Morgunblaðið - 06.06.1992, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 06.06.1992, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1992 Minning: Jóhann L Jóhannes- son, Sólheimum Fæddur 9. september 1903 Dáinn 26. maí 1992 í dag kveð ég afa minn, Jóhann Ingiberg Jóhannesson, fæddan á Þorbjargarstöðum í Laxárdal 9. september 1903, en alinn upp hjá afa sínum og ömmu á Saurbæ í Lýtingsstaðahreppi. Foreldrar hans voru hjónin Jóhanna Jóhannsdóttir og Jóhannes Sigvaldason. Afí var um eins árs er hann kom til afa síns og ömmu og bjó þar til ársins 1937. Afí átti þijú systkini, þau eru Valdimar, búsettur á elli- deild sjúkrahúss Sauðárkróks, Þur- íður, en hún lést síðastliðið sumar, Sigurveig, búsett í Reykjavík. Árið 1935 kvæntist afi ömmu minni, Helgu Lilju Gottskálksdóttur frá Bakka í Vallhóima, fæddri 18. mars 1908, en hún lést 22. júní 1989. Hún var dóttir hjónanna Guðlaugar Ámadóttur og Gott- skálks Egilssonar. Afí og amma byijuðu búskap á Saurbæ og voru þar i tvö ár, þá fluttu þau að Syðra-Vallholti í Seyluhreppi. Vorið 1938 flytjast þau að Sólheimum í Sæmundarhlíð til frænku Helgu, Ingibjargar, sem bjó þar ásamt tveimur dætram sín- um, þeim Ámýju, búsettri á Dalvík og nú seinni árin á Álftanesi, og Sigríði, búsett á Sólheimum en þar hafa þau búið alla tíð. Afí og amma eignuðust sex böm, en áður átti afi dótturina Gyðu, fædd 1. júlí 1929, ekkja í Kópavogi og á hún tvö böm og fímm barna- böm. Guðlaug, fædd 29. apríl 1936, búsett á Hrauni á Skaga, gift Rögn- valdi Steinssyni og eiga þau fjóra syni og einn sonarson. Ámi Sverr- ir, fæddur 24. janúar 1939, búsett- ur í Reykjavík, kvæntur Bryndísi Ármannsdóttur og eiga þau fímm böm og fímm bamaböm. Eymund- ur, fæddur 5. desember 1942, bú- settur í Árgerði í Sæmundarhlíð, kvæntur Margréti Kristjánsdóttur og eiga þau sjö böm en áður átti Margrét eina dóttur. Sigmar Jó- hann, fæddur 10. apríl 1947, bú- settur í Sólheimum í Sæmundarhlíð, kvæntur Helgu Sigurborgu Stef- ánsdóttur og eiga þau þijú böm. Ingibjörg Margrét, fædd 10. apríl t EGILL JÓNSSON, Bræðraborgarstíg 49, lést þriðjudaginn 3. júní. Fyrir hönd vina og vandamanna, Grímur Jónsson, Þórarinn Ólafsson. t Eiginmaöur minn, faðir, tengdafaðir og afi, VALDIMAR JÓNSSON frá Hallgilsstöðum, andaðist á hjúkrunarheimilinu Seli 3. júní. Guðbjörg Valdimarsdóttir og aðrir vandamenn. t Elskulegur eiginmaður minn, MAGNÚS EINARSSON, Lftlagerði 1, Hvolsvelii, lést í Landspítalanum fimmtudaginn 4. júní. Fyrir hönd aðstandenda, Ragnheiður Guðmundsdóttir. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og sonur, BJÖRN HJARTARSON útibússtjóri íslandsbanka, Laugavegi 105, lést að heimili sínu, Stallaseli 8, þann 4. júní. Sigriður Ármann, Sigbjörn Björnsson, Ragna J. Sigurðardóttir, Ásta Björnsdóttir, Guðni B. Guðnason, Pálína Björnsdóttir, Ásta L. Björnsdóttir. t Hjartkær eiginmaður minn, fáðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR GUÐMUNDSSON, Vfðigrund 25, Kópavogi, sem andaðist í Borgarspítalanum þann 30. mai sl., verður jarð- sunginn frá Kópavogskirkju míðvikudaginn 10. júní nk. kl. 13.30. Dagmar Clausen, Guðmundur Þórðarson, Margrét Linda Þórisdóttir, Þórður Þórðarson, Linda Leifsdóttir, Anna Marfa Þórðardóttir, Ragnar Jóhann Jónsson, barnabörn og barnabarnabarn. 1947, búsett í Reykjavík, gift Sig- urði Dalmanni Skarphéðinssyni og eiga þau tvö böm og eitt barna- bam. Gísli Gottskálk, fæddur 23. mars 1950, búsettur á Seltjamar- nesi, kvæntur Guðrúnu Svövu Bjömsdóttur og eiga þau þijú böm. Þrettan ára gamall fór afí í sínar fyrstu göngur og fór hann alltaf í undanreið sem tók sjö til átta daga. Þessar göngur fór hann í 22 ár eða á áranum 1916 til 1938. Afí átti marga góða hesta og lét hann sig sjaldan eða aldrei vanta á hestamannamót á Vallárbökkum og fyrstu árin á Vindheimamelum. Yfirleitt um helgar sem og aðra daga fór hann í útreiðar með félög- um sínum eins og við föram í bíltúr nú til dags. Þegar hann var ungur var oftast leitað til afa þegar þurfti að sækja lækni, ljósmóður eða lyf vegna þess hve góða og fótfráa hesta hann átti og hve hjálpsamur hann var. Afí hætti að stunda búskap árið 1979 með fé, en hross átti hann til dagsins í dag. Það var alltaf jafn gaman að koma í sveitina til afa og ömmu hvort heldur átti að stoppa yfír sumartíma eða