Morgunblaðið - 06.06.1992, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.06.1992, Blaðsíða 4
V 4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1992 Samningur Húsnæðisstofnunar ríkisins við VÍB: Verðbréfafyrirtæki eru ósátt við vinnubrögðin VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI eru mjög ósátt við það að Húsnæðisstofn- un ríkisins skyldi gera samning við Verðbréfamarkað íslandsbanka um að annast útboð á skuldabréfum stofnunarinnar fyrir allt að 3 milljarðar króna án þess að leita eftir tilboðum þeirra. Slíkur samn- ingur þýði jafnvel hærri verð, lélegri dreifingu bréfanna og hærri kjör á skuldabréfunum. Auk þess sem kostnaður Hús- næðisstofnunar vegna útboðsins hefði að öllum líkindum verið lægri ef leitað hefði verið til verðbréfafyr- irtækjanna, segir Pálmi Sigmarsson framkvæmdastjóri hjá Handsali hættu á því að dreifíng bréfanna verði ekki eins góð. „Þar með getur ávöxtunarkrafa bréfanna verið hærri en annars. Forsendur um ákvörðun loka ávöxtunarkröfu liggja ekki fyrir og veikir því stöðu mála,“ segir Pálmi. Friðrik Jóhannsson forstjóri Fjár- festingarfélagins segir að eðlilegra hefði verið að Húsnæðisstofnun rík- isins hefði efnt til útboðs á meðal verðbréfafyrirtækja. „Fjárfestinga- félagið hefði tekið þátt í slíku út- boði,“ segir Friðrik. Gunnar Helgi Hálfdanarson for- stjóri Landsbréfa segir að ef Hús- næðisstofnun hefði boðið þetta verk út þá hefðu Landsbréf vissulega haft áhuga á því. „Þær skýringar sem Yngvi Öm Kristinsson, formað- ur stjómar Húsnæðisstofnunar, hefur gefíð eru ófullnægjandi. Fyrir tæplega hálfu ári kom fram að Húsnæðisstofnun hyggðist bjóða út þessi skuldabréf og stofnunin vissi af almennum áhuga verðbréfafyrir- tækjanna. Því var nægur tími til stefíiu og einnig er það einkennilegt að menn gefí sér forsendur um hvað verðbréfafyrirtækin kæmu til með að bjóða í verkefnið án þess að leita eftir því með formlegum hætti," segir Gunnar Helgi. Guðmundur Hauksson forstjóri Kaupþings segir útboð verðbréfa- fyrirtækjanna hingað til hafa verið mun smærri en umrætt útboð og því sé um mikla hagsmuni að ræða bæði fyrir verðbréfafyrirtækin og aðra sem málið snerti. „Það er synd til þess að vita að stjóm Húsnæðisstofíiunar sé nú að fara allt aðra leið en ríkissjóður hefur valið að gera. Þessa dagana er ríkissjóður með útboð á skulda- bréfum og öllum verðbréfafyrir- tækjunum er gefínn kostur á að bjóða í útboðið. Einnig er verið að afla tilboða í verkefni vegna einka- væðingar. Ég er sannfærður um að það mun leiða til farsælli lausn- ar en vinnubrögð Húsnæðisstofnun- ar,“ segir Guðmundur. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 6. JUNI YFIRLIT: Við strönd Grænlands vestur af Vestfjörðum er 992 mb lægð sem hreyfist fremur lítið en á milli Skotlands og Færeyja er 1033 mb hæð. SPÁ: Suðaustlæg átt, stinningskaldi en sums staðar allhvass eða hvass um tíma. Rigning og súld sunnanlands og vestan í fyrramálið og einnig Irtils háttar rigning norðaustanlands siðdegis en snýst þá í suðvestan- kalda með skúrum vestanlands. Hiti 6-17 stig, hlýjast norðaustan til. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Sunnanátt austanlands en suðvestan eða breytileg átt vestanlands. Skýjað um mest allt land, rign- ing og súld sunnanlands og austan, skúrir vestanlands en úrkomulrtið norðanlands. Hiti á bilinu 7 til 17 stig, hlýjast norðaustanlands. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. Heiðskirt Léttskýjað r r r * r * r r * r r r r r * r Rigning Siydda Hálfskýjað Skýjað Alskýjað V ^ ^ Skúrir Slydduél * * * * * * * * Snjókoma V B Sunnan, 4 vindstig. -Vindörin sýnir vindstefnu og flaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig y súid = Þoka j (Kl. 17.30 í gær) .. _ eru nu færtr, utan einstaka vegárkafiar sem lokaðir eru vegna aurbleytu, svo sem Þorskafjarðarheiði á Vestfjörð- um. Vegna aurbleytu eru sums staðar sérstakar öxulþungatakmarkanir á vegum á sunnanverðum Vestfjörðum og austan Þórshafnar á Norðaust- urlandi og eru þær tilgreindar með merkjum við viökomandi veg. Allir hólendisvegir landsins eru lokaðir vegna aurbleytu og snjóa. