Morgunblaðið - 23.04.1992, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992
Tehús fullt af lióðum
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Jóhann árelíuz: Tehús ágústmán-
ans. Almenna bókafélagið 1992.
Jóhann árelíuz hefur sent frá sér
ljóðabækurnar blátt áfram (1983)
og Söngleik fyrir fiska (1987) og
nú kemur Tehús ágústmánans frá
hans hendi, bók sem veldur því að
fram hjá honum verður naumast
gengið þegar menn velta fyrir sér
stöðu nýrrar ljóðagerðar.
Höfundur Tehússins er ekki bein-
línis einfari í skáldskap, en sker sig
nokkuð úr. Hann er yfirleitt ljóð-
rænn og dálítið rómantískur á köfi-
um, en getur engu að síður skyggnt
samfélag sitt, litast þar um án þess
að verða utangátta. Það setur mark
sitt á ljóðin, yrkisefnin, að hann
hefur búið lengi erlendis.
Náttúrumyndir, hversdagslíf og
stundum einkalíf stígur fram í ljóð-
unum. Það sem gerir það að verkum
að þau ná oftast til lesandans er
auk skáldlegra kosta einlægni, trú-
verðugleiki. Based upon the blues
hefst á þessum orðum:
nú er tími til þess að skrifa
nú er tími tii að skrifa
nú skrifa ég
nú er tíminn til þess að skrifa
kveikja í afgömlum skelþunnum orðasam-
böndum
og kveikja ný!
Ljóðið Höfuðból er eins konar
skáidskaparyfirlýsing, Ars poetica.
Myndirnar eru ferskar og lifandi.
Lífið er greinilega einhvers virði:
Ég hata rökrænt rökrétt elska gras-
græna véfrétt. Ég sendi þér hvíta rós (sem
hníf) og sker beint að rótum þíns fjólugráa
hjarta!
Blessuð sé sál málarans bláa í Kristjánshöfn.
Blessuð hollenska stúlkan leggjalanga
á svörtu netsokkunum í Haga.
Blessaðar allar minningar
sem merlast í móðu rúðunnar
þegar ég blæs á hana í strætó.
Blessuð spanskgræna sólin
sem við ólum
í bijóstum okkar.
Sum ljóðin eru ákall til lífsins
um að eitthvað gerist, eitthvað sem
bregði lit á hversdagsleikann.
Skáldið sem í upphafi bókar, fyrsta
ljóðinu Aðalstræti, kveðst syngja
„sekúndunni lof og dýrð!“ biður í
Kyndilmessu um hvítan eld sem
kveiki í æðum „heitt og bijálað
blóð“.
Þessi ósk getur virst margþvæld,
gamaldags (samanber eitur meira
eitur), er enda á mörkum þess að
duga í ljóði tíunda áratugar, en allt
gengur upp þegar skáldið vill fá
„einn sólarhring í nefið ..." og beit-
ir líkingunni um augun/laufin:
„þessi löngu gagnsæu glös með
regnhlífum/ sinnisins“.
Oft er það myndvísi, myndleikur
sem girðir fyrir að skáldið verði
Hjallabraut — laus. Vorum
að fá í einkasölu talsv. endurn. 110 fm
4ra-5 herb. íb. ó 3. hæð í góðu fjölb.
Nýl. eldhinnr., parket o.fl. V. 8,7 m.
Hvammabraut. Falleg og björt
4ra-5 herb. 115 fm íb. á 1. hæð. Park-
et. Fallegt útsýni til sjávar. Áhv. húsnlán
4,9 millj. V. 9,0 m.
Svalbarð. Ný neðri sérhæð 64 fm
í tvíb. Sérl. rúmg. og skemmtil. eign.
Skipti á minni kemur til greina. V. 10,5 m.
3ja herb.
Stekkjarhvammur. Nýl. ca90
fm 3ja herb. neðri sérhæð í tvíb. Sér-
inng. Sólstofa. V. 8,0 m.
Breiðvangur. Stór og rúmg. 110
fm 3ja-4ra herb. íb. á 1. hæö í góðu
fjölb. Nýl. eldhinnr. Áhv. húsnstjlán 3,2
millj. V. 7,9 m.
Laufás — Gbæ. Talsv. endurn.
3ja herb. risíb. í þríb. V. 5,9 m.
Fagrakinn. Falleg og snyrtil. neðri
sérhæð í tvíb. m/sérinng. V. 7,2 m.
