Morgunblaðið - 06.06.1992, Síða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1992
Grafíkverkstæði
Myndlist______________
Bragi Ásgeirsson
Að Tryggvagötu 15, í sama
húsi og Myndlistaskóli Reykja-
víkur en á hominu Geirsgötu-
megin, hefur félagið íslenzk
grafík fengið inni fyrir væntan-
legt verkstæði. Á Listahátíð fer
fram kynning á húsnæðinu og
hinum grafíska miðli ásamt sitt-
hveiju af því ferli er tengist graf-
íkvinnu. Þessi kynning er óform-
leg að því leyti, að ekki er um
beina skipulagða sýningu að
ræða, heldur er fyrirhuguð starf-
semi kynnt ásamt hinum ýmsu
þrykkaðferðum á þann hátt sem
mögulegt er að svo komnu máli.
Verkstæðið er sem sagt í
burðarliðunum og á nokkuð í
land þar til hægt verður að hefja
starfsemina að marki, en stefnt
er að það verði á allra næstu
ámm. Ef allt fer að óskum verð-
ur jafnvel mögulegt að málm-
og steinþrykkverkstæðin verði
komin í gang á næsta ári.
Hér er um mjög mikilvægt
framtak að ræða, sem var fram-
tíðarsýn undirritaðs, er hann
setti upp grafíkverkstæði við
Myndlista- og handíðaskólann
árið 1960, því miður var róðurinn
erfíður því að skilningur á list-
grafík var ekki mikill hérlendis,
og er þá vægt til orða tekið.
Menn gerðu sér margir, og gera
jafnvel enn, ekki greinarmun á
listgrafík og t.d. eftirprentunum,
og hvað þá ekta handunninni
grafík og þeirri sem byggist í
einu og öllu á nútíma tækni-
vinnu, t.d. ljósmyndun, offset-
og tölvuvinnu. Að auki voru þeir
sem unnu að grafík fáliðaðir og
mátti jafnvel telja þá á fíngrum
annarrar handar auk þess að
þeir höfðu bágborna aðstöðu til
iðkunar listgreinarinnar.
Aðstaða til iðkunar listgrein-
arinnar var nefnilega engin
nema mjög takmörkuð innan
skólans og svo á frumstæðan
hátt í heimahúsum, en á síðari
árum hafa allnokkrir einkaaðilar
komið sér upp prýðilegri vinnu-
aðstöðu og á það einkum við um
málmgrafík, dúkskurð og tré-
ristu. Það hefur útheimt mikla
fórnfýsi og dugnað hjá viðkom-
andi og kemur aldrei í stað graf-
íkverkstæðis.
Það hefur og staðið framþróun
íslenzkrar grafíklistar fyrir þrif-
um að hér hefur ekki verið neitt
verkstæði, þar sem menn koma
og vinna hlið við hlið og læra
hver af öðrum. Kynna ýmsar
uppgötvanir sínar og aðferðir.
Tæknileg atriði. við útfærslu
grafíkmynda eiga alls ekki að
vera neitt hernaðarleyndarmál,
því að aðall listgreinarinnar er
hrein og tær útfærslan, þar sem
aðferðimar skína í gegn. Þannig
sér maður yfírleitt samstundis
hvaða aðferðir helstu meistarar
aldanna hafa notað, og þegar svo
er komið að það er ekki hægt
lengur, fínnst mörgum aðdáanda
listgreinarinnar, sem hún sé
komin á hnoð- og sullstigið.
í raun og veru er slíkt verk-
stæði lífsnauðsyn fyrir viðgang
og þroska listgreinarinnar hér-
lendis og er merkilegt hve menn
hafa náð langt án þess, — puð-
andi hver í sínu homi. Með til-
komu verkstæðisins opnast
möguleikar á því að bjóða heims-
þekktum erlendum fagmönnum
hingað t.d. hvað steinþrykkið
snertir, en sú aðferð er mjög
vandasöm og krefst margra ára
náms.
Slíka fagmenn væri hægt að
ráða tímabundið sem umsjónar-
og eftirlitsmenn, jafnframt því,
sem þeir leiðbeindu listamönn-
um. Sjálfír em þélr sjaldnast
listamenn, en hins vegar kunna
þeir skil á öllum tækniþáttum
handverksins.
