Morgunblaðið - 23.04.1992, Side 25

Morgunblaðið - 23.04.1992, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRIL 1992 25 Slaki í hag*stjórn á kosningaári meginorsök mikils viðskiptahalla Efnahagsþróunin snýst til hins verra á þessu ári ÁRIÐ 1991 var tiin margt hagstætt ár þar sem bæði landsframleiðsla og þjóðartekjur jukust nokkuð, viðskiptakjör bötnuðu mjög, kaupmátt- ur ráðstöfunartekna jókst og verðbólgan var mjög lítil. Á móti kom mikill halli á viðskiptum við útlönd sem stafaði einkum af slaka í hag- stjórn í aödraganda alþingiskosninga. Á þessu ári má hins vegar gera ráð fyrir að efnahagsþróunin snúist til hins verra, hagvöxtur verði iít- ill, afkoma atvinnuveganna versni, kaúpmáttur rýrni, atvinnuleysi auk- ist en um leið minnki neysla og halli á viðskiptum við útlönd. Þetta kemur fram I nýrri greinargerð Þjóðhagsstofnunar um framvindu þjóð- arbúskapar 1991 og horfur 1992. Þjóðhagsstofnun segir í greinar- gerðinni um þjóðarbúskapinn að eftir öllum sólarmerkjum að dæma virðist langþráður bati í efnahagsmálum í heiminum nú í augsýn. Þetta geti haft mikla þýðingu fyrir Islendinga, sé meðal annars fórsenda þess að áhugi vakni á ný á að ráðast í álvers- framkvæmdir hér á landi. Þá sé aug- ljóst að ótryggt efnahagsástand dragi að öllu jöfnu úr eftirspurn eft- ir vörum og þjónustu og komi fram í minni milliríkjaviðskiptum en elia. Stofnunin telur þó að hægur vöxt- ur útflutningstekna íslendinga muni setja hagvexti skorður á næstu árum, meðan ekki sé gert ráð fyrir að fram- kvæmdir við álver hefjist. Óvíst sé til dæmis um aukningu á framieiðslu sjávarafurða í ljósi upplýsinga um þorskstofninn. Hins vegar muni verð- mæti sjávarafurða aukast lítillega sem og framleiðsla og verð á kísil- járni og áli og verðlag á helstu út- flutningsmörkuðum aukist umfram Rangur birt- ingardagur Minningargrein um Ernu Sæ- mundsdóttur birtist í Morgunblaðinu í gær, en útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 28. apríl klukkan 13.30. Greinin hefði því átt að birtast þann dag og biðst Morgunblaðið velvirðingar á mistök- unum. verðlagsbreytingar erlendis, m.a. vegna EES-samningsins. Þá aukist tekjur af ferðaþjónustu. Gert er ráð fyrir að landsframleiðsla, þjóðar- framleiðsla og þjóðartekjur aukist um 1% árlega næstu þrjú ár, þjóðar- útgjöld standi í stað, útflutningur aukist um 1,5% á ári, kaupmáttur ráðstöfunartekna standi í stað, at- vinnuleysi minnki lítillega, verðbólga verði eins og í öðrum OECD-ríkjum eða 3-4%, og viðskiptahalli minnki í 1,5% af landsframleiðslu að jafnaði, en viðskiptahalli var 4,9% á síðasta. ári og er áætlaður 3,9% af landsfram- leiðslu á þessu ári. Viðskiptakjör bötnuðu uin 4,5% í yfirliti Þjóðhagsstofnunar yfir þjóðhagsstærðir á síðasta ári kemur fram að það hafi verið um margt hagstætt. Landsframleiðsla jókst um 1,4% og þjóðartekjur enn meira eða um 2,8% vegna mikils viðskiptakjara- bata. Verðmæti útfluttra sjávaraf- urða í íslenskum krónum hafi til dæmis aukist um tæplega 5% þrátt fyrir 'minni afla vegna 12% verð- hækkunar á erlendum mörkuðum og verð útflutningsafurða hafi í heild hækkað um 7,5%. Um leið hækkaði verð innflutningsvara minna en sem svaraði verðbólgu í viðskiptalöndun- um. Því eru viðskiptakjör í vöruvið- skiptum talin hafa batnað um 4,5% á árinu. Rekstrarskilyrði botnfiskveiða og vinnslu voru nokkuð góð á síðasta ári, einkum þó framan af árinu, en versnuðu síðari hluta ársins. Þá fór að gæta mikils samdráttar í botn- fiskafla og mikillar hækkunar á hrá- efnisverði sem var mun meiri en verðhækkun á ísfiski í Evrópu. Rekstrarskilyrði annarra sjávarút- vegsgreina voru hins vegar verri. Þá er talið að afkoma atvinnurekstrar í heild hafi verið jákvæð um 1,5% af tekjum. Ríkisfjármál á síðasta ári ein- kenndust af miklum halla og skuldá- söfnun ríkissjóðs við Seðlabanka. Þjóðarútgjöld í heild jukust um 5,7% milli áranna 1990 og 1991 meðan útgjöldin jukust um innan við 1% árið áður. Þessi aukning stafaði af aukinni neyslu, bæði einkaneyslu og samneyslu. Þannig jókst einkaneysl- an um 5,6% og samneyslan jókst um 4,5% eða 74 milljarða króna. Þjóð- hagsstofnun segir að þessa aukningu megi fyrst og fremst rekja til sam- neyslu