Morgunblaðið - 23.04.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRIL 1992
19
sjóði verslunarmanna. Að auki hvíla
nokkur minni bankalán á fasteign
Páls. Páll lendir í fjárhagsvandræð-
um og skuldar eftirfarandi afborgan-
ir af lánum sínum: 130.000 kr. af
láni Byggingarsjóðs ríkisins, 80.000
kr. af láni lífeyrissjóðs, af bankaláni
skuldar Páll 50.000 kr. Þá skuldar
Páll víxil að fjárhæð 30.000 kr. Ef
’ við gerum ráð fyrir að þesir skuld-
heimtumenn feli lögmönnum að inn-
heimta skuldir þessar, skuldimar
; gjaldfelldar og óskað uppboðs á fast-
eign Páls, þá lenda eftirtalin dóms-
málagjöld á Páli:
| 30.000 kr. vegna uppboðsbeiðni
Byggingarsjóðsins,
15.000 kr. vegna lífeyrissjóðsins,
9.000 kr. vegna áhvílandi bankaveð-
láns (lágmarksgjald vegna uppboðs
á fasteign).
Samtals 54.000 kr. vegna áhvíl-
andi samningsveðlána.
Vegna víxilsins þarf Páll að greiða
eftirtalin opinber gjöld:
3.000 kr. þingfestingargjald
3.000 kr. fjárnámsgjald
1.450 kr. stimpil- og þinglýsingar-
gjald,
9.000 kr. uppboðskostnaður fógeta
Samtals að fjárhæð 16.450 kr. vegna
víxils sem er 30.000 kr. að höfuðstól
og vöxtum.
Þegar Páll fer til uppboðsbeiðenda
og greiðir gjaldfallnar afborganir og
víxilkröfu, samtals að fjárhæð
I 290.000 kr., þarf hann að reiða fram
til ríkissjóðs, hvorki meira né minna
er 70.450 kr. vegna dómsmálagjalda,
I eða sem nemur u.þ.b. 'U af gjaldfölln-
um skuldum hans. Til viðbótar þessu
koma innheimtulaun lögmanna lán-
ardrottna Páls og virðisaukaskattur
þar ofan á sem að sjálfsögðu gengur
til ríkisins. Þetta dæmi sýnir að þeir
sem eiga í fjárhagserfiðleikum, eru
að beijast við að halda í skuldsettar
fasteignir sínar, eru þolendur þessar-
ar skattheimtu. Oft eru það þeir sem
lægst hafa launin. Er þessi skatt-
heimta sanngjörn? Svari nú hver fyr-
ir sig.
Dómsmálagjöld, skattur á
lögmenn?
Heyrst hefur að embætismenn og
stjórnmálamenn virðist álíta að
dómsmálagjöld séu skattur á lög-
menn og sem slíkur sé skaturinn
allra góðra gjalda verður enda séu
lögmenn allra manna ríkastir. Því sé
á fáa hallað þó að lögmenn gjaldi
sína tíund ríkulega í ríkissjóð. Slík
sjónarmið eru grundvallarmisskiln-
ingur og lýsa mikilli vankunnáttu
þeirra sem hlut eiga að máli. Að sjálf-
sögðu greiða lögmenn ekki dóms-
málagjöld úr eigin vasa, heldur eru
þau sótt í vasa sóknaraðila eða vam-
araðila, allt eftir því hveijar mála-
lyktir verða hveiju sinni.
Aðgangur að dómstólum
Hlutverk dómstóla hefur einkum
verið það að stuðla að og viðhalda
þjóðfélagslegu réttlæti og tryggja að
réttindi einstaklinga, innbyrðis og
gagnvart sívaxandi opinberu kerfi,
verði sem best tryggð og varin og
án þess hvernig efnaleg aðstaða ein-
stakra manna er hveiju sinni.
Það eru ýmsar spurningar sem
vakna í kjölfar grundvallarbreytinga
á dómsmálagjöldum, m.a. eftirfar-
andi: Er eðlilegt og sanngjarnt að
sá sem fer með hagsmuni sína fyrir
dómstóla þurfi að greiða svo há gjöld
í ríkissjóð, sem raun ber vitni? Á
aðgangur manna að dómstólum
landsins, að vera háður peningaeign
hvers og eins? Að mínu áliti er svar-
ið nei. Slíkt samræmist eigi sjónar-
miðum um jafnrétti fyrir lögum
landsins. Dómstólar eiga að vera öll-
um opnir, án tillits til fjárhagsstöðu.
