Morgunblaðið - 17.05.1992, Síða 39

Morgunblaðið - 17.05.1992, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJOIMVARP SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1992 39 9.00 Fram að hádegi með Þuríði Sigurðardóttur. íslenskt mál, hollustumál, heilbrigðismál, matar- gerð, neytendamál, stjörnuspeki o.fl. Opin lína i síma 626060. 12.00 Hitt og þetta i hádeginu. 13.00 Hjóiin snúast. 18.00 „íslandsdeildin". Leikin islensk óskalög hlut- senda. 19.00 Kvöldverðartónlist. 20.00 „Lunga unga fólksins". Umsjón Böðvar Bergsson. 21.00 Undir yfirborðinu. Umsjón Ingibjörg Gunnars- dóttir. 22.00 Blár mánudagur. Umsjón Pétur Tyrfingsson. STJARNAN FM 102,2 7.00 Morgunþáttur. Umsjón Ásgeir Páll. 9.00 Kristbjörg Jónsdóttir. 13.00 Ásgeir Péll. 17.00 Ólafur Haukur 19.05 Ævintýraferð í Odyssey. 19.35 Vinsældalisti, 20 efstu sætin. 20.35 Richard Perinchief prédikar. 21.05 Vinsældalistinn ... framhald. 22.05 Fræðsluþáttur um fjölskylduna. Umsjón: dr. James Dobson. 24.00 Dagskrárlok. Bænastund kl. 9.30,13.30,17.30, 22.46 og 23.50. Bænalínan er opin kl. 7.00 — 24.00 i sima 675320. BYLGJAN FM 98,9 7.00 Morgunutvarp Bylgjunnar. Eirikur Jónsson, Guðrún Þóra. Fréttir kl. 7 og 8. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30. 9.00 Rokk og rólegheit. Anna Björk Birgisdóttir. Hlustendalína er 671111. Fréttir kl. 9 og 12. Mannamá) kl. 10 og 11, fréttapakki í umsjón Steingrims Ólafssonar og Eiríks Jónssonar. Frétt- irkl. 12.00. 12.15 Sigurður Ragnarsson. Iþróttafréttir kl. 13.00. Mannamál kl. 14. Fréttir kl. 15. 16.00 Reykjavik siðdegis. Steingrimur Ólafsson. Mannamál kl. 16. Fréttir kl. 17 og 18. 18.05 Landssiminn. Bjarni Dagur Jónsson ræðir við hlustendur o.fl. 19.00 Flóamarkaður Bylgjunnar. 19.19 Fréttir. 20.00 Kristófer Helgason. Óskalög. 23.00 Kvöldsögur. Umsjón Bjarni Dagur Jónsson. 24.00 Næturvaktin. EFFEMM FM 95,7 7.00 i morgunsárið. Sverrir Hreiðarsson. 9.00 Morgunþáttur. Ágúst Héðinsson. 12.00 Hádegisfréttir. 12.10 Valdís Gunnarsdóttir. Tónlist og getraunir. 15.00 ívar Guðmundsson. Stafaruglið. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Gullsafnið. Ragnar Bjarnason. 19.00 Halldór Backman. Kvöldmatartónlistln. 22.00 Ragnar Már Vilhjálmsson. 1.05 Haraldur Jóhannsson, 5.00 Náttfari. HUÓÐBYLGJAN Akureyri FM 101,8 17.00-19.00 Pálmi Guðmundsson fylgir ykkur með góðri tónlist. Tekið á móti óskalögum og afmæl- iskveðjum i sima 27711. Fréttir frá fréttastofu Bylgjunnar/Stöð 2 kl. 18.00. SÓLiN FM 100,6 7.00 Venjulegur morgunþáttur. Umsjón Haraldur Kristjánsson. 9.00 Jóna de Groot. Fyrirtækjaleikur o.fl. 12.00 Karl Lúðvíksson. 16.00 Síðdegislestin. 19.00 Hvað er að gerast? 21.00 Hallgrimur Kristinsson. ÚTRÁS FM 97,7 16.00 Iðnskólinn i Reykjavik. 18.00 FB. 20.00 Kvennaskólinn. 22.00 i öftustu röð. Umsjón Ottó Geir Borg og ísak Jónsson. 