Morgunblaðið - 23.04.1992, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992
51
Zontaklúbburinn
Þórunn hyma
Frá Anný Larsdóttur:
EITT af markmiðum Zontasam-
takanna, sem eru alþjóðleg sam-
tök, er að vinna að hvers konar
velferðarmálum og þjóna heima
og heiman. Auk þess að taka þátt
í alþjóðlegum verkefnum Zonta
hefur Zontaklúbburinn Þórunn
hyrna látið til sín taka ýmis verk-
efni á heimavelli. Langtímaverk-
efni klúbbsins er að styrkja bóka-
safn Háskólans á Akureyri með
sérstaka áherslu á heilbrigðisbraut
skólans, en einnig sinnir klúbbur-
inn einstökum tilfallandi verkefn-
um sem ákveðin eru í upphafi
starfsárs hveiju sinni. Má þar
nefna stuðning við iðjuþjálfun við
Sel, hjúkrunardeild aldraðra á
FSA, fegrun umhverfis í Skjaldar-
vík, kaup á bekkjum sem staðsett-
ir eru í Innbænum o.fl.
Á liðnu hausti ákvað klúbburinn
að beita sér fyrir kaupum á nýrna-
vél sem nýtast skyldi Finni Eydal
meðan hann þyrfti á henni að
halda, en síðan öðrum Norðlend-
ingum í sömu aðstöðu og Finnur
og fjölskylda hans hafa verið.
Þessu verkefni er nú lokið og
er vélin staðsett á heimili Finns
og Helenu Eyjólfsdóttur. Tilkoma
vélarinnar gjörbeytir lífí fíölskyld-
unnar sem hefur þurft að sa?kja
alla þjónustu til Reykjavíkur fram
að þessu. Hér var um að ræða stórt
verkefni og þótt Zontaklúbburinn
Þórunn hyrna hafi haft forgöngu
um málið voru fíölmargir sem
lögðu hönd á plóginn og gerðu
þetta mögulegt.
Zontaklúbburinn Þórunn hyrna
vill þakka öllum þeim sem stutt
hafa verkefnið, tónlistarmönnum
og öðrum sem stóðu fyrir styrktar-
tónleikum í Sjallanum 6. desember
sl. svo og einstaklingum og félaga-
samtökum sem með framlagi sínu
gerðu nýrnavél á heimili Finns
Eydals að veruleika.
Kærar þakkir allir, það er góð
tilfinning að vita að við látum okk-
ur hvort annað einhvefíu varða.
Með kveðju og ósk um bjarta
framtíð okkur öllum til handa, f.h.
Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu,
Akureyri,
ANNÝ LARSDÓTTIR,
Sveinbjarnargerði,
Svalbarðsstrandarhreppi,
S-Þingeyjarsýslu.
Pennavinir
Frá Filippseyjum skrifar stúlka
sem vill skrifast á við 25-30 ára
karlmenn:
Elsie Ora,
418 Bakilid 11,
Mandaue City,
6014 Cebu,
Philippines.
Ástralskur 63 ára karlmaður með
áhuga á íþróttum og bréfaskriftum.
Á pennavini víða um heim en ekki
á Islandi og vill bæta úr því. Er
fyrrum opinber starfsmaður kominn
á eftirlaun:
Noel Logue,
24 Lorando Avenue,
Sefton,
New South Wales 2162,
Australia.
LEIÐRÉTTIN G AR
Rangt nafn
MISRITUN varð á nafni Kolbeins
Ágústssonar sölusfíóra hjá Sölufé-
lagi garðyrkjumanna í frétt í Morg-
unblaðinu í gær. Hann er beðinn
velvirðingar á þessum mistökum.
Misritun
MISRITUN varð í minningargrein
um Ólaf Kjartan Guðjónsson eftir
Valdimar Indriðason í Morgunblað-
inu í gær. Kafli í greinninni átti að
vera svohljóðandi:
„Haustið 1963 fluttu þau Ólafur
og Filippía til Akraness, ásamt dótt-
ur sinni. Ólafur gerðist þá verslun-
arstjóri við útibú Kaupfélags Suður-
Borgfirðinga, sem var við Stillholt
á Akranesi. Þar starfaði hann til
haustisins 1966, en þá stofnaði
hann eigin verslun er hann nefndi
Valfell og verslaði þar aðallega með
búsáhöld og rafmagnsvörur. Þessa
verslun rak hann til hausts 1977,
en þá seldi hánn og gerðist af-
greiðslumaður í verslun Axels
Sveinbjörnssonar hf. og starfaði þar
fram í september 1991.“
Beðist er velvirðingar á þessari
misritun.
Ætlið þið í bátsferð?
Munið - björgunarvesti fyrir alla bát-
sverja. Klæðist hlýjum fatnaði og góðum
hlífðarfötum í áberandi lit.
SUBSTRAI
BLÓMAÁBURÐUR
BUNAÐARBANKl
ÍSLANDS
NÁMSfl
LÍNAN *
Umsóknarfresturum námsstyrki Námsmannalínunnar
er til 1. maí.
Veittir veröa 8 styrkir hver aö upphæð 150 þúsund
krónur.
Styrkirnir skiptast þannig:
* Fjórir útskriftarstyrkir til nema viö Háskóla
íslands sem skiptast þannig:
a) Heilbrigðisgreinar.
b) Verkfræði, raunvísindi.
c) Lögfræði, viöskiptafræði og hagfræði.
d) Félagsvísindi, guðfræði og heimspeki.
* Tveir námsstyrkir til námsmanna erlendis.
* Tveir útskriftarstyrkir til nema á háskólastigi/
sérskólanema.
Umsóknareyðublöð eru til afhendingar í öllum útibúun
Búnaðarbanka íslands.
Einungis aðilar í Námsmannalínunni eiga rétt á að sækja
um þessa styrki.
Umsóknum skal skilað fyrir 1. maí til
BÚNAÐARBANKA ÍSLANDS
Markaðsdeild
Austurstræti 5
155 Reykjavík.
JHóTíJMWfefoiifcr
Meirn en þú getur ímyndad þér!