Morgunblaðið - 23.04.1992, Page 50

Morgunblaðið - 23.04.1992, Page 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992 Gættu að þér. Ég kem af karate-námskeiði... BREF TIL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Dónaskapur á fréttastofu hljóðvaips Frá Siglaugi Brynleifssyni: RÁÐHÚS Reykjavíkur var vígt 14. apríl sl. á sömu stundu og degi sem ætlað var við fyrstu skóflustungu. Þetta hús er fyrsta ráðhús Reykja- víkurborgar, sem er reist sem ráð- hús. Ráðhúsin í borgum Evrópu eru táknrænar byggingar um menningarhefðir, vald og reisn þeirra sem mótað hafa borgirnar. 14. apríl 1992 er sögulegur dag- ur í fremur skammri sögu Reykja- víkurborgar, sé miðað við hundruða ára sögu evrópskra menningarborga. í tilefni vígslunnar var boð haft inni af borgaryfirvöldum, sem hæfði þessum sögulega atburði. Vígslan þennan dag var því hátíðis- dagur. Borgarbúar tóku þátt í þeirri hátíð, þótt skoðanir manna á byggingunni hefðu verið mjög mismunandi. Menn áttuðu sig á þýðingu sögulegrar stundar í sögu borgarinnar. Fjölmiðlar greindu frá vígslunni á þann hátt sem hæfði og sam- kvæmt siðum siðaðra manna. Þó var hér á ein undantekning, sem var annar aðalgeiri íjölmiðlunar ríkisútvarpsins, fréttastofa hljóð- varps. í kvöldfréttum 14. apríl var greint frá atburðum liðins dags hér heima og erlendis og ef mig mis- minnir ekki þá kom „kaffihlaðborð- ið“ við sögu, einnig harmagrátur yfir aðgerðum vestrænna þjóða gegn Líbýu og þeim nýja dýrðar- manni og eftirlæti fréttamanna stofnunarinnar, Gaddafi. Þessar fréttir sátu í fyrirrúmi. Seint, ef ekki síðast í fréttatíma, var sagt lauslega frá vígslu ráðhússins og við þá frétt var pijónað þusi einnar stjórnarandstöðuskjóðunnar, sem voru ekki beinlínis neinar hamingjuóskir til Reykvíkinga á þessum hátíðsdegi eða þeirra sem höfðu haft frumkvæði að byggingu fyrsta ráðhúss borgarinnar og unn- ið að því gð gera það sem vandað- ast. Þessi dónaskapur fréttastofu hljóðvarpsins er tengdur baráttu starfskraftanna gegn núverandi ríkisstjórn, sem glögglega kemur í ljós í allri fréttamiðlun þeirra og fréttaskýringum innlendra at- burða. í þeim langsömu samningaviðræðum undanfarna mánuði virðist fréttastofa hljóð- varps vera mjög höll undir þá ein- staklinga sem telja sig vera full- trúa „þjóðarinnar“ í baráttunni gegn vondri ríkisstjórn sem ætlar, að þeirra skoðun, að rústa velferð- arkerfið og menntunina í landinu. Eins og allir mega sjá hefur vel- ferðarkerfið verið vel nýtt af þeim sem þarfnast takmarkaðs fjár- hagslegs velferðarkerfis og um menntunina er það að segja að skólastefna undanfarinna áratuga er langt komin með að rústa menntun í landinu og að þeirri stefnu hafa staðið þeir aðilar sem hæst geipa um áhuga „kennara- samtakanna" um menntun og menningu. Þar keyrði um þverbak í valdatíð stofnanda „þeirrar litlu menningarskrifstofu“ í London. En sá maður ætlaði sér að ijölga starfskröftum fræðslugeirans um Frá Gesti Sturlusyni: EINN af mínum uppáhaldsþáttum í Sjónvarpinu er náttúrulífsþættir David Attenborough. Þar fer sam- an góður texti og frábær mynda- taka. Einn af þessum þáttum er mér einna minnisstæðastur, þar sem hann fjallaði um varnartæki og tækni dýra í sókn og vörn. Mörg af þessum vígtólum dýranna eru stórhættuleg ef þeim er beitt af fullu afli. En eitt áttu þessi dýr sem hér var um íjallað sameigin- legt. Þau beittu þeim aldrei innan sinnar tegundar. Þeim var einung- is beitt til ógnunar í lífsbarátt- unni, aðalega baráttu um maka og fæðu. Auðvitað gátu slys átt 2.000 manns og samkvæmt skoðun glöggs manns, yrðu um 1.600 þeirra starfskraftar á skrifstofum. Því greip um sig mikið írafár þeg- ar loksins kom til sögunnar mennt- amálaráðherra sem vinnur að því að reisa við fræðslukerfið þeim til farsældar sem það