1.00 Dagskrárlok. ISLAND A KROS SGÖTUM Texti: Hildur Friðriksdóttir/Mynd: Júlíus Sigurjónsson _ NÝ ÍSLENSK þáttaröð í fjórum hlutum, ísland á krossgötum, verð- ur sýnd á Stöð 2 næstu vikurnar, en fyrsti þátturinn er á dagskrá í kvöld, mánudag. Hans Kristján Arnason er umsjónarmaður og var hann fyrst spurður hvað fælist í orðunum, að fjallað yrði um „tekju- hlið“ þjóðfélagsins én ekki „gjaldahlið“ eins og fram kemur í kynn- ingu stöðvarinnar. „Annar þátturinn byggist mikið á þessum orðum, en hann heitir Atvinnulíf og nýsköpun. Það felst i því að í vetur hefur umræðan gengið út á samdrátt og niðurskurð vegna þess að við erum í efnahagslegri lægð. Enginn hefur hins vegar talað um það í þjóðfélaginu hvort eða hvernig við getum stækkað þessa köku. Við ætlum að horfa á jákvæðu hliðina og velta fyrir okkur hvaða nýsköpunarmöguleikar eru fyrir hendi og hvaða möguleika við höfum yfirleitt." Hans Kristján segir að þættirnir hafi verið í vinnslu undan- farna ijóra mánuði og að þeir bygg- ist á viðtölum við 30 íslendinga, sem búi hér á landi eða erlendis. Hann segir að ákveðið hefði verið að taka ekki viðtöl við þingmenn eða ráðherra, því að þeir „hafi nóg pláss í umræðunni“. Frekar hefði verið leitað að fólki sem margt ætti þátt í að taka ákvarðanir um framtíð íslendinga, þótt óbeint væri. „Flestir þessara einstaklinga eru sjálfstæðir og óháðir en ekki talsmenn samtaka eða flokka,“ sagði hann. „Við viljum kynnast þessu fólki betur og vita hyemig það hugsar. Meðal þeirra sem rætt er við er Davíð Scheving Thorsteinsson, Hörður Sigurgestsson, Gunnar Helgi Hálfdanarson, Werner Ras- musson, Guðrún Pétursdóttir, Súsanna Svavarsdóttir, Edda Helg- ason, Guðrún Agnarsdóttir, Magn- ús Gústavsson, Halla Linker, Ing- ólfur Skúlason og fjöldi annarra." Imynd lands og þjóðar Fyrsti þátturinn heitir ímynd lands og þjóðar og fjallar um ástandið á Islandi í dag. Við leggj- um fyrir fólkið spurningar um hvernig er að Vera Islendingur, hver er ímynd íslands, hvernig sjáum við okkur sjálf í samanburði við aðrar þjóðir, hvernig spegla fjöl- miðlar íslenskt þjóðfélag og hvem- ig sinna þeir því hlutverki að tengja saman ráðamenn og almenning og þannig mætti lengi telja. Margt af því sem kemur fram er áhugavert, fróðlegt og kannski orð í tíma töluð. Við íslendingar göngum með svo margar goðsagnir um það hver við erum. Stundum erum við full af mikilmennskubrjálæði, en stundum full af minnimáttarkennd, en oft sjáum við okkur sjálf ekki í réttu ljósi. Þegar búið er að klippa viðtöl- in saman og búa til samfellda heild er mjög skemmtilegt að sjá útkom- una, ef við notum þetta til að fram- lengja okkur sjálf. Þarna komu fram ýmsar áhugaverðar fullyrð- ingar og vangaveltur." — Eins og hveijar? „Tökum pólitíkina sem dæmi. Einn kaflinn í fyrsta þættinum Ijallar um hana en ekki á þann hátt að verið sé að kenna neinum um eða taka neinn fyrir, hvorki flokka né menn. Við höldum að við búum við mjög virkt lýðræði, en þegar nánar er skoðað gerum við skoðun, t.d. í sambandi við umfjöll- un um landið erlendis. Hvernig sýnið þið áhorfendum hvort hún á við rök að styðjast eða ekki? „Við gerum það ekki. Við förum mjög óvenjulega leið, sem hefur ekki verið farin í sjónvarpi áður. Við tókum löng viðtöl við fólkið, 45 klukkustundir í allt, og klipptum þau niður í 2'h klukkustund. Þætt- irnir byggjast á viðtalsbútum, sem taka frá 'h upp í 3 mínútur og því liggur óhemju mikil vinna við klipp- ingar. Allar myndimar eru teknar á sama stað í stúdíói og eingöngu eru teknar nærmyndir af andliti. Áhorfendur geta þannig horft í augun á fólkinu, séð svipbrigðin og þeir hlusta. Uppistaðan í þættin- um er það sem fólkið er að segja og einmitt þess vegna hefur ekki Hans Kristján Árnason segir að í þættinum séu íslendingar krufn- ir