á vegum ríkisins sem jókst um 7% árið 1991 samanborið við 2% vöxt samneyslu sveitarfélaga. Þessi aukna neysla kom fram í verulega auknum innflutningi. Þjóð- hagsstofnun segir að framan af árinu hafi ríkt almenn bjartsýni um að efnahagslægðinni, sem hófst árið 1988 væri að ljúka. Einnig hafi ‘ slaknað á hagstjórninni í aðdraganda alþingiskosninganna í apríl. Þegár leið á árið dró hins vegar úr innflutn- ingi og segir Þjóðhagsstofnun að þar hafi tvennt lagst á sömu sveif: að- haldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar í maí og einnig varð ljóst á miðju ári að draga yrði enn úr fiskafla. Þrátt fyrir þetta varð tvöfalt meiri halli á viðskiptum við útlönd á árinu 1991 en árið áður eða 19 milljarðar króna sem svarar til 4,9% af landsfram- leiðslu og vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 3,1 milljarð króna en var hagstæður um 4,8 milljarða árið áður. Talsvert svigrúm til hagræðingar Um horfur á þessu ári segir Þjóð- hagsstofnun að landsframleiðsla geti dregist saman um 2,8% og þjóðar- tekjur um 3,8%. Kaupmáttur ráðstöf- unartekna á mann dragist saman um 3% milli áranna 1991 og 1992 og þessi samdráttur sé þegar kominn fram. Þá aukist atvinnuleysi á þessu ári og verði að meðaltali 2,5% af vinnuafli sem jafngildir um 3.000 manns. Þetta eru ekki alveg eins dökkar horfur og komu fram í síðustu þjóð- hagsáætlun í desember. Þó afkoma sjávarútvegs sé afleit um þessar mundir gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir að á móti samdrætti í botn- fiskafla komi aukning í loðnu, rækju og hörpuskel og reiknar einnig með hagkvæmari ráðstöfun aflans sem leiði til vinnsluvirðisauka. Þá er gert ráð fyrir aukinni framleiðslu á áli og kísiljárni og öðrum útflutnings- greinum og auknum tekjum af ferða- mönnum. Þjóðhagsstofnun reiknar með að viðskiptakjör rýrni um 4% á þessu ári, m.a. vegna lægra fískverðs. Þá muni hagur sjávarútvegs versna en jafnframt sé töluvert svigrúm tii að bæta afkomu hans með hagræðingu og endurskipulagningu, ekki síst í ljósi þess að afkastageta greinarinn- ar sé mikil miðað við aflahorfur á næstu ánim. Gert er ráð fyrir að þjóðarútgjöld dragist saman um 4,4% á árinu. Þannig minnki einkaneysla um 4,5% í ljósi á áætlunar um samdrátt ráð- stöfunartekna en einnig vegna þess að mikil neysla á síðasta ári umfram tekjubreytingar hafi haft í för með sér aukna skuldsetningu heimilanna sem takmarki neysluaukningu á þessu ári. Spáð er 0,3% minni sam- neyslu á þessu ári og er sú spá byggð á fjárlögum og útgjaldaáformum sveitarfélaga. í ljósi þessa segir Þjóðhagsstofnun að gera megi ráð fyrir að vöruskipta- jöfnuður verði aftur hagstæður á þessu ári og halli á viðskiptum verði um 15 milljarðar króna eða 3,9% af landsframleiðslu. John A. Speight. John Speight formaður Tónskálda- félagsins NÝLEGA var haldinn aðalfundur í Tónskáldafélagi íslands. Breyt- ingar urðu í stjórn félagsins, þar sem Hjálmar H. Ragnarsson, sem hefur verið formaður undanfarin fjögur ár, baðst undan endur- kjöri. Nýr formaður var kjörinn, John A. Speight, og með honum í stjórn eru Haukur Tómasson og Árni Harðarson. Eitt af helstu verkefnum nýrrar stjórnar verður undirbúningur Myrkra músíkdaga ’93, veglegrar hátíðar samtímatónlistar í Reykjavík í febrúar- á næsta ári. Þar munu koma við sögu fjölmörg tónskáld og flytjendur nýrrar tónlistar, bæði ís- lenskrar og erlendrar, og verður sérstök áhersla lögð á að kynna tón- list frá Skotlandi. Mun hátíðin í ýmsum atriðum treysta þau ís- lensk/skosku tengsl sem hafa mynd- ast í undirbúningi að íslenskri menningarviku í Glasgow í júní nk. Nissan stórsýningar ísafirði og Reyðarfirði ‘"'"‘"“í" á þrem stööum á landinu, Frábær verð Verðdæmi: Nissan Sunny stallbakur SLX 1BOO cc 4ra dyra 16 ventla vél, 4ra þrepa sjálfskipting, aflstýri, samlæsingar á hurðum, rafdrifnar rúður, upphituð sæti og margt, margt fleira Staðgreiðsluverð er kr. 1.014.000 Bílaleigunni Erni ísafirði-, Lykli Reyðarfirði og að Sævarhöfða 2 Reykjavík. Á ísafirði verður t. d. boðið uppá reynsluakstur á Nissan Patrol diesel og sjálfskiptum Nissan Terrano 6 cyl. Notaðir bílar metnir á staðnum. NI55AN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.