Ölduslóð. Talsv. endurn. 70 fm
3ja herb. efri hæð m/sérinng. í góðu
steinh. ásamt 28 fm skúr á lóð. Mögul.
á að nýta ris. Áhv. húsnlán ca 3,0 millj.
V. 7,5 m.
Garðavegur. Mikið endurn. 3ja
herb. neöri sérhæð í tvíb. Nýjar innr.
Steni-klætt hús. Endurn. gluggar, gler
o.fl. V. 6,0 m.
I smíðum
Lindarberg. 216 fm parhús á
tveimur hæöum m/innb. bílsk. Húsiö
skilast fullb. að utan, fokh. að innan.
Til afh. strax. Áhv. húsbr. 5,8 millj. V.
9,5 m.
Háaberg. Parhús á tveimur hæð-
um m/innb. bílsk. alls 250 fm á góðum
útsýnisstað. Húsiö er tæpl. tilb. u. trév.
Áhv. húsbr. ca 5,3 millj. V. 11,9 m.
Aftanhæð — Gbæ. 178 fm
raöhús á einni hæð m/innb. bílsk. Til
afh. strax.
Lækjarberg. Til sölu I65fmsérl.
skemmtil. efri sérhæð ásamt 30 fm
bílsk. Eignin selst fullb. aö utan en tilb.
u. trév. að innan. Áhv. húsbr. allt aö
6,0 millj. Til afh. fljótl.
Vesturholt. 3ja-4ra herb. 99 fm
neöri sérhæð í tvib. Sérlóö. Afh. fullb.
aö utan, tilb. u. trév. að innan. Til afh.
strax. Hagst. verð.
Álfholt — sérhæðir. 148-182
fm. Fullb. að utan, fokh. aö innan.
Tækifæri f. laghenta að ná sér í stóra
eign á góðu verði.
Strandgötu 33
SÍMI 652790
Símatími ídag kl. 11-13
Óskum öllum
landsmönnum
gleðilegs sumars
Einbýli — raðhús
Fagrihjalli — Kóp. Nýl. fullb.
parhús m/innb. bílsk. alls 181 fm. Vand-
aðar innr. 3,5 millj. áhv. húsnstjlán.
Laus fljótl. V. 14,7 m.
Hrauntunga — Kóp. Gott2i4
fm raðhús á tveimur hæðum í Suðurhl.
Kóp. 4-5 svefnherb. Arinn. Fallegt út-
sýni. V. 13,2 m.
IMorðurtún — Álft. — skipti.
Gott 142 fm einb. ásamt 42 fm bílsk.
4 góö svefnherb. Góðar innr. Stór, gró-
in lóð frág. að mestu. Góð áhv. lán. V.
13,9 m.
Fagrihvammur. Glæsil. 311 fm
einb. m/50 fm tvöf. bílsk. og ca 100 fm
3ja herb. íb. á jarðhæð m/sérinng. Arinn
í stofu. Vönduð og falleg eign.
Klukkuberg. Vorum að fá íeinka-
sölu 250 fm fullb. parhús á tveimur
hæðum á fráb. útsýnisstaö. Innb. bílsk.
Vandaðar sérsmíðaðar innr. Parket,
arinn o.fl. Ákv. sala.
Svalbarð. Vorum að fá í einkasölu
nýl. 178 fm einb. á einni hæð ásamt
50 fm í kj. og 25 fm bílsk. Að mestu
fullfrág. hús. Ágætt útsýni. Ról. staö-
setn. V. 14,9 m.
Þrúðvangur. Vorumaðfáíeinka-
sölu sérl. fallegt 220 fm einb. á einni
hæð. Eignin er mikið endurn. s.s. eld-
hús, gler, hiti o.fl. Fallegur 48 fm sól-
skáli m/arni og heitum potti. Vönduð
og fullfrág. hornlóð. V. 17,9 m.
Hverfisgata. Eldra einb. jarð-
hæð, hæð og ris ásamt bílsk. alls ca
160 fm. Mögul. á séríb. eða vinnuaðst.
á jarðhæö. V. 8,5 m.
Hnotuberg. Vorum aö fá í einka-
sölu nýl. 211 fm einbhús m/innb. bílsk.
Húsið er að mestu fullb. Suðurverönd
m/heitum potti. Ról. og góður staöur.
V. 16,5 m.
Miðvangur. Vorum að fá í einka-
sölu vandað o,g vel byggt 180 fm raö-
hús á tveimur hæðum m/innb.' bilsk.
góð suöurlóö og verönd. V. 13,5 m.