inn að beini af löndum sínum. „Við erum að reyna að opna umræðu í þjóðfé- laginu og varpa nýju Ijósi á málefnin," segir Hans Kristján Arnason umsjónarmaður nýrra sjónvarpsþátta það á margan hátt ekki. Einn við- mælandanna heldur því fram og styður með mjög eftirtektarverðum rökum, að stjórnmálakerfið hér sé handónýtt. Það gagnist engum og kjósendur fái engu að ráða. Einnig stqndum við í þeirri trú, að ísland sé mikið í umræðunni erlendis. Ef eitthvað gerist hér á landi þá höldum við bókstaflega að heimurinn standi á öndinni, en raunveruleikinn er hins vegar alveg andstæðan.“ Óvenjuleg leið í þáttagerð — Nú hefur þetta fólk ákveðna verið lögð áhersla á að mynd- skreyta þá. — Reynir þetta einhæfa form ekki svolítið á áhorfendur? „Hver þáttur skiptist í 5-6 kafla og ég er með smá inngang með hveijum þeirra, sem brýtur þáttinn aðeins upp. Við vonum að þetta veki það mikinn áhuga að efnið verði vel þegið. Ég held að þetta sé fyrsta þátta- gerðin sem kryfur landann svolítið inn að beini. Þetta er ekki fræði- lega gert, heldur er þetta sjónar- mið mitt. sem spytjanda. Eg er ekki sérfræðingur, en ég velti þessu hins vegar fyrir mér sem áhuga- maður. Þetta er bara fólk að spjalla saman og það gefur fyrir bragðið kannski alveg nýja mynd af Islend- ingum. Ég held jafnvel að myndin eigi eftir að stuða marga, því þarna eru margar ögrandi fullyrðingar, sagð- ar af sannfæringu viðkomandi um það hveijir við erum og hvernig við Htum á okkur.“ Cárar eftir Elíttu Pálmadóttur Leyst var festí } skaparans nafni ýtt var út opnu skipi er leyst var festi ...sagði Jakob Thorarensen. Ný- lega fór í skapið á Gáruskrifara að finna hvergi í kortaflóðinu í bókabúðum póstkort af fiski eða fiskveiðum. Þótti það vond nýt- ing til landkynningar. Vakti um leið athygli á feimni kvikmynda- gerðarfólks við þennan stóra þátt í okkar tilveru. En nú er þar leyst festi og ýtt út skipi. Auk þess sem éina „skáldaða" kvikmyndin okkar í fiski, Ingaló í grænum sjó, er að spóka sig suður í Cannes, innan um öll fín- heitin í kvikmyndabransanum. Það er myndarlegt skipið sem ýtti var úr vör um sl. helgi, Ver- stöðin ísland. Sýnilega var vel þegið boð að- standenda hennar á fríar sýningar nokkra daga í Háskólabíói. Þetta er líka mynd eða fjögurra mynda flokkur sem enginn ís- lendingur ætti að láta fram hjá sér fara. Eflaust hafa íslenskir út- gerðarmenn verið búnir að sjá hve nútímafólk veit lítið um þetta makalausa ævintýri sem þróun fiskveiða á íslandi er, frá ára- bátaöld og fram til nútíma tæknivæddra veiða, og því látið festa þá sögu á filmu - mynd- mál okkar daga. Þessi saga öll tekur raunar varla yfír tvöfaldan líftíma LÍÚ eða aðeins aftur til síðustu aldamóta. LÍÚ-menn höfðu vit á að gefa kvikmynda- gerðarmönnunum fíjálsar hend- ur og Erlendur Sveinsson hefur verið útsjónarsamur og fundvís á heimildir og gögn, sem ekki liggja á lausu í lifandi myndum. Jafnvel um síðustu aldamót var lítið um ljósmyndir, aðrar en uppstilltar mannamyndir. Sem dærni má nefna að 1897 hjóst hið glæsilega, nýja spítalaskip Frakka, Sankti Páll, á klöppun- um neðan við Klapparstíginn í Reykjavík í 4 tíma í vitlausu veðri. Allir Reykvíkingarnir 4.000 horfðu á. Enginn tók mynd. Það var ekki fyrr en franski læknirinn komst í land er lægði að eina myndin af at- burðinum var