bara í nokkra daga. Þegar ég var lítil gættu þau okkar frændsystkinanna á meðan foreldr- ar okkar vora úti við bústörfin, annaðhvort lásu þau eða sögðu okkur sögur frá því sem gerðist í gamla daga og vora þetta allt góð- ar og skemmtilegar sögur. Þegar afi kom heim úr kaupstaðarferð eða af hestamannamóti kom hann alltaf með eitthvað gott í poka annað- hvort vora það bijóstsykursmolar eða súkkulaðikallar og vora þeir í uppáhaldi hjá okkur krökkunum og þegar sumarheimsókninni var lokið stakk afí alltaf að mér peninga- seðli til að ég gæti keypt mér eitt- hvað á leiðinni heim. Ég minnist oft afa þar sem hann sat á bekknum sínum og las góðar bækur, yfirleitt vora þetta ævisögur og svo t.d. „Aldnir hafa orðið" og „Bóndi er bústólpi". Afí átti mikið og gott bókasafn og eftir að hann fluttists á ellideild sjúkrahúss Sauð- árkróks notaði hann bókasafnið þar mikið, en þar dvaldi hann síðustu fjögur árin og leið honum vel þar. Nú kveð ég afa minn og veit að Helga amma hefur tekið vel á móti honum. Við munum ávallt sakna þeirra, en góðar minningar eigum við og j>ær gleymast ekki en geym- ast vel. Guð blessi þau og varðveiti um ókomin ár. Helga Kristín og fjölskylda. Minning: Guðmundur Sigurðs son frá Katadal Fæddur 22. júní 1918 Dáinn 23. maí 1992 Afí minn Guðmundur Sigurðsson frá Katadal á Vatnsnesi fæddist á Ásbjamarstöðum 22. júní 1918. Hann flutti ásamt foreldram sínum og systur að Katadal árið 1922. Foreldrar afa vora þau Ingibjörg Guðmundsdóttir. fædd í Aðalbreið í Miðfirði, og Sigurður Jónsson frá Katadal. Systkini vora: Sigrún, fædd 26. apríl 1917, þá afí, fæddur 22. júní 1918, Steinunn, fædd 7. febrúar 1923 og dáin 5. janúar 1947, og yngstur Jón Gestur, fædd- ur 5. janúar 1928. Afi ólst upp og bjó lengst af í Katadal. Hann hóf þar búskap árið 1940 og kvæntist Ragnhildi Levý frá Ósum í október 1943. Eignuð- ust þau tvö böm, Ögn Levý og Sig- urð Inga. Ögn er búsett á Krossa- nesi í Vatnsnesi ásamt Benedikt Jóhannssyni frá Hvammstanga og bömum þeirra: Ragnhildi Guðrúnu, Gesti og Jóhanni Inga. Sigurður Ingi býr ásamt móður sinni, Ragnhildi Levý, að Saurbæ á Vatnsnesi. Á búskaparáram afa vann hann að því að rækta ng endurbæta jörð sína og reisti hann rafstöð til að framleiða rafmagn. Afí var mikill hestaáhugamaður og fékkst hann talsvert við tamn- ingar og umhirðu hesta. M.a. tamdi hann margan hestinn fyrir Láras Bjömsson frá Grímstungu í Vatns- dal. Eins hirti hann um Hindisvikur- hrossin til margra ára. Þótti afí alveg ótrúlega glöggur á hross, ef hann var einu sinni búinn að sjá hross þá þekkti hann það aftur. Afí hafði gaman af því að temja hesta sem vora öðram erfíðir og urðu þeir honum furðu fljótt þægir. Á æviáram afa átti hann ekki möig hross, en þau sem hann átti voru traust og góð. Að lokum vil ég þakka afa fyrir allt sem við höfum átt saman á liðn- um áram, alla reiðtúrana okkar, svo og allt annað gamalt og gott. Megi góður guð blessa ömmu, mömmu, frænda auk annarra að- standenda. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Með þessum orðum kveð ég góð- an afa sem sárt er að missa. Ég veit að þó hann sé horfínn sjónum okkar, þá mun hann fylgjast með okkur og varðveita og taka þátt í gleði okkar og sorgum. Ragnhildur Guðrún Benediktsdóttir. Sérfræóingar í blómaskreytingum vió öll tækifæri blómaverkstæði INNA^ Skólavörðustíg 12 á horm Bergstaðastrætis sími 19090 + Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts ÁSGEIRS PÉTURSSONAR. Starfsfólki sjúkradeildar Sunnuhlíðar er þökkuð góð hjúkrun og umönnun. Pétur Pétursson, Steinunn Pétursdóttir, Tryggvi Pétursson. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför eigínmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, VALGEIRS ELÍASSONAR, Miklaholti. Guðlaug Jónsdóttir, Gyða Valgeirsdóttir, Elín Rósa Valgeirsdóttir, Guðbjartur Alexandersson, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR VALNÝ HANNESDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 64, Reykjavik, lést á Vífilsstöðum 26. maí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum starfsfólki hjúkrunardeildar Vífilsstaðaspítala fyrir góða umönnun í veikindum hennar. Guðbjörn Guðmundsson, Kristín Sigurðardóttir, Steinar Guðmundsson, Ása Björk Sveinsdóttir, Ólafur Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.