Gunnarssund. Vorum að fá í
einkasölu mjög skemmtil. 127 fm eldra
steinh. Eign í góðu ástandi. Ákv. sala.
V. 8,5 m.
Kjarrmóar — Gbæ. í einkasölu
nýl., fullb. parhús á tveimur hæðum.
Góð frág. lóð. V. 10,5 m.
4ra herb. og stærri
Öldutún. Rúmg. 153 fm efri sér-
hæð ásamt 25 fm bílsk. Góð suöurlóö.
V. 10-10,5 m.
Sumarhúsaeigendur
Lertum að 60-70 fm fullbúnum sumarbústað á Suðurlandsundir-
lendi. Þarf að vera heilsárshús. Rétta eignin staðgreidd.
INGVAR GUÐMUNDSSON lögg. fasteignas., heimas. 50992
JÓNAS HÓLMGEIRSSON sölumaður, heimas. 641152.
bráð værðarlegra náttúrstemmn-
inga.
Þetta heppnast þó ekki alltaf. í
túninu heima er til dæmis geðfelld
lýsing heimkomu, en vantar ljóð-
ræna dýpt.
Prósaljóðin í lok bókarinnar, þeim
hluta sem nefnist Ilmur daganna,
eru kannski ekki sérstaklega frum-
ieg, en gædd lífi vegna óvæntra
sjónarhorna og persónulegrar
reynslu sem kemst til skila: „Finndu
frumkraftinn streyma um æðarnar
og mundu að þú ert maður og allt-
af einn í heiminum og vertu hreyk-
inn af því!“ (Timbúlimm).
Tilfinningin í ljóðum Jóhanns
árelíuzar er sönn. Lesandinn skynj-
ar að ljóðin lýsa ferð frá myrkri til
ljóss, heimurinn er skáldinu ný upp-
götvun, endurfæðing. Þetta spegla
mörg ljóðanna. „Hver dagur nýr
og heill“, segir í Syni sérhvers dags,
einu þeirra ljóða sem athygli vekur
fyrir það hve það er vel þyggt, tjá-
ir mikið í fáum orðum. Jóhann árel-
íuz hefur lært að takmarka sig,
hnitmiða ljóð sín, en hann er vissu-
lega veikur fyrir málskrúði þótt það
sé sjaldan eða ekki til skaða.
Eins og fleiri íslensk skáld fer
Jóhann árelíuz
Jóhann árelíuz stundum að dæmi
þeirra sem ruddu opnu ljóði braut.
Ljóð af þessu tagi eru til dæmis
Dunkerque og Sturm und Drang.
Opna ljóðið sýnir myndir úr hvers-
dagsleikanum, það er oft eins konar
ferðaljóð, frásögn er ekki gerð
brottræk.
Dunkerque gerist í Seyðisfjarðar-
höfn 1977. Þar liggur Smyrill og
honuin fylgir danskur bjór og fögur
kona. Á yfirborðinu er allt átakalít-
ið, en nóttin býr yfir leyndum grun.
Sturm und Drang rifjar upp ferð
með fiutningabíl til Seyðisfjarðar.
Þetta er mælskara ljóð en Dun-
kerque og í því setningar sem líkleg-
ar eru til að útrýma allri ljóðrænu.
Ég hef til að mynda varla séð jafn
óskáldlega setningu í ljóði: „Án
traustra tengsla við uppruna sinn
og sögu/ er ekki hægt að mæta
framtíðinni á farsælan hátt.“ Öðru
máii gegnir um: „Tökum til dæmis
nótt eins og þessa: Tunglið/ tjaldar
því sem til er! Hefur hellt hvítu á
hafflötinn/ og dúkar til veislu á
himinhvolfin með óteljandi skín-
andi/ stjörnum sem stíga af spegl-
um vatna í spegla himins.“ Það sem
bjargar ljóðinu (naumlega þó) er
að samspil hins vanabundna og
upphafna heppnast, skilur eitthvað
eftir hjá lesandanum.
Skáld Tehússins er eins og menn
hafa ímyndað sér að skáld ættu að
vera, fljóthuga og ör lífsnautna-
maður. Nú vill hann njóta lífsins,
gefa sér því á vald án annarra áhrifa
en þeirra sem dagsbirtan veitir. Það
er engin tilviljun að lokaljóð bókar-
innar, Án áhrifa, er skilaboð um
þetta.
Tehús águstmánans er fjölbreytt
bók eins og ráða má af ofanrituðu
og það er styrkur hennar. Hvar-
vetna heyrist sú rödd sem Jóhann
árelíuz á einn, rödd skálds sem
hefur fundið sinn tón.