tekin. Olíkt höf- umst við að. Erlendur tekur þann kost að setja á svið það sem í vantar og Sigurður Sverrir fílm- ar það, sem tekst ákaflega vel. Það er fróðlegt að sjá þarna í samrennandi sjónhendingum hve brigðull er sjávarafli við ís- land. Og við að hafa alla mynd- ina, skynjar maður líka að ekki höfum við dregið úr þeim óskapa sveiflum heldur aukið á þær. Alltaf brugðist við þegar ósköpin voru dunin yfír og þá jafnan af alkunnum fítonskrafti, svo sveiflurnar hafa risið hátt og fallið í djúpa dali. Við byggðum upp allan flotann í stökkum, þvisvar sinnum á öldinni. Ekki er hún síld ein duttlungafull eins og Donna kerlingin mobile held- ur allur okkar sjávarafli og að- stæður til fanga. Viðbrögðin í stíl við það. Það er fjörugur dans með trukki og rykkjum í verstöð- inni íslandi, sem við blasir þegar horft er á sögu fískveiða við ís- land frá aldamótum. Og veiðida- man fylgir fískherranum vel eft- ir í trylltum dansi. Bregst hik- laust við fyrirvaralausum sveifl- um og rykkjum. í rauninni er þetta makalaus dans. Breyting- amar á flota og veiðiaðferðum ótrúlegar, jafnvel þær sem mað- ur hefur upplifað. Röskleiki og dugnaður íslendinga, ekki aðeins að lifa þetta af heldur byggja upp, ríður ekki við einteyming. Vekur aðdáun — með bægsla- ganginum og rykkjunum. Þetta er mynd sem hveijum íslendingi ber eiginlega skylda til að sjá, ef hann ætlar að botna hætis hót í lífínu á þessari eyju okkar. Og það á stóm kvikmyndatjaldi. Á litlum sjónvarpsskermi verður hún eins og listaverk á frímerki. Eftir árangurslausu leitina að póstkorti með físki eða fískveið- um og fylgjandi kvörtun, lágu hér við heimkomu nokkur bréf með heilmörgum slíkum póst- kortum. Þar má sjá að póstkorta- framleiðendur virðast ekki hafa sofíð á verðinum. Nú á ég því mikið úrval af slíkum kortum frá Sólarfilmu, stórfallegar myndir eftir Hrafn Hafnfjörð og prýðis- myndir frá Litbrá. Get sent öllum vinum póstkort frá fiskveiðistöð- inni íslandi á næstunni. En hvað með alla hina sem vilja senda slík kort, ef þau fínnast ekki á grindum kortasalanna? Ekki freistar útlendinga það sem ekki blasir við þeim. Mér skilst að mörg þessara fískibæjakorta fá- ist helst á viðkomandi stað, en ekki í Reykjavík. Segja megi að menn verði að fara til Hólmavík- ur til að fá Hólmavíkurkort. Markaðurinn hafi ekki meðtekið að verstöðin ísland er engu síður merkileg en skógur og fossar. í póstkortaútgáfuna hafi hlaupið ofvöxur á undanförnum árum með fjölgun útgefenda. Slíkt leiði til öfframboðs á „vinsælum" kortum og vöntunar á þeim sem minna seljast á sölustöðum. Kannski gætir þarna sömu sveif- lanna eins og í fiskiveiðum okkar og allri annarri viðleitni. Alla vegana virðist vera uppsveifla í mati á kynningu á fiskveiðum okkar á kvikmyndum og mynd- um. Ps: Úr því brotin er sú regla að Gárur séu ekki framhaldsþáttur, má kannski minnast á mikil við- brögð við síðasta pistli um „ráð- deildarrefsingu", eins og einn af mörgum hringjendum vill kalla nýjan skatt á venjulegt sparifé. I símanum var aldeilis ekkert eignafólk, heldur allt frá verka- manni og sjómanni í 50 ár og til venjulegs gamals áhyggjufulls launafólks, sem þótti öryggi í að spara og eiga svolítinn varasjóð. Einmitt þessvegna var þetta fólk svo spælt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.