Morgunblaðið - 06.06.1992, Qupperneq 1
64 SIÐUR B/LESBOK
127. tbl. 80. árg. LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1992 Prentsraiðja Morgunblaðsins
Reuter
Ólympíueldurinn tendraður
Ólympíueldurinn var kveiktur í gær við hátíðlega
athöfn í Ólympíu í Grikklandi. Leikkona í hlutverki
hofgyðju lagði þá ólympíukyndilinn á kúptan spegil
og eldurinn var þannig kveiktur með geislum sólar.
Athöfnin fór fram við altari Seifs, æðsta Ólymps-
guðsins í forngrískri goðafræði. „Guð sólar og ljóss,
sendu geisla þína til að tendra hinn helga eld. Láttu
vinaborgina Barcelona endurkasta ljósi friðarins um
gjörvalla heimsbyggðina," sagði hofgyðjan er hún
lagði kyndilinn að speglinum. Hún fór síðan með
eldinn að ólympíuleikvanginum foma, þar sem fyrstu
ólympíuleikarnir voru haldnir árið 776 fyrir Krist.
Þar tók grískur sleggjukastari við eldinum, fyrstur
367 íþróttamanna sem skiptast á um að hlaupa með
eldinn til Akrópólis í Aþenu. Þangað kemur eldurinn
á sunnudag og þá verður hann fluttur með spænsku
freigátunni Cataluna til forngríska hafnarbæjarins
Empurias, norðan við Barcelona. Um 9.000 manns
halda síðan á ólympíueldinum um Spán og leiðin sem
verður farin er um 5.940 km. Ólympíuleikarnir hefj-
ast 25. júlí.
Fundur Helmuts Kohls og Johns Majors:
Vilja flýta viðræðum um
aðild EFTA-ríkja að EB
Bonn, Kaupmannahöfn, Lissabon. Reuter.
Refsiaðgerðir SÞ hafa æ meiri áhrif í Serbíu:
Líkur á efnahags-
hruni eftir mánuð
Belgrad. Reuter.
SIÐUSTU, júgóslavnesku sambandshermennirnir fóru í gær frá
búðum sínum í Sarajevo, höfuðborg Bosníu-Herzegovínu, undir eftir-
liti Sameinuðu þjóðanna. Árásir bosnískra Serba á borgina eru samt
jafn miklar og áður og virðist friður hvergi vera í augsýn. Refsiað-
gerðir Sameinuðu þjóðanna leggjast æ þyngra á daglegt líf í Serbíu
og Svartfjallalandi og kröfur um afsögn Slobodans Milosevics, for-
seta Serbíu, verða háværari. Bensín er víða þrotið og yfirvofandi
er skortur á pappir í verðbólgna peningaseðlana.
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, og Helmut Kohl,
kanslari Þýskalands, hvöttu í
gær Evrópubandalagið (EB) til
að flýta samningaviðræðum við
þau aðildarríki Fríverslunar-
bandalags Evrópu (EFTA) sem
hafa óskað eftir aðild að EB.
Þeir sögðu að viðræðurnar
þyrftu að hefjást í byijun næsta
árs.
Major og Kohl ræddust við í þijár
klukkustundir í Bonn í gær. í yfir-
lýsingu leiðtoganna að fundinum
loknum fögnuðu þeir niðurstöðu
fundar utanríkisráðherra EB í Ósló
á miðvikudag um framtíð banda-
lagsins. Utanríkisráðherrar 11 að-
ildarríkja af 12 ákváðu þá að beita
sér fyrir því að þjóðþing landanna
staðfestu Maastricht-samkomulag-
ið um aukna samvinnu bandalags-
ríkjanna fyrir árslok þótt Danir
hefðu hafnað því í þjóðaratkvæða-
greiðslu á þriðjudag.
Fjögur EFTA-ríki, Austurríki,
Finnland, Svíþjóð og Sviss, hafa
þegar sótt um aðild að EB og líkur
eru á að. Noregur geri það einnig
í haust. Major og Kohl ákváðu að
beita sér fyrir því á leiðtogafundi
EB í Lissabon 26.-27. júní, að hraða
viðræðum við þessi ríki. Leiðtogam-
ir voru ennfremur sammála um að
engin þörf væri á sérstökum leið-
togafundi EB vegna úrslita þjóðar-
atkvæðagreiðslunnar í Danmörku.
Poul Schlúter, forsætisráðherra
Danmerkur, kvaðst í gær vona að
hægt yrði að finna lausn, sem gerði
Dönum kleift að vera áfram í Evr-
ópubandalaginu þótt þeir hefðu
hafnað Maastricht-samkomulaginu.
Samkvæmt áætlunum nefndar-
innar er stærð árganga þorsks eldri
en þriggja ára 520-640.000 tonn.
Þar af er hrygningarstofninn áætl-
aður á bilinu 72-110.000 tonn.
Leyfilegur hámarksafli kanad-
íska flotans í ár er 120 þúsund tonn,
þar af er gert ráð fyrir að strand-
„Við verðum að finna lausn sem er
í samræmi við úrslit þjóðaratkvæða-
greiðslunnar og tryggir einnig að
við höldum eins miklu og mögulegt
er af samvinnu EB-ríkjanna,“ sagði
hann. „Þetta er erfítt verkefni, en
vonandi ekki ómögulegt."