er ætlað, en ekki þeim sem hafa notað það sjálf- um sér til nokkurs ábata, sem eru nú skeleggastir baráttumenn „kennarasamtakanna". Barátta forystumanna ríkis- starfsmanna og kennarasamtaka er orðin svo Ieiðigjörn við kaffi- hlaðborðið að sá góði Jaki, segist aldrei hafa tekið þátt í jafn hrút- leiðinlegum viðræðum og vill hverfa af þessum baráttuvettvangi hlaðborðsins. En fréttastofa hljóð- varps heldur sínu striki og síðasta dæmið um aðferðirnar og dóna- skapinn er aðför þeirra sem ala sem mest á almúga-meinseminni gegn því sögulega afreki, sem bygging ráðhúss Reykjavíkur er. SIGLAUGUR BRYNLEIFSSON sér stað en það voru bara undan- tekningar sem sönnuðu regluna. Og þá var mér augljós ein hræði- leg staðreynd. Maðurinn er eina tegundin á þessari plánetu sem drepur innan sinnar tegundar með þeim hræðilegu afleiðingum sem við höfum daglega fyrir augum, einnig í íjölmiðlum. Mannkynssag- an er blóði drifin og nú hefur maðurinn tækni og mátt til að eyða öllu lífi á jörðinni. Þarna hafa orðið einhver mistök með lífið og þar á ég fyrst og fremst við mann- inn á þessari jörð. GESTUR STURLUSON Hringbraut 50 Reykjavík Mistök? HOGNI HREKKVISl ,,UÞ(>SK£(ZAN þ'/N £K -DAUÐAD/&MD-- • ' H(N HK4FÐ/LB<3A KATTAA1/N TUBJAL L A. Víkverji skrifar að heyrast margar sögur af fermingarbömum þessa dag- ana. Aðallega eru þær tengdar margréttuðum matarveislum og gjafmildum gestum. Skrifari var einn af mörgum sem nýlega sótti fermingarveislu austur á Hvolsvelli. Gestum var sagt að maturinn yrði kjötsúpa og súpukjöt. Tóku margir þessu sem gríni og trúðu mátulega. En þetta er uppáhaldsmatur stúlk- unnar sem fermdist og við loforðið var staðið enda veislan henni til heiðurs. Eftir að veislugestir höfðu sann- færst létu þeir sér vel líka. Voru þeir að lokum saddir og sællegir af alvöru mat, en ekki mettir af sykri og mæjonesi. Á eftir var síðan kaffi og pönnukökur ásamt fleiru. Má hrósa foreldrunum fyrir hug- rekkið að brjótast út úr hefðinni. Fermingarbarnið var líka ánægt og þá er tilganginum náð. Undanfarið hefur verið mikið ritað og rætt um fermingar- gjafir. Þótt frásagnir af óhóflegum gjöfum hljóti í sumum tilfellum að vera orðum auknar virðast viðmæl- endur ijölmiðla sammála um að ef verið er að ferma einhvern nákom- inn, til dæmis systkinabarn, þá dugar ekkert minna en tíu þúsund krónur. Ef gesturinn slæðist hins vegar inn í fermingarveislu hjá ein- hveijum sem hann er lítt tengdur, t.d. barni samstarfsmanns, þá er upphæðin eitthvað lægri, en dijúg samt. Víkveiji á nokkur systkina- börn á svipuðu reki og þótt enn séu allmörg ár þar til þau fermast er ekki ráð nema í tíma sé tekið. Mið- að við kröfurnar er þrautalendingin fyrir Víkveija sú að helja reglu- bundinn sparnað hið snarasta, svo hann verði sér ekki til skammar vegna snautlegra gjafa um alda- mótin. Eða er ef til vill mál að linni? í Morgunblaðinu síðastliðinn sunnudag birtist grein um ferming- ar og þó frekar um veislurnar og óhófið en hina trúarlegu hlið þessar- ar stóru stundar í lífi unglinganna. Einnig var greint frá dæmum um hvernig staðið er að fermingarveisl- um í nokkrum nágrannalöndum okkar. Þar kom fram að tilstandið í kringum ferminguna er miklum mun minna en hér á landi og yfir- leitt er aðeins nánustu fjölskyldu fermingarbarnsins boðið til veislu. xxx Islendingar fagna sumarkomunni á hefðbundinn hátt í dag og í huga Víkveija er þessi séríslenski hátíðisdagur alltaf gæddur sérstök- um ljóma. Fyrir nokkrum árum var skrifari staddur á sumardaginn fyrsta á Skagaströnd og þó snjó- hraglandi væri og kalt í loftj var vor í svip krakkanna sem fóru í skrúðgöngu með íslenska fánann. Vonandi fá þau og aðrir landsmenn gott veður í dag og gott og gleði- legt sumar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.