Morgunblaðið - 23.04.1992, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 23.04.1992, Qupperneq 7
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992 -----------------:----------------i--í_ 7 Jón í Brauðhúsum: MARGRÆÐ OG HRÍFANDISAGA Ritsafn Halldórs Laxness: HELSTU VERKIN ÍNÝJUM ÚTGÁFUM Kvœðakver: LJÓÐAVAL , FRÁ LÖNGUM FERLI í Kvæðakveri Halldórs Laxness er að finna mörg ástsælustu ljóð þjóðarinnar - skáldskap sem nánast hefur ort sig inn í þjóðarvitundina, oft fyrir tilstilli fremstu tónskálda okkar. í þessari nýju útgáfu bókarinnar hefur verið aukið við safnið fjölda ljóða sem ekki voru í fyrri útgáfum Kvæðakvers, þar á meðal kvæðum úr skáldsögum og leikritum Halldórs. Einstök bók - framtíðareign! Jón í Brauðhúsum er ein af smásagnaperlum Halldórs Laxness. Skáldið leikur hér snilldarlega með margræðni og tákn og er veruleiki sögunnar í senn íslenskur og bibiíulegur. Myndir Snorra Sveins Friðrikssonar listmálara veita okkur innsýn í hugarheim lærisveinanna Andrisar og Filpusar og gefa sögunni viðbótarvídd. Jón í Brauðhúsum er hrífandi saga sem verður því áhrifameiri sem hún er lesin oftar. Gjafabók í sérflokki! BIRTIST SNILLD HALLDORS LAXNESS í NÝJUM BÚNINGI í tilefni af 90 ára afmæli Halldórs Laxness, 23. apríl, hefur Vaka-Helgafell gefið út tvær bækur, annars vegar myndskreytta glæsiútgáfu af sögu skáldsins, Jóni í Brauðhúsum, og hins vegar Kvæðakver, heildarsafn ljóða Halldórs í nýrri og aukinni útgáfu. Einnig hefur forlagið endurútgefið öll helstu verk Nóbelsskáldsins og síðar á afmælisárinu kemur svo út viðamikil myndabók um æviferil Halldórs Laxness. Vaka-Helgafell hefur að undanfömu endurútgefið helstu verk Halldórs Laxness úr ritsafni skáldsins í samvinnu við Laxnessklúbb forlagsins. Bækumar eru í því sígilda bandi sem flestir kannast við en margir kunnustu listamenn þjóðarinnar hafa gert á þær nýjar kápumyndir. Snilldarverk sem eiga erindi til hverrar nýrrar kynslóðar í landinu! VAKAf % HELGAFELL Síðumúla 6 ■ sírni 688300

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.