Morgunblaðið - 23.04.1992, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992
9
Alúðarþakkir sendi ég öllum, sem heiðruðu
mig með heimsóknum, gjöfum og heillaskeyt-
um á 70 ára afmœli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Guðný Karlsdóttir,
Kirkjubraut 1,
(Skólabraut 1).
r ^
mSdöMms
Verksmiðja, lager, söludeild og
skrifstofur okkar verða lokaðar
föstudaginn 24. apríl.
s________________________________>
C
Ódýr gardínuefni
Nýkomin ódýr falleg gardínuefni.
Verð frá kr. 390.
Einnig dúkar á góðu verði.
Álnabúðin,
heimilismarkaður,
Suðurveri. sími 679440.
Avöxtun verðbréfasjóða
1. april
3 mán. 6 mán.
Kjarabréf 7,8% 8,1%
Tekjubréf 8,1% 7,9%
Markbréf 8,7% 8,7%
Skyndibréf 6,5% 6,6%
02>
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFESTING ARFÉLAGSINS HF
HAFNARSTRÆTI, S. (91) 28566 - KRINGLUNNI, (91) 689700 - AKUREYRI.S. (96) 11100
Skynsamleg
umræða
Forustugreinin ber
fyrirsögnina „Tækifæri í
stað tortryggni" og þar
segir:
„Nú þegar dómstóll
Evrópubandalagsins hef-
ur loks fengist til þess
að leggja blessun sína
yfir samningana um Evr-
ópska efnahagssvæðið er
mikilvægt að skynsamleg
umræða fari fram á öll-
um sviðum íslenska upp-
lýsingaþjóðfélagsins.
Nokkur umræða hefur
þegar átt sér stað um
EES hér á landi, en
þunglamaleg vinnubrögð
skriffinnamia í Brussel
hafa gefið einangrunar-
sinnuðum stjómmála-
mönnum færi á vanhugs-
aðri og óréttmætri gagn-
rýni. Ef islenska þjóðin á
ekki að dmkkna í eigin
bölmóði og fortíðar-
vanda verður að horfa á
tækifærin í stað þess að
ala á tortryggni þegar
EES er annars vegar.
Pjórfrelsið
Það hefur nefnilega
verið mikil tilhneiging
þjá stómm hluta íslend-
inga að fara í hálfgerða
vamarstöðu þegar talað
er um frelsið fjórþætta
sem kemur til með að
einkenna EES. Hér er átt
við fijálst flæði vöm,
fjármagns, þjónustu og
vinnuafls. Það er þó ólík-
legt að erlend fyrirtæki
komi til með að fjárfesta
hér í miklum mæli á allra
næstu ámm. Stærri og
arðvænlegri markaðir
opnast í hinum EFTA-
Iöndunum og þá má ekki
gleyma Austur-Evrópu,
sem þegar hefur opnast.
Islenski markaðurinn er
lítill og langt frá hringiðu
kaupaliéðna í Evrópu.
Það væri hins vegar
æi.Idlegt fyrir íslenska
efnahagskerfið ef er-
lencþr aðilar fengjust til
að fjárfesta hér á landi
MmBIMD
Álverá Keilisnesi
r
Hafnarframkvæmdir
í undirbúningi
Ekki spuming um hvon átvfrið verður byggt heldur hverurr. rr haft rftir AUm Bom, forstjóra Amax.
r i , , (Time^. i
Ný tækifæri
Islendingar þurfa að tileinka sér nýjan
hugsunarhátt og líta til þeirra tækifæra,
sem skapast með aðild að Evrópsku
efnahagssvæði, í stað þess að ala á tor-
tryggni. Ný starfsskilyrði skapast fyrir
sjávarútveginn og iðnaðinn, bæði smá-
iðnað og stóriðju. Þetta segir í forustu-
grein Alþýðublaðsins.
og flest nútimaþjóðfélög
sækjast reyndar eftir er-
lendu Qármagni inn i
efnahagskerfi sín. Það
er Iíka einu sinni svo að
framþrómiin á sér frem-
ur stað á meginlandi
Evrópu en á íslandi.
