Morgunblaðið - 17.05.1992, Síða 34

Morgunblaðið - 17.05.1992, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1992 KNATTSPYRNA Tvíburarnir efnilegu af Skaganum, Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir Hugsa eins og hafa sömu áhugamál Tvíburabræðurnir Arnar (t.v.) og Bjarki eru mjög samrýmdir og bundnir sterkum böndum. Þeir segjast oft vera að hugsa það sama og hafa ailtaf haft sömu áhugamál. Þeir byrjuðu að æfa knatt- spyrnu með ÍA 6 ára gaml- ir. Myndin var tekin í Grikklandi þar sem þeir léku í fyrsta sinn með landsliðinu skipað leik- mönnum 21 árs og yngri. TVÍBURABRÆÐURNIR af Skaganum, Arnar og Bjarki Gunnlaugssyni, eru af mörgum taldir á meðal efnilegustu knattspyrnumanna Islands. Þeir eru aðeins 19 ára en hafa þó öðlast töluverða leik- reynslu. Léku báðirfyrsta meistaraflokksjeik sinn með ÍA í3:1 sigri gegn ÍBK í 1. deild 1989, þá 16 ára gamlir. Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari, segir að bræðurnir hafi allt til að bera til að geta orðið knatt- spyrnumenn í allra fremstu röð. Bræðumir byijuðu að æfa knatt- spymu reglubundið hjá ÍA 1979, þá sex ára gamlir. „Við feng- um algjöra knatt- Eftir spyrnudellu á þess- ValB. um tíma. Reyndum Jónatansson komast yfir sem * mest efni sem tengdist knattspyrnunni og lágum yfir því. Pabbi hvatti okkur einnig til dáða og kenndi okkur mikið án þess þó að setja pressu á okkur. Hann var sjálfur í fótbolta á Akur- eyri þegar hann var ungur og þekkti því vel til íþróttarinnar,“ sagði Bjarki, sem er 15 mínútum yngri en Arnar. Banka á landsliðsdyrnar Þeir hafa leikið í öllum unglinga- » landsliðunum og eru nú í U-21 árs liðinu. Amar sagði að-þeir hafi þó liðið aðeins fyrir það að vera fædd- ir fyrir 1. ágúst, en skiptingin mið- ast við þá dagsetningu í unglinga- liðunum. Þeir eru þegar farnir að banka á A-landsliðsdyrnar. Arnar var tekinn inn í landsliðshópinn í Grikklandi í síðustu viku er Arnór Guðjohnsen forfallaðist á síðustu æfingu fyrir leikinn. Það verður sjálfsagt ekki langt að bíða að þeir verði orðnir fastamenn í landsliðinu ef svo heldur fram sem horfir. Þeir léku í fyrsta sinn með meist- araflokki ÍA í 3:1 sigri gegn ÍBK í 6. umferð í 1. deild 1989, þá 16 ára gamlir. Arnar var þá í byijun- arliðinu og sló í gegn, skoraði eitt mark og lagði upp hin tvö. Bjarki kom inná sem varamaður í sama leik og stóð sig vel. Síðan hafa þeir verið meira og minna fasta- menn í meistaraflokki. Maradona í uppáhaldi Bjarki sagði að til að byija með hafí þeir leikið saman með meist- araflokki í framlínunni. „Síðan var okkur stíað í sundur og ég færður á miðjuna. Við náum vel saman enda þekkjum við hvom annan út í gegn,“ sagði Bjarki. Þeir segja Diego Maradona uppáhaldsleik- manninn, en áður hafið það verið Argentínumaðurinn Mario Kempes. Bræðurnir stefna á að komast að í atvinnumennsku, en segja að rétti tíminn sé ekki kominn. Þeir létu ekki mikið fara fyrir sér í U-21 árs landsliðshópnum í Grikk- landi, virkuðu frekar hlédrægir og feimnir. Áhugamál þeirra fyrir utan knattspyrnuna er að hlusta á tón- list. „Við erum mjög samrýndir, höfum sömu áhugamál og rífumst sjaldan og þá aðallega inná vellin- um. Guðjón þjálfari hefur gaman að því þegar við erum að kýta. En það er allt í góðu og aldrei neinir . eftirmálar," sögðu þeir. Til marks um hvað þeir eru samrýndir hefur það oft komið fyrir að annar þeirra er að hugsa um ákveðið lag og þá fer hinn að raula það á sama tíma! Ásgeir þekkti þá ekki í sundur En eru margir sem rugla ykkur saman? „Jú, það er töluvert um það ÍA leikur nú aftur í 1. deild eftir árs veru í 