Morgunblaðið - 17.05.1992, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1992
?rHH f/'.V. ' ;iTJUÁ|llU'J''r't^ nTn/j;;jvU,j>ÍO!v:
H
Sambýlismaóurinn fyrrverandi
hringdi, kom og hótaói líf láti
VIÐMÆLANDI Morgunblaðsins bjó með manni sem dæmdur hafði
verið fyrir alvarlegan glæp í átta ár og á með honum tvö börn.
Allan tímann sem þau bjuggu saman neytti hann eiturlyfja og
beitti hana grófu ofbeldi. Eftir að hún hafði slitið sambúðinni
ofsótti hann hana um tíma. Hann lagði ekki á hana hendur eftir
að sambúðinni lauk en hótaði henni líkamsmeiðingum. Hún seg-
ist telja að þegar manneskja hafi einu sinni verið beitt ofbeldi
sé hótun um beitingu þess ígildi ofbeldisverksins sjálfs. í dag býr
hún ein með börnunum sínum og hefur ekki orðið fyrir ónæði í
nokkra mánuði.
ar fólk geri lítið úr þeim ótta sem
konur sem lagðar séu í einelti búi
við en það sé því miður oft reyndin.
„Sjálf á ég afar góða fjölskyldu
og vini sem studdu mig í einu og
öliu þegar mest gekk á en það er
hins vegar því miður ekki reyndin
með allar þær sem lenda í þessu.
Fólk ætti að reyna að setja sig í
spor þessara kvenna áður en það
fellir dóma. Um leið og manneskja
hefur einu sinni verið beitt ofbeldi
er hótun um beitingu þess í raun
ígildi verksins sjálfs. Þessi mann-
eskja hefur séð hvað maðurinn
getur gert og veit að það er ástæða
til að taka fullt mark á hótun-
inni,“ segir hún.
Hún var sautján ára þeg-
ar þau kynntust og
átján ára þegar eldra
barn þeirra fæddist. í
sambúðinni sem varaði í átta ár
beitti hann miklu ofbeldi, líkam-
legu og andlegu. Hún sleit sam-
bandinu fyrir rúmlega ári.
„Þorði ekki ein út með börnin“
Maðurinn var á þessum tíma oft
að heiman og var í mikilli neyslu
vímuefna. „Eldra barnið mitt var
farið að spyrja ýmissa óþægilegra
spurninga og ég áttaði mig á að
þetta snérist ekki lengur bara um
mig. Það rak á eftir mér og eina
nóttina þegar ég beið með skjálfta
af ótta við að hann myndi birtast
tók ég ákvörðun um að koma mér
og bömunum út úr þessum aðstæð-
um,“ segir hún.
Hún segist ekki hafa þorað að
fara ein út með börnin af ótta við
að mæta manninum á leiðinni svo
hún fékk lögregluna til liðs við sig
og var fylgt á Kvennaathvarfið.
„Þar dvaldi ég í fjóra mánuði
þar sem ekki var hægt að koma
manninum út úr íbúðinni því við
höfðum verið skráð í sambúð. íbúð-
in var hins vegar á mínu nafni.“
Fyrir tilstilli lögfræðings kon-
unnar náðist loks að gera samning
við manninn um að fara út úr íbúð-
inni og hún flutti heim með börn-
in. „Eftir það byrjaði hann hins
vegar að hringja hvað eftir annað,
koma og hóta. Hann lagði aldrei
á mig hendur á þessum tíma en
þetta var hræðilegt. Stöðugur ótti,
allan sólarhringinn, alltaf. í raun
held ég að þennan ótta geti enginn
skilið nema sá sem einhvern tím-
ann hefur búið við ofbeldi,“ segir
hún.
Líflátshótun kærð
„Einn morguninn, nokkrum
mánuðum eftir að ég kom heim,
beið hann eftir mér þegar ég var
á leið til vinnu, settist inn í bílinn
hjá mér og hótaði að drepa mig.
I viku þurfti ég að fara í lögreglu-
fylgd í vinnuna og með börnin í
pössun. Hótunin var kærð en hann
neitaði svo„það var ekkert hægt
að gera í málinu.“
Eftir þetta leitaði konan aftur
til Kvennaathvarfsins og dvaldi þar
um tíma. „Lögfræðingurinn minn
náði hins vegar að gera samning
við manninn Um að ónáða mig
ekki, hvorki heima né í vinnunni.
Ef hann bryti það ætti hann von
á refsingu. Þetta virti hann og
hefur látið mig í friði undanfarna
mánuði,“ segir hún.
Áður en hún sneri heim í seinna
skiptið gerði hún jafnframt aðrar
ráðstafanir til að tryggja öryggi
sitt og barnanna. „Eg þorði ekki
heim fyrr en ég var líka búin að
fá mér öryggishnapp sem er tengd-
ur við aðalstöðvar Securitas. Ef
ég styð á hnappinn verður um leið
haft samband við lögregluna. Ég
hef aldrei þurft að nota hnappinn
en hann veitir mér hins vegar mikla
öryggistilfinningu,“ segir hún.
„Óafsakanlegt að gera lítið úr
óttanum“
Hún segir það óafsakanlegt þeg-
RÁÐGJÖF SÉRFRÆÐINGA UM
GARÐA-06 GRÓÐURRÆKT
ER MOSI í GRASFLÖTINNIÞINNI ?
JURTALYF GEGN PLÖNTUSJÚKDÓMUM,
SKORDÝRUM OG ÓÞRIFUM Á TRJÁM
HVAR OG HVERNIG Á AÐ NOTA
ÁBURÐ OG FRÆ
VIÐ ERUM MIÐSVftÐIS Á SMIÐJUVEGINUM1KÓPAVOGI - KOMIÐ VIÐ OG EEITIÐ UPPEVSINGA!
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
SMIÐJUVEGI 5. 200 KÓRAVOGUR. SÍMI 43211