Morgunblaðið - 23.04.1992, Qupperneq 56
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ
—> ,
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
StMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1655 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Litið
yfir far-
inn veg
Halldór Laxness á 90 ára afmæli
í dag. Afmælisins verður minnst
með margvíslegum hætti í dag og
á afmælisárinu öllu, bæði hér
heima og erlendis. í dag verður
heiðursganga að Gljúfrasteini og
fjögurra daga Laxness-veisla hefst
í Þjóðleikhúsinu. Myndin var tekin
á Gljúfrasteini á dögunum af Hall-
dóri og Auði konu hans að skoða
gamlar myndir frá ferli skáldsins
sem safnað hefur verið saman
vegna myndabókar um ævi Hall-
dórs sem gefín verður út síðar á
afmælisárinu.
Sjá ennfremur forystugrein
og greinar á miðopnu og bls.
12, 13 , 14 og 15.
Ljósmynd: Jóhannes Long
Islenskur hjúkrunarfræðingur
skotinn til bana í Afganistan
Mikill sorgardagur, segir Guðjón Magnússon varaforseti alþjóða Rauða krossins
ÍSLENSKUR hjúkrunarfræðingur, Jón Karlsson, var skotinn til
bana í Afganistan í gær, þar sem hann var að störfum fyrir Rauða
krossinn. „Þetta er mikill sorgardagur fyrir Rauða krossinn og við
sendum aðstandendum Jóns innilegustu samúðarkveðjur,“ sagði
Guðjón Magnússon, einn af varaforsetum alþjóða Rauða krossins.
Tvær íslenskar konur eru að störfum á sjúkrahúsi í höfuðborginni
Kabúl. í samtali við starfsmenn Rauða kross íslands i gær kváðust
þær óhultar, en höfðu þá ekki tekið ákvörðun um hvort þær kæmu
heim.
Jón Karlsson fór í gær frá Kab-
úl til bæjarins Mayden Shar, um
30 kílómetrum sunnan við höfuð-
Ixtrgina. Með í för voru svissneskúr
læknir og hjúkrunarfræðingur. Þeir
ætluðu að ná í tvo særða menn og
flytja þá á sjúkrahús Rauða kross-
_ins í Kabúl. Hópur fólks fylgdist
með þegar hinir særðu voru fluttir
í sjúkrabifreiðina. Skyndilega skaut
maður í mannþrönginni af riffli að
Jóni, sem lést samstundis. Sam-
starfsmenn Jóns sakaði ekki.
Ódæðismaðurinn hrópaði um leið
upp trúarlega yfirlýsingu, að sögn
Reuters-fréttastofunnar. Hann var
tekinn höndum af nærstöddum
mönnum og á dauðarefsingu yfir
höfði sér, samkvæmt heimildum
Reuters.
Jón Karlsson var tæplega 39 ára
gamall, fæddur 14. maí árið 1953.
Hann var fæddur í Melgerði í Eyja-
fírði og ólst upp á Dvergstöðum í
Hrafnagilshreppi. Foreldrar hans
eru Karl Frímannsson bóndi á
Dvergstöðum og Lilja Randvers-
dóttir kona hans.
Jón lauk stúdentsprófí frá MA
árið 1974 og námi frá Hjúkrunar-
skóla íslands í janúar 1981. Hann
starfaði lengstum sem hjúkrunar-
fræðingur á Borgarspítalanum að
námi loknu. Frá árinu 1985 hefur
hann farið sjö sinnum á vegum
Alþjóðaráðs Rauða krossins og
Rauða kross íslands til hjálpar-
starfa á sjúkrahúsum í námunda
við vígvelli og hefur starfað í Tæ-
landi, Pakistan, Suður-Súdan og
Afganistan, en þangað kom hann
í þriðja skipti skömmu fyrir síðustu
mánaðamót. Hann var einn af
reyndustu sendifulltrúum Rauða
kross íslands. Jón var formaður
Reykjavíkurdeildar Hjúkrunarfé-
lags íslands um tíma.
Jón Karlsson kvæntist fyrir rúm-
um mánuði breskri konu, Jenny
Hayward. Þau voru barnlaus. Hún
hefur verið við hjálparstörf í Sómal-
Jón Karlsson
íu, en fór í gær áleiðis til Afganist-
an.
Sjá nánar á bls. 24.
Alþjóðlegar stafa-
töflur fyrir tölvur:
Tillögnr um
að fella út
séríslensku
stafina þ og ð
MAGNÚS Hauksson, verkfræð-
ingur hjá gagnaflutningsdeild
Pósts og síma, greinir frá því í
nýjasta tölublaði fréttabréfs Pósts
og síma um tölvusamskipti, að á
erlendum vettvangi hafi komið
fram tillögur um að fella sérís-
lensku stafina Þ, þ og Ð, ð út úr
alþjóðlegum stafastöðlum fyrir
tölvur til að rýma fyrir öðrum sem
ekki eru til staðar en fleiri nota.