í útlöndum em til sérstök
verkstæði sem menn geta leitað
til við þrykkingu mynda og fá
þá alla tæknilega aðstoð, en
koma sjálfir hvergi nærri nema
hvað hina listrænu útfærslu
snertir. Mjög ólíklegt er, að slíkt
verkstæði verði nokkum tímann
starfrækt á Islandi, því að naum-
ast er grundvöllur né þörf fyrir
það í jafn litlu þjóðfélagi. Verða
menn því áfram að leita til út-
landa og greiða háar upphæðir
fyrir verklega útfærslu mynda
sinna, en verkstæðið hér eykur
möguleikana á að minnka þann
kostnað vemlega og að auki
gera utanferðir síður nauðsyn-
legar.
En mikilsvert er, að menn
hugsi fyrst og síðast um að
bæta starfsaðstöðuna og gera
virkum listamönnum kleift að
vinna ótruflaðir og njóta sín inn-
an veggja húsnæðisins, en hugsa
sem minnst um aðra hliðarstarf-
semi.
Á veggjum verkstæðisins má
nú sjá allmikið af nýjum sem
eldri verkum ýmissa helstu núlif-
andi grafíklistamanna þjóðarinn-
ar, ásamt skýringum á vinnslu-
ferlinu, svo og nokkmm þrykk-
pressum, sem enn em ekki
komnar í gagnið, en hafa sumar
hveijar skilað mikilvægu híut-
verki m.a. steinþrykkpressu, sem
undirritaður setti upp í MHI fyr-
ir þijátíu ámm. Þeirri pressu
má aldrei farga og þegar menn
hafa fengið aðra og fullkomnari
ber henni staður á minjasafni
jafn markandi hlutverki og hún
hefur gegnt.
Ástæða er að hvetja sem flesta
að leggja leið sína á staðinn og
kynna sér þetta tímamótandi
framtak.
■ LEIKFÉLAG Patreksijarðar
sýnir barna- og íjölskylduleikritið
Állt í plati eftir Þröst Guðbjarts-
son í leikstjórn Harðar Torfason-
ar í Bæjarbíói, Hafnarfirði, laug-
ardaginn 6. júní kl. 14 og 17. Einn-
ig í Fjölbrautaskólanum Akra-
nesi mánudaginn 8. júní kl. 17.
Þetta er fjölskyldusýning þar sem
koma fram allar helstu persónur
úr þekktustu leikritum eftir Astrid
Lindgren, með Línu Langsokk í
■ OPNUÐ hefur verið í veitinga-
húsinu Hressó, sýning á ijósmynd-
um eftir Kristján Logason. Mynd-
imar, sem ýmist em svart/hvítar,
handmálaðar eða í lit, hefur Krist-
ján tekið á liðnum ámm. Kristján
var meðiimur í Ljósmyndaklúbbn-
um Hugmynd 81 og er nú meðlim-
ur í FÍA. A árunum 1989-90 starf-
aði Kristján sem blaðaijósmyndari
hjá dagblaðinu Degi á Ákureyri en
hefur undanfarið myndað fyrir
ýmis blöð, tímarit o.fl.
„flaggskipið"
4 dyra stallbakur • 131 eða 143 hestafla vél • 2000 DOHC
16 ventla eða V6 3000 vél • Tölvustýrð fjölinnspýting •
5 gíra beinskipting eða 4 þrepa tölvustýrð sjálfskipting •
Rafdrifnar rúður og samlæsing á hurðum • Hvarfakútur
Verð frá: 1.284.000,- kr. •
Aukabúnaður (t.d.): Topplúga: 48.000,- kr., álfelgur: 45.000,- kr.,
leðurinnrétting: 89.000,- kr., ABS bremsukerfi: 94.000,- kr.
0
HYunoni
...til framtíðar
0.0 0%
BIFREIÐAR &
LANDBUNfiÐRRVÉLAR HF.
Átmúla 13 • Snni: 68 12 00
Bcin lma: 3 12 36
2
*
CC
o