Morgunblaðið - 17.05.1992, Page 2

Morgunblaðið - 17.05.1992, Page 2
2 FRÉTTIR/IIVIIMLEIMT MOHGUNBUDID SUNNUDAGUK 17. MAI 1992 EFIMI V estmannaeyjar: Mannaskipti hjá Vinnslu- stöðinni hf. NOKKUR mannaskipti hafa orð- ið lyá Vinnslustöðinni hf. í Vest- mannaeyjum undanfarið. Guðmundur Karlsson útgerðar- stjóri og Viktor Helgason verk- smiðjustjóri hafa látið af störfum og aðrir menn verið ráðnir í þeirra stað. Eftir breytingarnar gegnir Haraldur Jónasson starfí útgerðarstjóra en Sigurður Frið- björnsson starfi verksmiðju- stjóra. Að sögn Sighvats Bjarnas- onar framkvæmdasljóra eru þessi mannaskipti hluti af nauð- synlegri hagræðingu og endur- skipulagningu hjá Vinnslustöð- inni. Vinnslustöðin hf. varð til um síð- ustu áramót við samruna Vinnslu- stöðvarinnar, Fiskimjölsverksmiðj- unnar, Fiskiðjunnar hf., Lifrarsam- lags Vestmannaeyja hf., Útgerðar- félagsins Knarrar hf. og Gunnars Ólafssonar & Co. Fyrir sameining- una var Guðmundur Karlsson fram- kvæmdastjóri Fiskiðjunnar en Vikt- or Helgason var framkvæmdastjóri Fiskimjölsverksmiðjunnar. Sighvatur Bjarnason fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar sagði í samtali við Morgunblaðið að þessi mannaskipti hefðu verið óhjákvæmileg í ljósi endurskipu- lagningar og hagræðingar í fyrir- tækinu. „Við erum að vinna okkur út úr þeim skuldum sem Vinnslu- stöðin tók á sig við sameininguna og er það ærið verk. Ég hef þó trú á því að við séum á réttri leið. Frá áramótum hafa bátamir okkar fiskað vel og einnig var loðnuvertíð- in okkur hagstæð,“ sagði Sighvat- ur. Bæjarblaðið Fréttir í Eyjum sagði frá því á fimmtudag að Haraldur Gíslason og Bjarni Sighvatsson færu af launaskrá Vinnslustöðvar- innar 1. júlí næstkomandi. Sighvat- ur sagði við Morgunblaðið að frétt- in ætti ekki við rök að styðjast. Bjarni væri stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar þar til annað yrði ákveðið og Haraldur, sem situr í stjórn fyrirtækisins, myndi gegna sérstökum verkefnum fyrir Vinnslustöðina. Sungið á ári söngsins Morgunblaðið/Þorkell Á leikskólanum við Langatanga í Mosfellsbæ var opið hús í gær og börn og foreldrar gerðu sér ýmislegt til skemmtunar. Meðal annars var efnt til fjöldasöngs í tilefni af ári söngsins og af myndinni að dæma fékk söngárið góða hyllingu. Kristján Ragnarsson um greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði: Ætti ekki að hafa nein þensluáhrif í för með sér Sjómannasambandið mótmælir aðgerðunum harðlega KRISTJÁN Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra út- vegsmanna, segist fagna þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að ætla að breyta lögum um Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins þannig að innstæðum á reikningum einstakra framleiðenda verði varið til greiðslu skulda þeirra. Hann segir þessar aðgerðir stuðla að meiri skilum í greininni, og þær ættu ekki að hafa nein þensluáhrif í för með sér. Sjómannasamband íslands mótmælir væntanlegri laga- breytingu harðlega, og telur að með lienni sé verið að taka hluta sjómanna í innistæðum Verðjöfíiunarsjóðs eignarnámi, og ráðstafa honum á annan veg en lög gera ráð fyrir. Samkvæmt frumvarpi ríkis- stjómarinnar eiga greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði fyrst og fremst að fara til þess að greiða gjaldfalln- ar afborganir og koma lánum í Hlutafjársj óður Byggðastofnunar: Hlutabréf í fyrir- tækjum auglýst 865 milljóna hlutafé boðið til sölu BYGGÐASTOFNUN hefur undirbúið sölu á hlutabréfum sem Hluta- fjársjóður stofnunarinnar hefur eignast á síðustu árum. I auglýs- ingu í Morgunblaðinu í dag tilkynnir Byggðastofnun hvaða hluta- bréf