Morgunblaðið - 17.05.1992, Síða 23

Morgunblaðið - 17.05.1992, Síða 23
ATVINNURAD- OG SMÁAUGLÝSINGAR i Frá Tónlistarskól- anum á Þórshöfn Laus er staða tónlistarkennara við Tónlistar- skólann á Þórshöfn veturinn 1992-1993. Starfsumsóknum er tilgreina m.a. menntun og fyrri störf skal skilað til formanns tón- skólanefndar, Líneyjar Sigurðardóttur, Háls- vegi 6, 680 Þórshöfn, fyrir 1. júní nk. Nánari upplýsingar í síma 96-81138. Tónlistarskólanefnd. Atvinnurekendur athugið! Atvinnumiðlun námsmanna hefur hafið starf- semi sína. Fjöldi námsmanna er á skrá með margvíslega menntun og starfsreynslu að baki. Skrifstofan er opin frá kl. 9-18 alla daga. Vanti ykkur starfskrafta í sumar, þá eru þeir hjá okkur! ATVINNUMIÐLUN NÁMSMANNA, Stúdentaheimilinuv/Hringbraut, símar 621080 og 621081. VINNUEFTIRLIT RIKISINS Administration of occupational safety and health Bíldshöfða 16 ■ Pósthólf 12220 • 132 Reykjavfk Vinnueftirlit ríkisins auglýsir laus til um- sóknar eftirtalin störf: Eftirlitsstarf á Suðurnesjum Starfið felst í eftirliti með aðbúnaði, hollustu- háttum og öryggi á vinnustöðum skv. lögum nr. 46/1980 ásamt fræðslustarfsemi. Það hentar jafnt konum sem körlum. Umsækjendur skulu hafa staðgóða grunn- menntun á tæknisviði. Önnur menntun ásamt starfsreynslu kemur þó til greina. Ennskukunnátta æskileg. Starfsaðstaða eft- irlitsmanns er á umdæmisskrifstofunni í Keflavík. Nánari upplýsingar veitir Gestur Friðjónsson umdæmisstjóri í síma 92-11002 eða aðal- skrifstofan í síma 91-672500. Eftirlitsstarf á Austurlandi Starfið felst í eftirliti með aðbúnaði, hollustu- háttum og öryggi á vinnustöðum skv. lögum nr. 46/1980 ásamt fræðslustarfsemi. Það hentar jafnt konum sem körlum. Umsækjendur skulu hafa staðgóða grunn- menntun á tæknisviði. Önnur menntun ásamt starfsreynslu kemur þó til greina. Starfsaðstaða eftirlitsmanns er á umdæmis- skrifstofunni á Egilsstöðum. Nánari upplýsingar um starfið veitir Skúli Magnússon umdæmisstjóri í síma 97-11636 eða aðalskrifstofan í síma 91-672500. Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknum ásamt upplýsing- um um menntun og fyrri störf skal skila til Vinnueftirlits ríkisins, Bíldshöfða 16, fyrir 14. júní 1992. Ræstingastjóri Stórt fyrirtæki í borginni óskar að ráða ræstingastjóra til starfa. Starfið er laust sam- kvæmt nánara samkomulagi. Leitað er að starfskrafti, sem er vanur verkstjórn, skipu- lagður og skilur mikilvægi þess að hrein- læti og þrif séu aðalsmerki hvers góðs fyrir- tækis. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu okkar til 24. maí nk. Guðni Tónsson RÁÐGJÖF & RAÐNl NCARNÓNUSTA TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 HAFNARFIRÐI Aðstoðarlæknir Staða aðstoðarlæknis frá 1. júlí 1992 á lyf- læknindadeild St. Jósefsspítala í Hafnarfirði er laus til umsóknar. Um er að ræða 28 rúma mjög virka lyflækn- ingadeild með bráðavakt fyrir Hafnarfjörð og nágrannabyggðir. Virk þátttaka í vísinda- störfum sjúkrahússins æskileg. Nánari upplýsingar hjá yfirlækni, lyflækninga- deild, í síma 50188. Framkvæmdastjóri. RÍKISSPÍTALAR Reyklaus vinnustaður BARNASPÍTALI HRINGSINS AÐSTOÐARLÆKNAR Lausar eru þrjár stöður 2. aðstoðarlæknis. Um er að ræða almenn störf aðstoðarlækna. Þátttaka í vöktum samkvæmt fyrirfram gerðri áætlun. Bundnar vaktir. Tvær stöður veitast frá 1. ágúst 1992 til 31. janúar 1993. Ein staða veitist frá 1. júlí 1992 til 31. desember 1992. Umsóknarfrestur er til 14. júní, 1992. Nánari upplýsingar gefur prófessor Víkingur H. Arnórsson í síma 601060. Umsóknir á eyðublöðum lækna, Ijósrit af prófskírteini, upplýsingar um starfsferil ásamt staðfest- ingu yfirmanna sendist forstöðulækni. RÍKISSPÍTALAR Rikisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf- semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og með, og leggjum megináherslu á þekkingu, kærleik og virðingu fyrir einstaklingn- um. Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiöarljósi. Snyrtivöruverslun Óskum eftir að ráða starfsstúlku í afleysing- ar á aldrinum 35-45 ára. Aðeins vön kemur til greina. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir föstudaginn 23. maí, merktar: „S - 0209“. Kennarar athugið Ein kennarastaða er laus við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar næsta vetur. Kennslugrein- ar: Samfélagsfræði og kennsla 6 ára barna. Ódýrt húsnæði og flutningsstyrkur. Upplýsingar gefur skólastjóri í vinnusíma 97-51224 eða heimasíma 97-51159. Leikskólinn Brekkukot óskar eftir starfsmanni í eldhús sem fyrst. Um er að ræða hálfsdagsstarf frá kl. 11-15. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Brynjúlfsdóttir, leikskólastjóri, ísíma 604359. m Landsbanki ÆÁ íslands Banki allra landsmanna Lausar stöður Vegna nýs skipulags á útibúum Landsbank- ans utan Reykjavíkur eru nýjar stöður um- dæmisútibússtjóra við útibú bankans á Akra- nesi, ísafirði, Akureyri, Eskifirði, Selfossi og Keflavík lausar til umsóknar. í framangreindum útibúum verður alhliða bankaþjónusta við einstaklinga og fyrirtæki í umdæminu. Umdæmisútibússtjóri hefur m.a. umsjón með og ábyrgð á starfsemi annarra útibúa í umdæminu gagnvart banka- stjórn. Hann er einnig tengiliður umdæmisins við bankastjórn og stoðdeildir bankans eftir atvikum. Metur eða leggur til ákvarðanir um lánveitingar til handa viðskiptavinum skv. sérstökum reglum þar um. Leitað er eftir starfsmönnum með víðtæka og góða bankamenntun og reynslu. Einnig er krafist góðra stjórnunarhæfileika og áhuga á að efla og leita að leiðum til bættra og aukinna viðskipta og sparnaðar, með hags- muni bankans og viðskiptavina að leiðar- Ijósi. Gerðar verða strangar kröfum um árangur í starfi. Gert er ráð fyrir tímabundinni ráðningu og samkomulagi um tilfærslu í starfi síðar. Kjör ákvarðast af bankaráði, eftir 19. gr. laga . nr. 86/1985 um viðskiptabanka. Umsóknarfrestur er til 30. maí 1992. Umsóknir sendist til Ara F. Guðmundsson- ar, framkvæmdastjóra starfsmannasviðs, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, Reykjavík er gefur nánari upplýsingar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.