Nýi* hugsunar-
háttur
Við þurfum að tileinka
okkur nýjan hugsunar-
hátt sem felst i þvi að
horfa á þau tækifæri sem
skapast með því að land-
ið verður nú hluti af
stærri alþjóðlegri heild
sem hefur það að
markmiði að lækka
kostnað og auka hagvöxt
með skipulagðri sam-
vinnu, samræmingu og
samrunaþróun. Þetta
gildir til dæmis um fisk-
iðnaðinn, því nú skapast
ný starfs- og markaðs-
skilyrði fyrir mmar sjáv-
arafurðir. Nú verður
hagkvæmara að full-
vinna fiskrétti hér heima
og senda þá síðan frysta
eða ferska imi á borð
neytenda í Evrópu. Þetta
veitir fleiri atvinnutæki-
færi og bætir þjóðarhag.
Iðnaðurinn
En það er deginum
ljósara að EES-samn-
ingurinn fjallar ekki að-
eins um fisk. Eitt af aðal-
markmiðunum með að-
ildimii að EFTA árið
1970 var að efla íslensk-
an iðnað. Iðnrekendur
voru tilbúnir til að opna
markaðinn og mæta
harðnandi samkeppni er-
lendra aðila og á móti
ætlaði rikið að beita sér
fyrir eflingu innlends
iðnaðar. Stjórnvöld stóðu
ekki við þessi fyrirheit
og fyrst og fremst var
hugsað um hag sjávarút-
vegsins, iðnaðurinn mátti
bíða. Núna verðum við
hins vegar að nota tæki-
færið og efla islenskan
iðnað, jafnt stóriðnað
sem smáiðnað. Það eru
ótrúlegustu tækifæri sem
felast í nýtingu vatns-
orku og jarðvarma, sem
að auki skapar umhverf-
isvænan iðnað — en hluti
af EES-samningnum
fjallar um sameiginlega
umhverfisvemd aðildar-
rikjanna. Enn á ný em
íslenskir iðnrekendur til-
búnir til að mæta aukinni
samkeppni og því nauð-
synlegt að stjómvöld búi
svo um að hin fáu og
smáu iðnfyrirtæki hér á
landi fái tækifæri til að
verða samkeppnishæf á
hinum nýja markaði. Þau
þurfa einnig að geta nýtt
þau tækifæri sem skap-
ast þegar „heimamark-
aðurinn" samanstendur
af 380 milljónum neyt-
enda.
Nýjar leiðir
opnast
Enn eitt samdráttar-
tímabilið í íslenskum
sjávarútvegi minnir okk-
ur á að nauðsynlegt er
að efla hefðbundinn út-
flutningsiðnað, þannig að
afkoma þjóðarinnar
verði ekki eins háð sveifl-
um í sjávarútvegi. Til að
hægt verði að nýta þau
tækifæri sem bjóðast
þegar hið nýja efnahags-
svæði tekur gildi, og jafn-
framt að eyða þeirri tor-
tryggni sem gagnrýn-
endur hafa skapað, verð-
ur þegar í stað að hefja
öfiugt upplýsinga- og
kynningarstarf. Hér þarf
að koma til samráð
stjómvalda, hagsmuna-
samtaka og fyrirtækja.
Þessum nýju reglum og
hugsunarhætti verður að
koma sem fyrst inn í
menntakerfið, því þar sit-
ur unga fólkið sem kem-
ur til með að stjóma þjóð-
félaginu og reka fyrir-
tækin í framtíðinni. Það
er líka mikilvægt að ein-
staklingurinn gleymist
ekki, hvort sem haiui er
neytandi, launþegi eða
spariljáreigandi. Nýjar
leiðir opnast, en þær
verða jafnlokaðar og áð-
ur ef þær era ekki kynnt-
ar á fullnægjandi hátt.“
Gardeur - dömufatnaður
VOR- OG SUMARLÍNAN
Grtn í húsgagnaleit?
Svefnsófarnir komnir
Nýsending af2ja manna svefnsófum með
rúmfatageymslu. 3 gerðir. Stærð: 198x130.
Hagstætt verð.
Einnig ný sending af2ja sæta svefnsófum sem
lengjast fram.
Armúla 8, símar: 81 22 75 og 68 53 75
STAKIR JAKKAR
BUXUR: Ull/polyester
bóm ull/polyester
stretch-buxur
rósóttar buxur
HNÉBUXUR: 54 cm sfðar
61 cm siðar
68 cm siöar
GALLABUXUR
GALLAPILS
GALLABERMUDAS
PILS: bein ogfelld, stutt ogsíð.
GLEÐILEGT SUMAR
Udutttu
fataverslun
v/NeöVeg, Seltjarnarnesi.
Opið daglega kl. 9-18,
laugardaga kl. 10-14.