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA kl. 12.00 í gær Akureyri Reykjavfk hítí 16 9 UM HEIM að ísl. tíma voður skýjað úrkoma i grennd Bergen 24 Helsinki 24 Kaupmannahöfn 24 Narssarssuaq 3 Nuuk +2 Ósló 28 Stokkhólmur 25 Pórshöfn 11 Wttsfc^að léttskýjafl hálfskýjað elydda alskýjað léttskýjafl léttskýjað alskýjað Aígarve Amsterdam Barcelona Berlm Chicago Feneyjar Frankfurt Glasgow Hamborg London Los Angeles Lúxemborg Madrid Malaga MaRorea Montreal New York Oriando Parfs Madeira Róm Vin Washmgton Winnipeg 24 17 19 24 18 14 25 11 12 t9 26 24 13 19 22 24 léttskýjað skýjað léttskýjað léttskýjað vantar skýjað skýjað skýjað iéttskýjað rigning vantar rigning skwað lettskýjað léttskýjað vantar vantar vantar alskýjað léttskýjað skj^að skýjað vantar vairtar / 9° / / / V / / / DAG kl. 12.00 Veðurstofa i$fands (Byggt á veöurspá kl. 16.15 í gær) Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson Svo virðist sem Nökkvi frá Þverá og Baldvin Ari Guðlaugsson hafi gert út um keppnina í B-flokki gæðinga er þeir hlutu 8,99 stig í forkeppninni og virðist sem úrslitakeppnin sé nánast formsatriði fyrir þá kappa. Hvítasunnumót Fáks: Nökkvi frá Þverá með yfirburði í B-flokki GÆÐINGURINN Nökkvi frá Þverá er keppir fyrir hestamannafélag- ið Létti á Akureyri skaust í efsta sæti B-flokkskeppninnar á Hvíta- sunnumóti Fáks í gær með glæsilegri sýningu og er hann hlaut 8,99 I einkunn sem er sú hæsta sem gefín hefur verið í gæðingakeppni á þessu ári. Knapi á Nökkva var Baldvin Ari Guðlaugsson en hann var með annað hross, Hreyfingu, sem einn- ig náði inn í úrslit er hún varð í sjöunda sæti með 8,59, en átta hross fara í úrslit. Hin sex hrossin eru Prati með 8,76, knapi Alfreð Jörgensen, Oddur með 8,67, knapi Sigurbjöm Bárðarson, Muni frá Ketilsstöðum með 8,66, knapi Sveinbjöm Sævar Ragnarsson, Bijánn með 8,64, knapi Unnur Lísa Schram, Flassi með 8,61, knapi Sveinn Jónsson, og Kol- skeggur frá Ásmundarstöðum með 8,57, knapi Maríanna Gunn- arsdóttir. I bamaflokki varð efstur Guðm- ar Þór Pétursson á Kvisti frá Gerð- um með 8,92. Annar varð Sigfús Sigfússon á Skenki með 8,71, Lilja Jónsdóttir á Stimi með 8,65, Helgi Gíslason á Dropa með 8,50, Sigurður Halldórsson á Kardinála með 8,50, Erlendur Ingvarsson á Stjama með 8,35, Sandra Karls- dóttir á Júníor með 8,31 og Marta Jónsdóttir á Sóta með 8,26 í áttunda sæti. í dag fer fram forkeppni í A- flokki gæðinga og unglingaflokki og hefjast báðar keppnimar klukk- an níu en keppt er á tveimur völl- um samtímis. Yfírlitssýning kyn- bótahrossa hefst að því loknu klukkan 16.30 og forkeppni í tölti byijar klukkan átta en þar munu keppa 23 úrvalstöltarar og er sagt að um helmingur þeirra hafí náð yfír 90 stigum sem gerir þetta að sterkustu töltkeppni sem haldin hefur verið hérlendis. -----♦ ♦ 4----- A Avísunum var stolið frá ölgerð ÁVÍSUNUM og peningum var stolið úr flutningabíl ölgerðar á fímmtudag. Ávísanimar voru stilaðar á Gosan hf. og upphæð þeirra var á biiinu 100-200 þús- und krónur. Bfllinn stóð fyrir utan Laugarás- veg 2 skömmu fyrir kl. 14 á fímmtu- dag og var ólæstur. Farið var inn í hann bílstjóramegin og 4-5000 krónum stolið, auk ávísananna. Rannsóknarlögregla ríkisins fer með rannsókn málsins. Hundurimi Spori skot- inn á færi með riffli EIGANDI hunds úr Reykjavík hefur kært íbúa á Blönduósi fyrir að hafa skotið hundinn til bana. Eigandinn sá manninn stíga út úr bifreið í útjaöri bæjarins og skjóta tveimur skotum af riffli. Pálmi Gíslason sagði í samtali við Morgunblaðið, að hann hefði farið í stutta heimsókn á Blöndu- ós um síðustu helgi, ásamt syni sínum og sex ára sonardóttur. „Sonur minn tók með sér hundinn Spora, hreinræktaðan írskan setter. Við vorum að flytja dót úr bflnum mínum inn í hús aldr- aðra á Blönduósi, þegar Spori komst úr úr bflnum og hljóp í burtu, upp með Blöndu. Sonur minn fór skömmu síðar á eftir honum. Þegar hann gekk fyrir húshomið sá hann mann stíga út úr bifreið, um 2-300 metra í burtu. Maðurinn var með riffil, sem hann miðaði yfír götuna á Spora og hleypti af. Spori var á leið í átt að syni mínum. Hann reyndi að skríða áfram, en þá hleypti maðurinn af að nýju og banaði hundinum." Pálmi sagði að sonur hans hefði kallað til hans og þeir farið saman að bíl mannsins, sem var þá búinn að setja dýrið í aftur- sæti bifíreiðar sinnar. „Hann gaf þá skýringu að hundurinn hefði verið að andskotans í fénu hans, en ég gat nú ekkert fé séð þama nálægt og hundurinn var ekki laus nema í fáar mínútur." Pálmi sagði að aldrei hefðu verið nein vandræði vegna Spora, sem hefði verið einstaklega blíður og góður hundur. „Litla sonar- dóttir mín var óhuggandi eftir þennan atburð, gret alla nóttina og gat ekki um annað talað næstu daga,“ sagði hann. Lögreglan á Blönduósi stað- festi að kæra hefði borist þangað vegna þessa máls og það væri nú í rannsókn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.