Sjá „Kjósendur gleymdust...“
á bls. 20.
veiðimenn geti veitt allt að 115
þúsund tonnum. í fyrra var heildar-
afli sem landað var í fískiþorpum
67 þúsund tonn. Frá því í febrúar
hafa allar togaraveiðar verið bann-
aðar innan kanadískrar lögsögu og
allt bendir til að því banni verði
haldið a.m.k. til loka þessa árs.
Samkomulag tókst um brott-
flutning síðustu 800 sambandsher-
mannanna og fjölskyldna þeirra frá
Tito-búðunum í Sarajevo en herinn
hefur heitið að hverfa alveg frá
Bosníu. Ekki er samt líklegt, að það
Pólverjar
fá nýjan
forsætis-
ráðherra
Varsjá. Reuter.
WALDEMAR Pawlak, leiðtogi
Pólska bændaflokksins, var
kjörinn forsætisráðherra Pól-
lands á þingi landsins í gær eft-
ir að það hafði vikið stjórn Jans
Olszewskis frá.
Lech Walesa forseti nefndi
Pawlak til embættisins og tilnefn-
ingin var samþykkt með miklum
meirihluta atkvæða, 261 gegn 149.
Pawlak fær nú það erfiða verkefni
að mynda lífvænlega stjórn og
tryggja henni stuðning sem flestra
flokkanna 29 sem eiga sæti á
pólska þinginu.
Pawlak er aðeins 32 ára að aldri
og lítt hefur borið á honum í pólsk-
um stjórnmálum til þessa. Hann
er fyrsti pólski forsætisráðherrann
sem aldrei hefur verið félagi í Sam-
stöðu frá því kommúnistar tnisstu
völdin í Póllandi árið 1989. Flokkur
hans, Pólski bændaflokkurinn,
hafði samstarf við kommúnista á
fjögurra áratuga valdatíma þeirra
en myndaði stjórn með Samstöðu
árið 1989.
Sjá „Walesa sakaður um ...“
á bls. 20.
Samkvæmt áætlunum í Kanada
er veiðanlegur hluti þorskstofnsins
á norðanverðum Miklabanka á bil-
inu 250-450.000 tonn sem þýðir
samkvæmt heimildum í Ottawa að
hæfilegt aflamark teljist 50-90.000
tonn. Hins vegar segja heimildar-
menn Morgunblaðsins að
hrygningarstofn upp á 72-110.000
tonn gefi ekki tilefni til neinna
veiða.
verði til að draga úr átökum í land-
inu því að Bosníu-Serbar eru vel
vopnum búnir og virðast ákveðnir
í að kljúfa það í sundur ogjgerast
jafnvel hluti af Stór-Serbíu. I fyrri-
nótt var sprengjuhríðin á hverfi
múslima í Sarajevo meiri en nokkru
sinni og hefur harðnað með degi
hverjum.
Refsiaðgerðirnar hafa æ meiri
áhrif í Serbíu og Svartfjallalandi
og er hafl eftir sérfræðingum, að
standi þær lengur en í mánuð muni
efnahagslífið hrynja. Flestar bens-
ínstöðvar í Belgrad og öðrum borg-
um voru lokaðar í gær, ýmist vegna
þess, að eldsneytið var uppurið eða
þeim hafði verið lokað til að koma
í veg fyrir mikið hamstur. Ferðum
strætisvagna hefur verið fækkað
og eiga því margir í erfíðleikum
með að komast leiðar sinnar, til
vinnu eða annarra erinda. Verð-
bólgan æðir áfram og er ekki talið,
að yfírvofandi skortur á pappír í
nýja peningaseðla muni breyta
neinu um það.
Erlendir stjórnarerindrekar í
Belgrad segja, að andrúmsloftið sé
farið að minna á umsátursástand
og óttist margir, að til beinnar hern-
aðaríhlutunar vestrænna ríkja komi
fyrr eða síðar. Af þeim sökum reyni
fólk að birgja sig upp af vistum og
vegna verðleysis dinarsins fjárfesti
þeir, sem það geta, í gulli og gim-
steinum.
Reuter
Kosið í Tékkó-
slóvakíu
Þingkosningamar í Tékkóslóv-
akíu hófust í gær og þeim lýk-
ur á hádegi í dag. Mikil kjör-
sókn var í gær enda eru kosn-
ingarnar mikilvægar þar sem
þær kunna að ráða úrslitum
um hvort Slóvakía segir skilið
við ríkið. Myndin var tekin er
Vaclav Havel, forseti Tékkó-
slóvakíu, greiddi atkvæði.
Sjá „Með fyrstu verk-
um ...“ á bls. 21.
Austurströnd Kanada:
Helmings samdráttur í þorsk-
veiðum talinn óhjákvæmilegur
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
NIÐURSTÖÐUR sameiginlegs fundar vísindamanna frá aðildarríkj-
um Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NAFO) staðfesta
hrun þorskstofnsins á norðanverðum Miklabanka undan Kanada.