók - framtíðareign!
Jón í Brauðhúsum er ein af smásagnaperlum Halldórs Laxness. Skáldið leikur hér
snilldarlega með margræðni og tákn og er veruleiki sögunnar í senn íslenskur og
bibiíulegur. Myndir Snorra Sveins Friðrikssonar listmálara veita okkur innsýn í
hugarheim lærisveinanna Andrisar og Filpusar og gefa sögunni viðbótarvídd.
Jón í Brauðhúsum er hrífandi saga sem verður því áhrifameiri sem hún er lesin oftar.
Gjafabók í sérflokki!
BIRTIST SNILLD HALLDORS
LAXNESS í NÝJUM BÚNINGI
í tilefni af 90 ára afmæli Halldórs Laxness, 23. apríl, hefur Vaka-Helgafell
gefið út tvær bækur, annars vegar myndskreytta glæsiútgáfu af sögu skáldsins,
Jóni í Brauðhúsum, og hins vegar Kvæðakver, heildarsafn ljóða Halldórs í
nýrri og aukinni útgáfu. Einnig hefur forlagið endurútgefið öll helstu verk
Nóbelsskáldsins og síðar á afmælisárinu kemur svo út viðamikil myndabók
um æviferil Halldórs Laxness.
Vaka-Helgafell hefur að undanfömu endurútgefið helstu verk Halldórs
Laxness úr ritsafni skáldsins í samvinnu við Laxnessklúbb forlagsins.
Bækumar eru í því sígilda bandi sem flestir kannast við en margir kunnustu
listamenn þjóðarinnar hafa gert á þær nýjar kápumyndir.
Snilldarverk sem eiga erindi til hverrar
nýrrar kynslóðar í landinu!
VAKAf %
HELGAFELL
Síðumúla 6 ■ sírni 688300