séu í eigu sjóðsins og.hve mikið hlutafé hún á í hverju fyrir- tæki. Alls er um að ræða 856,2 milljóna króna hlutafé í tólf fyrir- tækjum. Hlutabréfin sem um ræðir kom- ust í eigu sjóðsins vegna ýmissa krafna sem Byggðastofnun, ríkis- sjóður eða bankar áttu á hendur viðkomandi fyrirtækjum. Þegar fyrirtækin gátu ekki staðið í skilum með afborganir af lánum var kröf- unum breytt í hlutdeildarskírteini og síðar í hlutabréf sem Hlutafjár- sjóður Byggðastofnunar eignaðist. Nú er verið að undirbúa sölu þess- ara bréfa en samkvæmt lögum ber stofnuninni að falbjóða slík bréf eigi síðar en fjórum árum eftir að hún eignast þau. Guðmundur Malmquist forstjóri Byggðastofnunar sagði í samtali við Morgunblaðið að ef áhugi kæmi fram á hlutabréfum í einstökum félögum yrðu þau væntanlega aug- lýst sérstaklega til sölu með til- boðsfresti. Venja væri að selja slík hlutabréf aðeins í einu lagi eins og gert var með hlutafé stofnunar- innar í Hraðfrystihúsi Ólafsíjarðar og Fiskiðjunni Freyju, en einnig yrði að taka tillit til forkaupsréttar starfsmanna eða annarra hluthafa viðkomandi fyrirtækja. Guðmund- ur sagði að það kæmi þó til greina að selja bréfin í hlutum en um það yrði þá fjallað í hverju tilviki fyrir sig. Hlutafjársjóður auglýsir nú til sölu hlutabréf í Hraðfrystihúsi Grundarfjarðar, Odda á Patreks- firði, Fiskvinnslunni á Bíldudal, Útgerðarfélagi Bílddælinga, Hrað- frystihúsi Þórshafnar, Tanga á Vopnafirði, Gunnarstindi og Bú- landstindi á Stöðvarfírði, Árnesi á Stokkseyri, Meitlinum á Þorláks- höfn og Alpan á Eyrarbakka. Alls er um að ræða þriðjung af heildar- hlutafé allra fyrirtækjanna. skil, og sagði Kristján í samtali við Morgunblaðið að þetta hefði í för með sér verulega breytingu fyrir þá viðskiptaaðila sem sjávar- útvegurinn á mest viðskipti við. „Þetta mun stuðla að meiri skil- um og einnig bættum hag þeirra sem greinin skiptir við. Eg held að það sé ekki nein hætta á því að þetta hafí einhver þensluáhrif í för með sér, og ég ætla að vona að menn fari ekki að stofna til neinna nýrra fjárfestinga vegna þessa. Það þarf að gæta aðhalds í útlánum og öðru eftir að þessi aðgerð hefur verið gerð, og hún má alls ekki verða til að rýmka um í þeim efnum og auka á fjárfesting- ar. Þetta ætti að hjálpa mikið upp á, en hins vegar eru aflabrögðin með þeim ólíkindum að maður ótt- ast það mest að það sé eitthvað að gerast í náttúrunni sem við vit- um ekki og ráðum ekki við. Þorsk- veiði er með svo endemum léleg allt í kringum land, og menn segj- ast ekki minnast annars eins, og ef ekki rætist úr því þá skipta ein- hverjir 2,7 milljarðar ekki miklu máli þegar talað er um 95 millj- arða skuldir greinarinnar,“ sagði Kristján. Hann sagðist telja að þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar þýddu endalok núverandi verðjöfnunar- fyrirkomulags í sjávarútvegi, sem að hans mati samrýmdist ekki þeim breyttu aðstæðum sem felast í frjálsari verðmyndun, afnámi lág- marksverðs í verðlagsráði og til- komu uppboðsmarkaða. „Með þessum aðgerðum núna er að mínu mati verið að leggja þetta fyrirkomulag niður. Verð- jöfnunarsjóðurinn var endurskipu- lagður fyrir tæpum tveimur árum og ég held að reynslan af þessu hafi einfaldlega sýnt að þetta gengur ekki.