Spyija má hvort sanngjarnt sé að
þolendur í dómsmálum skuli gjalda
þvílíka skatta til ríkissjóðs. Einnig
varðar þetta spurninguna um jafn-
rétti til opinberrar þjónustu. Rekstur
dómstóla er hluti af þjónustu hins
opinbera. Á aðgangur að dómstólum
að vera skattlagður umfram aðgang
að heilbrigðisþjónustu eða skólakerf-
inu svo dæmi sé tekið? Stjórnvöld
virðast hafa svarað þeirri spumingu
játandi með setningu 1. nr. 88/1991.
Hvers vegna?
Opinber umræða um aðgerðir hins
opinbera á að vera sjálfsögð og eðli-
leg í nútímasamfélagi. Af ákveðnum
ástæðum hefur umræða um gjöld
þessi verið lítil sem engin. Ein ástæða
er sú að ríkisstjórnin mun hafa kynnt
fyrirhugaðar hækkanir á gjöldunum
sem trúnaðarmál fyrir Lögmannafé-
lagi íslands og að líkindum í þeim
tilgangi að forðast opinbera umræðu
um málið. Þessi afstaða ríkisstjórnar
er alvarlegt umhugsunarefni, svo
ekki sé meira sagt. Það er eðlilegt
að veigamiklar breytingar á löggjöf
landsins, þ.m.t. dómsmálagjöldum,
fái opinbera umræðu þar sem fagleg
og pólitísk sjónarmið eru reifuð um
málið. Dómsmálagjöld eru ekki að-
eins hagtölur á blaði heldur varða
grundvallaratriði í okkar þjóðfélagi,
sem eru réttur þegnanna til þess að
leita til dómstóla landsins og skylda
þegnanna til þess að hlíta úrlausnum
dómstóla.
. Það blandast engum hugur um að
efnahagur er ákaflega slæmur og
verk ríkisstjórnar er vandasamt og
vanþakklátt í þeirri viðleitni að
stemma stigu við halla ríkissjóðs. í
því verki eiga „landsfeður" að njóta
trausts ef haldið er vel á málum.
Að sama skapi hlýtur að verða að
gera þá kröfu til alþingismanna að
ákvarðanir séu teknar að vandlega
athuguðu máli og eftir ákveðnum
viðurkenndum grundvallarsjónar-
miðum. Án slíkra vinnubragða eru
þeir eigi traustsins verðir.
Hækkun dómsmálagjalda er að
mínu áliti ákaflega vanhugsuð að-
gerð er grannt er skoðað. Hækkunin
er í senn ólíkleg til þess að auka fé
ríkissjóðs þegar til lengri tíma er lit-
ið og brot á þeirri grundvallarreglu
sem gilt hefur um jafnan aðgang
þegna landsins að því réttlæti sem
felst í úrlausnum dómstóla. Hækkun
dómsmálagjalda er af þessum sökum
upphafið að afar óheillanvænlegri
þróun sem ekki verður séð fyrir end-
ann á með sama framhaldi. Þessari
þróun verður að snúa við.
Það er tímabært að stjórnmála-
menn, embættismenn sem um málið
fjalla og hagsmunasamtök neytenda
og launþega gefi þessu máli gaum.
Fj ölskyldudagur
á Pizza Hut
*
I dag er upplagt fyrir fjölskylduna aö koma
á Pizza Hut og gæða sér á gómsætri
fjölskyldupizzu. Börnin fá frían Islurk
frá Emmess.
Fjölskyldupizzan er heil rnáltíö
fýrir 4-6 manns.
Gerðu þér dagamun og komdu
með fjölskylduna á Pizza Hut í dag.
eMmSsS1
Ilótel Esju, sími 68 08 09 • Mjódd, sími 68 22 08
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.
>
I
I
I
EITT
ARGJALD
FYRIR BÆÐI
SAGA Ánægjunnar, sem þú nýtur á Saga Business Class, nýturðu
BUSINESS kest me^ ÞV1 deila henni með þeim sem þér þykir vænst
um. Þess vegna bjóða Flugleiðir farþegum, sem greiða
fullt Saga Business Class fargjald, sérstök vildarkjör:
frímiða fyrir maka til New York og Baltimore og til allra áfangastaða í
Evrópu utan Norðurlanda og 90% afslátt af fargjaldi til áfangastaða á
Norðurlöndum. Auk þess bjóðum við á Norðurlöndum 8000 kr. upp í
hótelkostnað í sömu ferð.* - Gefðu maka þínum tækifæri til að kynnast
kostum þess að fljúga með Saga Business Class.
Breyttu venjulegri viðskiptaferð
í einstaka upplifun fyrir ykkur bæði.
Ífe
FLUGLEIDIR
Traustur iilemkur feróafélagi
♦Tilboð þetta gildir til 31. maí og á hótelum sem Flugleiðir hafa samning við.
eOTT FÓLK/SlA.