Magnús sagði í samtali við Morg-
unblaðið að til væru nokkrir alþjóð-
legir staðlar til notkunar í tölvubún-
aði en pláss fyrir tákn í stafatöflun-
um væri þröngt. „Það hafa komið
fram tillögur um að færa þessa sérís-
lensku stafi úr grunntoflum á ein-
hveija aðra staði þar sem óhægara
yrði um vik að nálgast þá. „Ef þetta
yrði gert myndi það væntanlega hafa
í för með sér að tölvubúnaður yrði
framleiddur i samræmi við þessar
stafatöflur og það myndi aftur þýða
að á íslandi yrði að hafa sérbúnað
sem væri jafnframt dýrari en ella.
Við munum gera okkar besta til að
koma í veg fyrir þetta þar sem við
höfum möguleika á,“ sagði Magnús.
-----♦ » ♦
Lambakjöt á
lágmarksverði
hækkaði um
13% á einu ári
VERÐ á lambakjöti á lágmarks-
verði sem Samstarfshópur um sölu
lambakjöts býður sérpakkað á sér-
stökum tilboðskjörum á timabilinu
febrúar-maí hefur hækkað um
12,9% frá sama tíma í fyrra.
Að sögn Katrínar Olgu Jóhannes-
dóttur starfsmanns samstarfshóps-
ins eru skýringar hækkunarinnar
þær að skráð heildsöluverð kjötsins
hækkaði um 11% á milli ára, vinnu-
laun hækkuðu um 10% og umbúðir
hækkuðu um 5%. Á móti hefðu niður-
greiðslur hækkað um 14,6%, og verð
til sláturhúsa á milli ára um 12,5%.
María Rún
_ var kjörin
ung’frú Is-
land 1992
Fegurðardrottning ís-
lands 1992 var valin María
Rún Hafliðadóttir, en kjör-
ið fór fram á Hótel íslandi
í gærkvöldi. Hún var jafn-
framt valin besta ljós-
myndafyrirsætan. Hún er
19 ára gömul, nemandi í
Menntaskólanum við
Hamrahlíð, og hefur m.a.
starfað í þrjú ár við fyrir-
sætustörf erlendis.
í 2. sæti varð Heiðrún
Anna Björnsdóttir, í 3. sæti
Þórunn Lárusdóttir, í 4. sæti
Ragnhildur Sif Reynisdóttir
og í 5. sæti varð Jóhanna
Dögg Stefánsdóttir. Keppend-
ur völdu einnig vinsælustu
stúlkuna úr sínum hópi, Erlu
Dögg Ingjaldsdóttur.
Davíd Oddsson, forsætisráðherra:
Samningar og vaxtalækk-
anir auka atvinnuöryggi
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra, segir að nýir kjarasamningar
og vaxtalækkun í kjölfar þeirra sé til þess fallið að styrkja atvinnu-
líf og auka atvinnuöryggi til lengri tíma. Fulltrúar Alþýðusam-
bands íslands, Vinnuveitendasambands íslands og Vinnumálasam-
bands samvinnufélaganna gengu á fund ríkisstjómarinnar í gær
einkum til þess að ræða atvinnu- og vaxtamál og sagði Davíð að
ríkisstjórnin væri tilbúin til þess að setja á Iaggirnar samstarfshóp
til þess að fara yfir stöðu atvinnumála.
Davíð sagði að til fundarins hefði
verið boðað að ósk aðila vinnumark-
aðarins fyrir milligöngu sáttasemj-
ara, einkum til að ræða vaxtamál
og atvinnumál og stöðu þeirra og
þá vinnu sem nefnd vinnuveitenda
og Alþýðusambands hefði lagt
fram. Davíð sagði að farið hefði
verið yfir málin. Það væri ljóst að
ríkisstjómin hefði miklar áhyggjur
af þróun atvinnumála eins og þess-
ir aðilar, þar sem atvinnuleysistölur
í mars og apríl hefðu verið með
öðrum hætti en áður. Atvinnuleysi
hefði haldið áfram að vaxa í þessum
mánuðum en ekki minnkað eins og
venja stæði til.
„Þetta er málefni sem menn
þurfa mjög að athuga. Við hins
vegar teljum að lækkun vaxta í
kjölfar samninga og samningarnir
sjálfir muni hvort tveggja verða til
þess fallið að styrkja stöðu atvinnu-
lifs og þar með að auka öryggi um
atvinnu þegar til lengri tíma er
horft, en jafnframt erum við tilbún-
ir til þess að setja á laggirnar sam-
starfshóp með þessum aðilum til
þess að fara yfír þær hugmyndir
sem þeir hafa sett fram,“ sagði
Davíð. Aðspurður hvort erlendar
lántökur kæmu til greina til að
bæta atvinnuástandið sagði for-
sætisráðherra að íslendingar væru
nú þegar skuldugasta þjóð Vestur-
Evrópu og það væru því afar marg-
ir annmarkar á því svo ekki væri
meira sagt.
Sjá ennfremur bls. 2: Ræðst í
dag hvort samningur næst eða
skilur með okkur.