Ásgerður Búadótt-
ir sýnir í Nýhöfn
ÁSGERÐUR Búadóttir opnar sýningu á myndvefnaði í Listasalnum
Nýhöfn laugardaginn 25. apríl klukkan 14 til 16. Á sýningunni verða
tíu verk ofin úr ull og hrosshári. Þau eru öll unnin á árunum 1989
til 1992.
Þetta er áttunda einkasýning
Ásgerðar í Reykjavík en hún hefur
tekið þátt í fjölda samsýninga hér
heima og erlendis. Meðal annars
hefur hún sýnt sjö sinnum með
sýningarhópnum Koloristerne á
Den Frie í Kaupmannahöfn.
Verk eftir Ásgerði eru í mörgum
opinberum söfnum og stofnunum
t.d. Listasafni íslands, Listasafni
Háskóla íslands, Röhhska listiðnað-
arsafninu í Gautaborg, Norrænu
menningarmálastofnuninni í Kaup-
mannafhöfn, Fjölbrautarskóla Suð-
urnesja, Seðlabanka íslands, Text-
ile Arts Foundation í Main, USA
og Listasafni Borgarness.
Ásgerði Búadóttur voru veitt
menngarverðlaun DV árið 1982 og
var hún kjörin borgarlistamaður
Reykjavíkur 1983 til 1984. Sýning-
in í Nýhöfn er opin virka daga frá
klukkan 12 til 18 og frá 14 til 18
um helgar. Lokað er á mánudögum.
Sýningunni lýkur 13. maí.
Ásgerður Búadóttir
21150-21370
LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
KRISTINN SIGURIÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignasau
Nýjar eignir á söluskrá:
Stór og glæsileg við Næfurás
2ja herb. íb. á 1. hæð 70 fm. Parket. Sérþvhús. Sólsvalir. 40 ára húsn-
lán kr. 2,4 millj. Laus 1. júlf. Mikið útsýni.
Á 3. hæð við Blikahóla
í þriggja hæða blokk 2ja herb. íb. m/suðursv. Vélaþvhús. 40 ára húsn-
lán kr. 2,2 millj. Laus strax.
Skammt frá KR-heimilinu
3ja herb. íb. á 1. hæð um 80 fm. Parket. Þvhús á hæð. Sólsvalir. Góð
geymsla í kj. Tilboð óskast.
Við Huiduland - tilboð óskast
5 herb. ib. á 2. hæð 120 fm. 4 svefnherb. Sérþvhús. Sólsvalir. Góður
bílsk. Endurbætur yfirstandandi utanhúss.
Glæsileg sérhæð - frábært verð
Efri hæð í þríbýlishúsi við Strandgötu í Hafnarfirðr, 4ra herb. 113 fm
nettó. Nýtt eldhús. Nýtt bað. Nýtt sérþvottahús í íb. Allt sér. Geymslu-
ris fylgir. Mikið útsýni. Verð aðeins kr. 8,1 millj.
• • •
Opið í dag kl. 10-12.
Gleðilegt sumar.
Þökkum fyrir veturinn.
AIMENNA
FASTEIGNASAIAH
lÁIIgÁvÉgM8SÍMAR2ÍÍ5Ö^2Í37Ö
Sýning á hand-
ritum Hall-
dórs Laxness
LANDSBÓKASAFN íslands hef-
ur opnað sýningu í tilefni níræð-
isafmælis Halldórs Laxness á
handritum hans í Safnahúsinu
við Hverfisgötu. Sýningin mun
standa í nokkrar vikur og er
opin sama tíma og safnið, mánu-
daga til föstudaga frá klukkan
09 til 19 og laugardaga frá 09
til 12.
Landabókasafnið varðveitir mik-
ið safn handrita skáldsins auk rita
þess bæði á frummáli og í þýðingum
á fjölda tungumála. Sýningin er í
anddyri Safnahússins.
Þú svalar lestrarþörf dagsins _
ásíóum Moeeans!
á besta staó í vesturbæ
er til sölu af sérstökum ástæöum.
íbúðin, 93 m2, hefur öll verið endurinnréttuð og er sem ný.
Verulegur hluti kaupverðs gæti greiðst með húsbréfum.
Upplýsingar hjá eiganda í símum 61 37 21, 67 68 69,
hjá Eignamiðlun í síma 67 90 90
eða hjá Húsakaupum í síma 68 28 00.