“ 1 álýktun sem stjórn Sjómanna- sambands íslands sendi frá sér í gær kemur fram að Sjómannasam- bandið telji að með frumvarpinu um breytingar á lögum um Verð- jöfnunarsjóð sé verið að bijóta 67. grein stjórnarskrárinnar um frið- helgi eignarréttarins. Verði frum- varpið að lögum fái aðrir framleið- endur fiskafurða en sjómenn inni- stæður sínar greiddar úr sjóðnum, og hluti sjómanna verði hins vegar ekki færður þeim til tekna þegar verð á fiskafurðum lækkar. Harm- ar Sjómannasambandið að stjórn- völd skuli ætla að breyta markmið- um og forsendum sjóðsins með þessum hætti og skorar á þau að draga frumvarpið til baka. ♦ ♦ Sjálfstæðisflokkurinn: Fimdur um sjávar- átvegsmál ÞINGFLOKKUR Sjálfstæðis- flokksins og nefndarmenn flokksins í sjávarútvegsnefnd munu á fimmtudag halda sér- stakan fund um sjávarútvegsmál í Valhöll. Að sögn Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra verður almenn umræða á fund- inum um stöðu sjávarútvegsins og þau mál sem þar eru nú til umfjöllunar. Á fundinum mun Þorsteinn Páls- son flytja ávarp, Magnús Gunnars- son, formaður Samtaka atvinnu- rekenda í sjávarútvegi, gerir stutt- lega grein fyrir starfi nefndar um endurskoðun laga um stjórn fisk- veiða, og Björn Dagbjartsson, framkvæmdastjóri Þróunarsam- vinnustofnunar íslands, gerir grein fyrir starfi nefndar um bætta um- gengni um auðlindina. Að loknum framsöguerindum verða hringborðsumræður og munu framsögumenn svara fyrir- spurnum. A ►1-40 JMergmJ/fo&föt Konur íeinelti ►Færst hefur í vöxt að konur, sem lagðar eru í einelti af hálfu fyrrver- andi maka eða sambýlismanna, leiti ásjár hjá samtökum um kvennaathvarf. Margar þeirra hafa mátt þola ótrúlega skelfingu svo árum skiptir. Morgunblaðið ræddi við tvær konur sem orðið hafa fyrir ofsóknum fyrrum sam- býlismanna og fékk þær til að lýsa reynslu sinni./lO Ivica ► Undanfarna mánuði hefur heimsbyggðin glennt augun í fyrir- sagnir um blóðug átök á Balkan- skaganum, einkum í Króatíu og Bosníu-Herzegóvínu. Öllum er ljóst að þar eiga sér stað hrikaleg- ir atburðir. En hvers konar atburð- ir og hvers vegna? Iviéa er Króati sem hélt að ekkert illt myndi henda sig!/14 Enginn er spámaður... ►Rætt við Andrés Gunnarsson sem fyrstur manna kom fram með hugmyndina að skuttogara, en orð hans féllu í grýttan jarðveg. Þetta er sagan af draumaskipinu sem aldrei varð að veruleika./18 B HEIMILI/ FASTEIGNIR ► 1-32 Sjaldan verið auðveld- ara að kaupa íbúð ► Rætt við þrjá fasteignasala í Reykjavík./16 Saf nið sem tímavél ►Frá aldaöðli hefur söfnunar- hneigðin fylgt manninum og ólík- legustu hlutum er haldið til haga. Þannig hafa ýmis konar söfn verið sett á stofn, og með því að skoða þau geta menn komist í snertingu við fortíðina. Það má því líkja söfn- unum við tímavél, þar sem hægt er aðýara í ferðalag aftur í tím- ann. íslensk söfn taka nú í fyrsta skipti þátt í alþjóðadegi safna, sem ætlunin er að verði árlegur við- burður./l Fatlaðir eða sjúkling- ar? ►Vistmenn Kópavogshælis eru skilgreindir sem sjúklingar en ekki fatlaðir þar sem hælið er rekið sem sjúkrastofnun. Hætt er við að þeir fari á mis við þá þjónustu sem fötluðum stendur til boða, á sama tíma og tryggja á enn frekar rétt- indi fatlaðra í frumvarpi til nýrra laga um málefni fatlaðra./lO Svo í Cannes, sem á íslandi ►íslenskar kvikmyndir settu nokkurn svip á kvikmyndahátíðina frægu í Cannes að þess sinni enda blakti íslenski fáninn nú í fyrsta sinn við sýningahöllina. Þorfinnur Ómarsson skrifar frá hátíðinni og ræðir meðal annars við kvik- myndaleikarann góðkunna Micha- el Douglas. /14 ► FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Dægurtónlist 19c Leiðari 20 Fólk í fréttum 22c Hclgispjall 20 Myndasögur 24c Reykjavíkurbréf 20 Brids 24c Minningar 22 Stjörnuspá 24c íþróttir 34 Skák 24c Utvarp/sjónvarp 36 Bíó/dans 25c Gárur 39 Bréf til blaðsins 28c Mannlífsstr. 6c Velvakandi 28c Kvikmyndir 18c Samsafnið 30c INNLENDAR FRETTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4 ---- •

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.