2. deild. Liðinu hefur gengið mjög vel í æfingaleikjum og þeir eru margir sem spá liðinu einu af efstu sætunum. En hvað segja Bjarki og Arnar um það? Væntingarnar mega ekki vera óraunhæfar „Fyrsta takmarkið hjá okkur er að ná að halda sætinu í deildinni. Allt umfram það er plús. Annars er mikill hugur í öllum uppi á Skaga og þar eru raddir sem vilja að við vinnum tvöfalt. En við reynum að gera okkar besta og væntingarnar mega ekki vera óraunhæfar. Eg reikna með að það verði Reykjavík- urfélögin, KR, Fram og Valur og vonandi IA sem verða í toppbarátt- unni. Það er mikill fengur fyrir lið- ið að fá Sigurð Jónsson og gott fyrir íslenska knattspyrnu," sögðu þeir bræður sem eru við nám í Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akra- nesi. Það verður gaman að fylgjast með þeim í 1. deildinni í sumar. Bræðurnir eru leikmenn sem áhorf- endur koma til-að horfa á. Þeir eru leikmenn sem hafa yfir miklum hraða að ráða, eru útsjónarsamir og tæknin er á sínum stað. Arnar er miðheiji U-21 árs liðsins og Skagamanna. Bjarki leikur fýrir aftan bróður sinn, á miðjunni. til Aþenu og þegar þangað var kom- ið fékk hann bakþanka. Og til að fyrirbyggja allan misskilning hringdi hann á hótelið sem U-21 árs liðið bjó á og sagðist ekki vera viss við hvorn hann hafi talað, en það væri Arnar sem ætti að mæta í landsleikinn. Viðar Halldórsson, landsliðs- nefndarmaður KSÍ sem var með U-21 árs liðinu í Grikklandi, sagði meira í gamni en alvöru að það væri gott að vera með tvíbura í lið- inu sem væru svona líkir. „Við gætum notað 14 leikmenn í hveijum leik í stað 13. Það væri hægt að láta annan tvíburann spila fyrri hálfleikinn og hinn síðari hálfeikinn og skipt þó tveimur varamönnum inná. Það tæki örugglega enginn eftir þessu uppátæki í útileikjun- um.“ Hlupu 40 km aukalega Tvíburarnir hafa undirbúið sig mjög vel fyrir þetta keppnistímabil. Sem dæmi um það voru þeir á auka- æfingum í október og nóvember með Matthíasi Hallgrímssyni, fyrr- um markaskorara IA. Hlupu með honum 40 kílómetra á viku fyrir utan æfíngamar hjá liðinu. Þeir vita hvað þarf til að ná árangri og segjast aldrei hafa verið í betri æfingu en núna. og þá aðallega hjá þeim sem þekkja okkur ekki vel. Þetta er ekkert vandamál heima á Akranesi, en þetta hefur verið vandamál í U-21 árs liðinu. Ásgeir þjálfari hefur ver- ið í vandræðum með að vita hvor er hvað. Á fundinum fyrir leikinn í Grikklandi, sat ég öðru megin og Arnar hinu megin. Ásgeir talaði þá við mig sem Arnar og strákarnir leiðréttu það. Síðar á fundinum kom þetta sama fyrir er hann beindi orðunum til Arnars en þau áttu að vera til mín. Þetta var svolítð skond- ið,“ sagði Bjarki. Þegar Ásgeir Elíasson boðaði Arnar í A-landsliðshópinn eftir 21 árs leikinn var hann ekki viss um að hafa boðað réttan leikmann. Hann sagði við annan tvíburann — sem hann hélt vera Arnar — eftir leikinn í Naphilon að hann vildi fá hann í A-landsliðshópinn sem spil- aði daginn eftir. Síðan fór Ásgeir Arnar og Bjarki Fæddir: 6. mars 1973. Foreldrar: Gunnlaugur Sölvason og Halldóra Jóna Garðarsdóttir. Bræður: Garðar 9 ára og Rúnar 11 mánaða. Arnar: hefur leikið 20 leiki með ÍA í 1. deild og gert í þeim 4 mörk. Hann lék alla leiki liðsins í 2. deild í fyrra og var marka- hæstur í deildinni með 18 mörk. Hann hefur leikið 13 leiki með U-18, 7 með U-16 og einn með U-21. Bjarki: hefur leikið 13 leiki í 1. deild með ÍA og gert í þeim 2 mörk. Hann lék 13 .leiki með Iiðinu í 2. deild í fyrra og gerði 4 mörk. Hann heíur leikið 10 leiki U-18, 8 með U-16 og einn með U-21.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.